Borgarafundirnir sem haldnir hafa verið í Reykjavík og á Akureyri í vetur hafa verið gríðarlega fjölsóttir og ógleymanlegir þeim sem þangað hafa komið. Á þá hafa mætt og setið fyrir svörum þingmenn, ráðherrar, fjölmiðlafólk, sérfræðingar af ýmsu tagi, leikmenn - og við, fróðleiksfús almenningur sem vill fá svör. Stundum höfum við fengið þau, stundum ekki. En enginn getur sakað okkur um að hafa ekki reynt.
Í kvöld, miðvikudagskvöld, er enn einn borgarafundurinn í Reykjavík - í þetta sinn í Iðnó klukkan 20. Yfirskrift fundarins er 500 milljarðar til eigenda - glæpur eða vinargreiði. Væntanlega dylst engum við hvað er átt.
Frummælendur verða þingmennirnir Atli Gíslason og Bjarni Benediktsson og Björn Þorri Viktorsson, hæstaréttarlögmaður. Orð Atla Gíslasonar í Silfri Egils um daginn eru ógleymanleg og Björn Þorri var í Silfrinu hér.
Í pallborði verða Haraldur L. Haraldsson, hagfræðingur og Jóhann G. Ásgrímsson, viðskiptafræðingur. Haraldur var gestur í Silfri Egils hér (sami þáttur og Björn Þorri var í), glærurnar sem hann notaði með erindi sínu á síðasta Borgarafundi eru hér og Jóhann G. Ásgrímsson var í Silfrinu hér.
Er það glæpur eða vinargreiði að lána vildarvinum 500 milljarða? Þetta eru engir smáaurar. Hvað ætli hafi verið að gerast í Landsbankanum og Glitni? Hvenær kemur það upp á borð? Hér kemur ýmislegt fram eins og í fyrri myndböndum.
Mætum á Borgarafundinn í Iðnó í kvöld klukkan átta!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)