17.6.2009
Ég um mig frá mér til mín
Þetta gæti orðið svolítið flókið...
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Dægurmál, Pepsi-deildin, Viðskipti og fjármál | Facebook
17.6.2009
Þetta gæti orðið svolítið flókið...
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Dægurmál, Pepsi-deildin, Viðskipti og fjármál | Facebook
Athugasemdir
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 17.6.2009 kl. 01:11
Já þetta er að verða sápuópera.
Nú held ég að þjóðin sé búin að fá sig fullsadda af lögfræði klækjum glæpalýðsins. Svona bull sannar svo ekki verður um villst að Jolie og allrar annarrar sérfræðiþekkingar er þörf til að negla þetta lið. Hvar er restin af Óháða ransóknarteyminu?
Nú er komið að því að Steingrímur efni stóru loforðin! Alt upp á borðið, kyrrsetja eignir glæpalýðsins, frjálsa óháða rannsókn. Og áfram mætti telja.
Ég ætla ekki að nefna Samspillinguna, því hún og hennar ráðherrar voru hluti af meininu sem hún nú reynir að fela.
En er enginn að vinna í því að finna alla þessa peninga sem hurfu? Á bara að gleyma þeim því stjórnin er svo upptekin af að skuldbinda okkur fyrir þeim.
Getur einhver sagt mér af hverju, Geir og Solla á sínum tíma fóru ekki beint til Breta og Hollendinga og þeirra sem málið varða, og sömdu um samstarf og hjálp að finna peningana og rekja alla enda og finna glæponana? Og nú eru Jóhanna og Vinstri grænir fallin í sömu gryfju.
Við Íslendingar, Bretar og Hollendingar erum jú öll fórnarlömb þessara glæpamanna.
Hvað eru Ráðherrar okkar endalaust að fela? Því eru þau ekki að semja um að leysa glæpinn, en eingöngu að reyna að binda hann sem myllustein um þjóðarhálsinn um ókomna framtíð.
Vei okkur sem þjóð ef Alþingi samþykkir þetta bull.
Arnór Valdimarsson (IP-tala skráð) 17.6.2009 kl. 02:04
þessi frétt er snilld og lýsir vel fáránleika málsins
Brjánn Guðjónsson, 17.6.2009 kl. 02:09
Gleðilega þjóðátíð, megi dagurinn verða þér góður og gjafmildur, mín fallega Lára Hanna Einarsdóttir!
Magnús Geir Guðmundsson, 17.6.2009 kl. 02:36
Ég ítreka bara þá skoðun mína að félagi Sigurjón er algjör TÖFRAMAÐUR, hans BARBABRELLUR eru "fyndnar, flottar og gefa innsýn í ótrúlegan húmor...
" - önnur eins TÖFRABRÖGÐ hafa ekki sést hérlendis síðan Tótti TRÚÐUR mælti með kaupum í Decode svikamyllunni.....
. Ég vona að þegar kemur í ljós að Sigurjón greiðir ekki, þá munni félagi Sigurjón ganga "í skrokk á sjálfum sér" & þannig hugsanlega hræða Sigurjón til að greiða sjálfum sér eitthvað af skuld sinni....! Maður afhendir þessu fólki pening & "hókus pókus" allt horfið - "all gone away....
" en gengur bara betur næst, eða hvað???
kv. Heilbrigð skynsemi
Jakob Þór Haraldsson, 17.6.2009 kl. 02:40
Kannski var Sigurjón bara að leika Frúin í Hamborg ?
"Hvað gerði Sigurjón við peningana sem Sigurjón í bankanum lánaði honum ? Það má ekki segja svart og ekki hvítt og ekki já og ekki nei"
Anna Einarsdóttir, 17.6.2009 kl. 07:22
Nú er búið að prómótera Jón Kaldal uppí toppstöðu hjá íslensku mafíunni. Hann segir að við verðum að losa okkur við Evu Joly hið fyrsta. Hún sé ekkert annað en pólitíkus og engin lögfræðingur.
Nú mega Glitnir og Landsbankinn alveg hætta að fjármagna þennan snepil mín vegna.
Doddi D (IP-tala skráð) 17.6.2009 kl. 09:51
Sæl Lára Hanna
Af hverju er ekki talað um þessa skoðun hér?
sem birtist hér svipað viðhorf kemur fram hér
Tekur fólk bara fullyrðingum Sigurðar G. og löfrædeildar Landsbankans sem forsendum í rökræðunni. Hvers konar fréttamennska er það að nota hugtakið "einkalífeyrissjóður" þegar það hefur verið sagt að lífeyrissjóðurinn geti ekki verið í einkaeigu Sigurjóns. Allavega ættu fréttamenn að fá álit lögfræðings sem er ekki tengdur Landsbankanum eða Sigurjóni Árnasyni. Á meðan það hefur ekki verið gert er fáránlegt að tala um lán Sigrjóns til Sigurjóns og eingöngu til þess ætlað að dreyfa athyglinni frá aðalatriðum málsins.
Það sem heyrst hefur um málið frá fólki sem er ekki beint tengt Landsbankanum eða Sigurjóni, er að þessi gjörningur sé brot á lögum um lífeyrissjóði. Besta umfjöllun sem ég hef séð um málið er reyndar á þessu bloggi hjá þér Lára Hanna. Þar komu fram atriði sem hægt er að rökræða og bera undir lögfræðinga sem ætti að vera grundvöllur umræðunnar en ekki einhver brandarafréttamenska.
Ég er alltaf að sjá það betur og betur að þetta blogg hjá þér Lára Hanna er besti fréttamiðill sem er í boði á Íslandi í dag.
Benedikt Gunnar Ófeigsson, 17.6.2009 kl. 10:01
Ég skrifaði þessa hugleiðingu í gærmorgun eftir að hafa hlustað á Sigurð G í Kastljósinu kvöldið áður...
Af lögfræði fáránleikans
Er skrítið að allt sé í volli í landi fáránleikans. Í kastljósi í gærkvöldi var heiðvirðum borgurum boðið uppá fáránleikaleikhús íslenskrar tilveru þar sem heitt er kalt, skuld er eign, svart er hvítt og peningur úr hægri hendi í þá vinstri er lán.
Þarna sat hinn löglærði maður Sigurður G. Guðjónsson og reyndi að segja okkur að Sigurjón geti lánað Sigurjóni og til að tryggja að Sigurjón tapi ekki á Sigurjóni þá tók Sigurjón veð í hús Sigurjóns. Þetta heitir skv lögfræðingnum lán, rétt eins og lífeyirssjóðslán sem ég tók hjá mínu stéttarfélagi. Röksemdarfærslan; ríkir menn geta stofnað sinn eigin lífeyrissjóð. Laun lögð inn í lífeyri eru ekki skattskyldir. Lífeyrissjóður getur veitt sjóðsfélögum lán. Lán eru ekki tekjur og því ekki skattskyldar. Skv lögfræði fáránleikans – þá er lánið frá Sigurjóni til Sigurjóns lán og Sigurjón getur nú tekið peninganan sína óáreittur án þess það greiða af þessum launatekjum sínum neina skatta.
En gleymist ekki aðalatriðið í lögfræði fáránleikans? Hvað er lán? Lán hlýtur að vera samningur tveggja aðila. Rétt eins og hjónaband þarf tvo til - hlýtur lán að þurfa amk. tvo til, þar sem annar aðilinn lánar og hinn þiggur lánið. Ef að lögfræði fáránleikans gengur upp hjá Sigurði G. þá getur Sigurjón væntanlega gifst Sigurjóni (með lögleiðingu á hjónavígslu samkynhneigðra). Sigurjón flytur nú eignir Sigurjóns á maka sinn Sigurjón og þegar gerð er skuldaaðför að Sigurjóni þá segir hann – sorrý en eiginir mínar eru allar skráðar á maka minn Sigurjón.
Hversu lengi á að bjóða okkur upp á slíkar rökleysur!
Magnus (IP-tala skráð) 17.6.2009 kl. 11:04
Þessi frétt er greinilega gerð til að vekja athygli á fáránleikanum í þessu máli
Rakel Sigurgeirsdóttir, 17.6.2009 kl. 15:42
Sæl Lára Hanna
Þetta er nú bara alveg makalaus skrípaleikur og maður veit ekki hvað er i gangi á skerinu lengur, á maður að
eða
Jóhannes (IP-tala skráð) 17.6.2009 kl. 17:03
Tær snilld !
Hildur Helga Sigurðardóttir, 17.6.2009 kl. 20:07
http://joninasolborg.blog.is/blog/joninasolborg/entry/897559/#comments
Svolítið annað sjónarhorn hjá JS, gat ekki stillt mig um að skella því hingað yfir. Hún líka glúrin stelpa!
Magnús Geir Guðmundsson, 17.6.2009 kl. 22:08
Auðvitað á þessi vargur ekkert betra skilið en að verða aðhlátursefni allstaðar.
Húnbogi Valsson (IP-tala skráð) 17.6.2009 kl. 22:18
Af hverju hefur enginn spurt um jafnræðisreglu stjórnarskrár?
Eru þeir sem eiga mikinn pening virkilega "jafnari en aðrir" að lögum??
Ef Sigurjón má , þá hljótum við að mega líka.... nema við búum á Animal Farm.
Hrönn (IP-tala skráð) 18.6.2009 kl. 17:47
Hvers vegna haldiði að hann heiti Sigur-jón?
Hermann Bjarnason, 20.6.2009 kl. 02:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.