Kannski hefði ég átt að gera það

Flestir kannast við þegar eitthvað hverfur ekki úr huga manns klukkustundum, dögum og jafnvel vikum saman. Maður fær eitthvað á heilann. Það getur verið lag, setning, hugmynd eða hvað sem er. Þetta myndbrot hefur varla vikið úr huga mér upp á síðkastið. Setningin syngur í huganum endalaust og ég get ekki bægt frá mér spurningunni: "What if he had...?" Ef hann hefði gert það... Hvað þá? Væri staðan eitthvað öðruvísi í dag? Verst er, að það er ómögulegt að segja. Spurningunni verður aldrei svarað.

BBC 2 - Hard Talk - Geir Haarde

 

Allt viðtalið - 12. febrúar 2009



« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Já, það er svo margt furðulegt sem gerðist eða ekki gerðist á þessum tíma og fram til þessa dags.  Stundum er maðu svo gáttaður á upplýsingum sem koma fram.  Ósvífni, brjálæði, geðveiki, vanhæfi og svik eru orð sem koma allt of oft upp í hugann, þegar flett er ofan á enn einni vitleysunni.  Það sem verra er, það er eins og allir hafi verið saman í þessu.  Pólitíkusar fengu bitlinga, fjármálafurstar gerðu það sem þeim sýndist, eigendur bankanna litu á þá sem sjálftökusjóði og embættismönnum var alveg sama hvaða reglur voru brotnar.  Ég skil t.d. ekki ennþá hvers vegna bankarnir gátu veitt lán með tengingar við dagsgengi erlendra gjaldmiðla, þrátt fyrir slíkt hafi verið bannað með lögum.

Geir og ríkisstjórn hans eru náttúruleg alveg sér kapituli.  Það er ekki hægt að skýra viðbrögð þeirra á neinn annan hátt, en að þar hafi allir fengið lost.  Miðað við það sem á undan gekk, þá áttu ráðherrar að vita hvert stefndi.  Reiknistofa bankanna var undir það búin að einn banki myndi hrynja.  Stofan var búin að æfa viðbrögð við því.  Varla var það gert bara upp úr þurru?  Nei, menn innan stjórnkerfisins vissu hvert stefndi.  Vanhæfi er það orð sem oftast kemur upp í huga mér.  Það er sama hvert maður snýr sér.  Út um allt virðast hafa verið (og eru ennþá) vanhæfir einstaklingar.  Hvernig stendur t.d. á því að það voru Hagsmunasamtök heimilanna sem vöktu athygli fjárlaganefndar á alvarlegri skuldastöðu Íslands við útlönd?  Ég var á þeim fundi og sá viðbrögð nefndarmanna, þegar Haraldur Líndal renndi yfir tölurnar sínar og ég bætti við mínum tölum.  Það runnu virkilega á menn tvær grímur.  Og nefndin bað Seðlabankann um upplýsingar, en jafnvel ég áttaði mig á því að inn í tölur Seðlabankans vantaði heil mikið!  Eru menn ekki ennþá raknaðir úr rotinu eftir fall bankanna?  Eða er staðan svo hörmuleg, að Seðlabankinn þorir ekki að birta allar upplýsingarnar?

En varðandi "If I only had" ummælin hans Geirs, þá held ég að það hefði engu breytt, þó Geir hefði talað við Brown.  Það sáu það allir sem vildu úti í himum stóra heimi hvers konar vanhæfi var í gangi hér á landi.  Menn geta ekki leyft dobberman hundunum sínum að ganga lausum og vaða yfir allt og síðan þegar hundarnir meiðast illa eða drepast ætlast til þess að fá vorkunn annarra.  Það virkar ekki þannig.  Það er hlutverk eiganda hundanna að sjá til þess að þeir haldi sig á mottunni.  Sorry, en sóðaskapurinn hjá íslensku bankamönnum var einfaldlega svo svakalegur að mér liggur við að segja, að þeir áttu fallið skilið.  Það versta er að við þurfum að þrífa upp eftir þá og það big time.

Marinó G. Njálsson, 29.7.2009 kl. 00:32

2 Smámynd: Helgi Jóhann Hauksson

Takk, þið bæði, fyrir ykkar yfirlit Lára og Marinó.

Helgi Jóhann Hauksson, 29.7.2009 kl. 00:47

3 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Tveir skörpustu bloggararnir: Lára Hanna og Marinó! Það gerist varla betra. Hvað þá skýrara. Takk Marinó fyrir þitt greinargóða og skýra svar. Ég er á því að þú hafir rétt fyrir þér!

Rakel Sigurgeirsdóttir, 29.7.2009 kl. 00:53

4 Smámynd: Jenný Stefanía Jensdóttir

Undanfarnar vikur hefur mér oft dottið í hug þáttaröð (25-30 ára gamla) um frönsku andspyrnuhreyfinguna, sem barðist eins og ljón við ofurafl þess tíma; heimsvaldarstefnu Hitlers.

Stundum var staðan vonlaus eða vonlítil, en allir vita hver sigraði að lokum.  Látum ei bugast góðu félagar, með allra hjálp og heiðarleikans fyrst og fremst, mun þetta svínarí auðvalds púka og fylgifiska þeirra verða brotið á bak aftur.

Sjálf mun ég ekki finna frið né kyrrð gagnvart börnum og barnabörnum sem erfa munu landið, fyrr en réttlaeti er náð.

Bíð góðar stundir.

Jenný Stefanía Jensdóttir, 29.7.2009 kl. 02:09

5 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

   Þetta er líka í,á,heila mínum.

Helga Kristjánsdóttir, 29.7.2009 kl. 04:49

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Æi, auðvitað gerði hann það ekki af auljósum ástæðum.

Svona svara unglingarnir þegar maður innir þá eftir því af hverju þeir hafa ekki hringt heim og látið vita þegar þeim seinkar.

Þá segja þeir til að kaupa sér frið.

Ég hefði kannski átt að gera það.

En þeir meina akkúrat ekker með því.

Jenný Anna Baldursdóttir, 29.7.2009 kl. 10:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband