Færsluflokkur: Viðskipti og fjármál
17.11.2008
Munið borgarafundinn í kvöld!
16.11.2008
Silfur dagsins
Ég fékk ósk mína ekki uppfyllta um að lengja þáttinn - en hann var góður samt og mjög margt áhugavert sem þarna kom fram enda var bara einn stjórnmálamaður í þættinum. Ég treysti miklu frekar Lilju Mósesdóttur en Vilhjálmi Egilssyni og það er athyglisvert að hlusta á Gunnar Smára. Hér er þátturinn - klipptur í tætlur að venju. Mæli með lestri á þessari grein.
Vinsamleg ábending RÚVara - það er ekki enn búið að laga síðasta þátt (9. nóv.) þannig að síðasti viðmælandinn er ennþá halaklipptur.
Vettvangur dagsins 1 - Pétur Gunnars, Sigríður Dögg, Kristín Helga, Ómar
Vettvangur dagsins 2 - Ágúst Ólafur Ágústsson
Vettvangur dagsins 3 - Benedikt, Sigrún Elsa, Hjálmar
Lilja Mósesdóttir og Vilhjálmur Egilsson
Gunnar Smári Egilsson
Hér er bréfið, sem Sigríður Dögg nefnir, þar sem Steingrímur Ari Arason segir sig úr einkavæðingarnefnd árið 2002.
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 16:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
15.11.2008
Fundurinn á Austurvelli í dag
Fyrst lögreglan segir að 6.000 hafi mætt vitum við að þarna voru minnst 10.000 enda Austurvöllur troðfullur af fólki. Í þetta sinn eiga fjölmiðlar þakkir skildar fyrir umfjöllun og beinar útsendingar.
Mig langar að biðja þá Íslendinga sem búsettir eru erlendis að vekja athygli fjölmiðla í viðkomandi löndum á laugardagsfundunum hér á Íslandi til að koma því til skila til alheimsins að almenningur hér sé ævareiður, vilji að gerendur axli ábyrgð, að kosið verði sem fyrst og að spilltum stjórnmála- og embættismönnum verði vikið frá, svo eitthvað sé nefnt. Látið fylgja sögunni að enginn hlusti á okkur - ennþá. Hörður Torfa segir þetta ágætlega. Horfið og hlustið.
Svona fjölluðu fréttastofur sjónvarpsstöðvanna um fundinn í fréttatímum sínum í kvöld.
Og hér eru þrjú sýnishorn af mótmælendum sem forsætisráðherra kallar skríl.
Viðskipti og fjármál | Breytt 16.11.2008 kl. 12:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (31)
14.11.2008
Blaðamannafundurinn í dag
Skýr svör eða...?
13.11.2008
Afsakið - hlé
Ég hef margoft verið spurð hvernig ég hafi tíma í alla vinnuna sem fer í þetta blogg. Svarið er einfalt: Ég hef hann ekki. Ég stel tímanum frá öðru sem gera þarf í lífinu, einkum lifibrauðinu. Það hentar mér ekki að skrifa nokkrar línur, fréttatengja og láta þar við sitja og þess vegna hef ég gert þetta svona. En þau vinnubrögð hafa reynst gríðarlega tímafrek og hlaðið stöðugt utan á sig á ýmsan hátt.
Nú stefnir í óefni ef ég bretti ekki upp ermarnar, spýti í lófana og vinn fyrir síhækkandi (þjóðar)skuldum og salti í grautinn. Ég er verktaki, fæ borgað fyrir afköst, og þau hafa verið í minna lagi undanfarið svo ekki sé meira sagt. Þetta er ekki beint tíminn til að minnka við sig vinnu sem er nógu lítil fyrir, illa borguð og margir um hituna. Og ekki fæ ég borgað fyrir bloggið frekar en aðrir.
Ef fólk hefur ekki áttað sig á söfnunum bendi ég á myndbandasafnið með um 300 myndböndum, tónspilarann með á annað hundrað útvarpsþáttum og þáttabrotum og úrklippusafnið, sem reyndar er hálfkarað. Ég gef mér kannski tíma til að bæta við einu og öðru, hver veit.
Ég kem aftur en hvenær það verður fer eftir því hvernig mér gengur að einbeita mér að vinnunni. Mér hefur virst þeir sem gert hafa hlé á bloggi sínu vera mjög óstaðfastir í þeim ásetningi og ég hef ekki hugmynd um hvernig mun ganga hjá mér. En það er orðið mjög aðkallandi að ég geri tilraun - þótt fyrr hefði verið.
Ég kveð að sinni með heimspekingnum Gunnari Dal. Hlustið vel á hinn aldna vitring, hann veit hvað hann syngur.
Sjáumst...

Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 10:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (52)
12.11.2008
Sáu ekki örugglega allir þessa frétt...
...á RÚV í gærkvöldi? Lesið svo endilega þennan pistil Egils Helga. Þar segir Egill m.a.:
"Ég tala við mikið af erlendum blaðamönnum. Þeir segja allir það sama.
Af hverju sitja allir sem fastast í stólunum sínum, allir sem bera sök á ástandinu?
Af hverju er enginn búinn að segja af sér, af hverju er ekki búið að reka neinn?
Þeir segja að þetta væri óhugsandi í heimalöndum sínum.
Hvernig getum við tekið ykkur alvarlega meðan þetta er svona? spyrja þeir."
Þessu tengt bendi ég á viðtal við Jóhann Hauksson í Síðdegisútvarpi Rásar 2 í gær og þennan pistil hans í DV. Viðtalið er í tónspilaranum ofarlega til vinstri merkt: "Síðdegisútvarp - Jóhann Hauksson..."
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 21:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
12.11.2008
Spurningar sem ekki fæst svarað
11.11.2008
Hvað varð um peningana?
Eins og fram kom í fréttum og Kastljósi í kvöld eru Hollendingar komnir til landsins til að heimta fé sitt af Íslendingum og von er á fulltrúum breskra sveitarfélaga. Að því er virðist var Icesave ein allsherjar svikamylla og fjárhæðirnar sem hafa gufað upp alveg stjarnfræðilegar. Ég leyfi mér að efast um að Íslendingar hafi allmennt vitað um Icesave en þeim verður gert að borga brúsann engu að síður - að hluta eða í heild.
En hvað varð af öllum þessum peningum? Er ekkert verið að leita að þeim? Í hverjum krók og kima. Rannsaka málið, fara yfir gögn og millifærslur. Þetta hlýtur allt að vera til. Setja Interpol í málið... eða bara einhvern?
Getur verið að þetta sé tengt? Er verið að rannsaka málið? Voru svona millifærslur framkvæmdar í hinum bönkunum líka? Hvað varð um alla þessa milljarða?
Þegar ég horfði á fréttir í kvöld sá ég greinileg tengsl milli framkomu forsætisráðherra og seðlabankastjóra. Sami hrokinn og yfirlætið á ferðinni. Sjá þetta fleiri? Bendi á mjög góðan pistil Egils Helga um ábyrgð ráðherra í tilefni af svörum Geirs og Ingibjargar sólrúnar í þessu myndbandi.
Viðskipti og fjármál | Breytt 12.11.2008 kl. 00:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (40)
Ég ætla að líta á þessa frétt sem afsökunarbeiðni RÚV fyrir fréttaflutninginn af mótmælunum á Austurvelli á laugardaginn og eru RÚVarar menn að meiri í mínum augum fyrir vikið.
Kastljós var stútfullt af áhugaverðu efni í kvöld. Nú veit ég ekki hvernig tengslum milli fréttastofu og Kastljóss er háttað en viðtalið við Einar Má var gott innlegg í mótmælaumræðuna. Ef einhver hefur misst af þrumugreinum hans eru þær allar í myndaalbúmi vinstra megin á síðunni merktu Einari Má.
En Geir H. Haarde er samur við sig og er næstum fullnuma í að tala niður til þjóðarinnar af hroka og sjálfumgleði. Davíð má vera stoltur af lærlingi sínum enda getur hann óhræddur gert hvaða mistök sem honum sýnist í Seðlabankanum án þess að hróflað sé við honum. Þá varðar engu þótt það bitni á allri þjóðinni og þjóðir heims vilji ekkert með okkur hafa á meðan þeir sitja sem fastast - þeir halda dauðahaldi í völdin og láta eigin hagsmuni ganga fyrir hagsmunum þjóðarinnar.
Og ekki vill Geir kosningar, hvað sem á dynur. Stjórnin sem nú situr er lömuð, vanhæf og trausti rúin jafnt innanlands sem utan. Þjóðin vill kjósa en Geir skellir skollaeyrum við vilja hennar. Það er svosem ekkert nýtt en nú er neyðarástand og það þarf að hefja undirbúning kosninga sem fyrst. Sama hvað Geir vill eða hvað Geir finnst. Það er lífsspursmál fyrir íslensku þjóðina að fá inn fólk sem getur leyst vandann og endurheimt trúverðugleika og traust, því augljóst er að núverandi stjórn ræður ekkert við ástandið.
Ég er ein þeirra sem kann forsætisráðherra litlar þakkir fyrir að kalla mig skríl og færi það hér með til bókar. En það var svosem viðbúið. Líkast til er hann dauðhræddur maður í vörn og þá er beitt ýmsum brögðum. Hræddur um að missa völd, við að Flokkurinn sé að klofna, hótanir Davíðs... hvað veit maður? En hér eru sýnishorn af skrílslátunum á Austurvelli. Tekið skal fram að enginn slasaðist og ekkert skemmdist.
Viðskipti og fjármál | Breytt 11.11.2008 kl. 00:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (34)
10.11.2008
Guðfaðir efnahagskreppunnar?
Hann Baldvin benti mér á þetta myndband og þegar ég byrjaði að spila það hélt ég að þetta væri grínþáttur og skellti upp úr. Þið sjáið strax hvers vegna. En svo kom í ljós að þarna sat amerískur hrokagikkur og talaði yrir hausamótunum á þremur yngissveinum og einum kunnuglegum þáttarstjórnanda. Sá ameríski er með allt á hreinu og gerir lítið úr öðrum spekingum, fræðimönnum og kenningum. Aðeins hans eigin á rétt á sér. Kunnuglegt stef.
Maðurinn minnir óþægilega á lærisveina hans hér á landi sem við þekkjum öll mætavel og hafa átt stóran þátt í efnahagshruninu. Ónefnd Járnfrú í Bretlandi hafði víst líka miklar mætur á honum. Ekki ætla ég að dæma um hvort hagfræði spekingsins er alvöruhagfræði eins og lærisveinarnir segja eða þvættingur eins og allir hinir segja en hún er að minnsta kosti í ætt við svæsin trúarbrögð. Og trúarbrögð eru alltaf vandmeðfarin og geta verið stórhættuleg ef þeim er stýrt af misvitrum besservisserum.
Nappaði þessari frá Jóni Steinari - frábær mynd sem gæti heitið "Lærisveinarnir" eða "Þrír vinir og einn í fríi"
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 18:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (30)