Í pistlinum hér á undan sagðist ég setja hér inn viðtal Egils við Þorvald Gylfason í Silfri dagsins. Hér er það. Á eftir kom ekki síður áhugavert viðtal við Jónínu Benediktsdóttur og ég var ákveðin í að skella því inn líka. En eins og gjarnan gerist í beinum útsendingum RÚV var klippt á útsendinguna svo endirinn á viðtalinu við Jónínu var ekki sendur út á netinu. Þetta gerist allt of oft þegar síst skyldi, er venjulega lagað en oftast ekki fyrr en daginn eftir - eða á mánudeginum ef útsending er um helgi.
Hér er Þorvaldur Gylfason í Silfrinu áðan. Jónínu set ég inn um leið og RÚV hefur lagað þáttinn og sett inn halann sem klipptist af í útsendingu.
Þorvaldur Gylfason - Silfur Egils 5. október 2008
Bankastjórn
Davíð Oddsson, formaður
Eiríkur Guðnason
Ingimundur Friðriksson
Bankaráð, kjörið af Alþingi, 13. júní 2007:
Kosning sjö manna og jafnmargra varamanna í bankaráð Seðlabanka Íslands til fyrsta þings eftir næstu almennu alþingiskosningar, að viðhafðri hlutfallskosningu, skv. 26. gr. laga nr. 36, 22. maí 2001 um Seðlabanka Íslands. Bankaráð velur formann og varaformann úr eigin röðum.
Aðalmenn
Halldór Blöndal, formaður (Sjálfstæðisflokkur)
Jón Sigurðsson, varaformaður (Samfylking)
Erna Gísladóttir (Sjálfstæðisflokkur)
Ragnar Arnalds (Vinstri - Grænir)
Hannes Hólmsteinn Gissurarson (Sjálfstæðisflokkur)
Jónas Hallgrímsson (Framsóknarflokkur)
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir (Samfylking)
Aðra stjórnendur og varamenn má sjá hér.
Viðbót: Þegar þetta er skrifað, á mánudagskvöldi 6. október, er ekki ennþá búið að setja inn endinn á Silfrinu með Jónínu Benediktsdóttur. Forrit hjá RÚV munu víst vera biluð. En ég set hér inn það sem er inni samkvæmt beiðni.
Bloggar | Breytt 6.10.2008 kl. 22:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
5.10.2008
Efnahagsumræða í Silfri Egils
Í framhaldi af síðasta pistli, þar sem hagtölur og hagfræði var til umfjöllunar, fór ég í gegnum nokkra þætti af Silfri Egils frá því fyrr á árinu með það fyrir augum að finna efnahagsumræður við sérfræðinga. Af nógu var að taka og ég klippti út nokkur viðtöl, tvö þeirra hef ég birt áður. Þau eru hér í tímaröð, það fyrsta er frá 24. febrúar og það síðasta frá 7. september.
Það er athyglisvert að hlusta á þetta spjall og bera saman við vangavelturnar í síðasta pistli og ástandið eins og við upplifum það í dag, allt að 7 mánuðum seinna.
Viðmælendur Egils eru Jón Baldvin Hannibalsson, Ólafur Ísleifsson, Ársæll Valfells, Vilhjálmur Bjarnason, Ragnar Önundarson, Þorvaldur Gylfason og Jónas Haralz. Þorvaldur verður aftur í Silfrinu í dag og ég skýt honum væntanlega aftan við síðdegis. Bendi í leiðinni á fjörlega umræðu á bloggsíðu Egils hér.
Síðasta myndbandið er örlítið stílbrot. Það er frá 10. febrúar sl. og þar fjallar Vilhjálmur Bjarnason um kaupréttar- og starfslokasamninga með tilliti til hlutafélagalaga. Mjög áhugaverðar upplýsingar sem þar koma fram.
Jón Baldvin Hannibalsson - Silfur Egils 24. febrúar 2008
Ólafur Ísleifsson og Ársæll Valfells - Silfur Egils 2. mars 2008
Vilhjálmur Bjarnason - Silfur Egils 16. mars 2008
Ragnar Önundarson - Silfur Egils 6. apríl 2008
Þorvaldur Gylfason - Silfur Egils 13. apríl 2008
Jónas Haralz - Silfur Egils 7. september 2008 - meira hér
Vilhjálmur Bjarnason um kaupréttar- og starfslokasamninga
- Silfur Egils 10. febrúar 2008
Bloggar | Breytt 6.10.2008 kl. 09:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)