2.11.2008
Silfur dagsins
Þá er það Silfur dagsins. Gunnar Smári var kaldhæðinn að venju og sumu sem hann sagði var ég sammála, öðru ekki. Ég var aftur á móti ofboðslega hrifin af málflutningi Sigrúnar Elsu og Sveins Valfells. Þegar Sveinn sagði, eins og allir hagfræðingar og sérfræðingar í efnahagsmálum undanfarið, að virkjanir og stóriðja væri alls ekki það sem ætti að fara í nú um stundir sló mitt náttúrhjarta hraðar og Sveinn hitti mig þar í hjartastað - fyrir nú utan allt hitt sem hann sagði. Ég var ekki síður hrifin þegar í ljós kom að Sigrún Elsa átti stóran þátt í að forða orkuauðlindunum okkar frá útrásarbarónunum. Setti hana umsvifalaust á stall.
Næstur var Stefán Ólafsson sem fjallaði um "Finnsku leiðina". Mér finnst, og hefur alltaf fundist, Stefán magnaður. Hann er eldklár, hefur hjartað á réttum stað og þekkingu til að færa rök fyrir hverju einasta orði sem hann lætur út úr sér. Sáuð þið línuritið um skuldir þjóðarbúsins? Ótrúlegt. Egill birti það á blogginu sínu hér. Hlustum á Stefán - alltaf.
Hér brengla ég röðinni og tek Steingrím J. næst. Hann sagði margt sem mér líkaði vel. Kom mér á óvart. Til dæmis þetta: "Okkur er að bera af leið. Við erum að missa þessa hluti út í vitleysu. Það er verið að Ameríkanisera íslenskt samfélag á tvöföldum hraða. Við erum að hverfa frá þeim gildum sem best hafa gefist okkur, sem eru norrænt, samábyrgt velferðarsamfélag." Þetta er alveg hárrétt hjá Steingrími og það fyrsta sem mér dettur í hug er einkavæðing heilbrigðiskerfisins. Svo tek ég að sjálfsögðu undir lokaorðin hans - nema hvað!
Svo eru það hagfræðingarnir tveir, Gylfi Zoega og Jón Daníelsson. Ég legg til að fólk hlusti mjög vandlega á þá. Stoppi, spóli til baka, hlusti aftur og melti það sem þeir eru að segja. Egill minnist á grein sem þeir skrifuðu og var birt í Morgunblaðinu 27. október sl. Ég set hana inn hér fyrir neðan og kannski væri best að lesa hana fyrst og hlusta svo á þá félaga. Ég spurði Jón í dag hvort hann væri fáanlegur til að flytja heim og verða seðlabankastjóri og hann sagði ekki já - en hann sagði heldur ekki nei. Hann sagði aftur á móti ýmislegt annað.
Bloggar | Breytt 3.11.2008 kl. 10:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (48)
2.11.2008
Mótmæli og niðurstaða skoðanakönnunar
Laugardagsmótmælin verða æ fjölmennari, hvað sem talningu lögreglunnar líður, og búast má við að eftir því sem afleiðingar efnahagskreppunnar skella með meiri þunga á fólki fjölgi enn í hópi mótmælenda. Þau fara vonandi bráðum að endurspegla niðurstöður skoðanakönnunarinnar hér að neðan. Baldur McQueen sagði m.a. í athugasemd við síðustu færslu að hver einasta mannvera sem lét sjá sig þarna væri tífalt meira virði fyrir framtíð Íslands en þeir sem heima sátu. Þetta held ég að sé alveg rétt hjá Baldri.
Þeir sem mæta eru þeir, sem eru tilbúnir til að leggja eitthvað á sig til að sjá breytingar. Tilbúnir til að láta hæðast að sér fyrir að mæta, láta kalla sig ónefnum eins og tíðkast hefur að gera á Íslandi af hinum betur megandi - valdaklíkunni sem hugnast ekki að láta hrófla við auði sínum, valdi og yfirstéttarvelmegun. Tilbúnir til að leggja eitthvað af mörkum til samfélagsins. Þeir sem mæta eru þeir, sem gera sér grein fyrir því að alvarlegt mein hefur um árabil, jafnvel áratugaskeið, étið stjórnkerfið innan frá og feysknir innviðir þess eru nú búnir að koma þjóðinni á vonarvöl. Þeir sem mæta á laugardagsfundina er það fólk sem hefur fengið nóg af fáræði, spillingu og skoðanakúgun. Þeir sem mæta eru þeir Íslendingar, sem eru búnir að fá yfir sig nóg af stjórnvöldum og spilltu stjórnkerfi sem svífst einskis, gefur þeim fingurinn og hunsar vilja þeirra ítrekað og blygðunarlaust. Réttlætiskennd þeirra er misboðið. Þeir sem mæta á mótmælafundina ástunda gagnrýna hugsun, vilja ekki láta kúga sig lengur og þeir eru tífalt meira virði fyrir framtíð Íslands en þeir sem heima sitja.
Í Mogganum í dag eru birt úrslit skoðanakönnunar sem Capacent Gallup gerði fyrir blaðið dagana 27. - 29. október. 1.200 manns á aldrinum 18-75 ára voru í úrtakinu, handahófsvaldir úr viðhorfshópi Capacent Gallup og var endanlegt úrtak 1.117 manns. Svarhlutfall var 58,7% eða 656 manns. Hér eru niðurstöðurnar, sumar úrklippurnar þarf að smella á til að fá læsilega stærð:
Spurning: Hvað af eftirtöldu lýsir best líðan þinni eftir að efnahagskreppan skall á?
Spurning: Hvað af eftirtöldum fullyrðingum á best við um atvinnuhorfur þínar á næstunni?
Spurning: Ert þú hlynnt(ur) eða andvíg(ur) því að taka evru upp sem gjaldmiðil á Íslandi í stað íslensku krónunnar?
Spurning: Vilt þú að næstu alþingiskosningar fari fram samkvæmt áætlun árið 2011 eða vilt þú að boðað verði til kosninga fyrir þann tíma?
Spurning: Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa? - En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu? - Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?
Hér má sjá aldursskiptinguna.
Hvert fer fylgi flokkanna frá síðustu kosningum?
Hér er samanburður á síðustu kosningum, Þjóðarpúlsi Gallup sem nær yfir allan október og þessari könnun Morgunblaðsins sem, eins og áður segir, fór fram dagana 27. - 29. október.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (36)