7.12.2008
Silfur dagsins
Hér kemur Silfur dagsins með sérstakri kveðju til Íslendinga sem búsettir eru erlendis og virðast ekki geta horft á sjónvarpsstöðvarnar á netinu. Hvorki í beinni né eftir á. Gaman væri að vita hvað veldur þessu sambandsleysi og hvort það er mikið mál að ráða bót á því. En miðað við allan tölvupóstinn sem ég fæ frá þessum löndum okkar í útlöndum sem reyna að fylgjast með á þetta við um fólk víða um heim. Þeim bendi ég líka á þessa slóð.
Inn gægðist einn stjórnmálamaður, Sigurjón Þórðarson úr Frjálslynda flokknum og talaði um kvótamálin. Það þarf að ræða miklu meira um þau. Til dæmis hver á kvótann núna? Var hann ekki veðsettur í topp hjá bönkunum sem nú er búið að þjóðnýta? Er þá ekki kvótinn kominn í eigu þjóðarinnar aftur? Eða hvað?
Annars var þema þáttarins, ef þema skal kalla, spilling og sukk útrásarbarónanna og hvernig þeir blekktu markaðinn með því að stofna alls konar skúffufyrirtæki og beita klækjum og svikum til að draga sér æ meira fé. Jón Steinsson kallaði þetta réttilega þjófnað. Símaviðtalið við Jón Steinsson gekk því miður brösuglega en hann var góður og Jón Daníelsson talaði um áhugaverða hluti - hlustum vandlega.
Vettvangur dagsins 1 - Baldur, Agnes, Þóra Kristín, Birgir
Takið eftir ummælum Birgis um skilningsleysi á pólitískri ábyrgð
Vettvangur dagsins 2 - Sigurjón, Gerður Kristný, Einar Már
Óli Björn Kárason og bókin hans um FL Group. Ég vildi gjarnan lesa þessa bók og ég tek ofan fyrir þeim blaðamönnum sem bíða ekki eftir opinberum rannsóknum heldur rannsaka málin sjálfir. Vonandi gera það fleiri.
Símaviðtalið við Jón Steinsson gekk brösuglega en Egill náði honum aftur í restina.
Þeir Jón Daníelsson höfðu margt að segja sem allir ættu að hlusta á af athygli.
Í beinu framhaldi af málflutningi Jóns Steinssonar bendi ég á grein eftir hann í Fréttablaðinu sl. miðvikudag - hún er hér.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (24)
7.12.2008
Fámennt en góðmennt á Vellinum
Það var fámennara á Austurvelli í gær en undanfarna laugardaga og grassvæðin voru eitt forarsvað eftir frostið og þíðuna. Fækkunin kom ekki á óvart. Eftir því sem nær dregur jólum verður fólk æ uppteknara af smákökubakstri, innkaupum og öllu mögulegu sem tilheyrir jólaundirbúningnum. Svo er skólafólk í prófum og upplestri, allir mögulegir og ómögulegir viðburðir eru úti um allt, s.s. jólatónleikar Björgvins Halldórssonar, skólakórajólatónleikar, jólabasarar og þar fram eftir götunum. Flestir hafa bara helgarnar til að sinna hlutunum og það er bara gott að þeir geri það. Maður verður líka að gefa sér tíma til að sinna sér og sínu fólki þegar tækifæri gefst, svo ég tali ekki um fyrir jólin.
Ég hef enga trú á því að fólk trúi dúsum ríkisstjórnarinnar eða haldi, eftir allt sem hefur gengið á í vikunni, að ástandið sé eitthvað skárra en það er í raun. Held raunar að fæstir geri sér almennilega grein fyrir því hvað það er hrikalega slæmt og hrædd er ég um að það eigi eftir að versna til muna. Fólk vill bara ekki trúa því ennþá. Reiðin í þjóðfélaginu magnast hægt og sígandi en reiði er orkufrek og slítandi tilfinning
Í fréttum RÚV var athyglisverð umfjöllun um þátt bloggsins og netmiðla í lýðræðislegri umræðu í þjóðfélaginu. Talað var við Salvöru og Jónas, gamalreynda bloggara. Þau hafa alveg hárrétt fyrir sér og ég hef nefnt svipaða hluti í skrifum mínum nokkrum sinnum. Hengdi fréttina aftan við umfjöllun um mótmælin í gær.
Þetta viðtal við Björgvin G. Sigurðsson er harla merkilegt og þar kennir ýmissa grasa. Eftir að hafa hlustað á það spyr maður sig hvað Björgvin sé að gera í ríkisstjórn sem lætur kyrrt liggja hvernig seðlabankastjóri kemur fram við bankamálaráðherrann - ítrekað. Skilur það einhver? Þessu tengt t.d. hér.
Svo er hér mynd sem ég hnuplaði af netmiðli. Hvað er Ingibjörg Sólrún að gera á mótmælafundi á Austurvelli? Svarið er hér.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)