Færsluflokkur: Bloggar

Kaflaskil eða leikslok?

Þetta er líklega erfiðasti pistill sem ég hef skrifað - og þeir eru orðnir ansi margir. Ég hef ótal sinnum ætlað að láta verða af þessu en þá hefur alltaf eitthvað gerst sem hefur komið í veg fyrir það. En nú hef ég verið fjarri "góðu gamni" og nettengingu eins og sjá hefur mátt á þögn minni hér á síðunni...

Framhald hér...


Ískaldur veruleiki snákanna

Magma-málið er heldur betur í umræðunni þessa dagana - loksins, loksins!  Ég hef skrifað um það í rúmt ár og fundist ég stundum vera svolítið ein í heiminum. En nú hefur öflugt fólk bæst í hópinn og almenningur er að vakna til vitundar um alvarleika þessa máls. Mér finnst verst hvað snúið er út úr umræðunni, en það er líklega óhjákvæmilegur fylgifiskur stórmála...

Framhald hér...


Þjóðargersemi fær þjóðargjöf

Ég fór í Grasagarðinn í Laugardal í gær til að samfagna Ómari Ragnarssyni með sjötugsafmælisgjöfina - eða fyrsta hluta hennar. Sjaldan eða aldrei hefur mér fundist nokkur manneskja verðskulda eins hjartanlega þann þakklætisvott sem henni var sýnd með framlagi um 8.000 einstaklinga og 8 fyrirtækja. Það er magnað að renna í gegnum...

Framhald hér...


Björgólfur Thor og Icesave

Þvílíkt rugl. Hann segist vera að borga skuldir sínar en þykist ekki bera neina ábyrgð á Icesave! Hann á milljarða - kannski milljarðatugi - hér og hvar á jarðkringlunni en hefur geð í sér til að horfa upp á niðurskurð í allri þjónustu á Íslandi án þess að blikka augunum. Hann var stærsti hluthafi Landsbankans og umgekkst hann eins og sinn einkasparibauk...

Framhald hér...


Hver hagnast á auknu verðmæti?

"Þið hafið þann kost að búa yfir ríkulegum náttúruauðlindum, fiski og orkulindum. Þetta eru endurnýjanlegar auðlindir, einkum fiskurinn ef rétt er að farið. Þetta eru auðlindir sem tilheyra allri þjóðinni. Því miður virðist þið ekki njóta þes ávinnings sem þið ættuð að njóta af þessum auðlindum. Grunnregla skattlagningar er sú..."

Framhald hér...


Hver axlar ábyrgðina?

Málið verður æ gruggugra og tortryggilegra með hverjum deginum, með hverju atriðinu á fætur öðru sem afhjúpast smátt og smátt. Ég efast ekki um að fleira eigi eftir að koma upp á yfirborðið í Magma-málinu og skora á alla sem geta bætt stykkjum í púsluspilið að gera það. Og eftir hið fáránlega ábyrgðarleysi efnahagshrunsins spyr maður óhjákvæmilega...

Framhald hér...


Björgum auðlindunum

Í dag klukkan 16 boða Björk Guðmundsdóttir, tónlistarkona, Jón Þórisson, arkitekt og aðstoðarmaður Evu Joly og Oddný Eir Ævarsdóttir, rithöfundur til blaðamannafundar til bjargar auðlindunum okkar. Á sama tíma verður hleypt af stokkunum formlega undirskriftarsöfnun sem vel á annað þúsund manns hafa nú þegar skrifað undir og fjölgar óðum. Textinn hljóðar svo:

Sjá hér...


Orkuveitan og stjórnarformaðurinn

Ég er ekki sú eina sem hef verið hugsi, jafnvel tortryggin, gagnvart hinum nýja stjórnarformanni Orkuveitu Reykjavíkur, Haraldi Flosa Tryggvasyni,  sem okkur er gert að borga milljón á mánuði fyrir vikið. Lái mér hver sem vill. OR er stærsta fyrirtæki okkar Reykvíkinga og það skiptir okkur öll miklu máli hverjir halda þar um stjórnartaumana...

Framhald hér...


Auðlindir og Magma í Vikulokunum

Vikulokin á Rás 1 er þáttur sem ég missi aldrei af. Hann er misáhugaverður og það fer gjarnan eftir viðmælendum. Að þessu sinni stjórnaði Gísli Einarsson - Út og suður meistarinn - þættinum og gestir hans voru sjálfur Ómar Ragnarsson, hin skelegga Halla Gunnarsdóttir og Ásmundur Friðriksson, bæjarstjóri D-listans í Garðinum á Reykjanesi...

Framhald hér...


Ómar Ragnarsson

Láttu ekki mótlætið buga þig heldur brýna
birtuna má aldrei vanta í sálu þína.
Ef hart ertu leikinn svo þú átt í vök að verjast
vertu ekki dapur, njóttu þess heldur að berjast.

Í þessar frumortu ljóðlínur sínar sem innblásnar eru af ljóði Hannesar Hafstein, Ég elska þig, stormur, sækir Ómar Ragnarsson styrk þegar á brattann er að sækja, segir í viðtali við þennan mikla baráttumann og gleðigjafa í helgarblaði DV sem kom út í dag.

Framhald hér...


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband