20.9.2009
Upplýsingar og gagnsæi - lífsnauðsyn
Ein af forsendum þess að unnt verði að gera upp hrunið og takast á við afleiðingarnar er að upplýsingar séu aðgengilegar og gagnsæi í þjóðfélaginu eins og best verður á kosið. Leynd og launung þjónar aðeins þeim sem hafa eitthvað að fela eða eru kannski með eitthvað misjafnt á prjónunum sem ekki má vitnast. Um daginn skrifaði ég pistil - Kerfisbundinn blekkingarvefur? - sagði þar frá hugbúnaði Jóns Jósefs Bjarnasonar og sýndi ótrúlegar tengslamyndir úr honum. Nokkrum dögum seinna var skrúfað fyrir upplýsingar hjá embætti Ríkisskattstjóra. Yfirlýsingar voru gefnar á báða bóga og málið virtist í hnút.
Fjölmiðlar hafa undanfarna daga fjallað mjög um hugbúnað Jóns Jósefs (IT ráðgjöf og hugbúnaðarþjónusta ehf.) sem sýnir tengsl milli eigenda og stjórnarmanna fyrirtækja á Íslandi. Hugbúnaðurinn getur á mjög einfaldan og gagnsæjan hátt teiknað upp eignarhald fyrirtækja á Íslandi. Hann er því mikilvægt tæki til að greina krosseignartengsl, samþjöppun valds, sem var ein af ástæðum bankahrunsins. Það kom því mörgum á óvart þegar lokað var á aðgang Jóns Jósefs að gagnagrunni Fyrirtækjaskrár ríkisskattstjóra sem hugbúnaðurinn byggir á.
Jón Jósef í Kastljósi 14. september 2009
Það mál er nú leyst. Eins og fram kom í kvöldfréttum fjölmiðlanna í gær og á vefsíðum þeirra sendi Skúli Eggert Þórðarson, ríkisskattstjóri, frá sér svohljóðandi fréttatilkynningu undir kvöld:
"Að undanförnu hefur verið til umfjöllunar á opinberum vettvangi ósk forráðamanns IT Ráðgjafar- og hugbúnaðarþjónustu ehf. um að fá aðgang að gagnagrunni fyrirtækjaskrár. Ríkisskattstjóri taldi nauðsynlegt m.t.t. eðli gagnagrunnsins og fyrirhugaðar starfsemi, að afstaða Persónuverndar þyrfti að liggja fyrir.
Nú þegar afstaða Persónuverndar er ljós ætti ekkert að vera því til fyrirstöðu að forráðamaður hlutaðeigandi félags fái umbeðinn aðgang að uppfylltum viðeigandi öryggis- og formkröfum. Reiknað er með að unnt verði að ganga frá því á næstu dögum og skráin þá gerð aðgengileg.
Þá vill ríkisskattstjóri taka fram að öll verkfæri sem nýst geta eftirlitsaðilum og þar með skattyfirvöldum til að auðvelda störf þeirra og jafnframt við að stuðla að gagnsæi í viðskiptum og til að upplýsa um krosseignatengsl, eru mikils virði."
Hópur fólks sem vinnur að auknu gagnsæi upplýsinga fundaði með Jóni Jósef seinnipartinn í gær og niðurstaðan var sú að fá Skúla á fund með hópnum í gærkvöldi. Skúli skýrði fyrir hópnum þær ástæður sem lágu að baki þess að lokað var fyrir aðgang Jóns Jósefs að Fyrirtækjaskrá sem voru í stuttu máli þær, að embætti ríkisskattstjóra vildi hafa allt á hreinu og sýna ábyrgð. Enginn þrýstingur eða annarlegir hagsmunir hefðu legið þar að baki.
Skúli bað Jón Jósef afsökunar á ummælum sínum í fyrri tilkynningu og áréttaði að Jón Jósef hefði hvorki brotið lög né reglur og ekki gert neitt rangt. Þeir Skúli og Jón Jósef tókust í hendur og sættust heilum sáttum.
Ljóst var af framgöngu ríkisskattstjóra að hann er mjög meðmæltur gagnsæi upplýsinga svo framarlega sem farið er að lögum og mun leggja sitt lóð á vogarskálarnar til þess framvegis. Hann er áhugasamur um gagnagrunn Jóns Jósefs og þeir ætla að funda um framhaldið á mánudag.
Hér handsala þeir Skúli ríkisskattstjóri og Jón Jósef sættir í gærkvöldi.
Viðbót: Bendi á tvo nýja pistla um gagnsæi eftir Egil Jóhannsson og Hjálmar Gíslason.
Jón Jósef og Egill Jóhannsson í Silfrinu 20. september 2009
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Viðskipti og fjármál, Stjórnmál og samfélag, Spilling og siðferði | Breytt s.d. kl. 16:38 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Efni
Nýjustu færslur
- Fréttir af gosi
- Freyja og fósturjörðin
- Geymt en ekki gleymt
- Auðlindasalan og nefndin
- Afréttarinn mikli
- Varist hrægamma
- Bankinn sem rústaði heiminum
- Glæpamennska
- Meira Silfur
- Rúsnesk rúlletta fjárglæframanna
- Sorgardagur fyrir íslenskt lýðræði
- Hlekkir vistarbanda
- Fjárhættuspil og 500 þúsund
- Glæpasamfélagið Ísland
- Bílalánin og bílaránin
Eldri færslur
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
Útvarp
Tenglar
Ég les...
- Eyjuna Fréttavefur
- Smuguna Fréttavefur
- Nei. Fréttavefur
- The Iceland Weather Report Alda's blog about current affairs in English
- Íris Erlings á Huffpo Blogg
- Alda á Huffpo Blogg
- Iceland in Huffington Post Huffington Post - netmiðill
- Economic Disaster Area Blogg
- Íslenskar fréttir á norsku Fréttasíða
- Íslenskar fréttir á ensku Fréttavefur
- Raddir fólksins Umfjöllun og upplýsingar um mótmæli
- Borgarafundina
- Andrés Jónsson Blogg
- Baldur McQueen Blogg
- Björgvin Val Blogg
- Egil Helgason Blogg
- Gísla Ásgeirsson Blogg
- Guðmund Magnússon Blogg
- Gurrí Haralds Blogg
- Hlyn Þór Magnússon Blogg
- Hallgrím Thorsteinsson Blogg
- Illuga Jökulsson Blogg
- Jóhann Hauksson Blogg
- Jónas Kristjánsson Blogg
- Pál Ásgeir Ásgeirsson Blogg
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.3.): 181
- Sl. sólarhring: 188
- Sl. viku: 1518
- Frá upphafi: 1504623
Annað
- Innlit í dag: 126
- Innlit sl. viku: 1127
- Gestir í dag: 102
- IP-tölur í dag: 101
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Anna Ólafsdóttir (anno)
-
Sigurður Þór Guðjónsson
-
Jenný Anna Baldursdóttir
-
Sæmundur Bjarnason
-
Steingrímur Helgason
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Heidi Strand
-
Emil Hannes Valgeirsson
-
Kristjana Bjarnadóttir
-
Anna Einarsdóttir
-
Eyþór Árnason
-
Bergur Sigurðsson
-
Ragnheiður Ólafía Davíðsdóttir
-
Heiða B. Heiðars
-
Ómar Ragnarsson
-
Salvör Kristjana Gissurardóttir
-
Berglind Steinsdóttir
-
Ásgeir Kristinn Lárusson
-
Pálmi Gunnarsson
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Ólína Þorvarðardóttir
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Rakel Sigurgeirsdóttir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Friðrik Þór Guðmundsson
-
Lilja Skaftadóttir
-
Svanur Gísli Þorkelsson
-
Brjánn Guðjónsson
-
AK-72
-
Kári Harðarson
-
Hjálmtýr V Heiðdal
-
Sigurður Hrellir
-
Valgeir Skagfjörð
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
Dúa
-
Jón Steinar Ragnarsson
-
Helga Magnúsdóttir
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Hólmdís Hjartardóttir
-
Óskar Þorkelsson
-
Jón Baldur Lorange
-
Magnús Geir Guðmundsson
-
Villi Asgeirsson
-
Andrés Jónsson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Þór Saari
-
Árni Gunnarsson
-
Þorgrímur Gestsson
-
Sigurður Ingi Jónsson
-
Helga Þórðardóttir
-
Gunnar Skúli Ármannsson
-
Einar Indriðason
-
Aðalheiður Ámundadóttir
-
Ragnar Þór Ingólfsson
-
Harpa Björnsdóttir
-
Marinó G. Njálsson
-
Helgi Jóhann Hauksson
-
Carlos Ferrer
-
Baldvin Jónsson
-
Hallgrímur Óskarsson
-
Bryndís G Friðgeirsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Baldur Kristjánsson
-
Ásta Hafberg S.
-
Soffía Sigurðardóttir
-
Stefán Gíslason
-
Haraldur Bjarnason
-
Þröstur Unnar
-
Dofri Hermannsson
-
Andrés Magnússon
-
Rut Sumarliðadóttir
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Arinbjörn Kúld
-
Ævar Rafn Kjartansson
-
Jón Haukur Sigurðsson
-
Ár & síð
-
Bragi Ragnarsson
-
Kristján Logason
-
Guðfríður Lilja
-
Húnbogi Valsson
-
Úrsúla Jünemann
-
Ingólfur Ásgeir Jóhannesson
-
AceR
-
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
-
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir
-
Finnur Bárðarson
-
Héðinn Björnsson
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Hlynur Hallsson
-
Guðjón Sigþór Jensson
-
Steingerður Steinarsdóttir
-
Eygló
-
Ketill Sigurjónsson
-
Hlédís
-
Brattur
-
Ingibjörg Elsa Björnsdóttir
-
Páll Gröndal
-
Margrét St Hafsteinsdóttir
-
Ása Björk Snorradóttir
-
Auðun Gíslason
-
Einar Sveinbjörnsson
-
Gerður Pálma
-
Sigurður Þorsteinsson
-
Kristinn Örn Jóhannesson
-
Ingibjörg Hinriksdóttir
-
Jens Guð
-
Stefán Helgi Valsson
-
Hildigunnur Rúnarsdóttir
-
Gullvagninn
-
Valgeir Bjarnason
-
Guðríður Haraldsdóttir
-
Guðrún Helgadóttir
-
Guðrún Helgadóttir
-
Sævar Helgason
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Eva Benjamínsdóttir
-
Martha Elena Laxdal
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Kent Lárus Björnsson
-
Eggert Vébjörnsson
-
Guðmundur Ásgeirsson
-
Valsól
-
Anna Karlsdóttir
-
Víðir Benediktsson
-
Svanur Jóhannesson
-
Bumba
-
Heimir Eyvindarson
-
Himmalingur
-
Sæmundur Bjarnason
-
Þórbergur Torfason
-
Þórður Már Jónsson
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
-
Gunnar Berg Gunnarsson
-
Jón Ingi Cæsarsson
-
Linda Samsonar Gísladóttir
-
Kristján Kristjánsson
-
Sólveig Klara Káradóttir
-
Soffía Valdimarsdóttir
-
Hermann Bjarnason
-
Faktor
-
Marta B Helgadóttir
-
Landvernd
-
Gulli litli
-
Fararstjórinn
-
Pétur Þorleifsson
-
Svatli
-
Rúnar Sveinbjörnsson
-
Georg P Sveinbjörnsson
-
Neddi
-
Aðalheiður Haraldsdóttir
-
Steini Briem
-
Öll lífsins gæði?
-
Viðar Jónsson
-
Sturla Snorrason
-
Svala Jónsdóttir
-
Jón Svavarsson
-
Jón Ragnarsson
-
Valgerður Sigurðardóttir
-
Sigurður Valur Sigurðsson
-
Þórður Björn Sigurðsson
-
Harpa Elín
-
Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir
-
Svala Erlendsdóttir
-
Guðrún Ágústa Einarsdóttir
-
Guðrún Fanney Einarsdóttir
-
Haraldur Davíðsson
-
MAGNUS FINNUR HAUKSSON
-
pirrhringur
-
Jakob Falur Kristinsson
-
Þóra Sigurðardóttir
-
Sóldís Fjóla Karlsdóttir
-
Huldukonan
-
Rannveig Þorvaldsdóttir
-
Gunnlaugur Halldór Halldórsson
-
Torfusamtökin
-
Blúshátíð í Reykjavík
-
Sporðdrekinn
-
BLOGGER
-
Jens Sigurjónsson
-
Sædís Ósk Harðardóttir
-
Magnús Vignir Árnason
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Greta Björg Úlfsdóttir
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Baldvin Jónsson
-
Skattborgari
-
Sigurður Sigurðsson
-
Aron Ingi Ólason
-
Einar G Harðarson
-
Anna Björg Michaelsdóttir
-
Máni Ragnar Svansson
-
Höskuldur Sæmundsson
-
Vilberg Helgason
-
Jón Halldór Guðmundsson
-
Stríða
-
Eiríkur Harðarson
-
Sunna Dóra Möller
-
Erna Bjarnadóttir
-
Magnús Sigurðsson
-
Ása Björg
-
Berglind Nanna Ólínudóttir
-
Rauði Oktober
-
Ásta
-
Friðrik Óttar Friðriksson
-
Sólveig Kristín Gunnarsdóttir
-
Guðrún Magnea Helgadóttir
-
Æsir
-
Bjarkey Gunnarsdóttir
-
Þráinn Jökull Elísson
-
Hólmfríður Bjarnadóttir
-
Halldór Sigurðsson
-
Morten Lange
-
Ólöf Brynja Jónsdóttir
-
Jón Vilhjálmsson
-
Fríða Eyland
-
Guðborg Eyjólfsdóttir
-
Jón Ragnar Björnsson
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Berglind Eva Björgvinsdóttir
-
Goggi
-
Herra Limran
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
Sævar Finnbogason
-
Guðjón Baldursson
-
Kreppa Alkadóttir.
-
Sigurveig Eysteinsdóttir
-
hilmar jónsson
-
Guðmundur Bergkvist
-
Methúsalem Þórisson
-
Jóhann G. Frímann
-
Vilborg G Hansen
-
Elfur Logadóttir
-
Friðrik Hansen Guðmundsson
-
Jón Þór Bjarnason
-
Gunnar Þór Ólafsson
-
Idda Odds
-
Þarfagreinir
-
Ingibjörg SoS
-
Aldís Gunnarsdóttir
-
Einar Áskelsson
-
Ólöf de Bont
-
GRÆNA LOPPAN
-
Bára Halldórsdóttir
-
Vilhjálmur Árnason
-
Sólskinsdrengurinn
-
Kristlaug M Sigurðardóttir
-
Þórarinn Þ Gíslason
-
Ólafur Th Skúlason
-
Heimir Ólafsson
-
Baldur Gautur Baldursson
-
Eva Hauksdóttir
-
Ásmundur Einar Daðason
-
Helgi Þór Gunnarsson
-
K.Páll Price.
-
Doddi - Þorsteinn G. Jónsson
-
Hulla Dan
-
Guðmundur Óli Scheving
-
Rúnar Þór Þórarinsson
-
Óskar Steinn Gestsson
-
Guðrún Markúsdóttir
-
Ingvar Þórisson
-
Guðrún Una Jónsdóttir
-
Hörður B Hjartarson
-
Egill Rúnar Sigurðsson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Einar Rafn Þórhallsson
-
Tinna Jónsdóttir
-
Diesel
-
Alfreð Símonarson
-
Þór Jóhannesson
-
Róbert Björnsson
-
Ásta Steingerður Geirsdóttir
-
Sigurlaug B. Gröndal
-
Þórður Möller
-
Steinarr Bjarni Guðmundsson
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Sigurður Jónsson
-
Haukur Nikulásson
-
Sylvía
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Sigurbjörg
-
Jón Eiríksson
-
viddi
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Guðmundur Gunnarsson
-
Konráð Ragnarsson
-
Ruth777
-
Tómas Ingi Adolfsson
-
Trausti Traustason
-
FLÓTTAMAÐURINN
-
Birgir Þórarinsson
-
Jóhanna Garðarsdóttir
-
Eva G. S.
-
smg
-
TARA
-
Már Wolfgang Mixa
-
Ólafur Fr Mixa
-
Stefán Auðunn Stefánsson
-
Árni Haraldsson
-
Einhver Ágúst
-
Jakob S Jónsson
-
Guðmundur Júlíusson
-
Hilmar Dúi Björgvinsson
-
Rögnvaldur Þór Óskarsson
-
Þorsteinn Guðnason
-
Skuldlaus
-
Ragna Birgisdóttir
-
þorvaldur Hermannsson
-
Leikhópurinn Lotta
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Brynjar Hólm Bjarnason
-
Guðbergur Egill Eyjólfsson
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Gunnar Ásgeir Gunnarsson
-
Ingimundur Bergmann
-
Guðrún Emilía Guðnadóttir
-
Jenný Stefanía Jensdóttir
-
Jakob Þór Haraldsson
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Andrés Kristjánsson
-
Viðar Ingvason
-
Páll Blöndal
-
Hörður Valdimarsson
-
Ásgeir R. Helgason
-
Pétur Steinn Sigurðsson
-
Vilhjálmur Sveinn Björnsson
-
Anna Margrét Bjarnadóttir
-
Daníel Sigurður Eðvaldsson
-
Brynjar Davíðsson
-
Sigurður Þórðarson
-
Jón Þór Ólafsson
-
Pétur Kristinsson
-
Baldvin Björgvinsson
-
Margrét Sigurðardóttir
-
Þorsteinn Sch Thorsteinsson
-
Arnar Guðmundsson
-
Hjörtur Guðbjartsson
-
Margrét Birna Auðunsdóttir
-
Anna Andulka
-
Unnur G Kristjánsdóttir
-
Rafn Gíslason
-
Hulda Haraldsdóttir
-
Ólöf Ingibjörg Davíðsdóttir
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Eyþór Arnalds
-
Magnús B Jóhannesson
-
Ómar Bjarki Smárason
-
Guðbjörg Hrafnsdóttir
-
SeeingRed
-
jórunn
-
Bryndís R
-
Helga Kristjánsdóttir
-
Sævarinn
-
Pjetur Hafstein Lárusson
-
Andrés.si
-
Dystópía
-
Bjarni Harðarson
-
Kolbrún Heiða Valbergsdóttir
-
Flakkarinn
-
Sigríður Sigurðardóttir
-
Kama Sutra
-
Lúðvík Lúðvíksson
-
Bjarni Kristjánsson
-
Sveinbjörn Ragnar Árnason
-
Helgi Freyr
-
Jóhanna Magnúsdóttir
-
Loftslag.is
-
Steinunn Helga Sigurðardóttir
-
Jack Daniel's
-
Eva Lind
-
Ásthildur Jónsdóttir
-
Sif Jónsdóttir
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Árni Karl Ellertsson
-
Bjarki Steingrímsson
-
Bjarni Valur
-
Einar Björn Bjarnason
-
Elías Stefáns.
-
Guðjón Sigurbjartsson
-
Guðlaug H. Konráðsdóttir
-
Ingvi Rúnar Einarsson
-
Jóhannes Þór Skúlason
-
Jón Pétur Líndal
-
Marta Guðjónsdóttir
-
Sigurður Ingólfsson
Fréttir frá Amnesty
- Gloppur í lögum gera evrópskum fyrirtækjum kleift að versla með pyndingatól
- Mannréttindabrot við álvinnslu á Indlandi
- Shell og mannréttindabrot í Nígeríu
- Amnesty-bíó í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna
- Fórnarlömbum nauðgana um allan heim neitað um réttlæti og virðingu
- Bréf til utanríkisráðherra Íslands vegna Þúsaldarmarkmiða um þróun
- Amnesty International gagnrýnir hómófóbíska löggjöf í Litháen
- 537 undirskriftir vegna mannréttindabrota á Papúa Nýju-Gíneu
- Malavískir menn fyrir rétti fyrir "ónáttúrulegt athæfi"
- Simbabve: réttindum kvenna ógnað
- Mjanmar: ungur baráttumaður fyrir mannréttindum í sex ára fangelsi
Innskráning
Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.












Athugasemdir
Takk fyrir þetta fréttaskeyti, Lára Hanna. Ég vissi ekki af þessum fundi, og það gleður mig að sjá að Ríkisskattstjóri og Jón Jósef hafa tekist í hendur, og eru sáttir.
Gott mál. Ríkisskattstjóri fær auka prik frá mér við þetta.
Einar Indriðason, 20.9.2009 kl. 01:06
Ekkert fær mig til að trúa því að Skattrannsóknastjóri sé ekki að vinna fyrir þá sem réðu hann til starfa (X-D) annars hefði hann haft samband við persónuvernd og spurt hvort ekki væri allt í lagi með gagnagrunnsgérðina.
Tryggvi (IP-tala skráð) 20.9.2009 kl. 01:19
Já sko mína, orðin fréttaljósmyndari líka, alltaf að bæta á sig blómum!
Magnús Geir Guðmundsson, 20.9.2009 kl. 01:41
Lara Hanna.
Thu ert snillingur. Thakka fyrir thetta.
Islendingur (IP-tala skráð) 20.9.2009 kl. 01:54
Vonandi kemst Jón Jósef að grunni spillingarinnar, og hvernig hún kom sér fyrir í hverjum krika stjórnkerfisins og embættismannakerfisins. Vonandi verða aðgerðir og málaferli sem refsa öllum sem græddu á spillingunni. Fyrr verður ekki friður né sátt hérna á Íslandi. Við verðum að fá réttlætinu fullnægt, allstaðar þar sem það var brotið.
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 20.9.2009 kl. 02:11
Ég er spenntur fyrir að sjá krosstengslakortið yfir stjórnir lífeyrissjóðanna. Ég fullyrði að það verður sprenging, þegar það birtist. Kvótatengslanetið verður einnig ansi fróðlegt. Nokkuð ljóst að einhverjar siðareglur og lög hafa verið sveigð eilítið þar. Þetta verður einhverskonar röntgenmynd af spillingunni. Svo þegar meinið verður opinberað, þá er að fara í aðgerðina. Líklegast verður það sóðalegt en gerspillt stjórnvöld geta svosem komið í veg fyrir það. Annað eins hefur nú sést undanfarið.
Jón Steinar Ragnarsson, 20.9.2009 kl. 03:25
Takk
ps
http://www.youtube.com/watch?v=b-zHf9iGy94Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 20.9.2009 kl. 03:39
Eitt takk til.
Hólmdís Hjartardóttir, 20.9.2009 kl. 05:04
tek undir með Magnúsi Geir.
Brjánn Guðjónsson, 20.9.2009 kl. 06:21
Eitthvað hefur skattstjóri orðið hræddur um launin sín eftir að hafa ráðist á Jón Jósef og tekið afstöðu með þeim sem lagt hafa þjóðfélagið í rúst. Allt í einu var enginn sem bakkaði hann upp eins og hann hélt fyrst.
Þessi sinnaskipti skattstjórans eru gjörsamlega fáránleg miðað við það á undan er gengið. Skil ekki af hverju Jón J. krefst þessi ekki að skattstjóri víki úr starfi, enda augljóslega brotlegur í starfi, samanber ólöglega fréttatilkynningu hans um persónulega hagi Jóns J.
Jón Jónsson eða þannig (IP-tala skráð) 20.9.2009 kl. 10:00
Góð frétt . Er orðin til ný fréttastofa ? Fréttastofa Láru Hönnu ?
Hrafn Arnarson (IP-tala skráð) 20.9.2009 kl. 10:00
Miðað við áður útgefnar stóryrtar og hrokafullar yfirlýsingar Ríkisskattstjóra, þá kemur mér virkilega á óvart hve 'auðmjúkur' 'hann er' (lesist 'virðist vera') og afsakar sig gagnvart Jón Jósef. Mig grunar helst að Ríkisskattstjóri hafi skyndilega dottið niður á jörðina með okkur hinum og séð að sér.
En afsökunarbeiðnin og persónulegt handarband við Jón Jósef segir einnig sitt, svo það setur mann í þenkjandi stellingar varðandi Skúla. Er hann þessi fína persóna eða bara skúrkur sem kann virkilega að spila á lýðinn? Kannski hefur starfið stigið honum til höfuðs og hégóminn orðið algerlega takamarka- og sambandslaus?
Einungis tími mun geta lagað/sannað hið raunverulega eðli Skúla. Hann rústaði sjálfum sér á augabragði en þarf núna langan tíma til að byggja upp trúnað að nýju.
Að svo stöddu, þá finnst mér að Skúli hafi sannað að hann eigi að fá tækifæri á að sanna sig, þökk sé afsökunarbeiðni og handarbandi.
Vinnustaðaeftirlit ætti samt að dekka skrifstofur Ríkisskattstjóra einnig, því andrúmsloftið breyttist þar all skyndilega þegar Skúli tók við af Indriða. Starfsumhverfi opinberra stofnana ætti ekki að geta breyttst á einni nóttu, einungis vegna þess að nýr yfirmaður kemur þar að.
nicejerk (IP-tala skráð) 20.9.2009 kl. 11:08
Þessi tilkynning vekur fleiri spurningar en hún svarar eins og títt er um það sem leynt á að fara og er gruggugt.
1. Hvaða ógagnsæi hópur er þetta?
2. Ríkisskattstjóri hafði lýst Jón Jósef þjóf og skattsvikara hvernig "útskýrði" skattstjórinn fyrir leynihópnum að ekkert rangt væri við að vera þjófur og skattsvikari.
3."Ljóst var af framgöngu ríkisskattstjóra að hann er mjög meðmæltur gagnsæi upplýsinga" með því að lýsa valda menn þjófa og skattsvikara en aðra ekki?Kristján Sigurður Kristjánsson, 20.9.2009 kl. 11:25
Réttlætið sigrar að lokum
Grétar Eir (IP-tala skráð) 20.9.2009 kl. 12:21
Mikið er það ánægjulegt að málið skyldi fá farsælan endi. Ég er ekki viss um að margir í stöðu ríkisskattstjóra hefðu kyngt því að þurfa að skipta um skoðun og sjá ljósið þrátt fyrir fyrri og fljótfærnislegar yfirlýsingar. Skúli Eggert er maður að meiri og ég veit að hann sér hve mikilvæg vinna Jóns Jósefs er. Auðvitað. Og auðvitað vill ríkisskattstjóri að farið sé eftir lögum og reglum, - það er skiljanlegt. Það sem er illskiljanlegt er hve langan tíma það tók persónuvernd að afgreiða málið.
Nú er málið leyst og öll dýrin í þessum skógi, að minnsta kosti, vinir.
Bergþóra Jónsdóttir, 20.9.2009 kl. 12:31
Lítil glufa opnaðist vegna spurningar minnar nr. 1 í Silfri Egils áðan.
Eftir standa spurningar nr. 2 og 3.
Kristján Sigurður Kristjánsson, 20.9.2009 kl. 13:21
Mín skoðun er að fyrirætlanir Jóns um að fara að rekja tilfærslur og tengingar í sölu kvóta hafi verið kornið sem fyllti mælinn. Það eru örugglega töluvert margir sem hafa engann áhuga á að þau viðskipti verði gerð opinber. Viðskipti sem leiddu til þess að verð á óveiddu þorskkílói fór upp í 4000 krónur - meðan meðalverð á fiskmarkaði fyrir þetta sama kíló var á bilinu 200 - 270 kr!
Reiknum smá: 4000/250=16 sem merkir að það þarf að veiða kílóið 16 sinnum til að hafa upp í kaupverðið. Þá loksins, eftir 16 ár áttu kílóið og getur farið að græða á að veiða það.
Ef hins vegar helmingur aflaverðs fer til skipta og helmingur til útgerðar þá tekur það útgerðina 32 ár að eignast umrætt kíló.
Geggjaður bissness, ekki satt
Haraldur Rafn Ingvason, 20.9.2009 kl. 14:08
Dæmið miðast að sjálfsögðu við að ekki sé neinn annar kostnaður við útgerðina...
Haraldur Rafn Ingvason, 20.9.2009 kl. 14:12
Takk fyrir og til hamingju með þína aðkomu að þessu máli.
Hrannar Baldursson, 20.9.2009 kl. 17:49
Ég mæli með því Lára Hanna að þú opnir sjálfstæða bloggsíðu og seljir auglýsingar að henni ;)
Óskar Þorkelsson, 20.9.2009 kl. 20:48
Lára Hanna er enn mikilvægasti bloggarinn á Mbl. Hún leggur svo mikla vinnu í skrif sín að varla er trúandi að hún geri neitt annað. Hún, á eigin vegum, er einn mikilvægasti gagnrýnandi hins svokallaða hruns. Þar sem skrif hennar eru svona vönduð og víðlesin gengur hún mjög nærri sjálfum Agli Helgasyni að völdum í umræðunni. Takið eftir völdum.
Mig minnir að sagt hafi verið í Silfrinu í gær að þeir sem kæmust til valda vildu hafa allt leindó. Ég svosem kannast við þetta síðan ég var í barnaskóla.
Því miður virðist mér þessi orð ætla að hrína á Láru sem öðrum. Hún vill ekki svara spurningum mínum.
Kristján Sigurður Kristjánsson, 21.9.2009 kl. 09:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.