Íslandsmetið slegið!

Ég óska okkur öllum innilega til hamingju með Íslandsmetið, þetta er allt í áttina.

Þeir eru nú ekkert að hampa þessari frétt hjá Mogganum, setja hana inn klukkan 5:30 í morgun svo hún sé örugglega horfin í fréttagímaldið mikla þegar fólk vaknar að morgni og kíkir á vefinn. Vonandi bæta þeir um betur og hafa umfjöllun ásamt beittum fréttaskýringum í prentuðu útgáfunni á morgun. Ég hef trú á því.

Hins vegar var fréttastofa Ríkissjónvarpsins með beina útsendingu frá fundinum í Orkuveituhúsinu í kvöldfréttum sínum í gær og fær mikið hrós fyrir það.

Enn eru þrír dagar til stefnu til að senda inn athugasemdir.
Kynnið ykkur málið á
www.hengill.nu og takið afstöðu.

mbl.is Metfjöldi athugasemda vegna Bitruvirkjunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband