22.4.2009
Skýjum ofar í boði Framsóknar
Félagsskapur skiptir miklu máli, ekki síst á mótunarárum unglinga. Ekki er svo verra að trítla lífið á enda í eðalkompaníi við klárt og skemmtilegt fólk. Ég hef verið lánsöm að þessu leyti og nú bætti heldur betur í lukkuna hjá mér. Vegsaukinn kom þó úr óvæntri átt - frá Framsóknarflokknum. Þar sit ég nú á lista með þvílíku sómafólki að það hálfa væri nóg. Ég er að springa úr stolti og veit ekki hvernig ég get þakkað Framsókn upphefðina og dv.is fyrir að birta þennan frábæra lista. Öfundsjúkir eru hvattir til að reyna að kæra sig inn á listann með því að senda tölvupóst á framsokn@framsokn.is. Ætli Sjálfstæðisflokkurinn sé með svona lista líka? Mikið væri gaman að komast á hann.
Viðbót: Lesið bréf Baldurs McQueen til Framsóknarflokksins í tilefni listans og öfundarpistil Illuga Jökuls með tilraun til að komast á listann.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (30)