Eva Joly í norska og sænska sjónvarpinu

Eva Joly var gestur Skavlans í norska og sænska sjónvarpinu í gærkvöldi. Þátturinn mun vera tekinn upp í Noregi en sendur út samtímis í báðum löndum. Mörgum er í fersku minni þegar Geir H. Haarde var gestur Skavlans í september og talaði þessa líka fínu norsku. Í þetta sinn tók ég upp sænska sjónvarpið því þar var texti sem ætti að hjálpa einhverjum - þótt sænskur sé. Eva Joly og Skavlan ræddu saman á móðurmáli beggja, norskunni.

Svt1 - Sænska sjónvarpið - Skavlan og Eva Joly - 6. nóvember 2009

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Missti af byrjun þáttarins og þar með viðtalinu við Evu Joly. Mátti vita að þú klikkaðir ekki. Mange tak!

Solveig (IP-tala skráð) 8.11.2009 kl. 02:13

2 identicon

Takk fyrir þetta Lára Hanna! Segi eins og Solveig: Þú klikkar ekki! Við að hlusta á þetta kemur ýmislegt okkur nær upp í hugann: Af hverju á að leggja SV-línu yfir Gvendarbrunna, sem eru kaldavatnsuppspretta höfuðborgarbúa? Af hverju á að klára alla orku hér á SV-horni landsins í álver í Helguvík? Af hverju er OR búin að semja um orkuverð til Helguvíkur núna löngu áður en vitað er hvað það muni kosta? Af hverju er HS á hausnum? Af hverju er Landsvirkjun verulega illa stödd fjárhagslega eftir að verja farin að selja raforku til álvers úr hagkvæmustu virkjun sem til er á Íslandi (við Kárahnjúka)? Af hverju er alltaf verið að hækka raforkuverð til almennings? Og verð fyrir heitt vatn? Má ekki einfaldlega búast við því að almenningur þurfi að greiða niður raforkuverð til álvera næstu hálfa öldina? Hverjir græða svo á þessu öllu? Ekki nóg með það, af hverju er her af fólki sem kallar sig sjálfstæðismenn að verja alla þessa vitleysu?

HF (IP-tala skráð) 8.11.2009 kl. 11:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband