8.11.2008
Hvert er eiginlega hlutverk fjölmiðla?
Ég verð sífellt meira undrandi á umfjöllun fjölmiðla um laugardagsmótmælin á Austurvelli. Eiginlega er ég furðu lostin núna. Þeir sem ekki voru á staðnum fá alranga mynd af fundinum í dag ef þeir hafa eingöngu fjölmiðlana til að fá fréttir af þeim. Trúverðugleiki fjölmiðla bíður mikla hnekki hvað eftir annað með svona vinnubrögðum. Ég hefði haldið að hlutverk þeirra væri að veita sem gleggsta og réttasta mynd af atburðum en það hafa þeir alls ekki gert þegar mótmælafundirnir eru annars vegar. Hér er talað um umfjöllun fjölmiðla eftir fundinn 18. október og hér eftir fundinn 1. nóvember. Fréttamennirnir eru á staðnum, þeir finna andrúmsloftið, sjá fjöldann, heyra ræðurnar. Allt er tekið upp, ljósmyndarar og kvikmyndatökumenn úti um allt. Og fjölmiðlafólkið veit að lögreglan kann ekki að telja.
Fundurinn í dag var mjög fjölmennur. Helmingi fjölmennari en síðast og það gladdi mitt litla hjarta að sjá Egil Helgason loks mættan á mótmælafund. Ég heyrði töluna 5 þúsund þegar mest var í dag. Kannski að jafnaði um 4.500 ef frá er talið fólk sem kom og fór, þetta síbreytilega rennirí á fólki sem alltaf er. En svo sér maður þetta og þetta og þetta. Og hér sést í hnotskurn munurinn á talningu lögreglu og annarra. Í þremur fréttum telur lögreglan að fjöldinn sé um 2 þúsund. Svo er haft eftir Geir Jóni milli 3 og 4 þúsund og þá hallast ég að því að 5 þúsund sé stórlega vanmetin tala. Skoðið myndirnar hans Jóhanns Þrastar hér.
Mikið er gert úr því að einhver ungmenni (held ég) hafi dregið Bónusfána að húni á Alþingishúsinu og að annar hópur hafi, EFTIR að fundinum lauk, kastað eggjum í húsið. Hver syngur með sínu nefi en þessar uppákomur voru ekki á ábyrgð skipuleggjenda fundarins, heldur sjálfstætt framtak fólks sem vildi tjá sig á annan hátt. Ég er ekki ennþá búin að sjá eina einustu frétt í fjölmiðlum um fundinn sjálfan. Ekki ennþá búin að heyra minnst á þrumuræður Sigurbjargar Árnadóttur og Einars Más Guðmundssonar. Þarna var haldinn tæplega klukkutíma langur fundur sem á mættu mörg þúsund manns en það er hvergi fjallað um hann, sjálfan fundinn og um hvað ræðumenn voru að tala, undirtektir þeirra sem á hlýddu, andrúmsloftið og stemmninguna.
Nei, væntanlega er það ekki nógu spennandi. Miklu meira fútt í að fjalla um að "óeirðir hafi brotist út" - sem er reyndar fjarri sanni - og að Alþingishúsið hafi verið "saurgað með eggjum". Vá, spennó! Þetta segir hins vegar ekkert um tilefni mótmælanna, fundinn sjálfan, ræðurnar, fjöldann, andrúmsloftið og það, að líklega eru þetta fjölmennustu mótmæli á Íslandi síðan í göngu Ómars fyrir 2 árum og hún sló öll fjöldamet. Enginn fjölmiðill hefur grafið upp sögu mótmæla á Íslandi, tilefni þeirra og tilgang og fjallað um þau.
Ég fór líka á borgarafundinn í Iðnó. Húsnæðið er allt of lítið, þar var fullt út úr dyrum, anddyrið var troðfullt og margir stóðu úti þar sem voru hátalarar. Þetta framtak er frábært en sökum þrengsla er ekki mögulegt að nógu margir geti mætt og tekið þátt í fundinum. Borgarafundurinn fékk öllu skárri umfjöllun í sjónvarpi, enda engin spennandi uppþot í gangi þar. Vanvirðing stjórnmálamanna og ráðherra er hins vegar slík, að fáir þeirra mættu þrátt fyrir að vera boðið sérstaklega. Á vefsíðu aðstandenda borgarafundanna kemur fram, að fundinum í dag verður útvarpað þriðjudaginn 11. nóvember kl. 21 á Rás 1 í þættinum Í heyranda hljóði í umsjón Ævars Kjartanssonar. Ég sá að fundurinn var líka kvikmyndaður svo væntanlega verða a.m.k. framsöguræðurnar settar inn á vefsíðuna þegar búið verður að vinna þær. Fylgjumst með því hér og Jóhann Þröstur tók myndir.
En svona fjölluðu sjónvarpsstöðvarnar um fundinn á Austurvelli í kvöldfréttum sínum í kvöld. Báðar sjónvarpsstöðvarnar falla í sama, fúla pyttinn. Fréttamenn beggja sjónvarpsstöðva segja að mótmælin hafi "fljótlega leysts upp og færst að Alþingishúsinu". Þetta er fjarri sanni. Finnst þeim sem voru á fundinum þessi umfjöllun gefa rétta mynd af honum?
Og hér er umfjöllun sjónvarpsstöðvanna um borgarafundinn í Iðnó.
Hvað á svona kjaftæði eiginlega að þýða? "Á meðan hinir fullorðnu grýttu eggjum..."
Hverjum er verið að þjóna með svona nokkru?
Ég sem hélt að fréttamenn vildu reka af sér slyðruorðið.
Hér er grein eftir Einar Má sem birtist í Morgunblaðinu í dag. Ræðan hans á fundinum í dag var byggð á greininni. Smellið til að fá læsilega stærð.
Bloggar | Breytt 9.11.2008 kl. 03:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (115)
8.11.2008
Og fjóshaugurinn stækkar stöðugt
Fjóshaugurinn stækkar með degi hverjum. Daglega fáum við nýjar upplýsingar um sora, sukk, spillingu, mistök, aðgerðarleysi og hvað sem nöfnum tjáir að nefna, ýmist í fjölmiðlum eða á netinu. Netimiðlar og bloggsíður eru orðin jafnmikilvægir miðlar og hinir hefðbundnu - jafnvel mikilvægari að mörgu leyti.
Í dag, laugardag, mæti ég á Austurvöll í fjórða sinn til að mótmæla þessu öllu og meira til - á mínum eigin forsendum eins og allir geta gert. Enginn getur ætlast til þess að fá sérsniðin mótmæli bara fyrir sig með sínum prívatáherslum og einkahetjum. Á Austurvelli hef ég séð alls konar fólk að því er virðist úr öllum krókum og kimum þjóðfélagsins. Fjölmargir bloggarar tjá sig um fundinn og hvetja til þátttöku. Ég ætla sérstaklega að benda á pistil Illuga, sem er farinn að blogga mér til mikillar ánægju. Illugi hefur mætt samviskusamlega á fyrri mótmælafundi, ég sá til hans.
Svo bendi ég á magnaðan bloggpistil Gríms Atlasonar. Hakan á mér seig neðar og neðar eftir því sem á lestur pistilsins leið. Auðvitað kannaðist ég við flest af því sem hann telur upp - en að sjá þetta sett fram á þennan hátt var ótrúlegt. Þó var þetta ekki nema lítið brot af því sem hefur verið umborið. Ég treysti því að framvegis sjái a.m.k. netmiðlar og bloggarar til þess að svona afglöp verði ekki liðin. Engir aðrir gera það - eða hafa ekki gert til þessa. Það sem Grímur skrifar um er hluti af spillingunni og samtryggingunni sem ég vil mótmæla.
Konan sem ég skrifaði um í síðasta pistli, Sigurbjörg Árnadóttir, verður ein þeirra sem flytur ávarp á útifundinum á Austuvelli klukkan 15 í dag. Hún verður líka í Silfri Egils á sunnudaginn. Einnig tala Arndís Björnsdóttir, kennari og Einar Már Guðmundsson, rithöfundur. Ég skora á fólk að mæta á Austurvöll og lýsa með nærveru sinni vanþóknun á leyndarmálum, lygum, spillingu og ábyrgðar- og aðgerðarleysi stjórnvalda - eða hverju því sem hver og einn vill mótmæla.
En það er fleira að gerast í dag. Þið munið eftir borgarafundinum sem haldinn var í Iðnó 27. október. Annar verður haldinn á morgun á sama stað klukkan 13. Þar hefja umræðuna Lilja Mósesdóttir, Pétur Tyrfingsson, Ingólfur H. Ingólfsson og Halla Gunnarsdóttir. Kynnið ykkur þetta frábæra framtak nánar hér. Það er upplagt að fara fyrst á borgarafundinn í Iðnó og síðan á Austurvöll. Ég klippti út lítið ávarp frá Gunnari Sigurðssyni, einum forsvarsmanni borgarafundanna sem birtist í Mogganum í gær.
Hér er brot af ræðu Lárusar Páls frá síðasta mótmælafundi á Austurvelli.
Og hér eru framsöguerindi frá síðasta borgarafundi í Iðnó. (Myndband með Lilju Mósesdóttur er óvirkt.)
Einar Már Guðmundsson
Björg Eva Erlendsdóttir
Vilhjálmur Bjarnason
Bloggar | Breytt s.d. kl. 02:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (22)