Stundum er erfitt að halda ró sinni...

...og höggva ekki mann og annan. Stundum langar mig að hrista fólk, taka á því eins og óknyttastrákum eða -stelpum og lesa því pistilinn ómengaðan. Stundum langar mig að vera einræðisherra á Íslandi og taka til hendinni, henda rusli og sópa úr skúmaskotum. En það er draumsýn og eina leiðin sem virðist fær er að reyna að nota mátt orðanna. En mig þekkja fáir og enn færri hlusta á mig. Þótt ég þoli ekki athygli vildi ég stundum óska þess að vera fræg. Ef ég væri fræg myndu fjölmiðlar kannski hlaupa upp til handa og fóta þegar ég munda lyklaborðið, taka við mig djúpvitur viðtöl og allir myndu hlusta í mikilli andakt. Annað eins hefur nú gerst þegar fræga fólkið tjáir sig. En ég er ekki fræg og fáir hlusta. Því miður. Ég auglýsi hér með eftir frægu fólki til að tala máli mínu. Það er sama hvaðan gott kemur - en hér ætla ég að láta vaða og taka stórt upp í mig.

Aldís Hafsteinsdóttir bæjarstjóri HvergerðingaÉg fór á íbúafund í Hveragerði á mánudagskvöldið, þar var verið að fjalla um málefni sem ég hef mikinn áhuga á, fyrirhugaða Bitruvirkjun við Ölkelduháls og möguleg áhrif hennar á lífsgæði og heilsu Hvergerðinga. Reyndar á alla íbúa suðvesturhornsins, en Hvergerðingar eru næstir svæðinu. Salurinn var fullur út úr dyrum, um 100 manns mættu og það var spenna í loftinu. Augljóst að málið hvílir þungt á Hvergerðingum - skiljanlega. Það á nefnilega að eitra fyrir þeim og þeir geta enga björg sér veitt. Lesið pistil bæjarstjóra Hvergerðinga um fundinn hér.

Það væri allt of langt mál að tíunda allt sem gerðist á fundinum, en þarna voru þrír frummælendur - frá Orkuveitunni, Hveragerði og Landvernd. Fulltrúi Orkuveitunnar virtist hálfþreyttur, áhugalítill og var lítt sannfærandi, bæði í pistli sínum og þegar hann svaraði hinum fjölmörgu fyrirspurnum sem beint var til hans frá fundargestum. Mín tilfinning var sú að honum fyndist þetta óþarfa bögg og afskiptasemi. Okkur kæmi þetta ekkert við.

Um daginn var ég byrjuð að skrifa pistil um brennisteinsvetni, búin að afla mér heimilda um víðan völl og lesa mér til, en forgangsröðin breyttist stöðugt og alltaf frestuðust pistilskrifin. Nú er ég komin á þá skoðun að best sé að einfalda umfjöllunina og vera ekkert að flækja málið. En ég tek skýrt fram að þetta er miklu flóknara mál en hér kemur fram og langt í frá að ég viti eða skilji allt sem hægt er um efnið. En ég skil samt ýmislegt.

Borholur á SkarðsmýrarfjalliÍ Wikipediu stendur þetta: "Brennisteinsvetni eða vetnissúlfíð (H2S) er litlaus, eitruð gastegund. Megn lykt er af brennisteinsvetni þó magn þess sé lítið í andrúmsloftinu, það er brennisteinsvetni sem veldur lykt af fúleggjum og jöklafýlu sem gjarnan fylgir hlaupum í jökulsám. Lyktin hverfur hins vegar þegar styrkur brennisteinsvetnis í andrúmslofti eykst og það verður lífshættulegt. Það eykur einnig á hættu að brennisteinsvetni er þyngra en andrúmsloftið og getur því lagst í dældir eða safnast fyrir í botnum á geymum og tönkum..." Þar segir ennfremur: "Um 10% af losun á H2S í heiminum er af mannavöldum. Í iðnaði er það einkum í olíuhreinsunarstöðvum. H2S finnst þar sem brennisteinn kemst í samband við lífrænt efni, sérstaklega ef um er að ræða hátt hitastig." Læt þetta nægja í bili en slóðin á þennan og meiri fróðleik er hér.

Semsagt... prumpufýlan sem maður finnur þegar farið er fram hjá t.d. skíðaskálanum í Hveradölum og víðar er brennisteinsvetni að kenna. Líka sú sem við finnum þegar við skrúfum frá heita vatninu í krananum hjá okkur - eftir því hvar við búum. Við erum vön þessari lykt, höfum alist upp við hana og finnst hún bara frekar fyndin. Erlendir gestir hafa gjarnan orð á lyktinni því hún er þeim framandi. En þótt brennisteinsvetni sé eitur er það ekki alvont efni. Það gerir sitt gagn í náttúrunni og jafnvel fyrir mannslíkamann - í hóflegu, náttúrulegu magni.

Við erum nú með fjórar jarðhitavirkjanir (samheiti mitt yfir jarðgufu- ogBorhola á Skarðsmýrarfjalli jarðvarmavirkjanir sem eru ólíks eðlis) á suðvesturhorni landsins. Svartsengi og Reykjanesvirkjun á Reykjanesi, Nesjavallavirkjun við Þingvallavatn og hina nýju Hellisheiðarvirkjun við rætur Hellisheiðar. Allar losa þær gríðarlegt magn af brennisteinsvetni út í andrúmsloftið, vitanlega umfram allt sem náttúrulegt getur talist. Reykvíkingar eru þegar farnir að finna fyrir útblæstrinum úr Nesjavalla- og Hellisheiðarvirkjunum. Fólk í eystri byggðum Reykjavíkur finnur fyrir áhrifum hans á augu, lungu og öndunarfæri. Bloggvinkona mín, Lilja Guðrún, skrifaði fínan pistil um barnabörnin sín og sjálfa sig í andnauð og kenndi um svifryki af völdum nagladekkja. Fleiri taka undir og lýsa sinni reynslu, sumir eflaust í austurhluta borgarinnar. Það er örugglega alveg rétt að svifryk eigi sinn þátt í andnauðinni, en gætu þessi áhrif á öndunarfærin verið í bland frá brennisteinsvetni? Spyr sú sem ekki veit.

Í tónlistarspilarann ofarlega vinstra megin á þessari síðu eru, auk fréttaumfjöllunar um fundinn í Hveragerði, tveir pistlar úr Speglinum frá í nóvember. Í öðrum er talað við Þorstein Jóhannsson, sérfræðing hjá Umhverfisstofnun og í hinum Sigurð Þór Sigurðarson, lækni og sérfræðing í lungna-, atvinnu og umhverfissjúkdómum. Báðir fjalla um hættuna sem getur skapast af of miklu brennisteinsvetni í andrúmsloftinu. Hlustið á þá.

HveragerðiStyrkur brennisteinsvetnis í Reykjavík er aðeins mældur á Grensás. Það er nú því sem næst í miðri Reykjavík. Engir mælar eru austar og nær Hellisheiðarvirkjun þar sem tugþúsundir búa. Enginn mælir er í Hveragerði. Eins og fram kemur í máli Þorsteins er styrkurinn ekki orðinn mikill ennþá, en langtímaáhrif af litlum styrk eru ekki þekkt, hvað þá af miklum styrk. Þorsteinn segir einnig að það sé alls ekki sjálfgefið að fólk stundi útivist nálægt blásandi borholum. Í máli Þorsteins kemur fram að hægt sé að hreinsa útblástur brennisteinsvetnis frá virkjununum. Upphaflega stóð ekki til hjá Orkuveitu Reykjavíkur að hreinsa hann, en nú hafa þeir vent kvæði sínu í kross og segjast ætla að hreinsa útblásturinn.

Á því loforði Orkuveitu Reykjavíkur eru þrír stórkostlegir gallar. Í fyrsta lagi sá, að þeir þurfa þess ekki og það er kostnaðarsamt. Engin lög ná yfir takmörkun á losun brennisteinsvetnis út í andrúmsloftið. Því verður að breyta. Í öðru lagi kom greinilega fram í máli fulltrúa OR á fundinum í Hveragerði að hreinsun brennisteinsvetnisins er á tilraunastigi. Þeir vita semsagt ekki ennþá hvort það tekst og hafa ekki prófað aðferðina sem þeir hyggjast nota. Samt á að virkja og treysta á guð og lukkuna. Í þriðja lagi kom líka fram að brennisteinsvetni verður ekki hreinsað úr útblæstri neinna borhola á framkvæmdatímanum - það eru mörg ár og fjölmargar holur. Aldrei verður heldur hreinsaður útblástur úr holum sem þarf stöðugt að bora og láta "blása", eins og þeir orða það (ég kann ekki tækniskýringu á því).

HellisheiðarvirkjunÁ fundinum í Hveragerði kom fram að suð-austasta borholan á áætluðu virkjanasvæði Bitruvirkjunar er aðeins 4.560 metra frá efstu húsunum í Hveragerði. Bitruvirkjun yrði í um 4 ár í byggingu og allan þann tíma myndu borholur spúa eitri yfir Hvergerðinga og aðra íbúa suðvesturhornsins, því ekki verður hreinsað á framkvæmdatíma. Svo verða um 3 holur látnar blása í einu, óhreinsaðar, næstu áratugina - ef ég skil þetta rétt - og spúa meira brennisteinsvetni yfir okkur. Miðað við orð Þorsteins og Sigurðar í Spegilsviðtölunum og óvissuna um langtímaáhrif brennisteinsvetnis í andrúmloftinu, jafnvel í litlu magni, geta t.d. astma-, lungna- og öndunarfærasjúklingar - og barnafólk - ekki búið í Hveragerði og jafnvel ekki í austurhluta Reykjavíkur. Ekki væri æskilegt að beina ferðafólki nálægt svæðinu svo Reykjadalurinn fagri fyrir norðan Hveragerði legðist af sem útivistarsvæði, svo og allt svæðið í kringum náttúruperluna Ölkelduháls. Þetta er ófögur framtíð fyrir fallegan, lítinn bæ í fögru umhverfi og áhyggjur Hvergerðinga skiljanlegar.

En á fundinum var dreift tillögu til þingsályktunar um takmörkun á losun brennisteinsvetnis af mannavöldum í andrúmslofti. Fyrsti flutningsmaður er Álfheiður Ingadóttir og þetta er mjög þarft framtak, það verður að koma böndum á losunina. Vonandi bera þingmenn allra flokka gæfu til að samþykkja þingsályktunartillöguna hið snarasta.

Reykvíkingar fá þetta eitur líka yfir sig áfram, því auk Bitruvirkjunar er enn ein jarðhitavirkjunin áætluð í Hverahlíð, sunnan við þjóðveg nr. 1 sem liggur um Hellisheiðina. Þá væru virkjanir á svæðinu orðnar fjórar og tvær í viðbót á teikniborðinu, alls sex jarðhitavirkjanir á sama blettinum.

Fjölmargt fleira kom fram á fundinum í Hveragerði, ég hef eingöngu fjallað um einn þátt af mörgum sem þar var minnst á. Íbúar eru felmtri slegnir og alls ekki að ástæðulausu. Að sumu leyti eru þeir að berjast fyrir lífi sínu - en hafa engin vopn. Þeir eru algjörlega berskjaldaðir. Reykvíkingar líka.

Mig langar stundum að missa mig, hrista virkjanasinna duglega og lesa Frá Ölkelduhálsiþeim pistilinn. Hvað á svona nokkuð að þýða? Hvernig dettur þeim í hug að fara svona með náungann... og sjálfa sig? Og hvernig voga þeir sér að sýna slíkt fyrirhyggjuleysi gagnvart afkomendum okkar og komandi kynslóðum? Hvernig stendur á því að óspillt náttúra er ekki metin að verðleikum? Af hverju á að göslast áfram og ana út í óvissu sem getur stofnað heilsu og jafnvel lífi samborgaranna í hættu og stela frá okkur náttúruperlum sem enginn hefur haft rænu á að meta til fjár?

Svarið er í raun einfalt: Til að framleiða raforku fyrir eiturspúandi, erlenda stóriðju og græða peninga.

Ég hef ekki lokið máli mínu, en pistillinn er orðinn ansi langur og kannski leiðinlegur. Ég segi bara: "Framhald í næsta pistli..." Þá verður fjallað um græðgi, valdníðslu, skipulagsafglöp, ólög og fleira uppbyggilegt og skemmtilegt sem allir geta hlakkað til að lesa.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Indriðason

Þú ert sko EKKI ein um það að vilja hrista suma af svona fólki, og það verulega mikið að hrista. 

En, Nei.  Virkjum allt sem hægt er að virkja.  NÚNA!  Við skulum drífa okkur áður en núverandi kjörtímabil er úti, til að geta sýnt fram á góðan árangur, svo við fáum kosningu aftur.  Afhverjum ættum við að hafa áhyggjur af afkvæmum okkar?  Við bara eitrum nógu mikið til að það verði engin afkvæmi, skítt með þau!  Þá getum við grætt nógu mikið til að kaupa útlendinga til að sjá um okkur þegar við verðum gömul, og engin afkvæmi til að sjá um okkur.

Argh!

Einar Indriðason, 23.4.2008 kl. 08:24

2 Smámynd: Bumba

Takk takk og aftur takk fyrir þennan langa og (kannski fyrir þér ) "leiðinlega pistil". Mjög fróðlegur og athyglisverður. Hlakka til að lesa þann næsta. Þú þarft ekki að vera fræg Lára Hanna mín til að láta heyra í þér, þú skalt bara hefja upp raust þína og láttu meiningar þínar flakka. Eftir þeim mun verða tekið svo framarlega sem þú hefur upp á gott efni að bjóða kæra bloggvinkona. Með beztu kveðju.

Bumba, 23.4.2008 kl. 08:24

3 Smámynd: Sigurður Hrellir

Takk fyrir þennan fína pistil. Það væri vissulega óskandi að fleira frægt fólk talaði tæpitungulaust á svipaðan hátt og þú en hins vegar geta það fæstir sökum takmarkaðrar þekkingar á efninu. Listamenn tjá sig með list sinni og einnig það hefur áhrif. Vísindamenn sumir hverjir láta óttann ráða för og segja því ekkert sem stuðað gæti yfirvöld og áhrifamikil fyrirtæki.

Þú mátt til með að halda áfram að skrifa á þessum nótum því að það vekur augljóslega fólk til umhugsunar. Ég sakna þess bara að þú skulir ekki oftar senda ádrepur þínar til dagblaðanna. Ég bíð spenntur eftir framhaldinu.

Með kveðju, 

Sigurður Hrellir, 23.4.2008 kl. 08:34

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þú ert ótrúlega klár kona LH bara svo ég segi þér það.  Ég er alltaf að læra meira og meira af pistlunum þínum, því satt best að segja hef ég ekki sett mig of mikið inn í öll þessi mál.

Ég bíð spennt eftir framhaldi og nei þetta er ekki leiðinlegur pistill.

Jenný Anna Baldursdóttir, 23.4.2008 kl. 09:33

5 Smámynd: Óskar Þorkelsson

gott framtak hjá þér Lára og mjög svo skemmtilegur pistill :)

Óskar Þorkelsson, 23.4.2008 kl. 10:22

6 identicon

Þakka þér frábæran pistil Lára Hanna.  Það er mikilvægt að láta til sín heyra og þú setur málin fram á svo skilmerkilegan hátt og skiljanlegan að menn hljóta að heyra og skilja.  Það er gríðarleg græðgi í gangi í þjóðfélaginu nú um stundir og margir sem fá glýju í augun.  Olíuhreinsunarstöð í Arnarfjörð/Dýrafjörð er  hroðalegt dæmi þar um.  En við verðum að standa vörð um landið.  Ölkelduháls er eitt af fádæma fallegum svæðum, sem er unun að ferðast um.  Baráttukveðjur og gangi þér vel.  Auður

Auður Matthíasdóttir (IP-tala skráð) 23.4.2008 kl. 10:53

7 identicon

Takk fyrir góðan pistil! Ég var líka á á fundinum í Hveragerði. Mér leiddist frekar fyrirlestur OR - enda búin að hlusta á þetta a.m.k. tvisvar áður - endalausar lýsingar á því hvað það er búið að vinna vel að því að draga úr áhrifum virkjunnar - sem er að sjálfsögðu mjög gott og ég fagna því og vona að þetta verði notað einnig á þeim virkjunum sem eru þegar fyrir hendi. En það virðist ekki komast fyrir sú hugsun að hætta alveg við Bitruvirkjun. Þegar margir Hvergerðingar höfðu lýst yfir ósk um að hætt verði við virkjunina þá var það bara afgreitt með að "þetta er þá bara ólík sjónarmið". Mér er efst í minni þegar Dofri kom með tillögu um að geyma þetta svæði fyrir framtíðina - þá var svar OR að ef það yrði geymt mundi það skila nákvæmlega engu! En fyrir hvern??? Það mundi kannski ekki skila neinu í MW eða í peningum til OR - en það mundi skila gríðarlega miklu sem útivstarsvæði allra íbúa á suðvesturhorninu - og það er ekki hægt að meta í peningum! Sem betur fer kom talsmaður Hvergerðinga þessu til skila - að ef þarna yrði virkjað þá mundi það ekki skila Hvergerðingum neinu í framtíðinni - en ef það væri látið í fiði þá er svæðið mjög verðmætt bæði  sem útivistarsvæði íbúa og fyrir Hveragerði sem heilsu- og ferðamannabæ.

Mín skoðun er sú að þetta svæði þarf að friðlýsa til að engin vafi verði um það í framtíðinni að þar verði hægt að njóta öræfakyrrðar í fjölbreyttri náttúru steinsnar frá höfuðborginni!

Petra Mazetti (IP-tala skráð) 23.4.2008 kl. 12:08

8 identicon

Þakka þér fyrir að setja mál þitt fram þannig að venjulegt fólk geti skilið.  Ég mun fylgjast með pistlunum þínum áfram. kveðja Ása Björk

Ása Björk (IP-tala skráð) 23.4.2008 kl. 18:38

9 identicon

Frábær lesning - eins og alltaf - (þetta er ekki biluð plata hjá mér - heldur sannleikur). Ég fór sjálf á íbúafund í gær og hann var merkilegur, blogga hugsanlega um það síðar. Almennt finnst mér svo sorglegt hvernig fyrirtæki og stjórnvöld oft á tíðum nota óheiðarlega taktík þegar þeim er mikið í mun að selja vondar hugmyndir. Mér finnst það alltof algengt - því miður - og mig grunar að OR sé einmitt dæmigert svoleiðis batterí.

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 23.4.2008 kl. 21:20

10 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Já, mér hefur einmitt alltaf fundist vera einhver skítalykt af þessu máli. Allavega brennisteinsvetnisfýla, sem er kannski það sama.

Emil Hannes Valgeirsson, 23.4.2008 kl. 21:36

11 Smámynd: Þröstur Unnar

Þú ert dugnaðarforkur.

Fróðleg lesning.

Þröstur Unnar, 23.4.2008 kl. 21:53

12 Smámynd: Hagbarður

Takk fyrir þennan góða pistil.

Hagbarður, 24.4.2008 kl. 09:47

13 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Takk fyrir góðan og fróðlegen pistil. Tek undir með Emil, það er skítalykt af þessu!

Haraldur Bjarnason, 24.4.2008 kl. 09:58

14 Smámynd: Óðinn Þórisson

"en pistillinn er orðinn ansi langur og kannski leiðinlegur"

sammála þér.

Óðinn Þórisson, 24.4.2008 kl. 11:03

15 identicon

Virkilega skemmtilegur og þarflegur pistill. Er hjartanlega sammála öllu sem kemur fram hér, það er kominn tími til að það sé hlustað á fólkið í landinu. Ekki bara vaða áfram með yfirgangi hvar sem hentar.

Þórhallur Einisson (IP-tala skráð) 24.4.2008 kl. 12:07

16 identicon

Ég hlusta á þig Lára Hanna ... og tek undir með Jenný ... þú ert ótrúlega klár kona! :)

Harpa Elín (IP-tala skráð) 24.4.2008 kl. 17:53

17 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Eins og venjulega fróðlegur, vel rökstyddur og góður pistill. Gleðilegt sumar og takk fyrir veturinn hér í bloggheimum.

Steingerður Steinarsdóttir, 24.4.2008 kl. 18:23

18 Smámynd: Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir

Gleðilegt sumar bloggvinkona - takk fyrir bloggsamskiptin í vetur.

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 24.4.2008 kl. 21:13

19 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Takk fyrir innilitið og orð í belg, öllsömul. Gott að vita að fólki fannst pistillinn hvorki of langur né leiðinlegur - nema Óðni auðvitað, en eftir allt hrósið frá honum eftir síðasta eða þarsíðasta pistil var bara nauðsynlegt að fá svolítið jafnvægi.

Siggi Hrellir...  þetta með að senda til blaðanna. Það er hægara sagt en gert. Blöðin hafa þá reglu að pistill má ekki vera meira en 5.000 slög með bilum. Þessi hér að ofan er t.d. 9.565 slög. Ég gerði tilraun með pistil frá 12. mars sl. Hann var 10.716 slög. Þegar ég var búin að stytta hann eins og ég mögulega gat var hann kominn niður í 7.700 slög og orðinn steingeldur. Ég reyndi ekki einu sinni að senda hann sem grein í blöðin. Ég er ekkert sérlega stuttorð og mér er mikið niðri fyrir. Þótt það sé mikill kostur að geta sett hlutina fram í stuttu máli lætur mér illa að skrifa í skeytastíl - og alls ekki þegar nauðsynlegt er að útskýra flókin mál. Ég ætti líklega auðvelt með að fylla heilsíðu í Mogganum vikulega eða svo, en maður fær bara ekki slíkt pláss.

Ég tek heilshugar undir með Petru, það á að friða Ölkelduháls og svæðið þar í kring og reyna einhvern vegin að fyrirbyggja algjörlega að virkjað verði þar í grennd. Og hún nefnir þarna líka atriði sem ég man frá fundinum og lýsa fádæma hroka í tilsvörum fulltrúa OR.

Ég er búin að fá þónokkra tölvupósta eftir þennan pistil og eins og áður eintómar þakkir og stuðningsyfirlýsingar. Fólk leggur á sig að finna netfangið mitt og senda mér póst. Það er ómetanlegt líka, rétt eins og sá stuðningur sem ég fæ hér í athugasemdunum. Það er gott að vita að fólki er ekki sama um náttúruna og umhverfi sitt.

Gleðilegt sumar og takk fyrir veturinn... 

Lára Hanna Einarsdóttir, 24.4.2008 kl. 22:56

20 Smámynd: Eva Benjamínsdóttir

Fróðlegt og gott að vita af þér Lára Hanna, málefnaleg og með kyndilinn á lofti fyrir alla fávitana. Takk fyrir mig og gleðilegt sumar....

Eva Benjamínsdóttir, 25.4.2008 kl. 01:00

21 Smámynd: Einar Indriðason

Lára Hanna, þú gætir hugsanlega farið þá leið, að í staðinn fyrir að stytta pistlana, að merkja þá:  "Pistill ... Hluti 1"

og senda svo "Pistill ... Hluti 2" viku síðar, eða svo.

En... innlitskvitt, og gleðilegt sumar :-)

Einar Indriðason, 25.4.2008 kl. 08:48

22 Smámynd: Kjartan Pálmarsson

Hver gerði hver-jum grikk í sumar.

Bestu sumarkveðjur úr Kópavoginum

Kjartan Pálmarsson, 25.4.2008 kl. 09:48

23 Smámynd: Ragnheiður Ólafía Davíðsdóttir

Kærar þakkir. Ég segi eins og svo margir aðrir; ég er mun fróðari en áður um þennan málaflokk eftir að hafa lesið færslurnar þínar. Gleðilegt sumar, Lára mín.

Ragnheiður Ólafía Davíðsdóttir, 26.4.2008 kl. 22:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband