20.8.2009
Skúrkar og skilanefndir
Ég var ansi reið þegar ég skrifaði þennan pistil um skilanefndir bankanna. Bara nokkuð rækilega fjúkandi og er enn á því að reiði mín - og annarra - hafi verið fullkomlega réttlát. Í kvöld og í fyrrakvöld bættist enn í skilanefndaskjóðuna góðu.
Í kvöld var frétt á Stöð 2 um forstjóra Straums, sem mér skildist að skilanefnd bankans hafi ráðið þegar bankinn fór í þrot. Hann er með 4 milljónir á mánuði sem gerir 48 milljónir á ári. Samkvæmt fréttinni var það einmitt þessi forstjóri sem lagði til að starfsmenn fengju 11 milljarða í bónusgreiðslur fyrir að innheimta skuldir bankans? Hver borgar laun bankastjórans? Við? Hvernig er siðferðinu háttað hjá svona fólki? Maður spyr sig...
Fréttir Stöðvar 2 - 20. ágúst 2009
Í áðurnefndum pistli birti ég umfjöllun Kastljóss um skilanefndir bankanna frá í síðustu viku. Annar hluti kom í Kastljósi í fyrrakvöld. Ég veit ekki hvort þeir verða fleiri, en birti hér báða kafla. Hvað finnst fólki um þetta?
Kastljós um skilanefndir - 12. ágúst 2009
Kastljós um skilanefndir - 18. ágúst 2009
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Spilling og siðferði, Stjórnmál og samfélag, Viðskipti og fjármál | Facebook
Athugasemdir
margur myndi prísa sig sælan með að hafa mánaðarlaun þessa veruleikafirrta manns í árslaun
Brjánn Guðjónsson, 20.8.2009 kl. 20:32
Hvaða hvaða, þetta eru ekki nema 23.000 krónur á tímann, þ.e. án bónuss.
Börkur Hrólfsson, 20.8.2009 kl. 20:36
Allt þetta fólk , sem situr í skilanefndum, eða situr í bankastjórnum er þarna á vegum ákveðinna ,,klíka" í þessu þjóðfélagi !
Það breytist ekkert , því miður !
Allt þetta fólk er þarna vegna ,,hagsmuna" , sinna og sinna ,,klíku" !
Við erum bara látin borga , og beðin að halda kjafti því okkur komi þetta ekkert við !
JR (IP-tala skráð) 20.8.2009 kl. 20:42
Hvar eru stjórnvöld sem ætluðu að breyta öllu svínaríinu,þau skyldu þó ekki vera á kafi í skítnum líka?
magnús steinar (IP-tala skráð) 20.8.2009 kl. 21:00
Skil vel að þér er misboðið. Mér er það líka.
Kolbrún Baldursdóttir, 20.8.2009 kl. 22:00
Hvernig væri að búa til skuggaráðuneyti og skuggaþing með fólki sem vil raunverulegar breytingar strax til að veita aðhald og til að þróa lýðræðið í rétta átt?
Góð þjálfun fyrir fólk sem vil taka við eftir næstu alþingiskosningar til að koma á alvöru lýðræði hér á landi þar sem áhrifum fjórflokksins yrði þá í minnihluta þ.a.s ef meirihluti kjósenda sé búinn að fá nóg af spillingunni
Ég gæti séð þig Lára Hönnu sem forsætisráðherra í skuggaráðuneyti þess málaflokks sem dæmi.
Baldvin Nielsen Reykjanesbæ
B.N. (IP-tala skráð) 20.8.2009 kl. 22:35
Hvaða væl er þetta, þetta er ölmusa m.v. vatnsgreidda drenginn hér sem fékk útborgað fyrir það að hætta að vinna.
Straumsdrengurinn mætir þó alla vega í vinnuna 9-5.
Ábekkingurinn (IP-tala skráð) 20.8.2009 kl. 22:38
Lára.
Þú ert frábær.
Rannsóknir þínar á spillingu íslands gefur okkur von? En stjórnvöld virðast alltaf reyna að fela eitthvað?
Nú mótmæla íslendingar allir sem einn á Austurvelli í haust þar sem það er algjörlega nóg komið af spillingu.
Ef ég er að springa þá tel ég að flestir aðrir séu að sptinga.
Allt upp á borðið og út með alla þá sem komu þjóðinni á vonarvöl. Ég tel mig geta talað fyrir þjóðina? Við viljum ekki þetta fólk í vinnu fyrir íslensku þjóðina.
Það er nóg af hæfu fólki fyrir utan girðingar sem aldrei hefur tekið þátt í þessu glæpsamlega fjármála sukki.
Áfram Lára og berjumst áfram til síðasta manns.
Baráttu kveðja fyrir því að gjörspilt landið okkar verði laust við spillingu á næstu árum.
Árelíus Þórðarson.
Árelíus Örn Þórðarson, 21.8.2009 kl. 04:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.