25.4.2009
Hugleiðingar heiðursfólks
Páll Skúlason og Vigdís Finnbogadóttir voru gestir Hjálmars Sveinssonar í
Krossgötum í dag. Þennan þátt þurfa allir að hlusta á - og það vandlega. Þau koma víða við - ræða t.d. um skort á almennilegri rökræðu á Íslandi og rökræðuhefð. Þau koma inn á hræðslu við að ástunda og tjá gagnrýna hugsun og hið hættulega vald pólitíkurinnar. Þau tala líka um þátt fjölmiðla í umræðunni og ótalmargt fleira.
"Þurfum við á hugtakinu þjóð að halda?" spyr Hjálmar. Hlustið á svarið. Hlustið á Pál, Vigdísi og Hjálmar. Frábær þáttur.
Skrár tengdar þessari bloggfærslu:
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)