Einar Már og ástandið

Eins og allir vita sem fylgst hafa með atburðum síðasta ár hefur Einar Már Guðmundsson verið einn af aðalleikendum andófsins gegn gróðapungum, spillingu og því ástandi sem skapast hefur á Íslandi. Einar Már skrifaði meðal annars greinaflokk í Morgunblaðið í vetur og gaf síðan út bók byggða á greinunum - Hvítu bókina.

Ég er að lesa þessa bók eins og ég nefndi um daginn. Er langt komin með hana. Þetta er fjórða bókin sem ég les um Hrunið mikla. Hinar voru hver annarri fróðlegri og sú Hvíta gefur þeim ekkert eftir. Engu að síður er hún gjörólík þeim og vekur allt annars konar tilfinningar. Enda er Einar Már skáld og rithöfundur, mikill andans maður og hugsjóna, og bókin ber þess merki svo ekki verður um villst. Í fyrsta Morgunvaktarpistlinum minntist ég á hinar þrjár bækurnar og sagði þær skyldulesningu. Hvíta bókin gæti vel orðið mesta skyldulesningin af þeim öllum og ég hvet alla til að lesa hana. Líka þá sem hafa fengið upp í kok af hrunumræðunni. Hún er nefnilega góð fyrir sálina, þrátt fyrir allt. Á meðan við höfum svona þenkjandi áhrifamenn í samfélaginu - þá er von.

Einar Már flutti ræðu á útifundinum á Austurvelli á fimmtudaginn sem InDefence-hópurinn boðaði til að andæfa Icesave-samningnum. Umgjörð þess fundar var gjörólík öllum öðrum sem ég hef mætt á undanfarna 10 mánuði. Ríkmannlegt svið, sérlega vandað hljóðkerfi, skemmtiatriði og um margt annar mannskapur en áður. Þeirra á meðal ýmsir sem sjálfir bera mikla ábyrgð á efnahagshruninu með aðgerðum sínum og/eða aðgerðaleysi. Skoðið myndir Helga J. Haukssonar af fundargestum. Ég hef spurt sjálfa mig hvernig þessum mönnum leið undir þrumuræðu Einars Más - sem hann gaf mér leyfi til að birta. Og bestu þakkir til Helga fyrir að heimila birtingu á myndunum sínum. Hengi að auki neðst í færsluna Spegilsviðtal við Einar Má frá 13. ágúst.

Ræða Einars Más Guðmundssonar á Austurvelli 13. ágúst 2009

Sjálfgerðir fjötrar eru traustastir fjötra. Þannig orti Sigfús Daðason; og sú er staðan nú. Það var tekið veð í þjóðskránni án þess að þjóðin væri spurð og nú eigum við að viðurkenna veðið og játa á okkur glæpinn. Við erum að játa á okkur glæp sem við höfum ekki framið. Leyfið mér að vitna í Evu Joly: Einar Már á Austurvelli 13.8.09"Ísland þar sem eru einungis 320 þúsund íbúar sér nú fram á að þurfa að axla margra milljarða evra skuldabyrgði sem langstærstur hluti þjóðarinnar ber nákvæmlega enga ábyrgð á og ræður alls ekki við að greiða." Já, það er verið að hneppa okkur í ánauð. Icesave samningurinn er fyrsta stigið, skilyrði Alþjóðagjaldeyrissjóðsins er næsta stig og þannig koll af kolli, þar til einhverntíma í framtíðinni, þá fáum við afsökunarbeiðni á þeim mistökum sem verið er að gera núna ... en þá verður það of seint ... Þeir segja að við verðum Kúba norðursins ef við samþykkjum þetta ekki. En ættum við þá ekki að bæta því við: Við verðum Haítí norðursins ef við samþykkjum þetta. Þar var gengið að öllum kröfum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og nú ríkir þar hungursneyð. Á sunnudaginn var páfi að biðja fyrir Argentínumönnum vegna nákvæmlega sömu mála. Prógram Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hefur gert hálfa argentínsku þjóðina að fátæklingum. Þess vegna erum við komin hingað og þessu mótmælum við. Öll. Við eigum að játa á okkur glæp sem við höfum ekki framið. Við eigum að axla byrgðar hins alþjóðlega fjármálakerfis og verða Breiðavíkurdrengir þess. Í rauninni er þessi vandi ekki vandi þjóðarinnar heldur eigenda þessa einkavædda banka sem rakaði til sín fé í gegnum ICESAVE reikningana á sínum tíma. Okkar vandi er sá að stjórnvöld þessa lands og stjórnmálamenn vilja taka þennan vanda af eigendum bankans og færa hann yfir á okkur og ekki síst afkomendur okkar. Þetta getum við ekki samþykkt. Þessu mótmælum við öll.

Við ykkur í þinghúsinu segi ég: Hættið að bulla. Hættið að tala um vinaþjóðir, innistæðutryggingar, alþjóðasamfélag. Alþjóðasamfélagið er samfélag hinna ríku þjóða, innistæðutrygging þýðir þjóðnýting á tapi og vinaþjóðir er fróm ósk og gildir ekki yfirvöld og auðmagn. Svíar eru ekki Einar Már á Austurvelli 13.8.09óvinir okkar en sænska fjármálakerfið fjármagnaði bankakerfi Eystrasaltsríkjanna þegar þau voru markaðsvædd og rænd. Sænskt fjármálalíf horfir því á svipað hrun þessara banka og skilur því málflutning Gordons Brown jafn vel og hann sjálfur, nei ruglið þessu ekki við vináttu, en Gordon Brown er einn helsti hugmyndafræðingur fjármálakerfisins í City og reglur þess eða réttara sagt regluleysi varð leiðarljós hins íslenska fjármálakerfis. Í þessu samhengi skipta öll ykkar lögfræðiálit engu máli né heldur hvað mennirnir í samninganefndunum heita. Það ríkir fjármálastríð í heiminum þar sem úrsérgengið kerfi reynir að ræsa vélarnar og á því verkstæði moka stjórnvöld okkar kolum einsog óð væru. Einn vitrasti hagfræðingur heims segir: "Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn er nokkurs konar handrukkari alþjóðlegra lánardrottna og innheimtir tekjur ... fyrir þá. Það ótrúlega er að þjóðir um allan heim eru að glata efnahagslegu og peningalegu sjálfstæði sínu án mótspyrnu." Er það ekki nákvæmlega þetta sem við erum að gera með samþykkt ICESAVE-samningsins: Við erum að láta hneppa okkur í skuldafangelsi án minnstu mótspyrnu. Það er verið að gera okkur ábyrg fyrir fullkomlega ábyrgðarlausu fjármálakerfi, en áður var okkur sagt hið gagnstæða. Eigendur bankanna báru svo mikla ábyrgð. Þess vegna þurftu þeir himinhá laun og kaupauka. Sem sé; gróðinn skal einkavæddur en tapið þjóðnýtt. Ef við samþykkjum þetta er hægt að láta okkur samþykkja hvað sem er. Jafnvel í undirheimunum þætti þetta ókurteisi.

Það breytir í raun engu hvort ICESAVE - samningurinn er vondur eða góður. Hann er í eðli sínu rangur. Ríkisstjórnin verður að sýna okkur hverjar þessar eignir eru. Þetta erum við búin að segja lengi en nú kemur bandarískur bankasérfræðingur og segir nákvæmlega það sama. Bandaríski Einar Már á Austurvelli 13.8.09sérfræðingurinn veit einsog við að þegar lið kaupir knattspyrnumann vita forráðamenn þess hvernig hann er á sig kominn. Þeir undirrita ekki bara kaupsamning og síðan birtist feitasti maður í heimi og getur hvorki hlaupið né sparkað. Jafn misvísandi eru fregnirnar um eignir Landsbankans. Annars hefðu Bretar bara tekið þær en þeir vilja ekki taka þær. Þeir vilja taka okkur. Það eru svo góð veð í okkur. Þetta er bara hreint og klárt kennitöluflakk. Eigendur og stjórnendur Landsbankans eru með fullt af fyrirtækjum í rekstri og alls konar gjörninga í gangi. Þeir hafa valdið svo miklu tjóni með þessu fyrirtæki sínu að það á að ganga á önnur fyrirtæki þeirra og eigur. Það hefur enginn rétt á að setja þjóð á hausinn með þessum hætti. Og þjóð sem lætur setja sig á hausinn með þessum hætti, hver verða eftirmæli hennar? Peningarnir af ICESAVE reikningunum runnu til útrásarvíkinganna og fyrirtækja þeirra. Baugsfyrirtækin skulda hundruð milljarða. Eignir eru færðar yfir á önnur fyrirtæki en skuldir skildar eftir. Og aldrei skortir þá lögfræðiátlitin. Eigum við að láta þá komast upp með þetta? Eða eigum við að kenna þeim að reikna og setja jafnaðarmerkið á réttan stað? Bara arðgreiðslurnar úr loftbólufyrirtækjunum sem nú hvíla á ríkinu voru jafn háar og ICESAVE skuldbindingar ríkissjóðs og sömuleiðis ágóði íslenskra auðmanna af skortstöðutökum gegn íslensku krónunni. Ríkisstjórnin stendur sig illa í að kynna málstað okkar, enda er hún með allt kerfi gömlu stjórnarinnar í vinnu. Og hvar er forsetinn með öll sín sambönd? Eða þekkir hann bara auðjöfra og fjárglæframenn?

Við hljótum að spyrja: Þegar upp er staðið, hvað er það sem skilað hefur þjóðfélagi okkar árangri? Það er ekki hin sjálfumglaða fáviska sem aðeins hefur tekið út úr þjóðfélaginu en ekki skilað neinu til þess. Það er barátta alþýðunnar, sem skilað hefur okkur árangri. Það var baráttan á síðustu öld Einar Már á Austurvelli 13.8.09sem skilaði okkur öflugu velferðarkerfi, skólakerfi, heilbrigðiskerfi, símalínum, sundlaugum, lífeyrissjóðum og þannig mætti lengi telja. Hið svokallaða góðæri fólst í því að afrakstur stéttabaráttunnar, sameign fólksins var einkavædd og gerð að söluvöru. Það sem áður var sameign fólksins, fiskurinn, síminn og bankarnir, svo dæmi séu tekin, var færð til einkaaðila á silfurfati og henni sólundað. Góðærið fólst í því að svokallað „dautt fjármagn", það er að segja þessi sameign fólksins, var sett af stað. Umferð þessa fjármagns skapaði veltu í samfélaginu, góðæri, en nú er þeirri umferð lokið. Það má eiginlega segja að það hafi orðið umferðarslys. Fjármagni fólksins hefur verið eytt i einskisnýtt drasl, glerhallir og partí og fátt er eftir til að selja. Þótt stór hluti góðærisins væri hagbóla, byggð á draumórum, þá má ekki gleyma því að undirstaða þess voru raunverulegar eignir fólksins: Fiskurinn, lífeyrissjóðirnir og ríkisfyrirtækin. Lífeyrissjóðir hafa verið mergsognir með aðstoð gjörspilltra stjórna og einkavæðing bankanna gerði auðmönnum kleift að skuldsetja fyrirtæki og félög og greiða sjálfum sér arð án þess að nokkur verðamætasköpun ætti sér stað. Sameign fólksins, hinu „dauða fjármagni", var sóað. Það er okkar hlutverk að endurheimta það. Við þurfum að byggja upp nýtt hagkerfi þar sem þjóðin á auðlindirnar og það sem henni ber samkvæmt stjórnarskrá: nýtingarrétt á náttúruauðlindum og aflaheimildum í sjó. Við þurfum að brjótast gegn bölvun spillingar og því segi ég:

Þú sem býrð með eyju í hjartanu
og víðáttur geimsins
stétt undir iljunum:

Réttu mér norðurljósin!
Ég ætla að dansa við unglinginn
sem heldur á stjörnunum.

Við roðflettum myrkrið
og afhausum eymdina.


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Ég er ekki ennþá farin að glugga í neina af þessum bókum. Ákvað að geyma það þangað til í skammdeginu. En hlakka mest til að lesa Einars bók

Einar Már er í miklu uppáhaldi hjá mér eftir veturinn og allar góðu ræðurnar hans og pistla.. og ég er þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast þeim ágæta manni soldið

Heiða B. Heiðars, 15.8.2009 kl. 14:57

2 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Þessi ræða hans Einars Más er ein sú besta og sem ég hef séð.  Hann segir nákvæmlega hvað gerðist og hvers vegna.  Það er orðið sjaldgæft að sjá sannleikann. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 15.8.2009 kl. 15:18

3 identicon

Ræða Einars Más ætti að vera kennslubókarefni í grunnskólum, framhaldsskólum, háskólum, fyrirtækjum og heimilum! Bullið í pólitíkusunum sljóvgar skilningarvitin en maður nær aftur andanum þegar Einar Már les okkur pistilinn!

TH (IP-tala skráð) 15.8.2009 kl. 16:43

4 identicon

Ég er þér svo innilega sammála. Þó stakk mig illa að heyra hann líkja okkur við Breiðavíkurdrengi nútímans. Mér brá illa í hjartanu einhvernvegin...En okkur verðu öllum á farandi mikinn.

Hallgerður Pétursdóttir (IP-tala skráð) 15.8.2009 kl. 17:09

5 identicon

Einar Már Guðmundsson á Austurvelli 13.08. 2009. - Hættið að bulla!

http://www.youtube.com/watch?v=tHZeUF9muyE

Helga Björk Magnúsd. Grétudóttir (IP-tala skráð) 15.8.2009 kl. 21:47

6 Smámynd: Haraldur Rafn Ingvason

Jamm, það var magnað að hlusta á þetta - í fína hljóðkerfinu...

Haraldur Rafn Ingvason, 16.8.2009 kl. 01:12

7 identicon

Það er gott að hafa menn eins og Einar. Það er gott að hlusta á hann. Það þarf að fara eftir því sem hann segir.

Guðmundur Brynjólfsson (IP-tala skráð) 16.8.2009 kl. 01:40

8 identicon

Einar Már hittir naglann á höfuðið þegar hann segir "Það er verið að gera okkur ábyrg fyrir fullkomlega ábyrgðarlausu fjármálakerfi". Þetta er kjarni málsins og um þetta hefðu samningarnir við Breta og Hollendinga átt að snúast ásamt aðkomu EB að málinu. Kannski voru aðstæður erfiðar til þess að ná slíkum samningsmarkmiðum fram fyrir 6-10 mánuðum síðan, en í dag má ætla að aðstæður hafi breyst (sbr. málflutning Jóns Daníelssonar og fl.) og einmitt þess vegna á að semja um Æseif upp á nýtt.

Grútur (IP-tala skráð) 16.8.2009 kl. 08:01

9 Smámynd: Bergur Thorberg

Heyr...heyr...

Bergur Thorberg, 16.8.2009 kl. 09:33

10 Smámynd: Eva G. S.

hef einmitt líka verið að hugsa um hvernig þessum mönnum leið undir ræðunni, sá nokkra fyrrverandi ráðherra. Skil ekki hvað þeir voru að gera þarna. Fannst þeir uppteknari við allt annað en að hlusta eins og að tala eða skoða gemsana sína, virkilega uppteknir menn.

Eva G. S., 16.8.2009 kl. 12:37

11 identicon

Í þingsölum

Þórkatla Snæbjörnsdóttir (IP-tala skráð) 16.8.2009 kl. 15:19

12 identicon

Í þingsölum síðustu viku kom fram þingmaður stjórnarandstöðu og fór að tala gegn því að Icesavemálið færi óbreytt í gegn. Á meðan sást Katrín Júlíusdóttir vera að senda sms á gemsann sinn. Ábyggilega gífurlega áríðandi skilaboð miðað við það hvað verið var að fjalla um í pontu. Einhver hlýtur að búa yfir þessu myndskeiði.

Þórkatla Snæbjörnsdóttir (IP-tala skráð) 16.8.2009 kl. 15:38

13 Smámynd: Gerður Pálma

Stórkostleg skil á sannleikanum, það verður að þvinga þingmenn til hlustunar.

Gerður Pálma, 17.8.2009 kl. 21:38

14 identicon

 Takk Einar már

ÞÚ ERT  SNILLINGUR!

DisaP (IP-tala skráð) 18.8.2009 kl. 00:15

15 identicon

Hákon Jóhannesson (IP-tala skráð) 18.8.2009 kl. 09:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband