27.8.2009
Heilræði herramanna
Tveir eldri herramenn vöktu athygli mína og ég lagði við hlustir. Annar var í Kastljósinu í kvöld og hinum var sagt frá í Speglinum á þriðjudagskvöld. Báðir eru hoknir af reynslu og eins og segir í máltæki úr Bandamannsögu: Hafa skal heil ráð, hvaðan sem koma. Það er ástæða til að hvetja ráðamenn og aðra sem koma að íslenskri endurreisn til að hlusta vandlega á svona menn.
Í Kastljósinu var rætt við Tormod Hermansen, norskan hagfræðing, sem tók þátt í uppbyggingu bankakerfisins í Noregi fyrir um 20 árum. Bankakreppan þar í landi hafði skapast við umskipti úr ströngu eftirliti með bankakerfinu yfir í frjálsara markaðsfyrirkomulag. Frelsið vefst víðar fyrir bankamönnum en á Íslandi og í raun stórmerkilegt að þessi dæmi, sem menn höfðu fyrir augunum - reynsla Norðmanna, Finna og Svía - hafi ekki verið íslenskum banka- og ráðamönnum víti til varnaðar. Svona er nú græðgin öflug.
Ýmsir hafa verið fengnir til skrafs og ráðagerða eftir hrun. En það er vitagagnslaust að leita ráða hjá reynsluboltum ef svo er ekki hlustað eða farið að ráðum þeirra. Ómar Ragnarsson er með snögga yfirferð yfir viðtalið við Tormod Hermansen í pistli sem hann kallar "Íslenska efnahagsundrið" tætt í sundur í Kastljósi". Lesið pistil Ómars og hlustið á Hermansen.
Tormod Hermansen í Kastljósi 27. ágúst 2009
Hinn herramaðurinn er þýskur sálfræðingur sem sagt var frá í Speglinum á þriðjudaginn, Horst-Eberhard Richter. Formáli Spegilsins hljóðar svona: "Einn af þekktustu núlifandi fræðimönnum Þjóðverja, sálfræðingurinn Horst-Eberhard Richter, heldur því fram að það sé til marks um siðferðilega hnignun vestræns samfélags, að ekki sé hægt að draga stjórnendur banka og annarra fjármálastofnana, sem hafi komið heilum samfélögum á vonarvöl, fyrir lög og dóm. Richter segir að markaðshyggja nútímans hafi snúist upp í "rándýrskapítalisma" sem einkennist af græðgi og félagslegu skeytingarleysi." Mér fannst þetta hljóma ansi kunnuglega eftir reynslu undanfarinna áratuga á Íslandi. Margt fleira er haft eftir Richter, meðal annars ummæli um konur sem heyrðust oft fyrst eftir hrun. Hlustið á Richter - hljóðskrá er viðfest hér fyrir neðan.
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Spilling og siðferði, Stjórnmál og samfélag, Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 23:19 | Facebook
Athugasemdir
Takk fyrir góðan pistil áðan.
Ég tek undir hvert orð sem þú sagðir. Nú vona ég að stjórnvöld taki af skarið ( svona einu sinni ) og sendi mannfj...... heim hið fyrsta.
Kveðja.
Þráinn Jökull Elísson, 28.8.2009 kl. 08:11
Ráðamenn voru með glýju í augunum og vildu vera með í sukkveislunni.
Annars vil ég þakka þér fyrir ötula baráttu gegn óréttlæti í íslensku samfélagi Lára Hanna.
Þú stendur þig svo sannarlega.
Haukur
Haukur Claessen (IP-tala skráð) 28.8.2009 kl. 11:49
Gæti ekki verið meira sammála þessari skilgreiningu Þjóðverjans. Alveg eins og mælt úr mínum munni!
mbk,bmg
bmg (IP-tala skráð) 28.8.2009 kl. 12:29
Það er því miður þannig með margt fólk, að ef það kemst í tæri við mikla peninga, þá gerist eitthvað svipað og þegar kýr sleppa inn í fóðurbætisgeymslu.
Húnbogi Valsson (IP-tala skráð) 28.8.2009 kl. 20:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.