25.3.2009
Hvað í andskotanum á þetta að þýða?!
Það fauk hressilega í mig þegar ég sá þessa frétt í gær. Undir venjulegum kringumstæðum myndi ég ekki verja þetta en... Hvað líður réttlætinu á Íslandi? Er þetta réttlætið í hnotskurn?
Hann var tekinn og dæmdur.
Þau (og fleiri) ganga laus og njóta lífsins á okkar kostnað
- hafa ekki einu sinni verið yfirheyrð!
Hvað í andskotanum á þetta að þýða?
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Dægurmál, Stjórnmál og samfélag, Viðskipti og fjármál | Facebook
Athugasemdir
Svona er Ísland í dag, steldu litlu þú færð dóm. Steldu miklu, helst þjóðarauð og ekkert gerist.
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 25.3.2009 kl. 01:00
Ef þú stelur mat því þú ert hungraður, þá ferðu í fangelsi. Ef þú átt nóg fyrir mat, en stelur bara af því að þú getur það, þá ferðu ekki í fangelsi. Hvaða skilaboð er verið að gefa framtíð þessa lands ???? Ekki það við stelum auðvita ekki, og það er ekkert sem réttlætir þjófnað. Krafa þjóðfélagsins á auðvita að vera að þessir hvítflibbaþjófar fái dóm.
Sigurveig Eysteins, 25.3.2009 kl. 01:57
Þetta er í boði Sjálfstæðisflokksins. Allir lögreglustjórar, sýslumenn og dómarar þurfa að vera í Sjálfstæðisflokknum. Þeir hafa mótað dómskerfið hér áratugum saman. Er hægt að breyta þessu?
Rósa (IP-tala skráð) 25.3.2009 kl. 05:53
Það er okkur Íslendingum til skammar að þessir fjárglæframenn voru ekki leiddir út úr bönkunum í handjárnum.
Siðferðislegt hrun þjóðar.
ThoR-E, 25.3.2009 kl. 07:46
Kannski óhætt að bæta við, að ef þú stelur í búð .. pulsupakka eða oststykki ... að þá er viðkomandi leiddur út í handjárnum, handtekinn. Glæpamaður.
Ef þú rænir milljörðum af þjóð þinni ... þú getur farið til og frá landinu.. haldið áfram að stunda viðskipti.. og gagnrýnt rannsóknir í fjölmiðlum... þínum fjölmiðlum.
Það er eitthvað mikið rotið hérna.
ThoR-E, 25.3.2009 kl. 07:48
Minnir mikið á sumt úr sögunum eftir Victor Hugo
Svanur Gísli Þorkelsson, 25.3.2009 kl. 10:41
Lára, þetta er til skammar. Var ekki hæt að gefa honum skilorð eins og Jóni Ásgeiri í Baugsmálinu.
Nei lokum heimillislausafólkið og fátækjafólkið inni eins og dýr.
Hvað hafa þeir sem minna meiga sín fengið af góðærinu síðustuliðnum árin?
Ekkert.
Hafið þig keyrt um götur Reykjavíkur og séð ókláruðu stórhýsin allsstaðar?
Peningar sem var hægt að nota til þess að hýsa heimillislausa,hækka öryrkjabætur, o.s.f.
Hvar er umhyggja ráðamanna hjá borginni og ríkinu.
Anna , 25.3.2009 kl. 11:00
Vá, ég rak einmitt augað í þessa frétt og hugsaði nákvæmlega eins: Maður þarf bara að fremja nógu stór og flókið efnahagsbrot þá er maður stikkfrí og enginn þorir að fara í saumana á þessu. Kannski vegna of náin tengsl við of marga í lykilstöðum í þjóðfélaginu. En það er svo einfalt að dæma litla þjófa.
Úrsúla Jünemann, 25.3.2009 kl. 12:43
Dæmdur í mánaðarfangelsi og að greiða málskostnað, ef þetta er hlutfallið þá endist bankaræningjunum ekki aldur til að sitja af sér.
Rut Sumarliðadóttir, 25.3.2009 kl. 13:18
Misræmið milli dóma fyrir (lítil) auðgunarbrot og ofbeldisglæpi hefur lengi verið landlægt.
Hef stundum notað þá samlíkingu, að ef maður stelur kjötlæri úr búð, rýkur hann strax í steininn. Ef maður tekur hins vegar upp á því að rota annann með kjötlæri, bíður hans, eftir dúk og disk, vægur skilorðsbundinn dómur -ef málinu er þá ekki vísað frá. (Hafi ofbeldismaðurinn t.d. haft vit á að misþyrma konu, sem gæti "hafa reitt hann til reiði", smbr. alræmdan dóm á Suðurnesjum).
Nú liggur ljóst fyrir, að það margborgar sig að stela heilu kjötfjalli, eða fjallgarði, frekar en einu aumu læri...
Hildur Helga Sigurðardóttir, 25.3.2009 kl. 13:54
Mér finnst að það ætti að skikka þetta lið, sem Vilhjálmur er með í huga, í geðrannsókn.
Niðurstöður sem eru sameiginlegar í hópnum ætti að birta opinberlega.
HF (IP-tala skráð) 25.3.2009 kl. 15:18
Lögrelan gekk hratt og örugglega fram í þessu skuggalega máli og hann viðurkenndi skýlaust brot ditt og sýndi greinileg merki iðrunar
Finnur Bárðarson, 25.3.2009 kl. 16:34
Jú Svanur Gísli ! Mikið rétt ;Les miserables , eða Vesalingarnir eftir Victor Hugo , þegar svangur maðurinn stal brauðinu. Það er með ólíkindum að þetta skuli falla undir lögin í landinu og hvað gerðu ekki Byrs ómennin og ekkert hægt að gera , jú leiða þá undir húsvegg og eitt hnakkaskot : Þvílík landhreinsun , og vera stoltur af að hafa myrt ómenni .
Hörður B Hjartarson, 25.3.2009 kl. 18:31
Þetta er réttlætið í allri sinni sanngjörnu mynd...það er alltaf sá sem minnst gerði sem fær þyngstan dóminn.
TARA, 25.3.2009 kl. 19:48
Að mínu viti þýðir þetta einfaldlega að áleggsbréf er verðmætara en hlutabréf skv. löggjafanum. Og skiptir þá engu hversu hátt hlutabréfið er.
Fjárfestar athugið ! Áleggsbréf til sölu.
Anna Einarsdóttir, 25.3.2009 kl. 20:44
Veit einungis um einn úr stétt dómara á Íslandi, sem breytti rétt gegn fátækling; Páll Vídalín í frelsun Jóns Hreggviðssonar. Annars er íslenska dómarastéttin þétt setin af Þorlákum Kortssonum.
Hreggviður Davíðsson (IP-tala skráð) 25.3.2009 kl. 22:48
er ekki gengi skinkubréfa komið í 15,3 meðan hlutabréf eru í núlli.
þetta er stórglæpon.
Brjánn Guðjónsson, 25.3.2009 kl. 22:54
Er þetta ekki í boði umboðsmanns Sjálfstæðisflokksins á Selfossi, sjálfs þvagleggs sýslumanns.
Árni Kristjánsson (IP-tala skráð) 25.3.2009 kl. 23:09
það eru bara stórglæpir sem orga sig á Íslandi
Hólmdís Hjartardóttir, 25.3.2009 kl. 23:13
“Steal a little and they throw you in jail,
Steal a lot and they make you king.”
-Bob Dylan
Heiður (IP-tala skráð) 26.3.2009 kl. 01:45
þessir föðurlandssvikarar meiga þakka guði fyrir að skotvopnaeign landsmanna er eins lítil og raun ber vitni......kannski fer það eitthvað að lagast
Vilhjólmur (IP-tala skráð) 26.3.2009 kl. 14:38
Þetta óréttlæti er svo yfirgengilegt að það getur ekki heitið neitt annað en smánarblettur... réttara væri auðvitða að kalla það smánarhafsjó! Þessi mismunum er íslensku réttargæslu- og dómgæslukerfi til háborinnar og ævarandi háðungar og skammar!!
Rakel Sigurgeirsdóttir, 27.3.2009 kl. 00:13
hugsaði það sama, en það er einsog Joly segir; dómskerfið er bara fært um að taka á þesskonar málum, ekki alvöru málunum.
SM, 28.3.2009 kl. 15:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.