Gestaþraut!

Þær fréttir bárust að í  ljósi umræðunnar um fyrirhugaða Bitruvirkjun ætli OR að halda annan kynningarfund á morgun, þriðjudag, klukkan 17:00 að höfuðstöðvunum við Bæjarháls.

Umræðan hefur að mestu skapast vegna heimasíðunnar www.hengill.nu, sem er tilraun til að vekja fólk til umhugsunar um þau náttúruspjöll sem á að fremja á Hengilssvæðinu, algjörlega að nauðsynjalausu, og reyna að sporna við þeim.

Ég vildi fá þetta staðfest og fór því inn á vef Orkuveitunnar, www.or.is.  Það tók mig þó nokkurn tíma að finna upplýsingar um téðan fund svo engan skyldi furða að mæting á slíka fundi sé ansi rýr þegar svo mikið þarf til að bera sig eftir björginni.  Þetta var gestaþraut sem OR getur verið stolt af.

Annars er slóðin að fundarboðinu hér: http://or.is/UmOR/Fjolmidlatorg/Frettir/Lesafrett/1375 og eru allir sem vettlingi geta valdið og láta sér annt um íslenska náttúru hvattir til að mæta og spyrja OR-menn út úr.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband