Verður leyndarmálið afhjúpað í Kompási í kvöld?

Ég fjallaði um þá arfavitlausu hugmynd að reisa olíuhreinsistöð á Vestfjörðum í þremur pistlum í febrúar. Eitt af því sem vakið hefur mikla athygli er sú illskiljanlega leynd sem hvílir yfir því, hvaða aðilar standi á bak við framkvæmdina. Hilmar Foss og Ólafur Egilsson, hinir íslensku olíufurstar, hafa neitað að tjá sig um þann þátt málsins og hafa auk þess túlkað niðurstöður skoðanakannana um stuðning við olíuhreinsistöð afskaplega frjálslega, svo ekki sé meira sagt.

Fyrri pistla mína um olíuhreinsistöðina má sjá hér: Fyrsti, annar og þriðji.

Í kvöld ætlar Kompás að gera tilraun til að upplýsa málið, eða að minnsta kosti leiða getum að því hvaða aðilar standi á bak við framkvæmdina. Frétt um þáttinn á Vísi er svohljóðandi:

Kompás í kvöld: Rússar fara frjálslega með staðreyndir.
Katamak, samstarfsaðilar Íslensks hátækniiðnaðar í undirbúningi olíuhreinsistöðvar á Vestfjörðum, fara frjálslega með niðurstöður skoðannakönnunar sem gerð var um áhuga Vestfirðinga og annarra á olíuhreinsistöð.

Á heimasíðu samstarfsaðila Íslensks hátækniiðnaðar (katamak.ru) er fullyrt að 80 prósent Vestfiðinga séu hlynnt olíuhreinsistöðinni og er vitnað til Gallup-könnunar. Þar er býsna frjálslega farið með því samkvæmt upplýsingum frá Capacent-Gallup eru 53 prósent íbúa í Norð-vesturkjördæmi hlynnt hugmyndinni. Afgangurinn tekur ekki afstöðu eða er andvígur. Og sveitarstjórnarmenn vestra finnast í þeim hópi.

Kompás sýnir þátt í kvöld þar sem leitt er getum að því hvaða aðilar standi að baki þessum áformum. Þessi þáttur er afrakstur margra mánaða rannsóknarvinnu m.a. í Moskvu, Washington, Houston og Dublin.

Á vef Kompáss kemur þetta fram um þáttinn:

Umdeild olíuhreinsistöð
Það er leyndarmál hver á að reisa olíuhreinsistöðina á Vestfjörðum. Böndin berast að rússnesku risaolíufyrirtæki í innsta hring Kremlar.

Vestfirðingar eru orðnir langþreyttir á atvinnuástandinu og kalla eftir úrbótum. Olíuhreinsunarstöð er talin geta skapað 500 ný störf. Þessi 300 milljarða risaframkvæmd er þó umdeild.

Tilhugsunin um nær daglegar siglingar risaolíuskipa vekur ugg en talið er að allt að 300 olíuflutningaskip muni eiga leið um vestfirska firði árlega.

Og svona hljómar stiklan um Kompásþáttinn í kvöld:

Ég hvet alla sem mögulega geta til að horfa á Kompás í kvöld klukkan 21:50 og mynda sér skoðun um málið.

Hér er viðtal við Stefán Gíslason, umhverfisstjórnunarfræðing, um olíuhreinsistöð sem birtist í fréttum RÚV 22. febrúar sl.

Að lokum brot úr fréttum Stöðvar 2 frá 24. febrúar sl. þar sem Ólafur Egilsson lætur út úr sér gullkorn sem verða lengi í minnum höfð.


Bloggfærslur 15. apríl 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband