22.1.2009
Ísland í gær
Enn var ég að grufla í fortíðinni, þó ekki nema nokkra mánuði aftur í tímann og margir hafa eflaust gleymt ýmsu sem hér kemur fram. Rifjum aðeins upp með aðstoð og í minningu Íslands í dag - eins og þátturinn var.
Þann 12. mars 2008 var lóð á Arnarnesi auglýst til sölu á tilboðsverði, aðeins 500.000.000 - fimmhundruð milljónir. Fasteignasalinn segir þetta tilvalið tækifæri fyrir "fjárhagslega frjálsa" einstaklinga og átti líkast til við auðjöfrana sem rændu þjóðina. Ætli lóðin hafi selst? Auglýsinguna sjálfa má sjá hér.
Pétur Blöndal, alþingismaður, tjáði sig um efnahagshorfurnar 13. mars 2008. Það var skrýtið að hlusta á Pétur sem var ekki beint spámannlegur í viðtalinu.
Hér er stórmerkileg umfjöllun og viðtal við fréttamann BBC, Stephen Evans, frá 7. apríl 2008. Fréttamaðurinn kom til landsins til að taka viðtal við Geir Haarde, forsætisráðherra, en þeir hafa gjörólíka sýn á málin, fréttamaðurinn og forsætisráðherrann.
Sölvi tók viðtal við Geir Haarde 29. apríl 2008. Það er stórfurðulegt að hlusta á Geir. Þetta er nákvæmlega fimm mánuðum áður en Glitnir var yfirtekinn.
"Bankarnir hagnast í kreppu" var yfirskrift þessa dagskrárliðar 7. maí 2008. Hér er talað við fulltrúa greiningardeilda tveggja banka, Glitnis og Kaupþings. Það er mjög athyglisvert að hlusta á þá í ljósi allra þeirra upplýsinga sem síðan hafa komið fram. Einhver kallaði greiningardeildir bankanna siðlausar auglýsingastofur þegar í ljós kom hvernig þær störfuðu.
Sá gjörningur sem hér er fjallað um, 19. maí 2008, kölluðu einhverjir "Mestu peningagjöf Íslandssögunnar" á þeim tíma. Þá voru felldir niður skattar á sölu hlutabréfa frá 2006 sem hefðu skilað ríkissjóði 60-80 milljörðum. Vinargreiði? Maður spyr sig. Ætli það hefði ekki verið hægt að nota það fé til góðra hluta, t.d. í heilbrigðiskerfinu? Árni Mathiesen réttlætir gjörninginn, Pétur Blöndal og Steingrímur J. ræða málið.
Að lokum er hér viðtal við Geir Haarde og Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur í tilefni af eins árs afmæli ríkisstjórnarinnar sem nú, 8 mánuðum seinna, er komin af fótum fram og deyr væntanlega drottni sínum einhvern næstu daga. Þetta er 26. maí 2008.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (26)
22.1.2009
Hver gefur fyrirmælin?
Ég gekk fram hjá Austurvelli rétt fyrir tólf á leiðinni heim. Skömmu seinna heyrði ég af svölunum hjá mér að lögreglan varaði við einhverju. Ekki grunaði mig að það væri táragas. Um klukkan 1.45 fór ég aftur út á svalir og heyrði enn hávaða neðan úr miðbæ. Mig langar að vita, eftir að hafa séð ýmislegt með eigin augum og heyrt fjölmargar frásagnir sjónarvotta, séð myndir og myndskeið: Hver gefur lögreglumönnunum fyrirmæli? Er ríkislögreglustjóri í löggu og bófaleik? Dómsmálaráðherra? Forsætisráðherra? Hver?Þeir eru óskaplega viðkvæmir fyrir "valdstjórninni" og valdinu er óspart beitt á öllum vígstöðvum. Þetta viðtal við Björn Bjarnason er makalaust. Hitt er svo aftur annað mál að maður kastar ekki grjóti eða múrsteinum í fólk, hvort sem það eru lögreglumenn í óeirðabúningum eða aðrir. Slík framkoma eyðileggur ótrúlega mikið fyrir öðrum og annars konar mótmælum, friðsamlegum en kannski háværum. Lesið frásögn Heiðu hér. Hún kallar þetta fólk mótmælendasníkjudýr.
En hér eru fréttir gærdagsins - það er allt að verða vitlaus en Geir Haarde virðist ekki fatta það. Hann ÆTLAR að sitja áfram hvað sem tautar og raular. Hans lýðræði er bara á fjögurra ára fresti og þess á milli á pöpullinn að halda kjafti. Þvílík firring og valdníðsla. Samfylking í Reykjavík og víðar búin að álykta um stjórnarslit, minnihlutastjórn bíður átekta en Geir gat ekki heyrt á Ingibjörgu Sólrúnu að neitt hefði breyst. Þetta hlýtur að verða með sögulegri landsfundum hjá Flokknum.
Aukafréttatími RÚV klukkan 14
Mbl Sjónvarp
Kvöldfréttir Stöðvar 2
Ísland í dag - viðtal við forsætisráðherra
Kvöldfréttir RÚV
Kastljós - hér kennir ýmissa grasa og lítt kræsilegra
Tíufréttir RÚV
Að lokum grein úr Mogga í gær eftir Herdísi Þorgeirsdóttur, prófessor
![]() |
Táragasi beitt á Austurvelli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 02:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (41)