Bankar, afskriftir og ill meðferð á fólki

Ég hlustaði á viðtal í Bítinu á Bylgjunni á miðvikudagsmorguninn. Þar lýstu hjón því hvernig bankinn þeirra, Kaupþing, hafði komið fram gagnvart þeim og farið illa með þau - svo ekki sé meira sagt. Ég held að það sé sama fólkið og viðtal er við í helgarblaði DV, en vegna galla í skjalinu á vefþjóni DV kemst ég ekki inn á tölvuútgáfu blaðsins til að sannreyna það. Vonandi verður það lagað.

Pistillinn minn á Morgunvakt Rásar 2 í gærmorgun fjallaði um óréttlætið sem viðgengst í þjóðfélaginu í boði bankanna og hvernig þeir virðast vera ríki í ríkinu - bæði þeir gömlu og nýju. Þótt við séum ekki að biðja um pólitíska stýringu á bönkunum eins og tíðkaðist hér áður fyrr ætti yfirvöldum að vera í lófa lagið að berja í borðið og segja hingað og ekki lengra! Hljóðskrá viðfest neðst auk upptöku af áðurnefndu viðtali á Bylgjunni og Spegilsumfjölluninni sem vísað er í í pistlinum.

Morgunvakt Rásar 2

Ágætu hlustendur...

Réttlæti hefur verið mér mjög hugleikið og réttlætiskennd minni er gróflega misboðið nær daglega. Það virðist ætla að vera ansi djúpt á réttlætinu í íslensku samfélagi. Skuldsettur almenningur sem berst í bökkum þarf að horfa upp á bankana afskrifa tugmilljarða af skuldum helstu gerenda hrunsins. Í bönkunum sitja svo skuldlausir kúlulánþegar, deila og drottna og hóta starfsfólki sínu atvinnumissi ef það lendir í fjárhagserfiðleikum í efnahagshruni sem kúlulánþegarnir áttu sjálfir þátt í að skapa. Miskunn og mennska virðist ekki vera til þegar fégræðgi er annars vegar. Þetta er ekki réttlæti.

Ég hlustaði á viðtal í Bítinu á Bylgjunni á miðvikudagsmorgun. Þar var talað við hjón sem sögðu farir sínar ekki sléttar í viðskiptum sínum við nýja Kaupþing og skilanefnd gamla Kaupþings. Saga hjónanna virðist vera dæmigerð fyrir meðferðina sem hinn almenni borgari fær í bankakerfinu. Húsnæðislánin snarhækka, líka þau verðtryggðu í íslenskum krónum, fólk ræður ekki lengur við afborganir, selur ofan af sér en stendur þó uppi með milljóna- eða jafnvel tugmilljónaskuldir, húsnæðislaust og jafnvel atvinnulaust. Á meðan fá stórleikarar hrunsins að halda öllu sínu og bankarnir keppast við að afskrifa milljarðaskuldir þeirra. Þetta á ekkert skylt við réttlæti.

Almenningur maldaði í móinn í fyrravetur og sýndi mátt og megin fjöldasamstöðu. Ýmislegt gerðist, við fengum kosningar og nýja stjórn sem reynir að moka flórinn en sér ekki til botns. En yfirvöld virðast annaðhvort ekki fylgjast með því hvernig bankarnir fara með fólk eða ekki hafa völd til að gera neitt í því. Það er furðulegt og fullkomlega óviðunandi, enda eiga bankarnir að heita í ríkiseigu og ætla mætti að ráðherrar geti haft áhrif á það, sem fram fer þar innanhúss - og krafist réttlætis.

Langlundargeð og skortur á viðbrögðum Íslendinga eftir hrunið mikla hefur vakið athygli langt út fyrir landsteinana. Einn af innistæðueigendum Icesave í Hollandi var hér á landi fyrr í vikunni. Hann var í Silfri Egils á sunnudaginn og Spegilsmenn hjá RÚV spjölluðu líka við hann á mánudaginn. Mér var brugðið þegar ég hlustaði á endursögn Spegilsins á orðum Hollendingsins, meðal annars þetta: "Og hann undrar sig líka á því hve rólegir Íslendingar séu í tíðinni að taka á helstu gerendum hrunsins, sem kannski sé ekki stærri hópur en 30 manns. Víðast hvar annars staðar í heiminum hefðu einhverjir tekið sér fyrir hendur að koma þeim fyrir kattarnef væru þeir ekki komnir á bak við lás og slá. Hann tók fram að þetta væri ekki sín óskhyggja, heldur kalt mat. Hér byggju Íslendingar líklega að jákvæðum skorti, þ.e. á stríðshefð."

Já, við erum svo sannarlega öðruvísi, Íslendingar, og fyrr má nú vera jákvæði skorturinn. Í stað þess að refsa gerendum hrunsins og meðreiðarsveinum þeirra skipum við þá í bankastjóra- og skilanefndastöður, gerum þá að ritstjórum, alþingismönnum og aðstoðarmönnum ráðherra, afskrifum skuldirnar þeirra og bjóðum þeim að gjöra svo vel að halda áfram að arðræna okkur.

Er ekki kominn tími á hugarfarsbyltingu svo réttlætið nái fram að ganga?

************************************************
Þessu tengt:  Hagsmunasamtök heimilanna og Nýtt Ísland halda útikröfufund á Austurvelli í dag klukkan 15. Helstu kröfur eru:
 
1. Leiðrétting höfuðstóls lána.
2. Afnám verðtryggingar.
3. Að veð takmarkist við veðandlag.
4. Að skuldir fyrnist á 5 árum.
 
Ræðumenn eru Ólafur Garðarsson, varaformaður HH, Björn Þorri Viktorsson, lögmaður og Lúðvík Lúðvíksson frá Nýju Íslandi. Drífa sig! Sameinuð sigrum við.

Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Alma Jenny Guðmundsdóttir

Lára Hanna -mikið er ég sammála þér.  En varðandi útifund á Austurvelli í dag, hefði ég gjarnan viljað veita Hagsmunasamtökum heimilinna minn liðstyrk þar - en þeir hafa eyðilagt það fyrir mér því hér um vesturbæinn hafa verið látlaus útköll í hátalarakerfi þar sem allir eru hvattir til að mæta og mótmæla með HH - mótmæla Icesave og ríkisstjórnina burt !  Þar fer fremstur manna einhver Guðmundur Franklín Jónsson sem á sér þann draum að fá að reka Haga eins og þeir eru reknir í dag - með markaðsráðandi stöðu.

Ég get ekki stutt það - fremur en ég gat mætt á Þjóðfund sem ég fékk boð á, þar sem skipuleggjendur þar - skipulögðu sambærilegar samkomur m.a. fyrir Baug og Viðskiptaráð.

Móðureðli mínu er hins vegar ögrað svo illilega að mér líður illa í réttlætistauginni.

Stend í miklu basli við Kaupþing - og ekki síður SPRON - eða skilanefnd.  Ég hef nú þegar sagt þeim að ég hafi akkúrat engu að tapa, eigi vart fyrir mat, þegar ég hef greitt af húsnæðisskuldum mínum af 2ja herb. íbúð og fæða og klæða menntaskólastrákinn minn - og pabbi drengsins sjái vel um hann - ég fengi þó alltént að éta í fangelsi - gripi ég til þess að verjast þessum hræ-ætum.

En - ég verð aldrei - aldrei - borin út - hef ákveðið það.  Hún Sigríður mín í Brattholti er mín fyrirmynd þessa dagana.

Alma Jenny Guðmundsdóttir, 28.11.2009 kl. 15:10

2 identicon

En það er ekki endalaust hægt að leita að nákvæmlega þeim fjórum einstaklingum Alma Jenny sem vilja mótmæla nákvæmlega á sömu forsendum og maður sjálfur. Það var jú svolítið andinn á mótmælafundum fyrir búsáhaldabyltingu. En það var gott að mæta á þá fundi og sjá að þar var að finna allar gerðir íslendinga. Það voru ekki endilega allir þar á sömu forsendum en eitthvað þurfti jú að gera.

Ég lít á HH sem ópólitísk samtök og að fólk úr öllum flokkum hljóti að geta stutt þann málstað. Hvort einhverjir vilja hengja aðrar kröfur utan á þennan mótmælafund þá verður að hafa það. Aðalmálið er að fá fólk til þess að sýna samstöðu með því að mæta og hafna þar með ríkisvæddri rányrkju.

Sammála þér með útburðinn. Myndi ekki láta bera mig út án þess að hervæðast. Sigríður í Brattholti ætti að vera fyrirmynd öllu góðu fólki með réttlætiskennd.

Seiken (IP-tala skráð) 28.11.2009 kl. 15:38

3 Smámynd: Þórdís Bachmann

Fjórtán mánuðir frá hruni og enn er verið að ,,gera þá að ritstjórum, alþingismönnum og aðstoðarmönnum ráðherra,

afskrifa skuldirnar þeirra og bjóða þeim að gjöra svo vel að halda áfram að arðræna okkur."

Við erum alveg nógu mörg til að flytja þetta ok af baki okkar, en virðumst bara ekki megna það. Allir uppgefnir, vitanlega, en skortir ekki líka samstöðu? Að segja í margradda kór:

Þetta gengur bara ekki!

Það er ekki hægt að reka hagkerfi án millistéttar og sú tilraun verður aldrei reynd neins staðar annars staðar en hér.

Hún er svo hrikalega heimskuleg.

En ef við ætlum ekki að losa okkur undan þessum illu yfirráðum, þá er þessi klausa orðin sönn - aftur:

Ósigur ítalska loftflotans í Reykjavík 1933:

"Það er álitið að fáar þjóðir hafi þolað kúgun og yfirgang af meiri

kurteisi en Íslendingar. Um aldaraðir alt fram á þennan dag lifðu þeir í skilníngsríkri sáttfýsi við kúgun, án þess að gera nokkru sinni tilraun til uppreistar. Eingri þjóð var byltíngarhugtakið jafn hulið.

Ævinlega voru Íslendingar reiðubúnir að kyssa þann vöndinn er sárast beit og trúa því að kaldrifjaðasti böðullinn væri sönnust hjálp þeirra og öruggast skjól."

Halldór Laxness, úr Sjö töframönnum.

Þórdís Bachmann, 28.11.2009 kl. 19:27

4 identicon

Hmm, undarlegt að lesa þetta,  nákvæmlega það sem ég hef verið að hugsa, ég hef bara ekki svona góð tök á að koma þessu frá mér.

Brilliant pistill

tverhaus (IP-tala skráð) 28.11.2009 kl. 19:35

5 Smámynd: Þórður Björn Sigurðsson

Takk fyrir góðan pistil og góðan fund í dag.

Mér heyrðist fundarstjóri boða annan útifund að viku liðinni.

Sjáumst þar.

Þórður Björn Sigurðsson, 29.11.2009 kl. 00:56

6 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Mér finnst sorglegast að sjá hvernig stjórnin er að endurbyggja gamla Ísland stein fyrir stein.

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 29.11.2009 kl. 00:59

7 Smámynd: Jenný Stefanía Jensdóttir

Takk fyrir góðan pistil Lára Hanna,

Fréttafíkn; var léttvæg fíkn þar til fyrir 14 mánuðum.  Einlægar kveðjur til alla fíkla; eins og með alla aðra fíkn, þá læknast hún ekki, nema maður láti af "neyslunni".

Hvernig er það hægt, á meðan "fréttafíknasalarnir" ganga lausir og halda áfram eins og ekkert hafi í skorist!

Stjórnvöld,  dómsvald, löggjafarvald, fjórða, fimmta og sjötta vald,  þurfa alvaralega að íhuga óþolið og spennuna sem magnast upp með hverjum degi sem líður.   Bylting kennd við búsáhöld var 2009, byltingin 2010 verður kennd við eitthvað allt annað.  Óttast það með töluverðum þyngslum.

Baráttukveðjur.

Jenný Stefanía Jensdóttir, 29.11.2009 kl. 02:50

8 Smámynd: Jenný Stefanía Jensdóttir

Þessi ummæli áttu við pistilinn dauðadjúpar sprungur,  færi hann þangað.

Jenný Stefanía Jensdóttir, 29.11.2009 kl. 02:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband