24.11.2009
Er Rússland glæparíki?
Ég horfði á fréttir á BBC World sem oftar í gær og ein frétt vakti athygli mína umfram aðrar. Þar sagði bandarískur fjárfestir, Bill Browder, sem verið hefur með starfsemi í Rússlandi síðan 1990, farir sínar ekki sléttar og fullyrti í viðtali við BBC að Rússland væri algjört glæparíki. Sú saga er reyndar langt í frá ný af nálinni og margar frásagnir til af því hvernig kaupin gerast á þeirri eyri. En þessi saga Browders var sérlega óhugnanleg þar sem hann hélt því fram að yfirvöld í Rússlandi hefðu látið lögmann sinn deyja í fangelsi, fárveikan, og neitað honum um læknishjálp.
Ég skoðaði viðtöl við Bill Browder á BBC-vefnum en gúglaði hann ekkert frekar. Hjá BBC kenndi ýmissa grasa og með því að renna yfir fréttir af Browder þar er hægt að fá grófa heildarmynd af deilum mannsins og Rússanna. Hér er viðtal frá 2002 þar sem hann segir frá upphafi fjárfestinga sinna í Rússlandi, Asíukreppunni 1997 og áhrifum hennar o.fl. Hér er brot úr viðtali við Browder frá júlí 2008 um ásakanir hans á hendur Rússum og hér er langt viðtal við hann í Hardtalk-þættinum frá september 2008 (afleit myndgæði) þar sem hann talar um viðskipti sín við Rússa og hvernig hann var hrakinn þaðan af yfirvöldum og eignir hans teknar af honum.
Hér er síðan fréttin sem vakti athygli mína í gær, nema hvað sjónvarpsviðtalið við hann í fréttatímanum var mun lengra, þarna er bara birt örlítið brot af því en stiklað á því helsta í rituðu máli. Eins og sjá má segir Bill Browder frá því að lögmaður hans, Sergei Magnitsky, hafi verið handtekinn fyrir ári og stungið í fangelsi. Þar hafði hann dúsað við illan aðbúnað og án ákæru þar til hann lést. Hann reyndi ítrekað að biðja um læknishjálp en fékk ekki og lést að því er virðist af völdum veikindanna. Browder segir að hann hafi verið gísl og að honum hafi verið refsað fyrir að vera ógnun við spillta stjórnmála- og embættismenn.
Ég fann myndband á YouTube þar sem Browder segir söguna, í stórum dráttum heyrist mér, og mér sýnist myndbandið vera gert af fyrirtæki Browders, Hermitage Capital. Ef ég hef skilið vogunarsjóði rétt virðist þetta vera einn slíkur. En lítum á myndbandið sem er alveg makalaust ef satt er.
Rússaspjall hefur verið talsvert hér á Íslandi í þónokkur ár, en blossað upp eftir hrun. Talað er um peningaþvætti og fleira miður fallegt. Skemmst er að minnast viðtals á Sky við Boris Berezovsky, útlægan ólígarka búsettan í London, þar sem hann fullyrti að Rússar hefðu þvegið sínar óhreinu brækur í íslenskum bönkum. Sigrún Davíðsdóttir flutti þennan fína pistil um Berezovsky í febrúar sl. þar sem fram kemur að karlinn er ekki barnanna bestur og mannorðið kannski ekki Arion Ultra hvítt (eða var það Ariel?). En eins og segir á frummálinu "It takes one to know one", sem þýðir í þessu samhengi að maður þurfi að vera skúrkur til að bera kennsl á hina skúrkana. Hann ætti því að hafa hugmynd um hvað hann er að tala. Og í sjálfu sér gerði karlinn ekkert annað en að staðfesta orðróm sem hafði verið á kreiki ansi lengi hér á landi. Ég skrifaði um þetta litla færslu í febrúar, en rifjum upp viðtalið við Boris Berezovsky á Sky.
Þetta leiðir vitaskuld hugann að sögusögnunum um Íslendingana, greinaflokknum úr Ekstrablaðinu frá 2006 og viðtali Arnars Steinþórssonar við danska blaðamanninn sem rannsakaði viðskipti nokkurra af íslensku útrásardólgunum sem ég birti í heild sinni hér. Í myndaalbúminu um greinarnar í Ekstrablaðinu má sjá sögur frá Rússlandi í tengslum við íslenska auðmenn. Ég er löngu búin að fá sendan afganginn af greinunum, en það hefur farist fyrir hjá mér að útbúa og setja afganginn inn. En lítum á eina viðbót hér sem gæti þótt áhugaverð í tengslum við mál Browders, lögmanns hans og orð Berezovskys. Þessi grein fjallar m.a. um morð á rússneskum bankamanni.
Og höfum í huga að verið er að tala um að fá stórt lán frá Rússum, þeir vilja reisa hér olíuhreinsistöð og eflaust koma þeir víðar við á landinu. Getur verið að ekki hafi tekist að koma öllum hreinu nærfötunum úr landi áður en gjaldeyrishöftin voru sett á? Í því samhengi má líka spyrja fyrir hverja "gjaldeyrisglugginn" var skömmu eftir hrun - þegar leyfð voru gjaldeyrisviðskipti í nokkra daga áður en lokað var fyrir aftur. Heyrst hefur af Armaniklæddum mönnum á leið úr landi með heilu ferðatöskurnar fullar af seðlum. Ætli skýrsla Rannsóknarnefndarinnar komi eitthvað inn á svona mál eða eru þau of hættuleg til að snerta á þeim? Maður spyr sig...
Ekstrablaðið - 8. nóvember 2006 - smellið þar til læsileg stærð fæst
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)