Hræddir Íslendingar

Grein úr DV frá 6. janúar 2001 eftir Hallgrím Helgason. Smellið þar til læsileg stærð fæst.

Hræddir Íslendingar - Hallgrímur Helgason - DV 6. janúar 2009


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Fríða Eyland

Takk Lára fyrir góðar færslur. Mín skoðun er augljós ég vil nýtt ísland þar sem færni er meti umfram frændskap og vinskap.

Fríða Eyland, 22.11.2009 kl. 17:59

2 identicon

Vorum hér saman komin með  smá eldhús umræður og okkur datt í hug að gefa ykkur upp smá hugmynd að ransóknarefni.
Fyrir það fyrsta hefur alltaf verið talað um að Steingrímur J. Sigfússon sé með sitt heimilsfang á Gunnarsstöðum hjá mömmu sinni þó hann hafi ekki búið þar svo árum skiptir. Okkur langar að vita hvort móðir hans sé þar af leiðandi með skertar elli bætur vegna þessa.
Síðan er það Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra síðast þegar vitað var bjó hann í félagslegri íbúð á Sauðárkróki.  Spurningin er hvort hann búi þar enn.
Björgvin G. Sigurðsson var með mintkörfulán á heimili sínu fyrir ári síðan og var talað um að greiðslubyrgðin væri komin í 1.200.000,00 (tvöfalt þingfarakaup) á mánuði.
Getur hann staðið í skilum með þetta í dag eða fóru fram afskriftir þar? Ef hann er í skilum vill þjóðin fá uppskriftina, takk!
Vonum við að þið komið með fréttir af þessu sem fyrst.
Kær kveðja beint úr eldhúsinu.

Guðbjörg Hrafnsdóttir (IP-tala skráð) 22.11.2009 kl. 20:21

3 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Ástandið, sem Hallgrímur lýsti 2001 átti eftir að versna allmikið síðustu valdaár Davíðs. Ég og fólk í kringum mig vorum í hópi þeirra Íslendinga sem urðu þessa mest varir. Ég lýsti þessu ástandi í sjónvarpsviðtölum strax 2004 þegar ég upplífði þetta sterkast við gerð kvikmyndar og bókar um Kárahnjúkamálið og síðan ítarlegar í áttblöðungnum "Íslands þúsund ár."

Meðvirknin var orðin svo mikil í þjóðfélaginu að Davíð þurfti ekki lengur að gera neitt, - ótti fólksins við hann og hans menn hafði tekið völdin án afskipta hans.

Ómar Ragnarsson, 23.11.2009 kl. 00:20

4 Smámynd: Elfur Logadóttir

Sjálfsritskoðun er draumastaða hvers einvalds.

Elfur Logadóttir, 23.11.2009 kl. 02:10

5 Smámynd: Arinbjörn Kúld

Mikið rétt. Maður veigraði sér við að segja frá skoðunum sínum á þessum tíma. Fann vel óttan við eitthvað í samfélaginu og að það mætti ekki tala um vissa hluti. Alveg fram að hruni þá þorði maður ekki að segja hug sinn, gerði maður það þá fékk maður strax hvæs og urr frá einhverjum flokksbundnum. Eftir hrun er mér alveg sama.

Kveðja að norðan.

Arinbjörn Kúld, 23.11.2009 kl. 22:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband