10.12.2008
Lögleg svik, spilling og þjófnaður
Í Silfrinu á sunnudaginn var símaviðtal við Jón Steinsson, hagfræðing í Bandaríkjunum, sem var afskaplega athyglisvert og er algjört skylduáhorf og hlustun. Því miður rofnaði símasambandið og náðist ekki aftur fyrr en síðast í þættinum svo ekki er víst að fólk hafi náð því sem Jón var að segja í samhengi. Ég klippti saman viðtalsbrotin tvö til að samtalið kæmi út sem ein heild.
Það sem Jón er að segja er allt í senn óhugnanlegt, ótrúlegt og að því er virðist rétt - því miður. Þetta er nokkuð sem verður að ráða bót á strax - helst í síðustu viku - því þetta er hluti af þeim ógeðslega spillingarleik sem hefur grasserað og er verið að leika í íslensku þjóðfélagi ennþá.
Þeir Jón og Egill nefna Fjárfar, alveg ótrúlega vafasamt skúffufyrirtæki sem var hluti af Baugsmálinu. Ég er búin að kynna mér það mál svolítið - alls ekki nóg samt, þessi mál eru mjög flókin fyrir manneskju eins og mig sem fylgdist aldrei með fjármála- eða viðskiptalífinu - en ég bendi fólki á að kynna sér það endilega hér. Þetta mál er hreint með ólíkindum.
Lokaorð Jóns t.d. eru alvarleg viðvörun - leturbr. og innskot eru frá mér:"Jón: ...allt fólkið sem hefur verið efnað á Íslandi í gegnum tíðina, en er í dag gjaldþrota, er með undraskömmum hætti orðið efnað á ný. Við bara megum ekki láta þetta gerast. Við verðum að hafa alvörueftirlit með því sem er að gerast inni í þessum risastóru bönkum sem nú eru á ábyrgð skattgreiðenda.
Egill: Þú meinar að sömu aðilar geti notfært sér þetta ástand til að ná einhvern vegin aftur undir sig samfélaginu.
Jón: Þeir eru í kjöraðstæðum til þess. Þeir þekkja fyrirtækin, þeir vita hvernig er hægt að búa til einhverja díla sem hljóma eins og þeir meiki einhvern sens fyrir ríkið en eru í rauninni eitthvað allt annað. Og á meðan staðan er þannig að þetta er ekkert allt uppi á borðinu í fyrsta lagi... það eru ekki skýrar reglur um það hvernig sölu eigna og endurmati skulda er háttað innan bankakerfisins... og á meðan þetta er ekki uppi á borðinu þá er þessi hætta til staðar. Þetta eru kjöraðstæður fyrir svona látalæti vegna þess að í dag er erfiðara en nokkru sinni fyrr að átta sig á því hvað sannvirði eigna er.
Egill: Kjöraðstæður fyrir spillingu.
Jón: Kjöraðstæður fyrir spillingu.
Egill: Þú treystir þá ekki því sem er að gerast inni í bönkunum?
Jón: Nei, ég hef miklar áhyggjur af því. Í fyrsta lagi þarf verklagsreglur. En í öðru lagi er bara ekki hægt að komast hjá því að kjörnir fulltrúar þjóðarinnar (innsk.: þingmenn), sem bera ábyrgð gagnvart þjóðinni, séu virkir í eftirliti. Ég hef miklar áhyggjur af því, að það sé ekki þannig - ekki nægilega mikið. Það þarf toppfólk í það. Fólk sem hefur djúpan skilning á fjármálaleikfiminni sem innherjarnir munu bera á borð. Þegar þessi flóknu mál koma á borðið hjá bankaráðum bankanna eða fjármálaráðherra (innsk.: Árna Mathiesen) eða viðskiptaráðherra (innsk.: Björgvin G.) þá þurfum við að hafa aðila í þeirra stöðum sem geta skilið þessa díla til að þeir semji ekki af sér fyrir hönd þjóðarinnar. Ég er því miður ekki viss um það að aðilarnir í þessum stöðum á Íslandi í dag hafi nægilega djúpan skilning á því erfiða verkefni sem er fyrir höndum hjá þeim."
Jón Steinsson í Silfri Egils 7. desember 2008
Hér eru svo tvær nýlegar blaðagreinar eftir Jón Steinsson þar sem hann fjallar um spillinguna á Íslandi. Smellið þar til læsileg stærð fæst.
Fréttablaðið 3. desember 2008
Morgunblaðið 27. nóvember 2008
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
10.12.2008
Áríðandi skilaboð til stjórnvalda!
Egill Helga gaf mér leyfi til að birta þessa færslu sem hann er með hjá sér. Þetta er stórmál sem verður að vekja athygli á - bæði almennings og stjórnvalda.
__________________________________________
10. desember, 2008
Sönnunargögn liggja undir skemmdum
Maður sem ég treysti mjög vel og þekkir vel til í bankakerfinu og viðskiptalífinu sendi mér þetta bréf. Ég tel að upplýsingarnar sem koma fram í því séu svo mikilvægar að nauðsynlegt sé fyrir stjórnvöld að bregðast hratt við.
--- --- ---
Nú eru rúmlega 2 mánuðir liðnir frá því að bankarnir féllu hver á fætur öðrum með tilheyrandi afleiðingum fyrir þjóðarbúið. Allt stefnir í að lög um sérstakan saksóknara verði samþykkt á Alþingi í dag eða næstu daga. Vonandi tekur hann til starfa sem fyrst, en spurningin er hvort skaðinn sé ekki þegar skeður. Samkvæmt mínum upplýsingum liggja sönnunargögn undir skemmdum í öllum bönkunum, þar sem ekki var haft fyrir því að taka heildarafrit hjá hverjum banka fyrir sig og setja afritin í örugga geymslu hjá Seðlabankanum eða Fjármálaeftirliti. Það er því ekki víst að gögnin sýni rétta stöðu, þegar rannsókn fer í gang.
Vandamálið með skilanefndirnar er að þær eru flestar skipaðar að hluta til innanbúðarfólki. Sumt af þessu fólki tók þátt í sukkinu og er því að greiða úr flækju og óreiðu sem það orsakaði sjálft eða átti að koma í veg fyrir. Fólk sem var í lykilstöðum við að svindla er núna kannski komið í lykilstöðu við að hylma yfir. Búið er að setja alla starfsmenn nýju bankanna, sem voru í gömlu bönkunum á athugunarlista. Hvers vegna skyldi það vera? Jú, menn óttast að þeir muni stunda svik. En það er ekki nóg að setja starfsmenn nýju bankana á athugunarlista. Starfsmenn gömlu bankanna þarf líka að vakta. En hver gerir það?
Loks hefur mér verið bent á, að endurskoðunarfyrirtækin munu vera með talsverða samvinnu sín á milli varðandi skoðun á sína á bönkunum. Ástæðan mun vera sú, að menn eru að reyna að átta sig á öllu fiffinu sem viðhaft var til að fela vafasamt hátterni og ekki síður vegna þess að þau í raun og veru vita ekkert hvernig eigi að bera sig að við svona skoðun. Að KPMG sé að skoða Glitni sé langt frá því það alvarlegasta sem er að gerast, enda KPMG stórt fyrirtæki og hver endurskoðandi innan fyrirtækisins í reynd eins og sérstakt fyrirtæki undir einni regnhlíf. Nei, það sé mun alvarlegra að stóru fyrirtæki eru með þetta víðtæka samstarf sína á milli.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
10.12.2008
Þingmenn bornir út
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.12.2008
Sprengjuregn spillingar
Kastljós varpaði sprengjum í kvöld og fylgdi eftir ýmsu sem hefur verið að leka út, að nokkru leyti í fjölmiðlum en mest á bloggsíðum og í athugasemdum. Þótt ég og örugglega fleiri séum komin með upp í kok og meira til þakka ég Kastljóssfólkinu fyrir og hvet það til frekari dáða. Heldur vil ég halda áfram að fá dagleg áföll og að tekið sé á þeim en að þessi spillingarsori verði látinn viðgangast í laumi. Haldið áfram að grafa upp og segja frá, gott fólk!
Svo rífur þingflokksformaður Samfylkingarinnar kjaft við Atla Gíslason og segir að við höfum "lent í því" að bankakerfið hafi hrunið eins og það sé afsökun fyrir þeirri spillingu og þeim forkastanlegu vinnubrögðum sem viðgangast NÚNA við afskriftir skulda fyrirtækja, sölu þeirra sem Atli segir ólöglega, rannsóknir á gömlu bönkunum o.fl. o.fl. Umboðsmaður alþingis gagnrýnir og gagnrýnir en ríkisstjórnin hlustar ekki. Atli vitnaði í skýrslu Umboðsmanns og Lúðvík segir bara: "Hér er haldið áfram með ítrekaðar ásakanir"! Mér heyrðist Lúðvík vera steinhissa og undrandi á að það skuli ríkja mikil tortryggni í þjóðfélaginu. Hvaða rugl er þetta?
Laganefnd Lögmannafélags Íslands leggst gegn samþykkt frumvarps um rannsóknarnefnd vegna bankahrunsins eins og það var lagt fyrir Alþingi. Nefndin vill víðtækar og veigamiklar breytingar á frumvarpinu. Ýmsir lögmenn og fræðimenn í lögfræði hafa lýst áhyggjum yfir að lagasetning í kjölfar bankahrunsins hafi verið óvönduð og flaustursleg. Fjallað var um þetta og rætt við Evu B. Helgadóttur, formann laganefndar, í Speglinum. Hlustið, þetta er grafalvarlegt mál.
Enn og aftur kemur viðskipta- og bankamálaráðherra af fjöllum. Hann vissi ekki af rannsókn KPMG á viðskiptum gamla Glitnis sem staðið hefur yfir í tvo mánuði! Þó er Björgvin með einn aðstoðarmann og einn upplýsingafulltrúa í fullri vinnu á kostnað okkar við að upplýsa hann um menn og málefni og hefur fjölskyldutengsl inn í gamla Glitni. Ég held að Björgvin og allir hinir ráðherrarnir ættu að hlusta á það sem Birgir Hermannsson, stjórnmálafræðingur, sagði í Silfrinu á sunnudaginn um pólitíska ábyrgð. Ég klippti það sérstaklega út fyrir þau:
Ég legg svo til að fólk lesi t.d. þetta og þetta hjá Agli. Bloggið hans Egils Helgasonar er nauðsynleg lesning fyrir alla og þótt athugasemdirnar séu margar og æði misjafnar leynast þar gullmolar inni á milli. En horfið á Kastljósið ef þið eruð ekki búin að því. Ég er búin að horfa tvisvar og þetta er svo þétt efni og mikið af upplýsingum að ég þarf að horfa oftar.
Svo er fólk að hæðast að mótmælum og borgarafundum og þeim sem eru nógu gagnrýnir í hugsun til að vilja mótmæla svona vinnubrögðum. En það nennir ekki að mæta sjálft og ber fyrir sig veðri, ræðumönnum sem hugnast þeim ekki eða einhverjum ímynduðum hægri/vinstri stöðlum! Málið snýst bara ekki um það heldur að leggja sitt af mörkum, taka þátt í að mótmæla endalausri spillingu og óheiðarleika og krefjast umbóta. Þverpólitískar aðgerðir sem krefjast eingöngu nærveru okkar. Gerður Kristný og Stefán Pálsson ræddu um mótmæli í Íslandi í dag í gærkvöldi.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)