16.4.2009
Atvinnutækifæri fyrir bændur...
...eða kannski bara dægradvöl? Ég fékk senda slóð að þessu myndbandi um daginn og fannst uppátækið ansi skemmtilegt. Það eru bændur í Wales sem voru svona hugmyndaríkir.
Fyrir nokkrum dögum sá ég svo að fréttastofan Sky hafði komið auga á myndbandið og sá ástæðu til að fjalla um þessa nýstárlegu iðju sauðfjárbænda.
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Dægurmál, Stjórnmál og samfélag, Viðskipti og fjármál | Facebook
Athugasemdir
Frábært! Ný merking í orðið kindarlegur!
Rut Sumarliðadóttir, 16.4.2009 kl. 20:15
Þetta minnir óneitanlega á Dalalíf eftir Þráinn Bert.
Víðir Benediktsson, 17.4.2009 kl. 00:19
Ærleg aukabúgrein þarna á ferð. Æ lovitt !
Hildur Helga Sigurðardóttir, 17.4.2009 kl. 01:28
Ég gruna þá um græsku. Mér finnst hreyfingarnar á kindahópunum í hlíðinni ekki mjög eðlilegar. Annars er þetta skemmtilegt og mynnir á Dalalíf.
Húnbogi Valsson (IP-tala skráð) 17.4.2009 kl. 07:05
Verst er, að bjart er allan sólarhringinn hér á landi yfir sumartímann. Helst væri þá að notast við svarta sauði og þar er af nógu að taka...
Ásgeir Kristinn Lárusson, 17.4.2009 kl. 11:14
Svo gott að sjá eitthvað annað en pólitík :D
Æðislegt!
Takk fyrir alla þá vinnu sem þú leggur í bloggið þitt!
Unnsteinn Jóhannsson (IP-tala skráð) 17.4.2009 kl. 23:05
Skemmtilegt.
Anna Einarsdóttir, 18.4.2009 kl. 20:42
takk fyrir að birta þetta ég og yngri sonurinn veltumst um af hlátri:)
Birgitta Jónsdóttir, 19.4.2009 kl. 09:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.