Davíð Oddsson er alvarlegt vandamál

Bankastjórn Seðlabankans er vandamál sem mjög nauðsynlegt er að leysa sem allra fyrst - og þótt fyrr hefði verið. Við vitum þetta öll, viðurkennum það flest en stjórnvöld þráast við að leysa málið og skipta út. Davíð Oddsson er mesti vandræðagemlingurinn, neitar að hætta og bætir stöðugt við syndaregistrið. 90% þjóðarinnar vill losna við hann eins og sjá má hér. Miðað við þann ómælanlega skaða sem hann hefur valdið þjóðinni bæði innanlands og utan finnst mér stór spurning hvort hann falli undir skilgreininguna landráðamann eða föðurlandssvikara. Mér þætti fróðlegt að fá umræðu um hvað þyrfti til að vera metinn og dæmdur sem slíkur.

Meira að segja ungliðarnir í Flokknum, Heimdellingarnir, eru búnir að fá nóg eins og sjá má t.d. hér. Þá er mikið sagt. Og auðvitað hafa þeir líka rétt fyrir sér með Fjármálaeftirlitið. Þar þarf svo sannarlega að moka flórinn. Engu að síður er verið að færa þessum stofnunum enn meiri völd í hendur með frumvarpi Björgvins sem rætt er um í þessum skrifuðu orðum á Alþingi. Þessir menn hafa sýnt svo ekki verður um villst að þeim er alls ekki treystandi en engu að síður á að gera stofnanirnar enn valdameiri án þess að skipta um fólk. Fáránlegt.

Davíð og bankastjórn Seðlabankans eru langt í frá eina vandamálið sem íslenska þjóðin glímir við um þessar mundir eins og allir vita, en einhvers staðar þarf að byrja. Fá inn nýtt fagfólk sem er ekki er á mála hjá flokkunum og hreinsa til í stjórnkerfinu. Til þess þarf væntanlega að breyta fjölmörgum lögum og þá verður bara að gera það. En þá þurfum við nýtt fólk með nýja framtíðarsýn - og/eða gott, heiðarlegt fólk innan gömlu flokkanna með heilbrigða skynsemi sem hugsar ekki bara um rassinn á sjálfum sér og sínum... og auðvitað Flokknum. Það er nefnilega til slíkt fólk í flestum flokkum. Góð blanda af þessu tvennu væri upplögð og þjóðin vill kosningar - eins og sjá má í niðurstöðu þessarar nýju skoðanakönnunar Smugunnar.

En hér eru sýnishorn af tveimur nýjustu "glappaskotum" seðlabankastjóra. Hvað finnst fólki um þetta framferði mannsins? Var ekki komið nóg?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Ef þetta væri ekki svona alvarlegt væri það fyndið. Var einhver á fylliríi?

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 28.11.2008 kl. 00:29

2 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Engin lög eða reglur ná utan um þennan mann.

Hólmdís Hjartardóttir, 28.11.2008 kl. 00:44

3 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Ég hef haft gríðarlegan áhuga á stjórnmálum og þjófélagsmálum frá barnsaldri.
Núna eftir að bankakerfið var sett á hliðina hef ég fylgst mikið með og mikið hugsað um hvað væri að gerast undir yfirborðinu í samfélaginu.

Ég hef frá upphafi hrunsins haft mikla tilfinningu fyrir því að Davíð Oddsson hafði hannað atburðarásina í kringum fall bankanna. Hann er langræknari en flestir og þolir alls ekki mótmæli af neinu tagi.


Það sem komið hefur fram um þá atburðarás bendir til þess að það hafi verið hann en ekki ríkisstjórnin sem ákvað hvernig bregðast ætti við beiðni um aðstoð frá Glitni. Samherjaforstjórinn var í sjónvarpinu mánudaginn 6. okt. fölur af reiði, hneykslan og öllu því sem getur fylgt þvílíkum yfirgangi sem þarna var á ferð.

Ekki hefur verið fjallað mikið um þá atburðarás síðan en því áliti komið vel og rækilega á framfæri að bankarnir hafi verið orðnir of stórir og þeir hafi orðið óstarfhæfir vegna þess. Svo er náttúrlega lausafjárkreppan kærkomin ástæða líka.

Ég er ekki að gera lítið úr ytri aðstæðum, en þegar þessi  beiðni um aðstoð kom frá Glitni til Seðlabankans, sá DO að þetta var kærkomið tækifæri til að láta kné fylgja kviði gagnvart Baugsveldinu. Ingibjörg Sólrún úr leik vegna veikinda og hinir kálfarnir ekki eins klárir. Gott tækifæri.

Síðan fylgdu hinir bankarnir og Sigurður Einarsson hafði staðið upp í hárinu á DO með því að óska eftir að gera upp í evrum. Björgólfarnir voru líka farnir að ógna og flott að taka þá bara líka. Svo var náttúrlega Hafskipsmálið nýkomið í umræðuna aftur.

Ásakanir Sigurðar Einarssonar á hendur Seðlabankastjóra Davíð Oddssyni í Markaðnum hjá Birni Inga um að Davíð hefði hótað að fella Kaupþing ef kröfunni um að Kaupþing fengi að gera upp í Evrum væti fylgt eftir. Þetta mun hafa gerst á fundi hjá IMF í New York á árinu 2007.

Þessi ásökun hefur ekki ratað í fjölmiðla svo neinu nemi og ég fékk svo hljóðandi athugasemd á blogginu þegar ég gerði færslu um þessa ásökun SE. Hver heldur þú að trúi Sigurði Einarssyni ?


Svo kemur DO í Kastljósinu og talar um óreiðumenn, ástarbréf og annað rugl sem þjóðin henti á lofti. Þarna voru komnir sökudólgar sem smellpössuðu inn í myndina. Svo var náttúrlega upplagt að gera deilur við þjóðir innan ESB, Icesave smellpassaði þar.

Þarna var hann með STÓRRI SMJÖRKLÍPU að beina umræðunum frá atganginum gegn Glitni. Tryggvi Þór Herbertsson hætti sem ráðgjafi hjá Geir í miðjum klíðum og kvaðst ósáttur með þær leiðir sem valdar voru.

Nú kemur upp krafan um að ganga í ESB og nú voru góð ráð dýr. Best að æsa þjóðin upp á að biðja um kosningar, stjórnina frá og allt það, þjóðstjórn (Davíð taldi víst að hann yrði kallaður til). Umræðan um glæpamennina, útrásarvíkingana, óreiðumennina. Nú síðast er sonur Þórðar Friðjónssonar handtekinn. ÞF andmælti DO og DO lagði Þjóðhagsstofnun niður í kjölfarið.

Það verður að gera allt sem hægt er til að koma í veg fyrir að ISG og Samfylkingunni takist að ná því fram að Ísland sæki um aðild að ESB. Ingibjörg hefur líka margan slaginn tekið við Davíð

Sjálfstæðismenn ætla að skoða ESB í janúar svo það er ekki mikill tími til stefnu. Ef stefnubreyting verður hjá Sjálfstæðisflokknum er leikurinn tapaður fyrir DO og braskaraklíkuna í kring um hann. LÍÚ er að hóta úrsögn úr Samtökum atvinnulífsins.

Bændasamtökin að rísa upp gegn aðildarumsókn. Það er bókstaflega allt reynt og Steingrímur Joð segir ekki styggðaryrði um Seðlabankastjóra, þessi orðhákur sem er á móti öllu milli himins og jarðar. Hann leggur fram vantraust, skammar Björn Bjarnason og potar í öxlina á Geir sem brosir bara

Og nú er byrjað að rakka Jón Ásgeir niður í Noregi, af hverju í Noregi, jú þeir eru með okkur í EES og ef við förum það inn þá er EES í hættu gagnvart þeim.
Þetta hefur allt verið að brjótast í kollinum á mér undanfarna daga og mér hefur fundist eitthvað bogið við þessa stífu kröfu um kosningar, í raun er hún mjög vitlaus núna
Klíkan í Sjálfstæðisflokknum, sjálftökufólkið hefur kynt undir til að freista þess að fá þjóðina til að snúast gegn ESB.

Kvótakóngarnir eru lafhræddir, peningamenn í náðinni eru hræddir, frjálshyggjuarmurinn er hræddur. Þegar við göngum þarna inn verður félagskerfið styrkt enn frekar. Umhverfi launafólks verðir enn sterkara, landsbyggðin á kost á ýmiskonar styrkveitingum sem ekki hafa verið í boði, landið flokkast nefnilega allt undir harðbýlt svæði.

Ég er kannski komin út á hálan ís með þessum hugrenningum, en einhvern veginn passar þetta samt saman. Ég er sjálf samfærð um að almenningi í landinu mun vegna betur innan ESB.
 

Hólmfríður Bjarnadóttir, 28.11.2008 kl. 00:47

4 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

mér hefur undanfarið verið hugsað til spádómar míns, sem ég setti fram munnlega fyrir mörgum mörgum mörgum árum, þegar uppgangs- og blómatími Davíðs var sem mestur og hraðastur. þetta var á síðustu öld. ég hef aldrei talið mig mikinn spámann og tel ekki enn. líklega bara 'lucky guess'

þá sagði ég að fall Davíðs yrði ekki minna en uppgangur hans. ég man vel að ekki var um að ræða einhverja óskhyggju, heldur sterka tilfinningu.

ég verð að viðurkenna að mig óraði ekki fyrir þeirri herðablaðauppáskitu sem raunin er í dag.

Brjánn Guðjónsson, 28.11.2008 kl. 00:51

5 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Hvar enda þessi ósköp?  Hvað er Samfylkingarfólk að hugsa....hvað þá gera?

Sigrún Jónsdóttir, 28.11.2008 kl. 00:55

6 Smámynd: Ásgeir Kristinn Lárusson

Hvað þarf marga Íslendinga til að skrúfa Davíð niður úr Svörtuloftum?  300.000.?

Látum VERKIN tala, Þessir menn eru ekki að vinna að hag lands og þjóðar og slíkt heitir landráð.

1. des. er handan við hornið.  Leggjum niður vinnu á landsvísu og sýnum okkur og börnum okkar, umheimi öllum og ekki síst duglausum ráðamönnum, að okkur er fúlasta alvara.

Ráðamenn víki, við viljum breytingar strax og án þeirra aðstoðar.

Við getum, þorum og viljum!

Ásgeir Kristinn Lárusson, 28.11.2008 kl. 00:55

7 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Hólmdís.

JÚ Það ná bæði lög og reglur utan um hann, en þeir sem halda hlífiskyldi yfir honum er hræddir, alveg laf hræddir og ef einhver dirfist að andmæla honum þá er sá eða sú rökkuð niður. Þorgerður Katrín andmælti og fréttamenn voru óðara komir á hælana á henni með spurningar um fjármál manns hennar og stöðu hann sem bankamanns. Meðölin eru mörg og skósveinar iðnir við að sá slúðri og hálfsannleika út um allt.

Það er með þvílíkum ólíkindum að maðurinn skuli halda stöðu sinni og heimurinn hlær bara að okkur.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 28.11.2008 kl. 01:00

8 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Þið sem standið vaktina og mótmælið. EINBEITIÐ YKKUR AÐ KRÖFUNNI UM AÐ DAVÍÐ VÍKI ÚR SEÐLABANKANUM.

Það er forgangsmálið, hann er hlerinn sem lokar flórnum og þegar búið er að taka hlerann, þá er hægt að byrja að moka.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 28.11.2008 kl. 01:04

9 identicon

Framkoma Seðlabankastjóra nefnist á mannamáli: Ég þarf ekki að segja neitt! Þrátt fyrir kröfur almennings um meira upplýsingaflæði. Var ekki allt í lagi að segja frá því þegar fyrsta greiðsla barst? Mér er orðið um og ó. Er Davíð með einhvert Furer heilkenni? Hvað er eiginlega að? Fólk fylgist spennt með öllu sem gerist og svo situr hann sallarólegur og flaggar engri vitneskju sinni. Held að maðurinn sé nú haldinn athyglissýki á háu stigi. Sem fer þannig fram að hann mætir ekki, segir ekki frá, heldur upplýsingum og atburðum fyrir sig, vitandi að hann verði spurður um það allt, vitandi að hann fær rosa mikla athygli út á það. Er slíkum manni treystandi í starfi? Sem vill greinilega að allt snúist um hann?

Nína S (IP-tala skráð) 28.11.2008 kl. 01:08

10 Smámynd: Ásgeir Kristinn Lárusson

Beint frá Alþingi - þar er verið að ræða samninga um ábyrgð ríkissjóðs vegna innistæðna í útibúum íslenskra viðskiptabanka á EES-svæðinu.

Ásgeir Kristinn Lárusson, 28.11.2008 kl. 01:13

11 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Hólmfríður ég hef svolítið hugsaðhlutina á sömu nótum og þú

Hólmdís Hjartardóttir, 28.11.2008 kl. 01:18

12 Smámynd: Sigurður Hrellir

Davíð Oddsson = Ahab skipstjóri. Þeir sem bíta af honum fótinn fá engan frið. Skítt með áhöfnina á þjóðarskútunni.

Sigurður Hrellir, 28.11.2008 kl. 01:19

13 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Þau eru fleiri og verri glappaskotin sem er verið að gera þessa daganna.  T.d. bara það að umboð rannsóknarnefndarinnar nær aftur til einkavæðingar bankanna 2002 og 2003, en ekki til þess tíma þegar tekin var ákvörðun um að fleyta krónunni og taka um verðbólgumarkmið.  Ég hef trú á því að hagfræðingar framtíðarinnar muni komast að því, að sú tímasetning voru fyrstu grundvallarmistökin í því ferli sem leiddi til efnahagshrunsins á fyrri hluta þessa árs.  Ég segi og skrifa fyrri hluta þessa árs.  Við megum alls ekki falla í þá gryfju að skrifa veikningu krónunnar og verðbólgu ársins á fall bankanna.  Þetta tvennt skrifast fyrst og fremst á peningamálastjórnun Seðlabankans.

Marinó G. Njálsson, 28.11.2008 kl. 01:23

14 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Það er hægt að fara býsna langt aftur og finna aðgerðir sem leiddu okkur hingað. Kvótaúthlutunin, framsalsrétturinn, veðheimildir á kvóta, erfðaréttur á kvóta. Þessar ráðstafanir hafa gert mjög mikið í því að skapa misskiptingu fjármagns í landinu. Í togarabyggðalögunum hafa mjög dramatískir og sorglegir atburðir gerst sem hafa haft miklar efnahagslegar afleiðingar fyrir launafólk á þeim svæðum. Það að ganga ekki í ESB í kjölfar þess að Ísland varð aðili að EES samningnum. Hvernig staðið var að sölu ríkisfyrirtækjanna - bankanna. Peningamálastefnan sem tekin var upp 2001 og allt sem henni fylgdi. Listinn er langur og þó alls ekki tæmandi.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 28.11.2008 kl. 01:41

15 identicon

Áhrifin af kreppunni hefur áhrif á okkur öll. Margir biðja um lausnir, hvernig á að fara að því búa til betri heim o.s.frv.  seselia.com kemur einmitt með lausnir varðandi það. Kíktu á þessa síðu og tékkaðu á því hvort þú eigir samleiðmeð þeim lausnum sem þar er boðið uppá fyrir ríki heimsins, þ.á.m. Íslands.

Nína S (IP-tala skráð) 28.11.2008 kl. 01:43

16 Smámynd: Sigurður Hrellir

Í alvöru talað - Geir á tvo kosti og báða mjög slæma. Annað hvort stendur hann með Davíð þó svo að 90% þjóðarinnar sé á móti því, samtök launþega, Samfylkingin, Heimdallur og heilbrigð skynsemi. Hinn kosturinn hlýtur að vera enn verri fyrir Geir, hvernig svo sem það er mögulegt.

Sigurður Hrellir, 28.11.2008 kl. 01:43

17 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

http://mariataria.blog.is/blog/mariataria/#entry-727776   Mér finnst þetta frábær hugmynd hjá Maríu, að reka þá sem maður vill á laugardaginn    Ég er með nokkra í huga sem ég ætla að reka!!!

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 28.11.2008 kl. 02:48

18 Smámynd: Víðir Benediktsson

Það er þetta með Davíð. Fólk verðu að beina spjótum sínum að þeim sem eru með hann í vinnu þ.e. ríkisstjórnin. Ekki hættir hann sjálfur, það er ljóst. Meðan ríkisstjórnin vill hafa hann í vinnu þá verður hann þar. Björgvin sagði í 22 fréttunum sjónvarps í gær að ekki ætti að vera með vesen út af Davíð þrátt fyrir að karlinn hafi vísvitandi leynt ráðherrann upplýsingum.

Víðir Benediktsson, 28.11.2008 kl. 06:44

19 Smámynd: Kjartan Pétur Sigurðsson

Davíð kemur víða fyrir í þessum færslum!

Y) STJÓRNSÝSLA OG STJÓRNMÁL

1) FÆKKA ÞINGMÖNNUM - Fækka þingmönnum og auka skilvirkni. Stór hluti þings ásamt aðstoðarmönnum hefur lítið að gera inni á þingi. Ráðherrar ráða öllu Sjá frétt HÉR.

2) AUKA VÆGI ÞINGRÆÐIS OG MINNKA VÆGI RÁÐHERRA Á ÞINGI - Þingmenn eiga að leggja línurnar og reglurnar sem ráðherrar og ráðuneyti ber að fara eftir.

2) FÆKKA RÁÐUNEYTUM - 320 þús. manna þjóð HEFUR ekkert að gera með þetta risavaxna stjórnsýslukerfi til að halda þessu litla örþjóðfélagi gangandi.

4) FELLA NIÐUR EFTIRLAUNAFRUMVARPIÐ STRAX - Fylgja sömu reglum eins og aðrir ríkisstarfsmenn. Afnema öll sérfríðindi einhverjum útvöldum til handa. Ef þessi mál eru skoðuð nánar, þá kemur í ljós að þingmenn höfðu það bara nokkuð gott áður en þessi lög voru sett.

5) STYTTA SUMARFRÍ STJÓRNMÁLAMANNA - Láta þá skila vinnuframlagi eins og annað fólk í þjóðfélaginu þarf að gera.

6) LEGGJA NIÐUR AÐSTOÐARMANNAKERFIÐ - Sem er ekkert annað en falið kerfi til að styrkja flokkskerfið. Í raun er verið að nota skattpeninga til að greiða útvöldum gæðingum flokkanna laun.

7) FÆKKA NEFNDUM OG AUKA SKILVIRKNI - Vera með opið bókhald á netinu sem sýnir störf ALLRA nefnda. Einnig má fækka boðleiðum á milli þingmanna og kjósenda. http://www.photo.is/bb2/viewtopic.php?t=314

8) EINFALDA REGLUVERK - Skilyrða hraðafgreiðslu á málum (tímamörk), annars verða ALLAR kröfur látnar falla niður. Notast við erlendar samþykktir og staðla eins og hægt er eins og CE merkingar. Ekki vera að búa til eftirlitsstofnanir að óþörfu.

9) FARA EFTIR STJÓRNSÝSLULÖGUM - Það þurfa að vera mjög skýr skilaboð að starfsmenn ríkisins eru að vinna fyrir almenning en ekki fyrir einhverja allt aðra annarlega hagsmuni.

10) FLÝTIAFGREIÐSLU Á MÁLUM - Skilyrða hraðafgreiðslu á málum (tímamörk), annars verða ALLAR kröfur látnar falla niður.

11) SETJA LÖG GEGN PENINGAÞVÆTTI - Erlendis þarf að gera grein fyrir því hvernig eignamyndun á sér stað hjá t.d. fólki sem hefur engar tekjur. Einnig þarf að kanna slík mál betur. Lesið nánar hér:

12) BINDA KRÓNUNA VIÐ ANNAN STERKAN GJALDMIÐIL EINS OG DANIR - Ásamt því að fá tryggan stuðning frá viðkomandi gjaldmiðli sem Íslendingar myndu tengja sig við.

13) GANGA Í ESB EÐA SAMBÆRILEGT KERFI SEM STYRKIR KRÓNUNA - Krónan eða gjaldmiðilinn verður að hafa fasta viðmiðun svo að fólk viti að hverju það gengur. Einnig mætti skoða Norsku krónuna.

14) LEGGJA ÁHERSLU Á SKANDÍNAVÍSKT VELFERÐARKERFI - Við eigum samleið með þessum löndum og svo hefur þetta kerfi verið að reynast mun betur en önnur kerfi. Því að vera að finna upp ný kerfi?

15) MINNKA OPINBER UMSVIF STÓRLEGA - Í tíð Sjálfstæðismanna hafa ríkisumsvif vaxið gríðarlega. Hér þarf að kanna betur hvað er eiginlega í gangi.

16) AFNEMA VERÐTRYGGINGU - Banna verðtryggingu (okur) með lögum. Því verðtrygging er dulin skattheimta á launafólk.

17) ÞVINGA VEXTI NIÐUR Í ÞAÐ SAMA OG ER Í EVRÓPU - Banna hávaxtarstefnu (okur) með lögum. Svona svipað og verðlagseftirlit.

18) VERÐBÓLGAN VERÐI SÚ SAMA OG ER Í EVRÓPU - Íslensk stjórnvöld hafa komist upp með svo slælega efnahagsstjórn í gegnum árin út af því að þau hafa ekkert aðhald. Þegar allt er komið í óefni, þá er bara krónan felld ... reglulega

19) REKA ÞÁ SEM BRJÓTA AF SÉR Í KERFINU - Ef starfsmaður verður uppvís af kvörtunum og endurteknum brotum frá kjósendum, þá BER stjórnvöldum að víkja viðkomandi frá. Þessar boðleiðir þarf að laga.

20) STJÓRNMÁLAMENN VERÐI LÁTNIR SEGJA AF SÉR VIÐ MISTÖK Í STARFI - Eftir bankahrunið, þá hefur engin verið látin sæta ábyrgð. Hér þarf greinilega að setja kvóta. Fínt væri að reka ca. 5-10 manns á ári ef vel ætti að vera til að veita stjórnvöldum eðlilegt aðhald. Lesið nánar hér:

21) SKIPTA ÚT TOPPUM OG STJÓRN HJÁ SEÐLABANKANUM - Mjög alvarleg mistök hafa verið gerð sem er ekki hægt að kalla annað en landráð.

22) SKIPTA ÚT TOPPUM HJÁ FJÁRMÁLAEFTIRLITINU - Mjög alvarleg mistök hafa verið gerð sem er ekki hægt að kalla annað en landráð.

23) KJÓSA AFTUR UPP Á NÝTT SEM FYRST - Mjög alvarleg mistök hafa verið gerð sem er ekki hægt að kalla annað en landráð og þarf því að skipta þeim út sem bera ábyrgð sem fyrst.

24) FÆKKA SENDIRÁÐUM UM HELMING - Samhliða því mætti þróa öflugt samskiptakerfi fyrir ráðuneyti. Síðan þyrfti að vera opið bókhald sem sýnir risnu og dagpeninga þingmanna.

25) GERA LANDIÐ AÐ FÆRRI KJÖRDÆMUM - Einu eða 3 eins og VG leggja til.

26) ÞJÓÐARATKVÆÐAGREIÐSLA UM ÖLL MIKILVÆG MÁL - Þeir sem færu með stjórn landsmála geta einfaldlega listað upp nokkrum málum á vefnum og svo getur fólk einfaldlega kosið. Með nútíma tölvutækni, þá er auðvelt að framkvæma svona kosningar í matar- eða kaffipásum. auðvelt að nota kerfi eins og heimabankann :)

27) KJÓSA PERSÓNUR Í STAÐ FLOKKA - Það er til fullt af hæfileikaríku hugsjónarfólki sem hefur fókusinn á réttum stöðum sem hefur margsannað sig í starfi fyrir land og þjóð. Ef viðkomandi verður uppvís af mistökum, þá er auðvelt að kjósa viðkomandi út og nýja inn í staðinn. Lesið nánar hér:

28) GEFA KJÓSENDUM KOST Á AÐ KJÓSA ÚT ÞINGMENN SEM VERÐA UPPVÍSIR AF SPILLINGU - Það eitt og sér væri gríðarlega gott aðhald fyrir þingmenn.

29) BANNA ALLAR PÓLITÍSKAR STÖÐUR INNAN STJÓRNKERFISINS - Auðvelt að láta fólk kjósa með hjálp netsins.

30) TÖLVUVÆÐA KOSNINGAKERFI - Hér mætti nýta tölvutæknina og internetið eins og bloggheiminn og bankakerfið meira. (wikipedia, forum bb3, kosningakerfi, ToDo listi, verk og viðverubókhald). Með þessu væri hægt að vera með opið og mjög skilvirkt kerfi þar sem allt væri á borðinu og sæist hvað hver þingmaður væri að vinna.

31) GERA ÚTTEKT Á ÞEIM MISTÖKUM SEM LEIDDU TIL BANKAHRUNSINS MIKLA - Láta erlenda aðila gera úttektina.

32) STYRKJA GAGNRÝNA OG MÁLEFNALEGA UMRÆÐU INNI Á ÞINGI - Það er bara einfaldlega hluti af lýðræðinu.

33) STYRKJA GAGNRÝNA OG MÁLEFNALEGA UMRÆÐU Í FJÖLMIÐLUM - Það er bara einfaldlega hluti af lýðræðinu. Hér þarf að hampa sérstaklega tuðurum og leiðindaafturhaldsseggjum eins og jonas.is!

34) FÓLK FÆR SJÁLFT AÐ VELJA HVERNIG EIGIN GREIDDIR SKATTAR SKIPTAST NIÐUR Á FJÁRLÖG - Auðvelt með tengingu við bankakerfið þar sem hægt er að velja hvernig þínum skattgreiðslum er varið.

35) SETT VERÐI SKÝR SKILABOÐ Í LÖG AÐ ÞEIR SEM VERÐA UPPVÍSIR AÐ LANDRÁÐI VERÐI LÁTNIR SÆTA ÁBYRGÐ - Nú er staðan þannig að forsætisráðherra er kjökrandi í auðmönnum um að koma aftur til baka með allt fjármagnið til landsins!

36) GERVIEFTIRLITSSTOFNANIR OG VERNDAÐIR VINNUSTAÐIR Á VEGUM RÍKISINS VERÐI LAGÐAR NIÐUR OG MEIRI ÁHERSLA LÖGÐ Á STOFNANIR SEM RAUNVERULEGU MÁLI SKIPTA - Búið er að búa til mikið af íþyngjandi eftirlitsstofnunum sem oftar en ekki hafa engan annan tilgang en að fela atvinnuleysi. Hér mætti t.d. leggja meiri áherslu á Fjármálaeftirlitið og endurvekja Þjóðhagsstofnun.

37) SENDA ERLENDA AFBROTAMENN STRAX ÚR LANDI - Í dag virðast heilu glæpagengin geta gengið laus um landið með barsmíðum, ofbeldi og þjófnaði í langan tíma.

38) LOKA LANDINU MEIRA FYRIR ÓHEFTUM INNFLUTNINGI Á FÓLKI - Leggja meiri áherslu á að fá fólk með hátt menntunarstig og leggja meiri áherslu á hálaunastörf. Auðvelt að setja flóknar og erfiðar reglur um visa og dvalarleyfi. Landið er eyja og því auðvelt að fylgjast betur með því fólki sem kemur til landsins.

39) LEGGJA LÁNASJÓÐ NIÐUR OG VEITA Í STAÐIN STYRKI - T.d. hafa Danir litið á menntun sem langtíma fjárfestingu. Veita mætti styrk upp að vissri upphæð og svo gæti fólk unnið sér inn fyrir því sem upp á vantar eða tekið lán.

40) NÁ ÞVÍ FÉ TIL BAKA MEÐ ÖLLUM TILTÆKUM RÁÐUM SEM HEFUR HORFIÐ ÚR LANDI - Það á að vera fyrir löngu búið að frysta fullt af eignum.

41) BANNA STÓRFELLDA FJÁRMAGNSFLUTNINGA ÚR LANDI SEM GETUR HAFT STÓRKOSTLEG ÁHRIF Á SJÁLFSTÆÐI ÞJÓÐARINNAR - Hér þarf að hafa mjög ákveðin lög sem koma í veg fyrir að örfáir einstaklingar geti leikið sér með fjöregg þjóðarinnar.

42) FÁ REYNDAN ÓPÓLITÍSKAN STJÓRNANDA TIL AÐ STJÓRNA LANDINU (Einar)(Ævar) - Þetta er ekki slæm hugmynd. Það eru til margir góðir þekktir stjórnendur sem hafa rétt af risafyrirtæki á örfáum árum.

43) ERLENDUR DÓMSSTÓLL (Sigurður) - hæstaréttadómarar og jafnvel rannsóknarnefnd verði fengin erlendis frá. Hentar líklega vel á meðan verið er að fara í gegnum þessi mál.

44) LEGGJA ÁHERSLU Á AÐ HALDA INNLENDRI FRAMLEIÐSLU INNI Í LANDINU SEM SPARAR GJALDEYRIR FYRIR ÞJÓÐABÚIÐ. - Öll helstu ríki í vestrænum heimi eru að verða búinn að missa stóran hluta af sinni framleiðslu og tækniþekkingu til annarra landa. Allir farnir að versla með pappíra sem svo reynist ekkert á bak við þegar á reynir.

45) SELJA STÓRAR OG DÝRAR SENDIRÁÐSEIGNIR Á VEGUM ÍSLENSKRAR YFIRVALDA Í ÚTLÖNDUM - Hvað ætli séu miklar fjárfestingar í dýrum sendiráðsbyggingum út um allan heim sem er lítið sem ekkert notað. Nóg að vera í samstarfi við aðrar norðurlandaþjóðir og vera með litla skrifstofu hjá þeim undir starfsemina eða þá samstarfssamning. Í dag eru 17 sendiráð. Steinar I kemur með hugmynd um að vera með 1 sendiráð í hverri heimsálfu.

46) TRÚMÁL OG KIRKJA (Óskar A) - Óskar telur bruðl að borga 5 milljarða á ári og að þeir geta séð umsig sjálfir hvað fjarmögnun varðar.

47) LEGGJA NIÐUR HAFRÓ (Óskar A) - Þetta er viðkvæmt mál. En þarna má líklega eitthvað draga úr. Hafró hefur verið sú stofnun sem hefur fengið gríðarlegar fjárhæðir til rannsóknar og sú stofnun sem hefur yfirleitt fengið það sem þeir biðja um. Enda er fjöregg þjóðarinnar í þeirra höndum.

48) ÁLÞJÓÐLEGT FRÍVERSLUNARSVÆÐI Á ÍSLANDI (Valþór) - "International Free Trade Zone". Afnema öll innflutningshöft og söluskatta gera Ísland að alþjóðlegu fríverslunarsvæði. Öflugt og vel staðsett flutningskerfi.

49) NEFNDIR Á ÍSLANDI (skuldari) - Fækka þarf nefndum eins og hægt er. Auka skilvirkni og að vera með fólk í nefndum og ráðum hefur reynslu og "verklegt" vit á málum http://www.photo.is/bb2/viewtopic.php?t=314.

50) FÆKKUM Í SJÁLFTÖKUHÓPUM (Gunnar Guðmundsson) - Fækka þingmönnum og aðstoðamönnum. lækkum laun og verum með einn Seðlabankastjóra, ekki þrjá! http://gudmundur.eyjan.is/2008/11/fkkum-sjltkuhpnum.html

51) MEIRI VINNUSKILDA ÞINGMANNA OG STYTTRA FRÍ - Þingmenn ættu að vera skyldugir til að sitja alla þingfundi hámark einn mánuði í frí.

52) NORÐUR ATLANTSHAFSBANDALAG (Bjorn E) - Ísland, ásamt Noregi, Færeyjum og etv Skotlandi svo og Grænlandi stofni með sér bandalag. Sameina landhelgisgæslur þessara ríkja, ásamt lofther og sjóher. Rússland kæmi inn í þetta bandalag á seinna stigi. Nýtt heimsveldi á Norðurhveli jarðar.

53) TVO GJALDMIÐLA Á ÍSLANDI - Væri ekki bara ráðið að vera með tvo gjaldmiðla samtímis. Íslensku krónuna fyrir innlend viðskipti og svo einhvern annan gjaldmiðil eins og Evru fyrir erlend samskipti? Og loka síðan landinu. Hér er skemmtileg lesning um Péturspeninga sem voru notaðir á Vestfjörðum Sjá HÉR

54) LÚXUSBÍLAR FYRIR RÁÐAMENN MEÐ EINKABÍLSTJÓRUM VERÐI LAGT NIÐUR - Hér má gera samning við leigubílastöðvar þegar eitthvað sérstakt ber upp á.

55) HÓTA ÚRSÖGN ÚR NATO - Ómar R. Valdimarsson er með áhugaverðar pælingar ef IMF (Bretar og Hollendingar) ætlar að fara að beita þjóðina þvingunaraðgerðum Sjá HÉR.

56) VERJA ÍSLENSKA SÉRHAGSMUNI EINS OG HÆGT ER - Finnar eru ekki enn búnir að jafna sig á því að erlendir aðilar náðu stórum eignahluta í NOKIA þegar þeir lentu í kreppu 1992. Hér þurfa Íslendingar að passa sínar stærstu mjólkurkýr eins og orkufyrirtækin, fiskinn, ferðaiðnaðinn. En nú þegar er búið að tapa bankakerfinu sem var nýjasta útrásin.

57) NÝ RÍKISSTJÓRN ÍSLANDS - Hvernig væri að velja fólk sem hefur gagnrýnt kerfið hvað mest til að stjórna Íslandi? Kristinn Pétursson Sjávarútvegsráðherra. jonas.is mætti vera Niðurskurðar- og Spillingarráðherra, Vilhjálmur Bjarnason Fjármálaráðherra, Andra Snæ Magnason sem forsætisráðherra með vald.is, Þorvald Gylfason, Guðmund Ólafsson og Ragnar Önundarson sér til aðstoðar. Guðmundur Gunnarsson Iðnaðarráðherra, Lára Hanna, Egill Helgasson og Stefán Ólafsson sameiginlega með Heilbrigðis- og Félagsmálaráðuneytið, Þráinn Bertelsson Menningarmálaráðherra með Hallgrím Helgasson sér til aðstoðar, Ómar Ragnarsson Umhverfisráðherra og í lokin Björg Guðmundsdóttur utanríkisráðherra (það yrði alls staðar hlustað á hana nema í Kína). Hér útbjó ég nýja áhugamannagrúppu á facebook sem heitir: NÝ RÍKISSTJÓRN ÍSLANDS • NEW GOVERMENT OF ICELAND svo er hér áhugaverð frétt og smá ljós í myrkrinu HÉR og önnur samantekt hér HÉR

58) BANNA ALLAN VOPNABURÐ OG BAKSTUNGUR Á HINU HÁA ALÞINGI ÍSLENDINGA - HÉR opinbera þingmaður sitt raunverulega eðli og hvernig kaupin gerast á eyrinni. Svona skítlegt eðli á að vera skilyrðislaus brottrekstrarsök. Tölvupóstur Bjarna Harðarsonar þingmanns Framsóknarflokksins HÉR. Líklega er þetta nákvæmlega svona hjá flestum sem eru inni á hinu háa Alþingi Íslendinga í dag. Verst að nýráðnum aðstoðarmanni skuli hafa líka verð blandað í málið. Sýnir vel hvernig skattpeningunum er vel varið til nytsamra hluta. Þó brýtur Bjarni blað í íslenskri stjórnmálasögu með afsögn sinn og á hann heiður skilið fyrir þann gjörning einan og sér.

59) LYGAMÆLIR FYRIR ALÞINGISMENN - Núna væri þjóðráð að leggja háa fjármuni í að hanna og þróa öflugan lygamæli sem þingmenn þyrftu síðan að hafa á sér öllum stundum á meðan þeir væru að sinna opinberu starfi. Mælirinn hefði þá eiginleika að mæla ástand þingmanns á meðan hann væri að tala í rauntíma þannig að þeir sem á hann hlusta sæju strax ef þingmaður væri að reyna að segja ósatt.

60) TÆKNI Í STAÐ PÓLITÍK - Horfið á boðskapinn sem þessi mynd hefur fram að færa Zeitgeist: Addendum (þar sem að ég er smá tækninörd, þá er ekki annað en hægt að hrífast af þeim boðskap sem þessi mynd hefur fram að færa).

61) ÞINGMENN OG RÁÐHERRAR LÆKI LAUN SÍN STRAX - Nú eiga stjórnmalamenn að sýna samstöðu og ganga á undan með góðu fordæmi og sína viljann í verki með því að lækka launin sín verulega! Sjá frétt HÉR.

62) NÝTA ERLEND TENGSLANET - Hér er gott dæmi um hvernig nýta má samvinnu við erlend ríki. Hér er verið að hjálpa Íslendingum að fá vinnu erlendis. Sjá frétt HÉR.

63) HÁMARKS LAUN 1 MILLJÓN - Alþingi var send áskorun um að engin mánaðarlaun færu yfir 1 milljón króna Sjá frétt HÉR.

64) LÝÐRÆÐ OG ÁBYRGÐ ENDURREIST - Áhersla verði lögð á að endurreisa lýðræði og ábyrgð sem eru talin ein af mikilvægustu grunnþáttum í þróuðum nútíma samfélögum. Sjá áhugaverða grein eftir Bjarna Bjarnason rithöfund hér..

65) GERT ER GRÍN AF SPILLTRI ÍSLENSKRI STJÓRNSÝSLU Í ERLENDUM FJÖLMIÐLUM - Sjá umfjöllun HÉR

66) AUÐVELDA NÝJUM FRAMBOÐUM AÐ KOMAST Á ÞING - Ekki er langt síðan að reglum um kosningar var breytt til að þrengja að lýðræðinu. Núna þarf flokkur að hafa lágmark 5% fylgi í stað 3% sem þurfti áður til að ná manni á þing. Sjá góða umfjöllun HÉR.

67) 3JA ÁRA ÚTLEGÐ AÐ HÆTTI VÍKINGA - Á víkingatímanum, þá var þyngsti dómur sem hægt var að fá 3ja ára útlegð. Spurning um að nýta þessi gömlu lög á útrásarvíkingana, stjórnmálamenn og þá sem bera ábyrgð á bankahruninu. Tryggja þarf að þeir komi hvorki nálægt stjórnmálum eða bankastarfsemi í 3 ár.

68) SKERA NIÐUR Í ALLRI STJÓRNSÝSLUNNI - Draga þarf saman seglin víða í stjórnkerfinu. Aðstoðarmenn, sendiráð, utanlandsferðir, gerfistofnanir, herdeildir, dagpeningar ... Sjá góða frétt HÉR.

69) BANNAna ALLAR PÓLITÍSKAR STÖÐUVEITINGAR - Sjá frétt HÉR og HÉR og HÉR og HÉR og HÉR og HÉR og HÉR ...

70) ÓTRÚLEGT VIÐTAL VIÐ GEIR - Hér liggur illa á forsætisráðherra og sýnir hann fréttamanni ótrúlegan skæting Sjá HÉR.

71) ÞETTA SNÚAST STJÓRNMÁL NÚTÍMANS UM - Núna er líklega kominn rétti tíminn til að stíga niður úr pílagrímsturninum og leggja ÖLL spilin á borðið. Hætta lygum og öðrum leikaraskap, segja rétt frá og takast á við hin raunverulegu vandamál. Pólitík snýst ekki um hernað heldur opna og skýra umræðu. Sjá HÉR.

72) KLÍKUR OG EINELTI ÞARF AÐ BANNA MEÐ LÖGUM - Setja þarf lög um ALLA óeðlileg og hættuleg klíkustarfsemi þar sem annarlegum sjónamiðum er haldið á lofti. Það er aldrei að vita nema að það endi með sparki í andlitið eins og gerðist HÉR. Verst er þegar þessi hegðun heldur áfram inn í sali Alþingis. Líklega er Ísland of fámennt til að félög eins og Rótarí, Round table, Frímúrarar, Oddfellow, trúfélög ... og ekki síst stjórnmálaflokkar eigi rétt á sér!

74) HÉR ER SKOÐUN AGS EÐA IMF Á ÞVÍ SEM GERÐIST - Hér má lesa samantekt á hruninu á Íslandi samkvæmt IMF góð grein HÉR.

75) KJÓSIÐ OG GEFIÐ NÚVERANDI MEÐLIMUM RÍKISSTJÓRNARINNAR STIG - Hér er nýtt kosningakerfi þar sem hægt er að kjósa og gefa einstökum þingmönnum stig fyrir árangur í starfi. Ný tækni gefur nýja möguleika, en tæknilegar framfarir skila mestu í velmegun almennings KJÓSIÐ HÉR: http://www.photo.is/rikisstjorn.html.

76) KJÓSIÐ EÐA VELJIÐ NÝJA RÍKISSTJÓRN - Lengi hefur vantað möguleika á að kjósa FÓLK í stað FLOKKA. Nú er loksins hægt að koma með tillögu að hæfu og vönduðu fólki þar sem hatröm flokkspólitík er látin lönd og leið KJÓSIÐ HÉR: http://www.photo.is/nyrikisstjorn.html.

77) NÚ ER HÆGT AÐ GEFA BORGASTJÓRN REYKJAVÍKUR STIG FYRIR VEL UNNIN STÖRF - Fróðlegt væri nú að sjá stöðu á einstökum borgarfulltrúum eftir allar hnífstungur í bakið síðustu mánuðina KJÓSIÐ HÉR: http://www.photo.is/borgarstjorn.html.

78) HÉR ER LISTI YFIR NÝJA OG GAMLA STJÓRNENDUR í BANKAKERFINU - Er ekki ráð að hafa vakandi augu yfir þeim sem eiga að passa upp á peningana okkar og eiga stóran þátt í hruni þjóðrinnar? KJÓSIÐ HÉR: http://www.photo.is/bankar.html.

79) HÉR ER LISTI YFIR HINA FRÆGU ÚTRÁSAVÍKINGA - Fróðlegt væri að sjá hvað þjóðin gefur hverjum og einum mörg stig! KJÓSIÐ HÉR: http://www.photo.is/utras.html.

80) MERGJUÐ LÝSING Á SPILLTU VALDI - Alltaf koma sömu mennirnir upp aftur og aftu og aftur ... þegar verið er að tala um spillingu á Íslandi! sjá HÉR.

80) VANTAR VIÐULÖG GAGNVART STJÓRNVÖLD - Umboðsmaður Alþingis (sem er að vísu tvöfalldur í roðinu eins og margir yfirmenn kerfisins) telur að það vanti lög sem dæmi stjórnvöld fyrir slæma málsmeðferð sjá HÉR.

81) ÍBÚÐAVERÐ Á 3 MILLJARÐA! - Hér má sjá enn eina bul hugmyndina frá ráðamönnum um það hvernig megi blóðmjólk almenning ENN MEIRA! sjá HÉR.

82) ENN OFBÝÐUR DAVÍÐ - Hvernig má það vera að ráðherra viðskipta fær ekki að vita fyrr er viku seinna að byrjað er að greiða lánið inn á reikning Seðlabankans! Er Davíð í einhverju sólói við að útdeila þessum peningum til "RÉTTU" aðilanna á meðan hann hefur völdin? Þetta er ein af mörgum ástæðum fyrir því að hann á að koma sér út úr húsi sem fyrst, ef ekki sjálfur, þá með hjálp! sjá HÉR.

Kjartan Pétur Sigurðsson, 28.11.2008 kl. 07:50

20 identicon

Ég er undrandi á þessu Davíðshatri sem heltekur þjóðina þessa dagana. Þið ætlið semsagt að leyfa honum að stjórna, með góðu eða illu. Þarsem meirihluti landsmanna kaus hann áður, aftur og aftur, hljóta einhver ykkar að vera í þeim hópi. En ég skil ekki eitt. Nú kaus ég hann aldrei vegna þess að ég get ekki ímyndað mér gott samfélag þarsem helstu stoðkerfi eru einkavædd. Ekki frekar en ég hef ekki áhuga á að framselja landið inní einkavæðingu ESB og því hef ég aldrei kosið Samfylkinguna. En af hverju þessi andúð núna??? Horfiði á hverjir það eru sem hafa siglt landinu í þrot. Davíð kemur þar lítt við sögu. Ég legg til að þið notið krafta ykkar í að mótmæla þar sem við á og dempið þetta barnaskólahatur.

Dagga (IP-tala skráð) 28.11.2008 kl. 08:39

21 Smámynd: Heidi Strand

Dagga, Þarsem meirihluti landsmanna kaus hann áður, aftur og aftur. Það er ekki rétt. Sjálfstæðisflokkurinn var aldrei með hreinan meirihluta.

Heidi Strand, 28.11.2008 kl. 09:05

22 identicon

Ástæða þess að fólkið í landinu vill fá endurnýjun í Seðlabankanum er einmitt þetta. Það eru tug þúsundir einstaklinga hér búnir tjá sig um þetta,  í orði og á borði m.a. í mótmælunum á Austurvelli. Ég vil segja eftirfarandi sem ég tel vera SAMNEFNARA fyrir allt heila klabbið:

Stjórn Seðlabankans með seðlabankastjóra í fararbroddi sýnir þjóðinni síendurtekna VANVIRÐINGU og það er ekkert lát á því.

Það má velta því fyrir sér HVERS VEGNA framkoma þessara einstaklinga í bankaráðinu er á þennan veg og HVAÐ þeim gengur til. Margir hafa tjáð sig um það. Freistandi er að kenna einum manni Davíð Oddsyni um aðgerðir og aðgerðaleysi Seðlabankans og holdgera allt í HONUM. Margir gera það, enda gefur hann tilefni til þess m.a. með sífelldum ÖGRUNUM framan í opið geðið á fólki. Margir biðja að öll stjórnin víki.

Ég hef það á tilfinningunni að málið sé ekki það einfalt að það sé hægt að skella skuldinni á einn mann; tel að MEIRA  þurfi til.  Ég TEL að það sé eitthvað undirliggjandi sem er ekki í lagi, eitthvað sem veldur.  Heil þjóð getur EKKI haft rangt fyrir sér, einkennin eru augljós, en undirliggjandi sjúkdómur er ekki fullgreindur, langt í land með það.  

Bið einhvern um að gefa sig fram og skoða, skýra, upplýsa.

Það er alveg ljóst að við sættum okkur ekki við þetta. Krafan þjóðarinnar er skýr, Seðlabankastjórnin verður að fara. Meiri hagsmuni fyrir minni. Það er byrjunin.

Kveðja Hákon Jóhannesson

Hákon Jóhannesson (IP-tala skráð) 28.11.2008 kl. 09:05

23 identicon

Sæl Heidi.

Átti að sjálfsögðu við að fleiri kusu XD en nokkurn annan flokk. Hélt það væri augljóst! En mig langar að spyrja Hákon. Hvað með auðmennina, Jónas Jónsson, Björgvin Sigurðsson, Ingibjörgu Sólrúnu og Geir Haarde? Þar erum við með ansi viðamikinn lista sem ætti að standa Seðlabankastjórn framar, ekki satt?

Dagga (IP-tala skráð) 28.11.2008 kl. 09:36

24 Smámynd: Sævar Helgason

Sjálfstæðisflokkurinn hefur í hálfan annan áratug barist hatramlega gegn aðild Íslands að ESB og upptöku evru.

Með EES samningnum1995 var fjármálaleg einangrun þjóðarinnar rofin. Við gátum stækkað okkar efnahagssvæði frá okkar þrönga 300 þúsund manna markaðssvæði yfir til allra ESB landanna. Þessi gerningur hefur reynst okkur mikil lyftistöng til framfara.

En málið var aldrei klárað og gengið að fullu í ESB og evra tekin upp- vegna harðrar andstöðu Sjálfstæðisflokksins undir forystu Davíðs Oddsonar bæði í embætti forsætisráðherra og nú seðlabankastjóra.

Krónan ,okkar örmynt ,skyldi verða okkar lífsakkeri í okkar efnahagskerfi.

Öllu var kostað til og nú  erum við gjaldþrota þjóð -uppá náð og miskun annara þjóða komin.

Verðtrygging lána sem nú sligar heimilin er eitt afsprengi þessa . 

Öll verk Davíðs Oddssonar í seðlabankanum miðuðu að þessu eina marki- að halda í krónuna og koma í veg fyrir aðild að ESB og upptöku evru...

Og nú er væntanlega komið að leiðarlokum þessa hildarleiks sem staðið hefur allt frá árinu 1995 þegar við gengum í EES -

Nú verðum við að klára málið hið fyrsta og hefja aðildarviðræður að ESB aðild og upptöku evru. Það er alveg hörmulegt að þjóðargjaldþrot undir forystu Davíðs Oddssonar hafi þurft til.

Davíð Oddsson er orðinn þessari þjóð rándýr- hann verður að víkja frá öllum völdum og áhrifun- strax- hann hefur stórskaðað íslenska þjóð.

Sævar Helgason, 28.11.2008 kl. 09:55

25 Smámynd: Einar Indriðason

Já, löngu tímabær spurning um að varpa fram spurningunni hvort að Dabbi (og hugsanlega fleiri) séu landráðamenn, föðurlandssvikarar.  Ég veit svarið fyrir mína parta.  Nú er bara að sjá hvort og hvað er hægt að gera.

Einar Indriðason, 28.11.2008 kl. 10:00

26 identicon

Landráð segir þú, jamm ég vogaði mér að spekúlera um það þann 20 okt sl. Sjá hér fyrir þá sem nenna:

http://blogg.visir.is/arikuld/2008/10/20/landra%c3%b0/

Arinbjörn Kúld (IP-tala skráð) 28.11.2008 kl. 10:03

27 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Mig grunar einhvernvegin að það sé svo margt rotið og spillt undir þessum málum öllum sem þetta fólk situr á eins og ormar svo ekki komist upp um hvað hér er MIKIL og rótgróin spilling sem nær um alla stjórnsýsluna og embættismannakerfið....Og Davíð er lokið á pottinum og hefur upplýsingar um eitt og annað sem ekki þolir dagsskímuna. Sem betur fer er þjóðin að vakna og þurfti heldur betur mikið til að losa um hlýðni landans. En það eru takmörk fyrir hvað hægt er að misbjóða fólki mikið og lengi og nú erum við komin á þann stað að það er engin leið til baka. Lýðræðisbyltingin er hafin fyrir alvöru og okkar bíða nýir og betri tímar þegar við höfum komið spillingaröflunum frá. Nú eða aldrei.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 28.11.2008 kl. 10:36

28 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Já já og svo eru bankar að fara umvörpum á hausinn í USA og Bretlandi.

Helvítið hann Davíð er á bak við það allt saman langt langt plott af hans hálfu.

Bankar hrynja í Evrópu, þ.e. Danmörku , Svíþjóð, Frakklandi, þýskalandi, hollandi, og víðar.

Helvítis karlfauskurinn hann Davíð er auðvitað Guðjón á bak við tjöldin þar, eða er hann sjálf TJÖLDIN?? ha hvað?

Auðvitað verður að reka hann úr Seðlabönkum Bretlands, Evrópusambandinu, Danmörku, Luxemburg, Hollandi, Austurríki, Frakklandi og víðar, í Evrópu og annarstaðar, hvar fyrrum pólitíkusar eru Seðlabankastjórar eða í bankastjórn viðkomandi landa.

Leitið læknis, það er eitthvað alvarlegt í  gangi hjá fólki sem er svona gersamlega fallið fyrir áróðri þeirra sem urðu fyrir barðinu á viðkomandi einhvertíma á feli sínum.

Jafnvel Þorvaldur fær að bulla út í eitt í fjölmiðlum, svo langt eru mann tilbúnir að ganga í vitleysunni til að ,,ná se´r niður" á Dabba Kóng

Með hluttekningu

Miðbæjaríhaldið

Bjarni Kjartansson, 28.11.2008 kl. 10:45

29 Smámynd: Kjartan Pétur Sigurðsson

Aðal málið er að koma yfirstjórninni í burtu og ÞÁ KANNSKI FYRST FER ALLT KERFIÐ SEM ÞAR LIGGUR UNDIR AÐ HUGSA AÐEINS SITT MÁL BETUR. Á meðan allt kerfið býr við þá yfirmenn sem nú sitja sem fastast, að þá mun EKKI VERÐA NEIN BREYTING Á TIL BATNAÐAR!

ÞVÍ SKIPTIR ÖLLU MÁLI FYRIR LÝÐRÆÐIÐ Á ÍSLANDI AÐ ÞEIR SEM SIGLDU SKÚTUNNI Í STRAND VÍKI ... STRAX!

Ef þeir sjá ekki sinn vitjunartíma sjálfir, þá verður að hjálpa þeim til að skilja um hvað málið snýst.

Kjartan Pétur Sigurðsson, 28.11.2008 kl. 10:50

30 identicon

Hrunið hefur opnað augu fólks. Spillingin, lygarnar, þöggunin, ofríkið, fúskið og vanhæfnin. Graftarkýlið er sprungið og óþverrinn vellur út. Arfleifð Davíðs Oddssonar og skósveina hans. - Eftir situr þjóð í skuldaánauð.

Af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá.

Þetta er ekki í fyrsta skipti í sögunni sem áður dáður ofríkismaður er hrópaður niður. Ofmetinn oflátungur.

Kjósendur draga stjórnmálamenn til ábyrgðar, stjórnmálamenn óhæfa embættismenn og dómstólar sakamenn.

Rómverji (IP-tala skráð) 28.11.2008 kl. 11:43

31 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Málið er bara að það er ákaflega erfitt að festa fingur á aðalatriðunum á nútímaatburðum.  Þarf vissa fjarlægð.

Jú, bankakerfið var komið útúr öllu korti og skuldastaða virðist óviðráðanleg sérstaklega ef haft er í huga að SÍ eða ríkið ætluðu ekkert að bakka þá upp.

Samt sem áður finnst mér núna, sú afstaða kannað breitast, sumt umhugsunarvert í því sem Hólmfríður segir að ofan.

Sérstaklega set ég spurningarmerki við aðferðafræðina sem viðhöfð var í upphafi.  Það hlýtur að vera að menn hafi gert sér grein fyrir að aðkoma yfirvalda að Glitni þýddi einfaldlega dóminóáhrif og það litla traust sem eftir var á hinum bönkunum myndi hrynja um leið.

Að það skildi enginn annar möguleiki vera í stöðunni - ég staldra við  við þann punkt.  Þar að auki virðist um mikinn flýti hafa verið að ræða og afar takmarkað samráð um aðgerðir.   Ég viðurkenni að ég er hugsi yfir þessu.

En svo auðvitað verður að hafa í huga að maður hefur svo takmarkaðar upplýsingar.  Maður veit ekki vað gerist á bak við tjöldin.  Það er ekki eins og maður séupplýstur eitthvað ofur vel. 

Td. á ég erfitt með að trúa að ráðamenn hafi ekki gert sér grein fyrir hættuni sem var framundan varðandi bankana fyrir löngu.  Það er ímislegt sem bendir til að svo hafi verið þó þeir hafi sagt eitthvað allt annað á sviðinu.  Td. fundur Forsætisráðherra og Brown í apríl (minnir mig) þar sem Brown á að hafa sagt: Farðu undireins til IMF.

Það er margt hulið enn í þessu máli.  Kannski veit enginn fyrr en eftir 100 ár hvað raunverulega gerðist.  Who knows.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 28.11.2008 kl. 14:24

32 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Ég tek algjörlega undir með Sævari Helgasyni. Það er forgangsverkefni að koma af stað aðildarviðræðum við ESB. Davíð og hans fylgdarlið hefur unnið gegn því með öllum ráðum að koma í veg fyrir að sótt væri um aðild og að halda okkar gjörónýru krónu á floti. Því verður að linna og það strax. Krafan um kosningar er skiljanleg en hún verður aðeins að bíða, en þó ekki lengi.

Besta leiðin til að gera Davíð valdalausan er að koma af stað aðildarviðræðum. Það klýfur Sjálfstæðisflokkinn og hvað með það. Hann hefur í raun verið klofinn í mörg ár þó það hafi ekki verið viðurkennt til að halda völdum. Ég óttast það ekki að þessi mál verði ekki rannsökuð og að okkur verði ekki sagt frá því hvað gerðist í raun og veru. Slík rannsókn er auðvitað tímafrek og verður að vera vönduð og heiðarleg.

Það sem er brýnast er að skipta um stjórn í Seðlabankanum og hefja aðildarviðræður. Samfélagið er að breytast og það mun breytast enn meira á næstu árum. Þið sem eruð að vakna núna og krefjast hreinsunar og úrbóta, þið verðið að halda út og átta ykkur á því smámsaman hverskonar samfélag þið viljið þróa úr þeim rústum sem nú eru hjá okkur.

Það þurfa að fara fram miklar samræður í þjóðfélaginu öllu og það þarf að nást sátt milli ýmissa hópa sem myndast hafa á síðastliðnum árum og áratugum. Það er auðvitað rétt að undir yfirborðinu séu valdablokkir sem þarf að uppræta.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 29.11.2008 kl. 00:25

33 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Þó að ég sé alls ekki sammála Hómfríði um ESB-aðild þá verð ég að dást að mjög greinargóðri samantekt hennar í svari hennar nr. 3. Ég er á því að Davíð sé stórt vandræðabarn í íslenskri pólitík. Það er býsna margt sem bendir til að það sé í raun þjóðþrifamál að koma honum þaðan út og það strax.

Rakel Sigurgeirsdóttir, 30.11.2008 kl. 19:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband