17.1.2009
Hvað er Íslandi EKKI fyrir bestu?
Og hverjum er ekki sama um Landsfund Sjálfstæðisflokksins? Góðar spurningar. Öðru máli gegnir um laugardagsfundina á Austurvelli, Ísafirði, Akureyri, Selfossi og í dag í fyrsta sinn á Egilsstöðum. Engum ætti að vera sama um þá - hvort sem fólk vill kalla þá mótmælafundi, samstöðufundi eða hvað sem er. Það skiptir minnstu máli. Öllu máli skiptir að mæta og láta þannig í ljós óánægju sína með ótrúleg viðbrögð stjórnvalda og stjórnkerfisins við efnahagshruninu og afleiðingum þess og krefjast úrbóta. Enn er verið að svalla og sukka á kostnað almennings á Íslandi. Lesið bara þetta, t.d. Ef satt reynist er verið að mergsjúga okkur ennþá meira og líkast til með vitund og samþykki stjórnvalda. Bjarga vinum sínum fyrir horn, skítt með afleiðingarnar fyrir þjóðina. Svo kemur Geir í sjónvarpsviðtal og segist ekkert skilja í því af hverju erlendur gjaldeyrir skilar sér ekki inn í landið til að styrkja krónuna! Það þarf enginn að segja mér að hann viti þetta ekki.
Einhverjir lásu kannski þennan pistil þar sem bent var á Eirík Guðmundsson og pistlana hans í Víðsjá. Ég ætla að birta hér þann sem var í Víðsjá í fyrradag, fimmtudag. Í honum kemur glöggt fram hve siðblindir stjórnmálamenn eru... eða hraðlygnir. Er ekki ástæða til að andæfa slíkum hugsunarhætti á Austurvelli - svo dæmi sé tekið?
Hvað er Íslandi EKKI fyrir bestu?
Það var gaman að heyra í Birni Bjarnasyni dómsmálaráðherra á Morgunvaktinni í morgun. Björn ræddi Evrópumál, enda nýbúinn að senda frá sér bók sem heitir Hvað er Íslandi fyrir bestu? Í þeirri bók fjallar Björn, ef marka má baksíðuna, um stöðu Íslands í hnattvæðingunni, um þátttöku íslands í Schengensamstarfinu, hann spyr hvaða aðferðum beri að beita við töku ákvarðana um Evrópusamstarfið, og hvaða kosti íslendingar eiga í gjaldmiðilsmálum, svo eitthvað sé nefnt, þetta kemur allt fram á baksíðu bókarinnar.
Undir lok viðtalsins á Morgunvaktinni í morgun, var það borið undir Björn hvort það væri ekki undarlegt að hér á landi hefði enn enginn axlað ábyrgð því ástandi sem nú ríkir á Íslandi. Umsjónarmaður gerði því skóna að í öðrum löndum væru menn fyrir löngu búnir að segja af sér. Björn virtist koma af fjöllum, hann sagði að í útlöndum væru menn ekki að segja af sér út af svona hlutum, þar segðu menn af sér af persónulegum ástæðum. Hverjir eru að segja af sér í útlöndum þótt vandinn sé mikill, í öllum löndum, sagði Björn efnislega. Af orðum Björns mátti ráða að á Íslandi hefði ekkert það gerst, sem ekki hefði gerst í öðrum löndum. Afsagnir hér væru því út í hött.
Það var fróðlegt fyrir dauðlegan hlustanda Ríkisútvarpsins að fá innsýn, svo snemma morguns, inn í það hvernig ráðamenn, og í þetta sinn, forystumaður í Sjálfstæðisflokknum hugsa. Um það, hvað Íslandi sé fyrir bestu, nú, í miðjum janúarmánuði árið 2009. Áfram halda fjölmiðlar að spyrja forkólfa um það hvað Íslandi sé fyrir bestu. Hvers vegna? Jú, vegna þess að sömu menn, sömu kólfar, halda áfram að stjórna landinu, þrátt fyrir það sem gerst hefur, þeir halda áfram að ráðleggja mönnum að sækja um mikilvægar stöður, og ráða í þessar sömu stöður. Þeir halda áfram að skrifa bækur með titlinum: Hvað er Íslandi fyrir bestu? Því skyldu menn sem vita hvað Íslandi er fyrir bestu, segja af sér, snemma morguns eða síðla nætur, nei hér hefur ekkert það gerst sem kallar á slíkt.
Íslendingar bera gæfu til að eiga menn sem vita hvað þjóðinni er fyrir bestu, eini vandinn er sá að þjóðin fór á hausinn á meðan þeir réðu ríkjum. Á forsíðu Morgunblaðsins í dag segir að skuldir íslenska ríkisins séu um 2200 milljarðar- 2200 milljarðar, eiga menn að segja af sér út af því? Nei, menn segja af sér út af einhverju persónulegu, ef þeir gera í buxurnar prívat, en ekki ef þeir hafa fylgt og trúað blint á hugmyndafræði, sem gert hefur heila þjóð gjaldþrota. 2200 milljarðar, það er á engan hátt persónuleg tala, að því leyti hefur Björn Bjarnason rétt fyrir sér.
Hvað er best fyrir Ísland? Að fulltrúar þeirrar hugmyndafræði, sem nú er búin að setja þjóðina á hausinn, haldi áfram að stjórna landinu? Að menn sem pissuðu í buxurnar af samúð með Bandaríkjamönnum þegar flogið var á turnana í New York árið 2001, en treysta sér ekki til að fordæma afdráttarlaust og án undanbragða fjöldamorðin í Palestínu, haldi áfram að stjórna landinu? Hvað er best fyrir Ísland? Það hlýtur að vera orðið ljóst að þeir kónar sem mestu hafa ráðið á Íslandi, undanfarin ár vissu ekki hvað Íslandi var fyrir bestu. Ef þeir hefðu vitað það væri þjóðin ekki í þeirri stöðu sem hún er í. Að minnsta kosti ÞAÐ ætti að liggja ljóst fyrir. Meira að segja góðir og gegnir Sjálfstæðismenn átta sig á því. En, Björn Bjarnason, hann virðist enn halda að það sé nokkur eftirspurn eftir því sem honum, og hans félögum finnst vera þjóðinni fyrir bestu - ég dreg reyndar ekki þekkingu Björns á Schengensamstarfinu í efa.
Sennilega heldur Björn Bjarnason að íslenska þjóðin bíði spennt eftir landsfundi Sjálfstæðisflokksins!!! Að við bíðum spennt eftir einhverjum niðurstöðum landsfundar sjálfstæðisflokksins. Að við séum á nálum, yfir því hvað muni gerast á landsfundi Sjálfstæðisflokksins. Hér hlýtur að vera eitthvað grín í gangi - Þröstur Helgason, blaðamaður Morgunblaðsins, skrifar athyglisverðan pistil í miðopnu blaðsins í dag; Þröstur segir: ,,Hvers vegna ætti okkur ekki að vera sama um það hvað sjálfstæðisflokkurinn ályktar um Evrópusambandsaðild á landsfundi sínum eftir nokkra daga? Á undanförnum vikum og mánuðum hefur nánast allt snúist um þennan blessaða landsfund. .... Sjálfstæðismenn virðast svo uppteknir af þessum fundi að það kemst ekkert annað að. Það er engu líkara en þeir hafi slegið lífinu í þessu landi á frest þar til fundurinn er afstaðinn. Á meðan dýpkar kreppan. Á meðan eykst reiðin. Á meðan átta landsmenn sig alltaf betur og betur á því að þessi flokkur hefur brugðist. Á meðan minnkar fylgið við sjálfstæðisflokkinn." Þetta segir Þröstur Helgason í Morgunblaðinu. Og ekki lýgur Mogginn.
Að lokum þetta:
Á Íslandi undanfarin ár hefur verið rekin glórulaus stefna. Við höfum fjarlægst Norðurlöndin, þokkalegustu samfélög í heimi, og nú er svo komið að við getum varla nefnt okkur í sömu andrá og þau. Við erum úti í mýri. Þökk sé mönnum sem héldu, að þeir vissu hvað væri Íslandi fyrir bestu. Og þessir menn halda ÁFRAM að segja Íslendingum hvað þeim er fyrir bestu. Áfram eru þeir spurðir: Hvað er íslandi fyrir bestu? Ég bið forláts, en þetta gengur einfaldlega ekki upp. Það eru meira að segja til Sjálfstæðismenn sem átta sig á því, þess vegna hefur fylgið hrunið af sjálfstæðiflokknum. 2200 milljarðar, stendur á forsíðu Morgunblaðsins í dag, og ekki lýgur Mogginn. ,,Það liggur í augum uppi að ályktun Sjálfstæðisflokksins um Evrópusambandsaðild á ekki eftir að skipta miklu máli." Stendur í Mogganum í dag. ,,Flokkurinn hefur einfaldlega ekki nægilegt traust til þess að hafa afgerandi áhrif á það hvað þjóðin ætlar að gera í þessum efnum." Stendur í Mogganum í dag. ,,Hann er ekki sá ráðgjafi sem maður myndi kjósa sér í mikilvægum efnum þessa dagana." Stendur í Mogganum í dag. ,,Hugmyndalega er hann gjaldþrota." Stendur í Mogganum í dag.
Herra Björn Bjarnason, hvað er Íslandi fyrir bestu? Herra Hannes Hólmsteinn Gissurarson, hvað er Íslandi fyrir bestu? Herra Geir Haarde, hvað er Íslandi fyrir bestu?
Nei, þetta er að verða gott, þið hljótið að sjá það.
______________________________________________________
Hér er greinin í Morgunblaðinu eftir Þröst Helgason sem Eiríkur vitnar í.
Og góðar umræður í Kastljósi í gærkvöldi.
Síðan spyr ég aftur sömu spurninga og fyrir viku:
Hvar ertu?
Hvar eruð þið, sem ræðið um byltingu í heitu pottunum og á kaffistofunum?
Hvar eruð þið, sem fordæmið bankamenn og útrásarauðmenn?
Hvar eruð þið, sem skammið ríkisstjórn, alþingismenn og embættismenn?
Hvar eruð þið, sem hallmælið gróðærinu og viljið annað siðferði?
Hvar eruð þið, sem eruð ósátt við aðgerðir og aðgerðaleysi ráðamanna?
Hvar eruð þið, sem viljið réttlæti öllum til handa, ekki bara sumum?
Hvar eruð þið, sem hafið tapað á hlutabréfakaupum?
Hvar eruð þið, sem hafið tapað á peningamarkaðssjóðum?
Hvar eruð þið, sem hafið tapað lífeyrinum ykkar?
Hvar eruð þið, sem eruð ósátt við að bankarnir afskrifi skuldir auðmanna?
Hvar eruð þið, sem viljið ekki selja þeim fyrirtækin aftur skuldlaus?
Hvar eruð þið, sem viljið jafnræði?
Hvar eruð þið, sem sjáið húsnæðislánin ykkar rjúka upp?
Hvar eruð þið, sem hafið misst vinnuna?
Hvar eruð þið, sem viljið kosningar og nýja stjórn?
Hvar eruð þið, sem teljið réttlætiskennd ykkar misboðið?
Hvar eruð þið, sem eruð að lenda í heljargreipum verðtryggingar - sumir aftur?
Hvar eruð þið, sem viljið láta frysta eigur auðmanna?
Hvar eruð þið, sem fordæmið leynd og ógegnsæi aðgerða stjórnvalda?
Hvar er samviska ykkar?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (34)