14.3.2009
Eru auðmenn "kommúnistar" samtímans?
Nú er illt í efni, maður! Illa innrættir "ofurbloggarar", stjórnmála- og fjölmiðlamenn eru að tæta æruna af útrásarvíkingum og bankamönnum. Þessum líka sauðmeinlausu gæðablóðum sem vilja öllum vel og hugsa um það eitt að hjálpa heimilunum. Ja... svo segir að minnsta kosti Hjörleifur Jakobsson, forstjóri eins af fyrirtækjum Ólafs Ólafssonar, Kjalars. Líklega er hann búinn að gleyma áróðursmynd auðmanna sem sýnd var á RÚV í nóvember 2004.
Hjörleifur líkir þessum illa innrættu gagnrýnendum auðjöfra og bankamanna við McCarthy, sem sá kommúnista í öllum hornum og ýmist svipti blásaklaust fólk lífsviðurværinu, útskúfaði því úr samfélagi manna eða hrakti það út í dauðann. Hann áttar sig ekki á því að nú er þessu öfugt farið þar sem græðgi, svik og prettir auðjöfra og bankamanna hafa svipt þúsundir atvinnunni og nú þegar hrakið nokkra örvæntingarfulla Íslendinga út í dauðann. Hjörleifur fær pláss fyrir þessa varnarræðu sína við hlið leiðara Fréttablaðsins í dag, það dugar ekkert minna.
En á forsíðu Fréttablaðsins í dag var þessi frétt sem dregur allverulega úr vægi orða Hjörleifs, hafi þau eitthvert vægi yfirhöfuð. Það sem fram kemur hér er einungis eitt örlítið dæmi af ótalmörgum.
Líklega finnst Hjörleifi og öðrum þeim, sem verja þátt útrásarvíkinga og bankamanna í efnahagshruninu og líkja gagnrýni á þá við McCarthy-ofsóknirnar í Bandaríkjunum, í lagi að haga sér svona. Og svona, og svona og svona. Hjörleifur hefur kannski ekki séð þetta... eða þetta, þetta og þetta. Líkast til hefur hann heldur ekki séð myndböndin um Leppa og leynifélög - hér og hér - sem afhjúpa blekkingarleik útrásarvíkinga og bankamanna. Nei, Hjörleifur kallar þá sem bent hafa á sukkið, spillinguna og siðleysið "berserki óhróðurs" og segir bloggara skrifa "eiturpillur" sem bjóði heim óhróðri um blásaklausa útrásarvíkinga og bankamenn.
Það er fallegt af Hjörleifi að stökkva fram á ritvöllinn til varnar sínum mönnum, kannski einkum yfirmanni sínum, Ólafi Ólafssyni. Eða eru þeir félagar meðal þeirra sem skjálfa á beinunum eftir innkomu Evu Joly í rannsókn á hruninu? En kannski finnst Hjörleifi bara allt í lagi að nokkrir tugir einstaklinga geti arðrænt heila þjóð og hneppt hana í skuldafjötra til áratuga með dyggri aðstoð skeytingarlausra eftirlitsaðila, öflugra þrýstihópa og spilltra stjórnmálamanna. Mér finnst það ekki og ég áskil mér rétt til að halda áfram að gagnrýna allt þetta lið þótt það stimpli mig þar með "berserk óhróðurs" sem skrifar "eiturpillur" um þessa sárasaklausu vesalinga.
Ég ráðlegg Hjörleifi að kynna sér ENRON-málið betur og bera það saman við undangengna atburði á Íslandi auðjöfranna. Vona það besta en búa sig undir hið versta.
Að lokum bendi ég á nýja bloggsíðu hins frábæra Andrésar Magnússonar, geðlæknis, sem hefur einstakt lag á að greina stöðuna og tjá hana á mannamáli. Fylgist með bloggi Andrésar framvegis!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
14.3.2009
Eva Joly um Ísland í norska sjónvarpinu
Eva Joly var viðmælandi Önnu Grosvold í norska sjónvarpinu í gærkvöldi. Eini gallinn við samtal þeirra var hvað það var stutt. Fleiri viðmælendur voru í þættinum og ég leyfi einum þeirra að fljóta með, Robert Wilson, rithöfundi, því mér fannst innlegg hans athyglisvert.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)