"Geta ekki hætt að ljúga og stela"

Mér varð bumbult þegar ég sá þetta. Nú þyrfti að grafa upp sundurliðun á kostnaðarliðnum "sérfræðiráðgjöf" hjá bönkunum. "Þessir sömu menn sitja enn við kjötkatlana í bönkunum og virðast ekki geta hætt að ljúga og stela". Svo er spurning hver græðir á laxveiðileyfunum.

Fréttir Stöðvar 2 - 5. nóvember 2009


Þetta var í Tíufréttum RÚV áðan og mér fannst það kallast hressilega á við hina fréttina. Hvað ætli laxveiðiferðir sumarsins hefðu fætt margar fjölskyldur og hve lengi? Viljum við svona þjóðfélag?

Tíufréttir RÚV 5. nóvember 2009

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Arinbjörn Kúld

Dásamlegt. Er ekkert að breytast?

Kveðja að norðan.

Arinbjörn Kúld, 5.11.2009 kl. 21:11

2 Smámynd: Árni Gunnarsson

Það samfélagsmódel sem ég vil sjá finn ég kannski á Djúpavogi, Borgarfirði eystra, Þórshöfn á Langanesi, Árneshreppi á Ströndum eða einhverjum slíkum afskekktum byggðum. Hvar sem hægt er að fela spillingu og græðgi í fjöldanum fer skriðan af stað. Svona úrkynjað er samfélag okkar orðið í dag.

Árni Gunnarsson, 5.11.2009 kl. 21:34

3 Smámynd: Morten Lange

Takk fyri að birta þessu.  En ég er hér um bil  viss um að engin mótmæli verða við bankana eða á Austurvöll á morgun eða um helgina...  Munu stjórnvöld bregðast við ?

Hvað þarf til að fólk vakni ? 

Morten Lange, 5.11.2009 kl. 21:52

4 identicon

skilanefnd neitar að standa skattrannsóknarstjóra skil á upplýsingum,laxveiðiferðir enn í gangi,gjaldþrota fyrirtæki færð sömu "traustu" eigendunum á afslætti,hvað svo-ekkert-stjórnvöld fela sukkið og almenningur liggur á blogginu og bölsótast-same old shit..........

árni (IP-tala skráð) 5.11.2009 kl. 21:59

5 identicon

Af hverju er ekki ríkisstjórnin ábyrg fyrir þessu? Eru skilanefndir óháður lögum, reglum og almennu siðferði? Þetta er allt gert í skjóli ríkisstjórnar. Auðvitað er þetta skársta ríkisstjórnin, nema ef væri utanþingsstjórn fagmanna. Er kannski enginn munur á fjórflokk og fjórflokk?

Rósa (IP-tala skráð) 5.11.2009 kl. 22:25

6 identicon

Úrkynjun, já það er rétta orðið yfir okkur Frónbúa, við erum alltof fá, sem hefur greinilega haft alvarlegar afleiðingar á öllum sviðum.  Hvað er til´ráða til að "kynbæta" þessa úrkynjaðu smáþjóð ? 

Vigdís Ágústsdóttir (IP-tala skráð) 5.11.2009 kl. 22:39

7 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Það breytist ekkert.....bara betur falið

Hólmdís Hjartardóttir, 5.11.2009 kl. 22:49

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég er brjáluð.

Jenný Anna Baldursdóttir, 5.11.2009 kl. 22:53

9 identicon

Ísland gamla ísland, ekkert hefur breyst nema hjá okkur sem þurfum að borga alla vitleysuna, við þurfum að bæta götum í beltið og éta það sem úti frýs, á meðan leikur elítan sér, það eru súpersumarhús í þjóðgarðinum og viðsvegar á bestu stöðum landsins.
Ef eitthvað kemur upp á hjá þessu pakki öllu saman þá bara aðstoða bankar við afskriftir og kennitöluflakk....

DoctorE (IP-tala skráð) 5.11.2009 kl. 23:00

10 identicon

Siðblindan og spillingin virðist endalaus

En við gætum breytt þessu ef almennileg samstaða væri meðal almennings um að kollvarpa öllu kerfinu og hreinsa ærlega til....ALLSTAÐAR !!

Anna Grétarsdóttir (IP-tala skráð) 5.11.2009 kl. 23:17

11 identicon

Ég er alltaf að verða sannfærðari um að ekkert dugar nema bylting fólksins,bara það að þessir glæpahundar allir eigi nú jarðir um allt land er eitthvað sem á ekki að líðast, taka þetta allt af þeim, fötin utan af þeim og láta þá vinna við vegagerð með kúlu á löppinni.

DoctorE (IP-tala skráð) 5.11.2009 kl. 23:23

12 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Ég er sammála DoctorE í öllum aðalatriðunum... 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 5.11.2009 kl. 23:33

13 identicon

Frakkar áttuðu sig á því, á sínum tíma, að það var ekki lengur valkostur að sitja hjá eða sitja með hendur í skauti.

Ef þeir hefðu ekki gripið til aðgerða þá hefði ekkert breyst !!

 Hvar sitja Íslendingar ???

Tími friðsamra mótmæla, bloggskrifa, kaffihúsaspjalls verður að fara að líða undir lok !!!

runar (IP-tala skráð) 6.11.2009 kl. 18:26

14 Smámynd: Gísli Foster Hjartarson

Já þetta sló mann kaldann - ja við skulum segja volgann - því fátt er hætt að koma manni á óvart. Siðblindan er algjör.

Heyrði þingmann í síðustu viku tala um að búið væri að koma bönkunum í gang - skondið en það var ekkert minnst á traust, hreinsanir þar, gegnsæi og hvað þetta heitir - ég myndi vilja sjá fjölmiðla gerast ágengari við pólitíkusa  ganga á þá með þetta stjórnarliða sem aðra og ekki linna látum fyrr en einhver svarar einhverju - það hlýtur hver og einn af þessu fólki að hafa skoðun.

 Og hvað er þetta með bankafólkið sem vill bónusa fyrir að hafa komið bönkunum á hausinn þannig séð afhverju er ekki gengið á þingmenn og þeir spurðir út í þetta - bara allir sem einn - Ein einföld spurning: Finnst þér þettta í lagi - yrði gaman að sjá t.d. hvernig Þorgerður Katrín svarar svona spurningu já og Illugi Gunnarsson, Björgvin G. og fleiri.

Gísli Foster Hjartarson, 6.11.2009 kl. 18:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband