Afsökunarbeiðni efnahagsböðuls

Ég vek athygli á mynd sem sýnd verður strax á eftir Tíufréttum á RÚV í kvöld - Apology of an Economic Hit Man eða Afsökunarbeiðni efnahagsböðuls upp á ylhýra. Þarna er um að ræða kunningja okkar Íslendinga, John Perkins, sem var í viðtali í Silfrinu í byrjun apríl og kom einnig fram í Draumalandi Andra Snæs Magnasonar með afar eftirminnilegum hætti. Sumum finnst Perkins trúverðugur - öðrum ekki.

Apology of an Economic Hit Man - RÚV 16.9.09

Það verður athyglisvert að sjá myndina við getum rifjað upp sitthvað sem John Perkins hefur sagt undanfarið - byrjum á Silfrinu.

Silfur Egils 5. apríl 2009

 Ísland í dag 7. apríl 2009

 

 Draumalandið - kynningarmyndband

Fyrirlestur Johns Perkins í Háskóla Íslands 6. apríl 2009
Fyrri hluti

 

Seinni hluti

 

 John Perkins - How to destabilize countries legally

 

John Perkins er sannfærður um að Ísland hafi orðið fyrir árás efnahagsböðla. Það er Michael Hudson, hagfræðingur, líka. Bendi í því sambandi á tvær greinar eftir Hudson sem birtust í Fréttablaðinu í byrjun apríl: Alheimsstríð lánadrottna og Stríðið gegn Íslandi. Hefur eitthvað komið í ljós sem bendir til að við ættum EKKI að trúa þessum mönnum?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Ætla að fylgjast með þessum dagskrárlið. Var í fyrstu að velta fyrir mér hvort af kynningu að dæma þetta væri einhver amerísk hasarmynd en af þeim er alltaf nóg af, kannski fullmikið.

Þakka þér fyrir að benda á þetta Lára. Þú ættir að fá sérstök fjölmiðlaverðlaun. Ætli Þórbergur Þórðarson hefði ekki viljað hengja á þig Rúgbrauðsorðuna!

Mosi

Guðjón Sigþór Jensson, 16.9.2009 kl. 16:00

2 identicon

Það var fróðleg fréttin sem birtist í hádegisfréttum RUV. Þar var haft eftir Tómasi Má Sigurðssyni, forstjóra Alcoa, að þeir þyrftu tryggingu fyrir því að fá orku fyrir 350.000 tonna álver.

Þetta þýðir óútfylltan tékka til Alcoa,  um aðgang að orkuauðlindum sem ná frá Þeistareykjum og til Herðubreiðar og Skjálfandafljóts.

Má finna samsvörun í tali forstjórans og því sem kemur fram í myndinni?

einsi (IP-tala skráð) 16.9.2009 kl. 16:33

3 identicon

Stórkapítallinn í BNA hefur áorkað meira til sósíalismans en kenningar Marxista og annara sósíalista samanlagt. Miskipting auðs er að sjálfssögðu helsta vandamál heimsins í dag og undanhald millistéttarinnar endar með einhverskonar uppgjöri þjóðfélagshópa í öllum samfélögum.

Menn eins og John Perkins lýsa þessu mjög vel og þarf fólk að hlusta á hann með opnum huga.

Saga t.d. Suður Ameríku er að öllu leyti sorgleg þar sem hún tengist imperíalisma BNA svo náið. Því hvers vegna ættu innfæddir íbúar þessara svæða að njóta góðs af auðlindum landsins?

Þetta er í raun sáraeinfalt en vandamálið er að maður þarf að hugsa um þetta eins og maður sé staddur í James Bond mynd. Maður á oft einfaldlega erfitt með að trúa að 'siðmenntaðir' íbúar, 'siðmenntaðra' landa hegði sér á þennan hátt.

Guðgeir (IP-tala skráð) 16.9.2009 kl. 17:15

4 identicon

Fyrsti hluti láns AGS til okkar fór á reikning í banka í New York og það stemmir við það sem Perkins segir í Játningunum.

Öll efnahgasaðstoð við Austur Tímor fór inn á banka í USA og bókstaflega ekkert skilaði sér þangað. Það stemmir við það sem Perkins segir.

Uppbyggingin í Indónesíu eftir flóðbylgjuna byggðist á „aðstoð“ sem fólst í því að Bandarísk fyrirtæki fengu pening til að byggja hótel og koma upp túristagildrum þar sem þorp innfæddra stóðu. Það stemmir við Perkins.

Þorsteinn Úlfar Björnsson (IP-tala skráð) 16.9.2009 kl. 21:21

5 identicon

 Þetta er rosalegt !

Og komast upp með þetta aftur og aftur og aftur. Skil ekki afhverju Suður Ameríka fer ekki í stríð við ríkið í norðri. Furðulegt að alþjóða samfélagið leyfi þeim að komast upp með þetta ! 

jóna (IP-tala skráð) 16.9.2009 kl. 23:23

6 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Vá hvað þetta var áhrifamikil mynd "the confessions of an economic hitman"! Þetta er nefnilega að gerast hér á Íslandi núna!

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 16.9.2009 kl. 23:59

7 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Það er vonandi að ráðamenn og almenningur fari að tengja varðandi bolabrögð AGS hér og svo þessa útsölu auðlindanna, sem dulin er með því að við eigum auðlindirnar, en njótum einskis af þeim. Með hjáleiðum, klókindum og skúffufyrirtækjum er farið á snið við lög og reglur á meðan menn í öllum flokkum draga lappirnar í lagasetningum og stjórnarskrárbreytingum til að tryggja okkur yfiráðin.

Menn mega líka spyrja sig hvort það veki ekki spurningar að yfirmaður AGS (govenor) á Bretlandi, var á tímum hryðjuverkalaganna og er enn enginn annar en Alistair Darling, fjármálaráðherra Breta.  Hringir Það virkilega engum bjöllum? Hringir það engum bjöllum að Ags skuli ekki svo mikið sem hafa okkur á dagskrá fyrr en við höfum gengið frá ICESAVE?  Þeir sem gáfu það opinberlega út að þeir væru aðeins ráðgefandi og að málið væri "none of their business". Nú merja þeir líftóruna úr okkur með að teygja gjaldeyrishöftin á langinn um leið og þeir halda aftur af neyðarláni sínu.

Og af hverju samanstendur þetta neyðarlán?  Í nóvember í fyrra lofaði frú Kristin Halvorssen um 100 milljarða láni til okkar, frá norðmönnum, sem þing þeirra samþykki. AGS stígur inn í ferlið og stöðvar það. Norðmenn samþykkja að breyta láninu þannig að það verði hluti af lánapakka AGS. Þeir lánuðu svo AGS 600 milljarða, svo þeir gætu lánað okkur. SAma gerðist með rússalánið. AGS, stöðvaði bæði þessi lán, svo þeir sætu einir að kverkatakinu. Það sem hefur gerst í suður Ameríku og víðar í þróunarlöndum, er að gerast hér, en þeir hafa bara tekið upp betur duldar og síviliseraðri aðferðir til að ná sama marki.

Menn skulu ekki Gleyma að AGS er að 51% í eigu USA, eða réttara sagt Federal reserve / Wall Street, sem er ekki meira federal en federal express, heldur hreint og klárt tæki auðhringa til að komast yfir auðlindir (resources) 

Þótt vilji þjóða sé fyrir hendi að hjálpa okkur í þessari kreppu, þá er það AGS, sem kemur í veg fyrir það með klókindum, eða jafnvel hótunum. Allt skal fara í gegnum þá. They call the shots here.

ÞAð sem Ísland á að gera, ef svo ólíklega villl til að Bretar og Hollendingar fallist ekki á fyrirvara okkar, er að vísa málinu fyrir dómstóla og í beinu framhaldi af því að henda AGS út og taka slaginn sjálf.  Það er raunar nóg fyrir fólk að lesa um sjóðinn á wikipedia (sértaklega seinni hlutann) til að sjá hvað þessi glæpahringur stendur fyrir.

Verið á útkikki eftir böðlum og sjakölum. Ekki vera of viss um að þeir séu endilega útlendingar.

Jón Steinar Ragnarsson, 17.9.2009 kl. 00:17

8 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Fólk skyldi svo hafa í huga þegar minnst er á hina hugumprúðu útlendinga, sem eru að koma hingað til að "aðstoða við uppingu orkufreks iðnaðar" að það er aðeinas annað orð yfir arðrán.  Það skal enginn halda að það séu þeir, sem virki og búi í hafginn fyrir þetta. Það erum við.  Enn höfum við ekkert annað upp úr álvæðingunni haft en botlausar skuldir og gjaldþrota landsvirkjun og það er algerlega ljóst að við getum reiknað það í öldum, hvenær það yrði að veruleika.  Þótt hvert einasta andskotans kílówatt yrði virkjað fyrir þessar samsteypur, og álver byggð til að fullnýta það, þá myndi það skapa störf fyrir 2% þjóðarinnar.

Það er verið að éta ykkur með húð og hári og máltíðin hefur verið talsvert lengi í ofninum. 

Jón Steinar Ragnarsson, 17.9.2009 kl. 00:28

9 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

....aðstoða við uppbyggingu... átti að standa þarna.

Jón Steinar Ragnarsson, 17.9.2009 kl. 00:30

10 Smámynd: Dexter Morgan

Ekkert þarna sem kom svo mikið á óvart. Enda var ég alltaf sannfærður um það að allt hið illa sem er að gerast í heiminum í dag, sé runnið undan rifjum USA-manna, með einum eða öðrum hætti.

Dexter Morgan, 17.9.2009 kl. 00:35

11 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Er það ekki merkileg tilviljun hvað nafni hins velþokkaða fjölþjóðafyrirtækis Bechtel skýtur oft upp í umfjöllun á borð við umrædda mynd, aðra um einkavæðingu vatns í fátækustu ríkjum heims -og Alcoa, Reyðarfirði ? Svo eitthvað sé nefnt.

Þessi margrómuðu mannúðarsamtök eru bara starfandi út um allt !

Hildur Helga Sigurðardóttir, 17.9.2009 kl. 02:34

12 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Sem betur fer sá Bechtel bara um að byggja álverið fyrir austan. Þeir eru líklega ekki með neina starfsemi hér á landi lengur. Reyndar hef ég heyrt margt gott frá fólki sem ég treysti um vinnubrögð þeirra fyrir austan, það var víst bara eins og jólin miðað við glæpafyrirtækið Impregilo sem byggði Kárahnúkastífluna.

Guðmundur Ásgeirsson, 17.9.2009 kl. 03:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband