30.9.2009
Úr útivistarsvæði í iðnaðarsvæði?
Petra Mazetti, upphafsmaður Hengilssíðunnar sem beint er gegn Bitruvirkjun haustið 2007 og sem er enn á fullu í baráttunni, bjó til þetta plakat hér fyrir neðan með aðstoð okkar hinna. Við létum prenta nokkur þúsund eintök og sendum í pósti inn á heimili allra íbúa í Sveitarfélaginu Ölfusi og Hveragerði. Helst hefðum við viljað senda það inn á heimili allra landsmanna en höfðum ekki efni á því. Þetta kemur okkur öllum við og allir, hvar sem þeir búa á landinu, geta sent inn athugasemd!
Mig langar að biðja lesendur að láta plakatið ganga - hvort sem er að senda slóðina að þessari færslu, benda á hana í bloggum, setja hana á Facebook eða vista plakatið, birta það hjá sér, senda það áfram í tölvupósti eða á annan hátt. Smellið til að stækka.
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Dægurmál, Náttúra og umhverfi, Spilling og siðferði | Breytt s.d. kl. 23:12 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.