Nei, ég er ekki að bera þá saman, Matteus og Stefán Jón. Þekki enda hvorugan og veit ekki hvort þeir eru samanburðarhæfir. Nema hvað vert er að glugga í orð beggja og svo bar til að þeir töluðu til mín báðir í einu í gærkvöldi á mjög svo undarlegan hátt - og af einskærri tilviljun. Held ég.
Ég fékk tölvupóst frá Erling vini mínum í gærkvöldi, þar sem hann sagðist vera að lesa bók sem heitir "Outliers" og fjallar um persónur sem standa utan við hið hefðbundna mynstur. Í bókinni er talað um Matteusar-áhrifin (The Matthew Effect) sem hljóða svo: "Því að hverjum sem hefur, mun gefið verða, og hann mun hafa gnægð, en frá þeim, sem eigi hefur, mun tekið verða jafnvel það, sem hann hefur." (Biblían - Nýja testamentið - Matteusarguðspjall 25:29.)
Ég efast ekki um að hver einasti Íslendingur sem kominn er sæmilega á legg kannist við nákvæmlega það sem guðspjallamaðurinn er að lýsa þarna. Þetta er einmitt það sem er að gerast í íslensku þjóðfélagi þessa dagana. Ekki að það sé neitt nýtt, en undir þeim kringumstæðum sem við búum við nú um stundir er hið hróplega óréttlæti sem í þessu felst alveg sérlega áberandi. Einmitt þeir sem hafa gnægð settu þjóðina á hausinn og þeir sem eigi hafa þurfa að bera byrðarnar á meðan sökudólgarnir sem hafa gnægð fyrir mun gefið verða, hvort sem það heita afskriftir skulda, gömlu fyrirtækin sín skuldlaus og á útsöluverði eða rífleg eftirlaun á kostnað þeirra sem eigi hafa. Þetta sá hann Matteus karlinn allt fyrir því sennilega vissi hann sem er, að mannlegt eðli og breyskleiki breytist aldregi.
Stefán Jón skrifaði grein í Fréttablaðið í gær, mjög góða grein. Það vildi svo ótrúlega til að ég var einmitt að lesa hana þegar ég fékk póstinn frá Erling. Og Stefán Jón var líka að lesa bók sem heitir "Outliers". Hvort það er sama bókin veit ég ekki, en hann leggur út frá bókinni og segir: "En bókin skýrir með dæmum hvernig flest slys verða til fyrir röð smávægilegra mistaka, tæknilegra og mannlegra, sem smátt og smátt hlaða svo upp á sig að á endanum verður ekki við ráðið. Engin ein mistök gera útslagið: Smávægileg vélarbilun, samskipti óljós, tungumálaörðugleikar, menningarlegt ólæsi og jafnvel hroki í stjórnklefa, leiðbeiningar misskildar, aðstæður versna, álag sljóvgar og allt í einu er stórslys sem auðvelt hefði verið að koma í veg fyrir. Uppsafnað vanhæfi."
Ég efast heldur ekki um að allir kannist við það ferli sem Stefán Jón á hér við og geti heimfært það upp á íslenskan veruleika nútímans. Aðdraganda efnahagshrunsins og hrokafulla framkomu hlutaðeigandi gerenda allra við þjóðina. Uppsafnað vanhæfi er snilldarlega að orði komist. Ef þessi tilviljun, að fá póstinn á sama tíma og ég var að lesa greinina, með tilvitnunum í bækur (bók?) með sama nafni sem vísa báðar beint í veruleika nútímans er skilaboð til mín - þá skil ég þau ekki... a.m.k. ekki ennþá. En kannski felast engin skilaboð í þessu frekar en í öðrum tilviljunum - ef tilviljanir eru þá til. En hér er þessi fína grein Stefáns Jóns. Þið fáið ekki að sjá póstinn frá Erling. Hann er prívat en Erling er til vitnis. Smellið þar til læsileg stærð fæst.
Hér er fréttin á Vísi sem Stefán Jón vísar í og vakti, eins og hann nefnir, furðu litla athygli.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 02:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)