10.7.2008
Ótrúlegur yfirgangur og ósvífni
Mig hefur aldrei langað að eignast sumarbústað. Kannski ekki gefin fyrir að fara alltaf á sama staðinn. En ég myndi þó gjarnan þiggja að hafa aðgang að bústað svona einu sinni, tvisvar á ári. Ekki væri verra að hafa fallegt umhverfi en fyrst og fremst myndi ég vilja ró og næði. Eina tónlistin sem ég myndi vilja heyra væri söngur náttúrunnar. Engin önnur hljóð fyrir utan þetta bráðnauðsynlegasta - bíl í fjarska (miklum fjarska) og kannski óm af mannamáli í álíka miklum fjarska. En helst ekki samt. Best þætti mér að vera óralangt frá öllum mannabústöðum og njóta algjörrar kyrrðar.
"Er allt falt fyrir peninga á Íslandi?" spyr Jenný Anna í fínum pistli um þetta sama mál. Fólki er leyft að troða niður sumarbústöðum, eða ætti maður frekar að segja glæsivillum, á helgasta blett okkar Íslendinga, þjóðgarðinn á Þingvöllum. Svæði sem er sameign þjóðarinnar og ætti að vera friðhelgt og verndað fyrir ágangi sem þessum. En nei, allt virðist falt fyrir peninga á Íslandi og samkvæmt þessari frétt á mbl.is er verið að reisa þó nokkar nýjar villur rétt við það allra helgasta og þar er fólk ekkert að spá í að fara eftir reglum.
Að þurfa að upplifa hávaða frá þyrlum á þessum stað eru í mínum huga helgispjöll og það mjög alvarleg. Hávaðinn og áreitið í umhverfinu, þar á meðal frá þyrlum, er alveg nóg svo ekki sé ruðst með þessi tæki inn á þau svæði þar sem fólk vill vera í friði og ró með náttúrunni.
Í fréttinni á mbl.is segir m.a.: "Þingvallanefnd hefur kynnt eigendum sumarhúsalóða innan þjóðgarðsins á Þingvöllum drög að nýjum reglum um sumarhús. Þar er lagt bann við nýbyggingum og girðingum um einkalóðir." Ég hélt satt að segja að löngu væri búið að setja þessar reglur því það er svo langt síðan ég heyrði um þær fyrst. Þingvallanefnd virðist ekki vera sérlega snör í snúningum og spurning hvernig eftirlitinu er háttað hjá nefndinni.
En hér er fréttin og viðtalið við Bjarna Harðarson, alþingismann. Hann er greinilega ekki par ánægður með ástandið og það sem hann hefur séð þarna þótt hann sé varkár í tali. Ætli hann sé í Þingvallanefnd? Að öðru leyti vísa ég í áðurnefndan pistil Jennýjar Önnu.
Viðbót: Þetta myndband birtist með frétt á mbl.is í dag. Þarna er farið allt aftur til ársins 1980 og rifjað upp hvað var verið að tala um á þeim tíma. Kannski ekki furða að ég hafi haldið að löngu væri búið að setja reglurnar en nú spyr ég: Hvað er Þingvallanefnd eiginlega að gaufa?
Viðbót 2: Þetta gerðist þriðjudaginn 15. júlí - Þingvallanefnd bannaði þyrluflug í þjóðgarðinum á Þingvöllum til 1. október nk. Nefndin tók við sér eftir að kvartanir bárust.
Bloggar | Breytt 16.7.2008 kl. 23:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)