25.2.2009
Óþekkjanlegur sannleikur Davíðs
Það var nú meira hvað Davíð togaði og teygði sannleikann út og suður í þessu volaða viðtali í Kastljósi. Mér finnst hann alltaf tala eins og hlustendur/áhorfendur séu fífl og hálfvitar. Kannski eru þeir sem trúa honum, dá hann og dýrka fífl og hálfvitar - en ekki við hin. Heldur hann virkilega að hann sé trúverðugur? Til er viss manngerð sem upphefur sjálfa sig ævinlega á kostnað annarra. Niðurlægir fólk með hnyttni og spaugsemi í þeim tilgangi að bera lof á sjálfa sig. Davíð Oddsson er slík manngerð. Fólk sem er óöruggt með sjálft sig, uppburðarlítið og hefur ómótaðar skoðanir dáir þannig menn og gerir skoðanir þeirra að sínum - hverjar sem þær eru.
Davíð réðst hvað eftir annað á Sigmar, gerði lítið úr honum (og þar með áhorfendum sem vildu svör) og sagði hann ráðast á sig. Davíð skilur greinilega ekki hlutverk spyrilsins. Einhverjir segja eflaust að hann hafi "varist fimlega" en ég segi að hann hafi endanlega sannað veruleikafirringu sína, mikilmennskuóra og fullkomið vanhæfi. Hann gat ekki einu sinni sýnt almenna kurteisi.
Hann sagði að "þetta væri nú afskaplega almennt hjá þér sagt" þegar Sigmar nefndi gagnrýni á Seðlabankann í aðdraganda hrunsins. Þá las Sigmar upp fjölmörg nöfn virtra innlendra og erlendra sérfræðinga, fyrirtækja og stofnana sem hafa gagnrýnt Davíð og Seðlabankann. Davíð gaf lítið fyrir það og sagði m.a.: "Þetta eru fræðimenn sem þú nefnir sem gjarnan vildu vera í Seðlabankanum." Þvílík mótrök! Svo var hann sjálfur með dylgjur og aðdróttanir og ýjaði að þessu og hinu um menn og málefni - án þess að nefna nein nöfn.
Meginþemað í máli Davíðs var að réttlæta sjálfan sig. "Ég varaði við" segir hann ítrekað. Hvern eða hverja varaði hann við? Af hverju lét hann hafa eftir sér í viðtölum að allt væri í stakasta lagi nánast fram á síðasta dag, kvittar fyrir skýrslu Seðlabankans í maí 2008 þar sem bankarnir eru sagðir traustir - en segist engu að síður hafa varað við? Í hvaða eyru hvíslaði hann þeim viðvörunum? Hvaða lausnir kom Davíð með? Hvaða ráð gaf hann? Þess lét hann ógetið
Davíð segir menn hafa komið til sín í hrönnum (maður sér fyrir sér biðröð þar sem allir taka númer) til að segja sér að hann væri eini maðurinn sem hægt væri að treysta. Eini maðurinn sem var á móti þessari vitleysu allan tímann, talað um þetta allan tímann, barðist gegn þessu allan tímann. Eini maðurinn sem hafði verið sjálfum sér samkvæmur allan tímann og varað við þessu allan tímann. Eins og hann gerir hér, til dæmis.
Ætli Davíð sé kannski að meina þetta viðtal þegar hann segist hafa varað við því sem var í aðsigi?
Hér er úrklippa úr viðtalinu með honum einum.
Eða átti hann kannski við þetta viðtal, sem tekið var 11 dögum áður en hann ákvað að taka yfir Glitni. Hver varar hvern við hverju hér?
Þetta Kastljósviðtal var eflaust kærkomið í herbúðum aðdáenda Davíðs - en hjá okkur hinum floppaði hann algjörlega og endanlega. Svo einfalt er það.