18.12.2008
Bækur á óskalistann
Ég lærði að lesa í laumi þegar ég var fimm ára. Eldri systir mín var í sex ára bekk í Landakotsskóla og ég fékk að fylgjast með þegar hún æfði sig gegn því að ég væri þæg og þegði. Þess vegna vissi enginn fyrr en ég var allt í einu orðin læs. Síðan hef ég verið með nefið ofan í bókum - og það er óralangt síðan ég var fimm ára.
Þessa bók nefndi ég nýverið, þá nýbyrjuð að lesa hana. Hún veldur mér engum vonbrigðum og stendur fyllilega undir væntingum. Hér er umsögn um hana á Smugunni. Ég held að flestir dómar um bókina hafi verið í þessa veru.
Ég vinn hjá sjálfri mér og auðvitað gaf vinnuveitandinn starfsmanninum afmælisgjöf um daginn. Það var Ofsinn hans Einars Kárasonar sem ég hlakka mikið til að lesa. Ég fékk fyrstu Sturlungabók Einars, Óvinafagnað, þegar hún kom út fyrir mörgum árum og það var geggjuð bók. Hér er Víðsjárviðtal við Einar frá 2. des. sl. (aftast í þættinum) þar sem Einar segir m.a. frá tilurð þriggja orða kaflans í Óvinafagnaði. Hann hélt að enginn hefði tekið eftir þessari snilld, en það er aldeilis ekki rétt! Ég spái því að þetta verði trílógía hjá Einari.
Þar kom að því að maður fengi áhuga á Sturlungu. Sami vinnuveitandi gaf sama starfsmanni síðan bráðskemmtilegt þriggja kvölda námskeið hjá Endurmenntun þar sem Einar fór á stökki yfir Sturlungu og leiðbeindi um hvernig þægilegast væri að lesa hana. Vonandi hef ég tíma til þess þegar og ef um hægist. Ofsi hefur fengið einróma lof og síðast í gær valdi starfsfólk bókaverslana bókina bestu skáldsögu ársins. Gerður Kristný var svo með bestu barnabókina. Kastljós sýndi frá afhendingu viðurkenninganna.
Í einni af gramsferðum mínum í bókabúðir fann ég litla bók sem vakti athygli mína. Hún var svo skemmtileg og svo ódýr að ég keypti fjórar. Gaf þrjár í afmælisgjafir en hélt eftir eintaki fyrir sjálfa mig. Þetta er bókin Jólasveinar - af fjöllum í fellihýsi eftir Magneu J. Matthíasdóttur með myndskreytingum eftir Ólaf Pétursson. Í bókinni er fjallað um nútímavæðingu jólasveinanna í bundnu máli, listilega gert. Það er ekki oft sem bækur henta öllum aldurshópum en það gerir hún þessi. Dæmi um minn gamla uppáhaldsjólasvein, Kertasníki, með leyfi höfundar:
Kertasníkir um kerti bað
er kom hann mannabyggðum að,
í hellinum vild'ann hafa bjart
og hrekja burt vetrarmyrkrið svart.
(Nú þjóðar velferð hann þættist styrkja
og þyti upp á heiðar að virkja.)
En ein er sú bók sem ég ágirnist einna mest og höfðar ótrúlega sterkt til sagnfræðinördsins í mér. Ég skil ekkert í mér að hafa ekki lært sagnfræði. Það er bók með því stóra nafni Saga mannsins - frá örófi fram á þennan dag, hvorki meira né minna. Ég er búin að fletta henni í bókabúð og sökk ofan í hana á staðnum. Bókin er byggð á erlendu verki sem komið hefur út í ýmsum löndum, en ritstjóri íslensku útgáfunnar er Illugi Jökulsson. Vanur maður á þessu sviði sem öðrum. Illugi ritstýrir líka hinu bráðskemmtilega tímariti Sagan öll sem ég hef verið áskrifandi að frá fyrsta tölublaði. Hér er smá sýnishorn af opnu úr bókinni.
Illugi var í Mannamáli á sunnudaginn að ræða um bókina, en því miður náðu Kiljuspekúlantar ekki að fjalla um hana nema í mýflugumynd í síðustu Kilju fyrir jól í gærkvöldi. Þau verða eiginlega að taka hana eftir áramót, því svona bækur eru sígildar og eilífar. Miklu meira en bara jólabækur.
Ef jólasveinar eru til í alvörunni, eins og grunur leikur á, hlýt ég að fá þessa í skóinn.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
18.12.2008
Meiri skyldulesning
Ég tek undir með þeim sem segja að greinin í Tíund, blaði Ríkisskattstjóra, sé skyldulesning fyrir alla sem vilja reyna að skilja hvernig efnahagshrunið gerðist. Greinin er útlkippt hér og neðst í færslunni er viðfest .pdf skjal með öllu blaðinu. Þessi pistill Gunnars Axels er líka skyldulesning, sem og flestir bloggpistlar hans. Hengi líka við færsluna ræðuna hans á borgarafundinum í gærkvöldi.
Hér er umfjöllun Morgunblaðsins um greinina í Tíund. Smellið þar til læsileg stærð fæst. Verið viðbúin að fá hroll og klígju við allan þennan lestur.
Og hér er þrjúhundraðasta grein Þorvaldar Gylfasonar í Fréttablaðinu í dag.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
18.12.2008
Spilaborgin sem hrundi
Þetta er eftir Jón Gerald Sullenberger - held ég.
Þessu tengt - Brennpunkt eða Í brennidepli - sýnt í Norska ríkissjónvarpinu 25. nóvember sl.
Í brennidepli - útrásin - fyrri hluti
Í brennidepli - útrásin - seinni hluti
Og bókaútgáfa Spaugstofunnar kynnir...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)