29.4.2009
Er Ísland gjaldþrota?
Þann 16. febrúar sl. var Borgarafundur í Háskólabíói undir yfirskriftinni Staðan-Stefnan-Framtíðin. Þar var einn frummælenda Haraldur Líndal Haraldsson, hagfræðingur. Haraldur var tvisvar í Silfri Egils í vetur, sjá hér og hér. Í erindi sínu á Borgarafundinum birti hann og rökstuddi mjög vel ískyggilegar tölur um stöðu þjóðarbúsins. Glærur úr erindi Haraldar hafa verið aðgengilegar hér.
Sama kvöld var viðtal við Tryggva Þór Herbertsson í Kastljósi, sjá hér. Hann nefndi tölur sem voru svo miklu lægri en tölur Haraldar að salurinn í Háskólabíói bókstaflega hristist af hlátri þegar það var upplýst - að mig minnir af fundarstjóra. Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra, var í pallborði og sagði aðspurður eitthvað á þá leið að rétt tala væri líklega mitt á milli - færi eftir hvaða forsendum menn gengju út frá. Sem er auðvitað grundvallaratriði.
Í gær var haldinn fundur í Félagi viðskipta- og hagfræðinga undir yfirskriftinni Hver er staða þjóðarbúsins? Er Ísland gjaldþrota? Þar fluttu þeir erindi, Haraldur Líndal og Tryggvi Þór. Fleiri voru í pallborði og lesa má um fundinn á bloggsíðu Marinós G. Njálssonar. Fundurinn fékk eina og hálfa mínútu í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi en ekki var minnst á hann á RÚV...
Hann fékk svolítið pláss í Mogganum í dag en heilsíðu (myndir innifaldar) í Fréttablaðinu...
Að lokum fékk fundurinn 9 mínútur og 17 sekúndur í Speglinum í gærkvöldi, sjá viðhengi neðst í færslunni. Svo mörg voru þau orð og svo mikill áhugi á að miðla almenningi sannleikanum um stöðu þjóðarbúsins og því, hvort Ísland sé gjaldþrota.
Ég ætla því að gera svolitla tilraun sem ég veit ekki til að hafi verið gerð áður á neinu bloggi. Haraldur Líndal Haraldsson hefur góðfúslega fallist á að svara spurningum áhugasamra hér í athugasemdum við þessa færslu í kvöld milli kl. 20 og 22. Þau sem vilja bera fram spurningar eru beðin að kynna sér það efni sem tiltækt er - m.a. eru hér glærur Haraldar frá fundinum í gær. Ég bendi líka á greinar Ragnars Önundarsonar hér, Andrésar Magnússonar hér (einkum Naust), bloggsíðu Tryggva Þórs hér og hvaðeina sem fólki dettur í hug að benda á og tengist þessu umræðuefni. Ef einhver treystir sér til að grafa upp upplýsingar á vefsíðu Seðlabankans er hún hér.
Það verður gaman að vita hvernig til tekst. Haraldur er ekki bloggvanur, athugasemdakerfið stundum viðsjált - einkum fyrir þá sem ekki eru á Moggablogginu - og ég gæti þurft að koma svörum hans til skila í athugasemdirnar, en við sjáum til hvernig gengur. Ég bið þá sem vilja taka þátt í þessari tilraun að reyna að hafa spurningar stuttar og hnitmiðaðar. Spyrja og svara eins og verið sé að útskýra málin fyrir 10 ára barni (mér, t.d.). Við erum ekki öll talnaglögg og glúrin í hagfræði.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (49)
29.4.2009
Fagmenn og fúskarar
Þessi auglýsing er með því ógeðfelldasta sem ég hef séð og sést þó margt ósmekklegt á vettvangi auglýsinganna. Og hvað er svo verið að auglýsa? Jú... faglærða iðnaðarmenn. Smiði, pípara, rafvirkja og aðra fagmenn í iðngreinum. Ef enginn væri textinn væri ekki mögulegt að giska á það. Ekki séns. Mér varð bumbult þegar ég sá þetta og vonandi birtist þessi "auglýsing" aldrei nokkurs staðar aftur.
Viðbót: Var að sjá þetta á Eyjunni.
Bloggar | Breytt 30.4.2009 kl. 01:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)