7.2.2010
Aflandseyjaskattaskjólin
Ég minntist á þessa grein og tengdi í hana í pistlinum Forréttindastéttin og fávitarnir um miðjan júní í fyrra. Þarna kemur fram að þegar árið 2000 voru bankarnir, þá ennþá ríkisbankar, farnir að aðstoða kvótagreifa og aðra auðmenn við að koma fé sínu í skjól undan skatti...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.2.2010
Spilling og siðleysi blómstra enn
Mér féllust hendur um daginn yfir endalausu siðleysinu og spillingunni á Íslandi. Ekki bara í fortíð heldur líka nútíð. Spillingarmálum er mokað upp í tonnavís á hverjum einasta degi. Það er ekki nokkur leið að halda utan um þetta allt saman...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.2.2010
Af skítlegu eðli
Sum orð verða fleyg, önnur ekki. Í febrúarmánuði árið 1992 hafði þingmaðurinn Ólafur Ragnar Grímsson þau orð um forsætisráðherrann Davíð Oddsson í ræðustól Alþingis að sá hefði skítlegt eðli. Engu skiptir nú hver umræðan var, enda ómerkileg í sjálfu sér - en orðin urðu nánast fleygari en sjálf krían...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
4.2.2010
Fréttir og annað sjónvarpsefni
Þátturinn Newswipe byrjaði á BBC 4 í mars í fyrra. Charlie nokkur Brooker fer þar á kostum við að "greina" fréttir og fréttaflutning og dregur fréttir og fréttamenn sundur og saman í háði, sem og annað ótiltekið sjónvarpsefni. Hann fer ofan í saumana á orðfærinu...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 02:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.2.2010
Ísland - spilltast í heimi!
Ég ætla ekki að hafa mörg orð um myndbandið hér að neðan. Dæmi hver fyrir sig. Nýja Ísland? Nei. Ísland í dag? Já. Nákvæmlega eins og Ísland í gær. Spilltast í heimi...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.2.2010
Svikasumar, flís og bjálki
Eins og ég hef áður sagt frá fæ ég ógrynni af tölvupósti frá öllu mögulegu og ómögulegu fólki, þekktu og óþekktu. Sumir skrifa aðeins einu sinni, aðrir nokkuð reglulega og efnið er fjölbreytt. Ég fékk einn slíkan póst á dögunum frá tryggum pennavini mínum og í honum var minnst á...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.2.2010
Hættulegt fólk
Sigrún Davíðsdóttir flutti mjög athyglisverðan pistil í Speglinum í kvöld. Inntak pistilsins var allt fólkið sem veit - en hefur ekkert sagt. Allt fólkið sem aðstoðaði, lokaði augunum og spurði engra spurninga... fólkið sem var óbeinir þátttakendur í og jafnvel bara áhorfendur...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þá er komið að næsta upprifjunar- eða formálapistli úr nýliðinni fortíð. Sá fyrsti er hér. Glögga lesendur er ef til vill farið að gruna tilgang og markmið. Þessi pistill er frá 26. mars 2009 og fjallar um það sem ég vil gjarnan kalla "gleymdu auðlindina"...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.1.2010
Áhrif og ábyrgð okkar
Það var athyglisvert að lesa athugasemdirnar við pistil Baldurs McQueen sem ég birti hér. Flestir voru alveg með á nótunum og skildu hvað Baldur var að fara. Málið er að í lýðræðisþjóðfélagi verða borgararnir að bera ábyrgð á atkvæði sínu og hvernig því er varið. Réttilega var bent á...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.1.2010
Max Keiser í Silfrinu
Mér fannst hann svolítið skondinn, náunginn sem var í Silfrinu hjá Agli í dag - Max Keiser. Ég stóð sjálfa mig að því að flissa öðru hvoru, alveg ómeðvitað. Ég hef séð manninn nokkrum sinnum og átti m.a. þáttinn sem hann vitnaði í á lagernum hjá mér...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.1.2010
Þanþol spillingar
Mig langar að kynna þá lesendur síðunnar sem ekki þekkja manninn fyrir Baldri McQueen Rafnssyni. Hann hefur verið búsettur í Bretlandi í nokkur ár og skrif hans bera þess merki að hann hefur vissa fjarlægð á atburðina á Íslandi. Það er mjög hollt fyrir okkur öll að lesa skrif fólks...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.1.2010
Skrumskæling lýðræðis - upprifjun I
Að gefnu tilefni ætla ég að endurbirta nokkra pistla úr nýliðinni fortíð. Allir verða þeir eins konar inngangur að því sem mér liggur á hjarta. Ég bið lesendur að afsaka að ekki hefur enn gefist tími til að laga alla pistlana sem tengt er í...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.1.2010
Gylfi láti gott á vita
Ég brosti upphátt þegar ég heyrði þessa frétt í gærkvöldi og þakkaði Gylfa í hljóði. Ég ætla að reyna að fylgjast með þessu frumvarpi, meðferð þess, umræðum og atkvæðagreiðslu um það og auðvitað lyktum þess. Þetta er eitt af því sem ég og margir fleiri höfum beðið eftir...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.1.2010
Mér fallast hendur
Á hverjum einasta degi - oft á dag - er mér misboðið. Ég fer í gegnum allan tilfinningaskalann mörgum sinnum á dag. Svo fallast mér stundum hendur eins og núna. Subbuskapurinn og spillingarmálin þessa vikuna hafa verið sérlega áberandi...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
27.1.2010
Tekinn!
Ef þetta mál væri ekki svona grafalvarlegt væri það kannski fyndið. Það komst upp um lögbrot þingmannsins, fjölmiðlar komust í málið og hann hugsaði með sér "Sjitt, tekinn!" og segist hafa skilað þýfinu. Hvert skilaði hann því? Flutti hann upphæðina...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.1.2010
Svarta skýrslan
Við vitum að skýrslan verður svört - kolsvört. Yfirlýsingar nefndarmanna þar að lútandi eru afdráttarlausar hvað það varðar eins og fram hefur komið við báðar frestanirnar. Við vitum að skýrslan verður löng og vonandi verður hún á mannamáli - að minnsta kosti það sem í glittir í gegnum alla svertuna...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
25.1.2010
Skilaboð til yfirvalda
Ágætu þingmenn og ráðherrar... og þeir embættismenn sem hafa kjark til að taka þetta til sín!
Mér finnst stundum að þið séuð ekki alveg með á nótunum. Reyndar oftast langt í frá. Mér virðist þið lifa í vernduðu umhverfi þar sem öllu illu er bægt frá, sólin skín, allir hafa nóg að bíta og brenna og næga peninga. Þið heyrið ekki í þjóðinni og virðist flest vera...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.1.2010
Silfur dagsins
Silfur dagsins var áhugavert að venju og gott að bæði Þorvaldur og Jóhannes Björn fengu góðan tíma. Ég bendi á fyrri færslu með eldri viðtölum við Jóhannes Björn og hinni firnagóðu ræðu sem hann flutti á Austurvelli í gær og fól í sér mikinn sannleika...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Margir muna eftir bókinni Falið vald eftir Jóhannes Björn sem gefin var út í kringum 1980 og hafði mikil áhrif á pólitíska meðvitund ja... líklega heillar kynslóðar. Ég átti hana og fannst þetta stórmerkileg lesning en er búin að glata bókinni og þarf að ná mér í nýtt eintak. Bókin var endurútgefin í fyrravor...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.1.2010
Ári síðar - þingið og byltingin
Ég flutti fyrsta föstudagspistilinn eftir áramót á Rás 2 í gær. Nú verða þeir mánaðarlega eða svo í stað vikulega. Sumum eflaust til óblandinnar ánægju, öðrum ekki. Þetta kemur sparnaði eða niðurskurði ekkert við, heldur vildu nýir stjórnendur Morgunvaktarinnar - sem nú heitir Morgunútvarpið - auka fjölbreytnina...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)