Hroki og hræðsluáróður

Mér var gróflega misboðið þegar ég las viðtal við Eirík Hjálmarsson, upplýsingafulltrúa Orkuveitu Reykjavíkur, á bls. 8 í Fréttablaðinu í dag - sjá má viðtalið hér og neðst í þessum pistli. Þar er slegið upp í fyrirsögn orðum Eiríks sem segir: "Aðrir kunna að virkja ef OR hættir við". Eiríkur minnir einnig á: "...að hver sem er geti byggt virkjun, til dæmis stórkaupendur raforku". Hvað meinar maðurinn? Síðan hvenær getur hver sem er byggt virkjun á Íslandi? Á hann við að erlendu álrisarnir geti eyðilagt íslenska náttúru og byggt virkjun þar sem þeim sýnist ef þeim mislíkar við íslenskar orkuveitur?

Þarna reynir Eiríkur blygðunarlaust að blekkja almenning með hótuninni um að "ef við gerum það ekki þá gerir það bara einhver annar". Eins og hvaða fyrirtæki sem er geti byggt virkjun hvar og hvenær sem er ef því þóknast. Svona málflutningur ætti að vera fyrir neðan virðingu viti borins manns eins og Eiríks - hann veit betur.

Annað sem ég hnaut um í málflutningi Eiríks var af hvílíkum hroka hann talaði niður til þeirra fjölmörgu sem sendu inn athugasemdir við fyrirhugaðri Bitruvirkjun. Aldrei í Íslandssögunni hafa borist eins margar athugasemdir við neinni framkvæmd á landinu - alls 660. Til samanburðar bárust 372 athugasemdir við Kárahnjúkavirkjun, en þar sváfu Íslendingar á verðinum.

Eiríkur segir að af þessum 660 athugasemdum hafi "því miður" 540 verið samhljóða efnislega. Af hverju "því miður", Eiríkur? Eru þær ekki jafngildar öðrum athugasemdum af því þær voru samhljóða? Segir það Eiríki og yfirmönnum OR ekkert að 540 manns hafi haft fyrir því að kynna sér málið í stórum dráttum, taka afstöðu með náttúrunni, afrita athugasemdina af vefsíðunni www.hengill.nu og senda hana í eigin nafni til Skipulagsstofnunar og Sveitarfélagsins Ölfuss? Var þá með sömu rökum ekkert að marka t.d. undirskriftir þúsunda Suðurnesjabúa fyrir skömmu af því þeir skrifuðu allir undir sömu yfirlýsinguna?

Ég mótmæli þessum hrokafulla málflutningi og tel mig tala fyrir hönd þeirra sem sendu inn samhljóða athugasemdir - okkur er öllum fúlasta alvara og við krefjumst þess að tekið verði fullt tillit til athugasemda okkar, þótt þær séu samhljóða. Vægi þeirra er síst minna fyrir það. Við ætlumst einnig til þess að forsvarsmenn Orkuveitu Reykjavíkur sýni eigendum fyrirtækisins, Reykvíkingum, þá sjálfsögðu kurteisi að tala ekki niður til þeirra eins og þeir séu kjánar.

Reynslan hefur sýnt að þar sem reist er virkjun er náttúran nánast dauðadæmd og að jarðvarma- og jarðgufuvirkjanir eru alls ekki eins sjálfbærar og umhverfisvænar og af er látið. Virkjun getur aldrei verið "í sátt við náttúruna" eins og talsmenn Bitruvirkjunar hafa klifað á. Alltaf þarf að fórna einhverju og í tilfelli Bitruvirkjunar er fórnin einfaldlega allt of mikil. Svo virðist sem Íslendingar séu smátt og smátt að átta sig á og hafna yfirgangi álvera, annars orkufreks iðnaðar og orkuvera eins og OR og Landsvirkjunar. Þeir eru að vakna til vitundar um afleiðingar virkjanaæðisins - þau óafturkræfu spjöll á náttúrunni sem meirihluti þjóðarinnar er ekki tilbúinn til að samþykkja. Svo ekki sé minnst á efnahagslegu áhrifin, metþenslu hagkerfisins, verðbólgu, himinháa vexti og fjárhagslegt óhóf sem bitnar á almenningi í landinu.

Það er ekkert grín að setja sig inn í mál eins og frummatsskýrslu Orkuveitu Reykjavíkur og sjálfsagt ekki mjög margir í stakk búnir til að leggja mat á allt sem í henni stendur - fyrir nú utan þær upplýsingar sem eru faldar og koma hvergi fram eins og lesa má um hér. Svona skýrsla er gríðarlega löng, mjög fræðileg að mestu og svo tæknileg að almenningi eða leikmönnum er gjörsamlega ómögulegt að meta hana efnislega nema að takmörkuðu leyti.

Ég hlóð allri frummatsskýrslunni inn í tölvuna mína fyrir nokkrum vikum. Það tók þó nokkuð langan tíma og hún þurfti mikið pláss. Svo fór ég að skoða og ætla nú að tína til nokkrar staðreyndir um umfang skýrslunnar. Hún er gróflega flokkuð í fjóra hluta og sett fram á .pdf-sniði (Adobe Acrobat): Frummatsskýrsla, Samantekt, Kort og myndir og Viðaukar.

Frummatsskýrslan er 158 bls. - 4,45 MB
Samantektin er 13 bls. - 14,2 MB
Kort og myndir eru 26 skjöl - 68,1 MB
Viðaukar eru 20 skjöl, alls 546 bls. - að mestu leyti skýrslur fræðimanna - 336 MB

Alls eru þetta 422,75 MB - næstum hálft GB

Lesningin er alls 717 blaðsíður og þá eru kortin og myndirnar ekki taldar með.
Ég lagði ekki í að telja þann hluta.

Frummatsskýrslan umrædda, sem er mat á umhverfisáhrifum Bitruvirkjunar, er unnin af Orkuveitu Reykjavíkur, aðalhagsmuna- og framkvæmdaraðilanum, í samvinnu við VSÓ-ráðgjöf. Athugasemdir voru sendar til Skipulagsstofnunar og þar voru þær taldar og flokkaðar. Síðan á að dæma í málinu - fara yfir athugasemdirnar, vega þær og meta og semja lokamatsskýrslu með tilliti til þeirra. Og hver gerir það? Jú, aðalhagsmuna- og framkvæmdaraðilinn, Orkuveita Reykjavíkur, í samvinnu við VSÓ-ráðgjöf. OR og VSÓ eiga semsagt að dæma í eigin máli, meta hvort eitthvað sé að marka athugasemdir við eigin frummatsskýrslu sem fyrirfram er búið að dæma með þeim orðum að þær séu "því miður" flestar samhljóða.

Heldur virkilega einhver að eitthvað verði að marka dóm þessara fyrirtækja yfir sjálfum sér og eigin vinnubrögðum? Varla verður dómurinn hlutlaus, svo mikið er víst. Nú kemur til kasta Skipulagsstofnunar, umhverfisráðherra og nýrrar stjórnar OR að hindra þennan gjörning og Alþingis að breyta lögum um mat á umhverfisáhrifum.

Frettabladid-181107


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Katarina Viklund

And what would Eirikur do if ALL these people had been signing their name on the same paper, as is often done in cases like this??? Of course all protests count, all people who have sent in their protests have read and signed their names because they AGREE with every word. Sorry Eirikur, that is the fact...

Katarina Viklund, 18.11.2007 kl. 21:53

2 identicon

Góður pistill hjá þér Lára Hanna.

Eiríkur það er ekki miður að 540 innsendar athugasemdir voru samhljóða, það er frábært að 540 manns sýndu það í verki að þeir eru ekki sammála frummatsskýrslu OR vegna fyrirhugaðrar Bitruvirkjunnar og að þeim er ekki sama um hvernig farið er með eina af mestu náttúruperlum Suðvesturlands.

Það þarf klárlega að færa skipulagsmál úr höndum sveitarfélaganna. Þau hafa greinilega ekki þekkingu eða mannafla til að sinna þeim svo vel sé ef 500 milljónir þarf í aðkeypta ráðgjöf og lögræðiþjónustu. Eiríkur telur ekkert óeðlilegt við það að framkvædaraðili taki þátt í kostnaði við aðkeypta vinnu sveitarfélaga til þess að afgreiðsla umsagna og leyfa verði eins hröð og hægt er. Halló er ekki alveg í lagi með þessa menn. Á mannamáli heita þetta mútur. Sveitastjórinn í Ölfusi hefur einnig látið hafa það eftir sér í dagblöðum að allt of auðvelt sé fyrir hinn almenna borgara og félagasamtök að kæra hin og þessi leyfi og tefja þannig framkvæmdir. Loksins skilur maður hvers vegna honum svíður það að fólk sé að mótmæla fyrirfram ákveðnu skipulagi og tefja þannig framkvæmdir. Skildi vera að greiðslurnar til sveitastjóranns hækki eftir því sem skipulagsferlið er hraðvirkara?  Hroki OR og sveitastjórans í Ölfusi er með eindæmum. Við erum búnir að ákveða að virkja á þessum stöðum hvort sem ykkur líkar betur eða verr og ekkert sem þið segið eða gerið fær því breytt.

Það væri fróðlegt að vita hvort fyrirtæki í eigu sveitarstjórnarmanna í Ölfusi tengist á einhvern hátt ráðgjöf eða framkvæmdum vegna virkjana OR.

Gefumst ekki upp látum heyra að okkur líki ekki svona siðlaus vinnubrögð.

Gunnar Jónsson (IP-tala skráð) 18.11.2007 kl. 23:41

3 identicon

Gott að einhver heldur vöku sinni Lára Hanna!

Maður veltir fyrir sér hverjum sé treystandi fyrir ákvarðanatöku.  Sveitarstjórnir vinna að skammtímahagsmunum og verða einnig að gæta að vinsældum verka sinna svo þær nái endurkjöri.  Langtímahagsmunir sem eru einnig þess eðlis að ekki rúlla aurar í kassan NÚNA eru ekki á vinsældarlista þeirra. Haltu áfram að vera vakandi fyrir mig og okkur hin!

Ása Björk Snorradóttir (IP-tala skráð) 19.11.2007 kl. 11:46

4 identicon

Það er auðvitað háalvarlegt má ef 540 manns eru sammála. Ég velti því hins vegar fyrir mér ef einhver annar virkjar í stað OR hvort sá aðili taki þá ekki yfir mútugreiðslurnar. OR gæti þá notað þessa aura til að laga dreifikerfið, en eins og flestir hafa tekið eftir þá líður varla sá dagur að ekki sé straumlaust einhversstaðar á dreifisvæði Orkuveitunnar. 

Karl Jóhannsson (IP-tala skráð) 19.11.2007 kl. 12:04

5 identicon

Ötul og kraftmikil eins og fyrri daginn Lára Hanna, átt heiður skilinn fyrir dugaðinn.  Manni finnst allur málflutningur í þessum málum orðinn svo sérkennilegur og óskiljanlegur að manni fallast nánast hendur. Og þá er nú gott að vita af kjarnakonum eins og þér Lára.

þórunn þórarinsdóttir (IP-tala skráð) 19.11.2007 kl. 12:27

6 identicon

 

Ég var nú búin að minnast á þetta með heilindi þeirra manna er að virkjunninni standa og handbendi þeirra.  Það er klárt mál að stjórnendum OR finnst ekkert að því að beita lygum og mútum til að ná sínu fram.  Syndin er bara að sveitarstjórnamenn í Ölfusi virðast kokgleypa við þessu öllu saman.

Mér þætti gaman að fá að sjá þau lög sem heimila erlendum stórkaupendum á orku að virkja þar sem þeir vilja í okkar landi.  Eríkur hlítur að geta bent á þau fyrst hann heldur þessu fram.

Hvernig má það svo vera að það séu OR og VSÓ sem fara yfir lokaskýrsluna og meti áhrif þessarar virkjunar en ekki einhver hlutlaus aðili ???  Í hvers konar bananlýðveldi búum við ???

Örvar Kristinsson (IP-tala skráð) 19.11.2007 kl. 14:08

7 identicon

Það er rétt að benda á að sveitarstjórnarmenn í Hveragerði hafa ítrekað lýst andstöðu við Bitruvirkjun. Það er hins vegar í höndum sveitarstjórnarinnar í Þorlákshöfn hvort af virkjun verður og það virðist þegar ákveðið. Pakkið í Reykjavík fær þar engu um ráðið, það bara borgar.

Karl Jóhannsson (IP-tala skráð) 19.11.2007 kl. 14:40

8 identicon

Hafðu þökk fyrir góðan pistil Hanna Lára.  Það vakti nú athygli mína að upplýsingafultrúi OR, ofangreindur Eiríkur Hjálmarsson, var á lista REI um forkaupsrétt yfirmanna OR á hlutabréfum í því félagi - og var með stærri kaupréttarákvæðum.

Varðandi sveitarstjórnarmál þá er það þannig að ekki þarf einu sinni að hafa lokið grunnskólaprófi til að setjast í sveitarstjórn, því menn lýðræðislega kosnir.

Það ætti að vera grundvallarskilyrði að skylda sveitarfélög til þess að kaupa hlutlausa ráðgjöf varðandi umhverfisáhrif allra framkvæmda á nýtingu og framsali náttúruauðlinda, sem t.d. jöfnunarsjóður sveitarfélaga greiddi eða annar sambærilegur opinber sjóður. 

Alma Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 19.11.2007 kl. 16:06

9 identicon

Auðvitað finnst Eiríki Hjálmarssyni miður að 540 manns séu sammála og sameinist í mótmælum gegn þessari virkjun. Það eru mjög kröftug mótmæli. Af ofangreindum umælum Eiríks má ráða að OR hlýtur að taka þessi mótmæli alvarlega. Forsvarsmenn OR gera sér grein fyrir þunga þeirra.

Steinar (IP-tala skráð) 19.11.2007 kl. 17:51

10 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Takk fyrir innlitið og innleggin.  Ég tek ofan fyrir Hveragerði vegna afstöðu þeirra og styð málflutninginn heilshugar. Ef forsvarsmenn OR, Skipulagsstofnun og sveitarstjórn Ölfuss taka ekki fullt tillit til allra þessara kröftugu og málefnalegu mótmæla þá er eitthvað mikið að í okkar svokallaða lýðræðisríki. En bíðum og sjáum til, ég hef trú á að hætt verði við Bitruvirkjun. Bjartsýnin lengi lifi!

Lára Hanna Einarsdóttir, 20.11.2007 kl. 10:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband