19.12.2008
Znilld - þeir klikka aldrei
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
19.12.2008
Þeir brillera dag eftir dag
Sumir skrifa sig hása um ástand og horfur - aðrir lýsa því sem er að gerast í nokkrum dráttum á sinn persónulega hátt.
Halldór í Mogga í dag
Henrý Þór á síðunni sinni og Smugunni í dag
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
19.12.2008
Græðgisvæðingin - varist endurtekningar!
Ég birti þessa færslu 10. október - það var sennilega of snemmt. Sjálfsagt voru fáir farnir að gera sér grein fyrir því þá hve alvarlegt ástandið væri. Það er full ástæða til að birta þetta allt aftur og vara við. Nú hefur komið í ljós að auðmennirnir sem gerðu þjóðina gjaldþrota eru að sölsa undir sig eignir - aftur - þeir fá skuldir afskrifaðar og koma undan feldi eins og óspjallaðar meyjar. Líka skuldsettir útgerðarmenn sem fengu auðlind þjóðarinnar gefins, léku sér með hana og veðsettu hana rétt eins og aðrir fengu bankana upp í hendurnar og keyrðu þá - og þjóðina - í þrot á örfáum árum.
Við VERÐUM að standa vörð um orkuauðlindirnar svo þær fari ekki sömu leið! Þarna segir m.a.: The rules will need to be rewritten - það verður að setja nýjar reglur. Er verið að því? Er einhver á þingi að beita sér fyrir því að setja ný lög og reglur svo sami leikurinn geti ekki endurtekið sig? Ég hef ekki orðið vör við það. Hvað er að gerast með Hitaveitu Suðurnesja og Geysir Green Energy? VARÚÐ! En hér er færslan - texti og myndbönd. Í öllum bænum gefið ykkur tíma til að horfa og hlusta:
_____________________________________________
10.10.2008
Viltu verða ríkur? Svona gerum við...
Þátturinn The Greed Game sem sýndur var á BBC nýverið vakti mikla athygli. Í honum er farið yfir aðferðir hinna ofurríku við að græða peninga, ótrúlegar fjárhæðir, aðstöðunni sem þeir hafa skapað sér með aðstoð góðra manna og í hvað þeir eyða peningunum. Þátturinn virðist vera gerður eftir að "efnahagshrunið mikla" hófst og í honum kemur ýmislegt fram sem er fróðlegt að vita. Gera má ráð fyrir að hinir íslensku auðmenn eða "útrásarvíkingar" hafi notað svipaðar aðferðir þegar þeir komu ár sinni fyrir borð um leið og þeir stóðu að hruni íslensku bankanna og þjóðarinnar allrar.
Lokaorð þáttarstjórnanda eru athyglisverð: "So there are still plenty of opportunities for the super-rich to increase their fortunes. Even though the global financial system is in intensive care and our prosperity is threatened. With the Greed Game still being played, if we're not going to end up losers again, the rules will need to be rewritten." Það sem á undan kom sýndi fram á að þessir menn geta haldið áfram græðgisleiknum nánast endalaust miðað við þann skort á regluverki sem ríkir. Er ekki rétt að benda íslenskum stjórnvöldum á þetta?
Þátturinn er hér í 7 hlutum svo fólk getur farið rólega í þetta og tekið einn í einu. Neðst er síðan skýringarmynd úr sænsku netblaði sem sýnir a.m.k. hluta eignatengsla íslensku auðjöfranna. Mér finnst nú samt að einhverja og eitthvað vanti inn í þetta net. En hvað varð af þessum mönnum? Geta þeir nokkurn tíma látið sjá sig á landinu framar.
1. hluti
2. hluti
3. hluti
4. hluti
5. hluti
6. hluti
7. hluti
Bloggar | Breytt s.d. kl. 07:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)