Vor hreina, baneitraða orka

Þessi stórfrétt birtist fyrst á mbl.is klukkan 13:49 í gær, mánudag. Hún kom í örmynd í fimmfréttum Ríkisútvarpsins en lengri umfjöllun var í kvöldfréttunum klukkan 18 (sjá tónspilara). Hvorug sjónvarpsstöðin var með fréttina í gærkvöldi.

Í tengslum við þessa frétt varð ég vör við, bæði á blogginu og í samtölum við fólk, að þetta kom á óvart. Þekking á jarðhita og jarðhitavirkjunum er ekki mjög almenn og því hefur orkufyrirtækjum, virkjanasinnum og stjórnvöldum reynst auðvelt að telja fólki trú um að jarðhitavirkjun sé hrein, endurnýjanleg og jafnvel sjálfbær - en ekki er minnst á hve mikið er virkjað, hve ágengt og hvernig. Þessi fullyrðing er alröng. Lítum á svolítinn fróðleik úr Veðurmolum Sigga storms sem ég klippti saman og birti hér á blogginu mínu í lok apríl sl.

Eins og þarna kemur fram skiptir máli hvort jarðhitinn er á lághita- eða háhitasvæði. Það sem ekki kemur fram er, að það skiptir líka máli í sambandi við efnamengunina hvort gufan er nýtt til að hita upp kalt vatn til húshitunar auk þess að framleiða rafmagn (Nesjavellir - jarðvarmavirkjun) eða hvort eingöngu er framleitt rafmagn í virkjuninni og efnamengaðri gufunni allri sleppt beint út í andrúmsloftið (Hellisheiðarvirkjun - jarðgufuvirkjun). Að auki er nýting jarðgufuvirkjana ekki nema um 12-13% og 87-88% orkunnar fer því til spillis. Það getur engan veginn talist forsvaranleg nýting á verðmætri orku. Ýmsum hugmyndum hefur verið hent á lofti til að nýta umframorkuna en engin orðið að veruleika ennþá.

En hvernig getur það gerst að gróðureyðing hjá jarðgufuvirkjun sé að koma upp núna? Var ekki framkvæmt mat á umhverfisáhrifum Hellisheiðarvirkjunar? Jú, vissulega, en eins og lög um mat á umhverfisáhrifum gera ráð fyrir er það framkvæmdaraðilinn sjálfur sem sér um matið og kostar það, og það er honum að sjálfsögðu mikið í mun að ekki komi neitt fram sem hindrað gæti framkvæmdina. Aðilar sem hann fær til liðs við sig gætu síðan fengið hluta af verkefnunum við framkvæmdirnar svo varla eru þeir hlutlausir heldur, eða hvað? Þetta er svo flókið ferli að það hálfa væri nóg. Svo er Skipulagsstofnun nú aðeins álitsgjafi, ekki úrskurðaraðili, svo þótt hún leggist gegn virkjun af umhverfisástæðum eins og raunin varð með Bitruvirkjun er sveitarfélagi/framkvæmdaraðila og öðrum sem að málinu koma í raun í sjálfsvald sett hvort virkjað er eða ekki.

Svo er það hraðinn - allt þarf að gerast svo hratt af því hitt eða þetta sveitarfélagið er búið að eyða svo miklum peningumHellisheiðarvirkjun í undirbúning sinnar draumaálverksmiðju að það má engan tíma missa í aukaatriði eins og mat á umhverfisáhrifum og slíka endaleysu. Hvað þá að bíða eftir að fram fari heildarmat á téðum umhverfisáhrifum eins og fyrir norðan. Þar er einmitt áætlað að reisa fleiri en eina - kannski fleiri en tvær jarðgufuvirkjanir til viðbótar við Kröflu. Það gæti hindrað áform þeirra ef í ljós kemur við heildstætt mat á umhverfisáhrifum að samlegðaráhrif eitrunar af völdum brennisteinsvetnis gæti deytt gróður og ógnað heilsu stórs hluta Þingeyinga. Annaðhvort gera menn sér ekki grein fyrir þessu eða þeim er alveg sama. Það liggur lífið á að skapa störf þar sem ekkert er atvinnuleysið og innflutt vinnuafl vinnur verkin.

Draumur nýja meirihlutans í Reykjavík er að virkja meira, setja Bitruvirkjun aftur á dagskrá. Óskar Bergsson og Hanna Birna kysstust upp á það þrátt fyrir afar neikvætt álit Skipulagsstofnunar á virkjuninni sem varð til þess að hætt var við hana í maí sl. Einnig á að reisa Hverahlíðarvirkjun sunnan þjóðvegar nr. 1 á Hellisheiði. Þá verða saman komnar á mjög litlu svæði þrjár jarðgufuvirkjanir og ein jarðvarmavirkjun sem allar spúa eiturefninu brennisteinsvetni yfir íbúa á suðvesturhorni landsins sem teljast vera um 200.000.

Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra, sem orðinn er einn helsti virkjana- og stóriðjusinni í ríkisstjórninni, ber sér á brjóst í bloggpistli og segir að í grein um jarðhita og umhverfisvernd sem muni birtast í Morgunblaðinu einhvern næstu daga komi fram að þeir hjá iðnaðarráðuneytinu séu alltaf á tánum... Þar er hann að tala um verkefni við rannsóknir á aðferðum til að ná brennisteini úr gufunni. Þessar aðferðir eru ennþá aðeins á tilraunastigi og kannski mörg herrans ár þar til þær verða að veruleika - ef nokkurn tíma. Á meðan er boruð hver holan á fætur annarri og Hengilssvæðið og Hellisheiðin orðin eins og gatasigti eða svissneskur ostur, gróður deyr sem hefur tekið 1000 ár að ná sér upp á ósléttu hrauni og heilsu 2/3 þjóðarinnar jafnvel stefnt í voða með sívaxandi efnamengun.

Þessi tafla birtist með grein í Fréttablaðinu 22. febrúar sl. Hér er mæling á brennisteinsvetni í andrúmsloftinu á einu mælingarstöðinni við Grensás um það leyti sem Hellisheiðarvirkjun var gangsett. Tekið skal fram að enginn mælir er annars staðar í borginni, enginn við virkjunina og enginn mælir í Hveragerði sem þó yrði aðeins í 4.600 metra fjarlægð frá suð-austustu borholu Bitruvirkjunar. Miklu nær en mælirinn á Grensás er Hellisheiðarvirkjun.

Brennisteinsvetni - Grensás - 2006

Í greininni  sem um er rætt segir: "Engin heilsuverndarmörk eru til fyrir almenning á Íslandi um brennisteinsvetnismengun og slík mengun er yfirleitt einungis metin á vinnustöðum. Mengunin í Reykjavík hefur þó margoft farið yfir erlend viðmið, til dæmis þau sem eru í Kaliforníuríki í Bandaríkjunum, og einnig yfir heilsuverndarmörk Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar." Finnst íbúum á höfuðborgarsvæðinu og Hvergerðingum þetta viðunandi? En Þingeyingum? Er fólk almennt sátt við að láta eitra fyrir sér, börnunum sínum og barnabörnunum?

Þetta er grafalvarlegt mál sem ég er búin að skrifa talsvert um. Ég nefni í því sambandi pistla eins og þennan, þennan og þennan. Ég nefni líka Spegilsviðtöl í tónspilaranum ofarlega vinstra megin á síðunni, t.d. við Þorstein Jóhannsson, sérfræðing hjá Umhverfisstofnun, Sigurð Þór Sigurðarson, lækni og sérfræðing í öndunar- og atvinnusjúkdómum og ekki síst Stefán Arnórsson, prófessor í jarðefnafræði. Hlustið á þessi viðtöl.

Að lokum ætla ég að setja inn grein sem birtist í Morgunblaðinu 14. ágúst sl. og er eftir Pálma Stefánsson, efnaverkfræðing. Pálmi er hér að fjalla um áhrif loftmengunar á heilsuna. Hugsið málið og takið afstöðu áður en það verður of seint.

Pálmi Stefánsson, efnaverkfræðingur

 

 

 


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Indriðason

Innlitskvitt og sammála.

Einar Indriðason, 9.9.2008 kl. 08:01

2 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Bara að benda á að ég hef m.a. heyrt Sigurð G Tómasson benda á eitt en varðandi mengun frá jarðorkuverum en það er kvikasilfur sem hann segir að nú þegar sé farið að menga Þingvallavatn og safnist fyrir m.a. í stórurriða þar. Þetta kvikasilfur berst í vatnið með afrennsli frá Nesvallavirkjun

Magnús Helgi Björgvinsson, 9.9.2008 kl. 09:25

3 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

eljan í þér...........takk fyrir það. Við almenningur erum illa upplýstir um þessi mál.  Einfaldlega af því að þessar upplýsingar liggja ekkert á glámbekk.

Hólmdís Hjartardóttir, 9.9.2008 kl. 10:04

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Takk.

Jenný Anna Baldursdóttir, 9.9.2008 kl. 10:21

5 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Takk fyrir samantektina, þú ert alveg ómissandi...

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 9.9.2008 kl. 11:46

6 Smámynd: Jens Sigurjónsson

Góður pistill hjá þér.

Jens Sigurjónsson, 9.9.2008 kl. 12:51

7 Smámynd: Óskar Þorkelsson

takk fyrir mig :)

Óskar Þorkelsson, 9.9.2008 kl. 16:06

8 Smámynd: Ragnheiður Ólafía Davíðsdóttir

Kærar þakkir, Lára mín, fyrir enn einn upplýsingapistilinn um umhverfismál sem skrifaður er á mannamáli. Ég er mun vísari um öll þessi mál eftir að þú byrjaðir að senda frá þér þessa frábæru pistla.

Ragnheiður Ólafía Davíðsdóttir, 9.9.2008 kl. 20:30

9 identicon

Takk kærlega!  Það er frábært að fylgjast með pistlunum þínum, ég vona að þú passir vel uppá að taka afrit af öllu þínu hérna því að þetta er mikil og vönduð vinna sem má ekki tapast ef eitthvað fer úrskeiðis .... eða þannig ... !  

Maddý (IP-tala skráð) 9.9.2008 kl. 21:36

10 Smámynd: Steingrímur Helgason

Ég ætla náttúrlega ekkert að drekkja þér í skrúðmælgi & hrózi, enda jenfólið búið að segja allt sem segja þarf, & sjaldan sem stundum aldrei, fljót að því.  En til að stytta hennar mál.

Tak

Steingrímur Helgason, 9.9.2008 kl. 22:49

11 Smámynd: Sigurður Hrellir

Takk fyrir stórfína samantekt. Maður nokkur sem starfar mikið á virkjanasvæðinu við Kolviðarhól sagði mér að brennisteinsvetnið hafi eyðilagt í sér allar tannfyllingar. Það þekkja flestir áhrif heita vatnsins á silfurborðbúnað en hefðbundnar tannfyllingar eru jú úr silfurblöndu.

Svo væri fróðlegt að heyra hvað olli dauða mannanna tveggja fyrir 3 vikum síðan. Hefur það verið kunngert?

Sigurður Hrellir, 10.9.2008 kl. 00:11

12 Smámynd: Haraldur Bjarnason

En...Lára Hanna!...fyrst þetta skrýmsli er komið þarna þá þarf það ekki að spúa þessum óþverra yfir gróður. Hvers vegna ekki að þétta gufuna (kostar einhverja peninga) og nýta hana sem heitt vatn til upphtiunar, til dæmis fyrir gróðurhús. (tómatar, gúrkur og allskonar grænmeti úr gróðurhúsum á Hellisheiði) Þetta er hægt og tiltölulega einföld leið, að mér skilst, þannig mætti koma í veg fyrir allar gróðurskemmdir, þótt líffræðingurinninn segi að háplöntur komi í stað mosa. Þetta er enginn dauðadómur en ef þetta verður svona áfram þá verður silfirið áfram svart í Norðlingaholti og tanngómar líka....og það er rosalegt...svo ég noti orð Hákonar vinar míns Aðalsteinssonar. - Bara setja Orkuveitunni skilyrði um að nýta orkuna alla. - Siggi, ég hef nú grun um að það hafi verið tungumálaerfiðleikar, eins og alltaf eru að verða í samskiptum þeirra sem bara tala sitt móðurmál, því miður.

Haraldur Bjarnason, 10.9.2008 kl. 02:03

13 Smámynd: Kjartan Pétur Sigurðsson

Svo er að sjá að íslendingar eru enn að slíta barnsskónum í framleiðslu á umhverfisvænni orku. En voru ekki annars einhver plön í gangi í því að reyna að vinna þessi aukaefni úr gufunni eitthvað áfram?

Kjartan Pétur Sigurðsson, 10.9.2008 kl. 06:19

14 identicon

Góð og gagnleg hugvekja. Manni verður enn ljósari skaðinn af dugleysi Bláskjás.

Rómverji (IP-tala skráð) 10.9.2008 kl. 10:04

15 Smámynd: Þröstur Unnar

Þú mátt alveg senda mér uppdeitið af myndbandinu aftur, týndi hinu.

Þröstur Unnar, 10.9.2008 kl. 10:39

16 identicon

Ég vil ÞIG í framboð. Svo einfalt er það. Skynsöm hugsjónarmanneskja eins og þú átt örugglega erindi inná þing.

Eggert Vébjörnsson (IP-tala skráð) 10.9.2008 kl. 12:20

17 identicon

Hæ aftur. Vildi gjarnan benda ykkur á þemaþráð á ljósmyndakeppni.is þar sem áhugafólk um ljósmyndum og íslenska náttúru er að setja inn myndir af þeim svæðum og náttúruperlum sem eru í hættu vegna núverandi og fyrirhugaðra virkjunaráforma.

Fallegir staðir í hættu vegna virkjana.

Eggert Vébjörnsson (IP-tala skráð) 10.9.2008 kl. 12:37

18 Smámynd: Geir Guðjónsson

Sæl Lára,

 af þessu tilefni væri viðeigandi að senda sveitarfélaginu Ölfus athugasemd vegna auglýsts deiliskipulags vegna Hverahlíðarvirkjunar. Þar mætti benda á að í ljósi þessara síðustu tíðinda sé full ástæða til að menn athugi betur sinn gang áður en þeir samþykkja meira af slíkum fabrikkum inn á skipulag síns sveitarfélags. Fresturinn rennur út 29 0kt. og svo kemur vitanlega í enda auglýsingarinnar hin óborganlega klásúla um að þeir sem ekki skila inn athugasemdum innan tilskilins tíma skoðist samþykkir skipulagsbreytingunni. Það er að öllum líkindum fengið úr gullkornabanka hins útsjónarsama Ólafs Áka Sveitarstjóra sem til að mynda færði okkur "Bráðabirgða framkvæmdaleyfið" og fékk Reykvíkinga til að fjármagna lýsingu Þrengslavegar og stígagerð vítt og breitt um Ölfus til að mynda. (Ég hefi ekkert á móti stígunum sem slíkum, nota þá sjálfur hér ofan við Hveragerði. Bara svolítið sérstakt í ljósi þess hver borgar---- OR=meðaljóninn/gunnan í Reykjavík !)

Kveðja,   Geir Guðjónsson

Geir Guðjónsson, 10.9.2008 kl. 15:32

19 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Mikið skelfing gladdist ég yfir niðurstöðum þessarar könnunar.  Algjörlega rétt tímasetning og plettskud fyrir mig sem hélt að línurnar lægu annars staðar.

Jenný Anna Baldursdóttir, 10.9.2008 kl. 23:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband