Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2010

Réttarríkið Ísland og lífsgildi þjóðar

Ísland er réttarríki. Menn eru saklausir þar til sekt þeirra er sönnuð. Ísland er réttarríki. Menn eru saklausir þar til sekt þeirra er sönnuð. Ísland er réttarríki. Menn eru saklausir þar til sekt þeirra er sönnuð. Ísland er réttarríki...

Framhald hér...


Vesalingarnir

Mikið lifandis skelfing eiga þeir bágt, auðjöfrarnir sem rændu Ísland. Það má a.m.k. lesa út úr hjartnæmu viðtali við Jóhannes Jónsson í Bónus sem birtist í helgarblaði DV. Jóhannesi þykir illa farið með sig og vesalings blásaklausu börnin sín sem honum finnst væntanlega ekkert hafa gert af sér síðan þau pissuðu óvart í sig...

Framhald hér...


Maður klökknar bara

Þessi hjartnæmu skilaboð snerta mann djúpt. Ég mæli með því að fólk hafi tissjú og/eða vasaklúta við höndina...

Sjá hér...


Makalaus málflutningur

Samræður þeirra Tryggva Þórs og Magnúsar Orra í Kastljósinu í gærkvöldi voru alveg stórfurðulegar. Ég sé á bloggum og Facebook að ég er ekki ein um þá skoðun. Tryggvi Þór virðist gjörsneyddur allri tilfinningu fyrir siðferði, veit ekkert hvað það er. Hann fyrirlítur almenningsálitið - álit okkar og skoðanir - og kallar það "dómstól götunnar"...

Framhald hér...


Gróðærisbyggingaræðið

Ætli það hafi ekki verið í kringum 2002-2003 að ég byrjaði að velta fyrir mér hverju ég ætti að svara erlendum ferðamönnum sem allir spurðu um byggingarnar, kranana og nýju hverfin sem spruttu upp eins og gorkúlur út um allt höfuðborgarsvæðið. Niðurstaða mín var að svara bara sannleikanum samkvæmt...

Framhald hér...


Ábyrgð og ábyrgðarleysi

Ég skil þetta ekki. Botna bara ekkert í þessu og sætti mig alls ekki við þetta. Hvernig má það vera að stór hópur manna getur plantað sér í skilanefndir og slitastjórnir bankanna og skammtað sér margar milljónir á mánuði án þess að nokkur þurfi að svara fyrir það? Og skilanefndarmenn eru jafnvel...

Framhald hér...


Ofan gefur snjó á snjó

Þegar ég sá þessa mynd í Mogganum í dag ákvað ég að setja hana hér inn þegar og ef það færi að snjóa. Áðan sá ég úrkomubakkann úr fjarlægð og hann nálgaðist úr austri. Nú er snjórinn kominn á mínar slóðir þótt hann sé óttalega aumingjalegur ennþá. Veturinn hefur verið með eindæmum snjóléttur á suður- og suðvesturlandi...

Framhald hér...


Bankaleynd og skattsvik

Ég átta mig alltaf betur og betur á því, hve glæpir manna eru gríðarlegir og hve lengi þeir hafa staðið yfir. Skattalagabrot eru þar á meðal og ég treysti því að Ríkisskattstjóri og slíkar stofnanir séu á fullu að rannsaka þau. Einna skelfilegast finnst mér hvernig ríkisstjórnir Davíðs Oddssonar hvöttu til þeirra annars vegar og auðvelduðu skattaundanskot hins vegar með því...

Framhald hér...


Ekki benda á mig...

Umfjöllun Kastljóss í gærkvöldi var makalaus og gaf innsýn í yfirheyrslur Sérstaks saksóknara yfir Sjóvár- og Milestonemönnum. DV hefur skrifað hverja greinina á fætur annarri um málið og farið á kostum við afhjúpun á þessu máli sem og öðrum. Hér bendir hver á annan og enginn þykist vita neitt eða bera neina ábyrgð...

Framhald hér...


Bráðnauðsynlegt grasrótaraðhald

Þessi frétt var á RÚV áðan og er eðlilegt framhald atburða þar sem almenningi hefur verið misboðið daglega mánuðum saman. Sýnir að grasrótin er lifandi. En ég spyr: Hvað segir grasrót Samfylkingarinnar, hins ríkisstjórnarflokksins? Hefur hún ekki skoðanir á framferði bankanna...

Framhald hér...


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband