Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
8.4.2009
Sjálfstæðisflokknum mútað?
Ég er líklega undarlega þenkjandi, en þessar fréttir komu mér nákvæmlega ekkert á óvart. Þar sem ég er vel kunnug íslenskri tungu og orðaforða hennar koma mér ýmis orð í hug - en ég er líka afskaplega kurteis og sleppi því að þylja þau. En nú vil ég fá að vita hvort fleiri flokkar fengu slíkar greiðslur - korteri fyrir bann.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (23)
7.4.2009
Hvað kemur þeim stjórnarskráin við?
Karlanefndin um stjórnarskrána sem skipuð var í mars sl. leitaði eftir umsögnum eins og nefndir Alþingis gera gjarnan. Það sem vekur sérstaka athygli við listann yfir þá sem leitað var umsagna hjá er að þar eru nokkur erlend álfyrirtæki. Hanna St. Þorleifsdóttir vakti athygli á þessu í athugasemd við þessa bloggfærslu mína. Hvað í ósköpunum kemur erlendum álrisum stjórnarskrá Íslendinga við þótt þeir séu hér með þrjú útibú? Hvað gekk nefndinni til?
Ætli sjálfstæðismenn séu búnir að tuða um þetta mál í yfirstandandi maraþonatkvæðaveiðum á þinginu? Ef ekki lægi mikið við myndi ég líklega óska þess að þeir héldu svona áfram. Maður sér næstum með eigin augum atkvæðin hrynja af þeim frá klukkutíma til klukkutíma - og þeir skammast sín ekkert fyrir að tefja áríðandi þjóðþrifamál og fara svona með þjóð sína og gegn eindregnum vilja hennar. Svo ætlast þeir til þess að við berum virðingu fyrir þeim og kjósum þá jafnvel. Ja, svei!
Það er deginum ljósara að sjálfstæðismenn vilja ekki að auðlindir okkar séu í þjóðareign. Enda kom greinilega fram á landsfundi þeirra nýverið í hverra eigu þeir telja fiskinn í sjónum vera eins og sjá má og heyra hér. Þeim til varnar má svosem minna á að þröngsýni þeirra er slík að þeir telja Flokkinn vera þjóðina - sjá hér. Og maðurinn sem uppgötvaði fé án hirðis og einkavæddi það með hörmulegum afleiðingum er ekki líklegur til að láta þar við sitja. Hér má heyra um hugmyndir hans, sem hann tjáði í Silfri Egils 5. október sl., um hvað gera má við auðlindir án hirðis.
Áttum okkur strax á því, að merkilegt nokk eru ótalmargir sjálfstæðismenn sama sinnis og þessi ágæti frjálshyggjuauðlindahirðir. Og rétt eins og með aðrar eigur þjóðarinnar sem þeir hafa einkavinavætt, gefið eða selt útvöldum gegn hóflegu gjaldi myndu þeir ekki hika við að losa þjóðina við allar auðlindir án hirðis sem þeir gætu komist yfir.
Viðbót: Smugan minnti mig á þetta viðtal við sjálfstæðismanninn Jón Gunnarsson. Jóni finnst sjálfsagt að afhenda eigendum Krónubréfa (hver á þau bréf?) orkuver og önnur mannvirki á Íslandi. Er það rétt sem fram kemur í fréttinni að núverandi ríkisstjórn sé í samningaviðræðum um þetta í samráði við Seðlabankann og AGS?
Össur Skarphéðinsson, hinn gallharði virkjana- og álverssinni og ráðherra Samfylkingarinnar, hefur greinilega kíkt á Silfur Egils og hlýtt á málflutning þeirra Hudsons og Perkins, ólíkt þingmanninum og sjálfstæðismanninum Jóni Magnússyni sem sagði í þingtuði (já, tuði - þetta eru ekki ræður sem fluttar eru af sjálfstæðismönnum á Alþingi þessa dagana) kl. 19.20 í kvöld: "Silfur Egils horfði ég nú ekki á. Hafði nú annað og merkara við tímann að gera heldur en að hlusta á þann innihaldsrýra sleggjudómaþátt eins og hann hefur þróast í vetur undir forystu þess stjórnanda". Jón Magnússon hlustar semsagt hvorki á almenning né sérfræðinga - fólkið í landinu sem hefur verið á gestalista Silfursins í vetur. Gott að vita það, einkum fyrir þá sem hugðust kjósa nýja flokkinn hans. Hann hefur þá ekkert lært í vetur af öllu því fróða, eldklára fólki sem við hin höfum borið gæfu til að horfa og hlusta á, þökk sé "þeim stjórnanda".
En Össur virðist hafa kíkt á Silfrið og fer mikinn á bloggsíðu sinni í dag. Þar ber virkjana- og álverssinninn sér á brjóst og segist hafa barið í gegn Orkulög. Þau lög geri það að verkum að orð Hudsons og Perkins um að íslenska þjóðin geti misst orkuauðlindir sínar í gin erlendra auðhringa séu dauð og ómerk. Það geti aldrei gerst, þökk sé Össuri. Þeim sama Össuri og reynir nú með fulltingi gamla samstarfsflokksins, Sjálfstæðiflokks, að berja í gegn lög um fjárfestingarsamning við Century Aluminium auðhringinn um ýmiss konar hlunnindi, skattaafslátt, fríar mengunarheimildir (og gjafverð á rafmagni?), bara ef álrisinn vill reisa risaálver í Helguvík sem þurreys allar orkuauðlindir suðvesturhornsins og dælir eitri yfir íbúa þessa þéttbýlasta svæðis landsins. Sumir flokka nefnilega rányrkju og eiturmengun sem "skynsamlega nýtingu auðlinda".
Það sem Össur virðist ekki skilja er að þau öfl sem þeir Hudson og Perkins tala um svífast einskis. Þau staldra ekki við í dyrunum, hringja bjöllunni og spyrja kurteislega hvort þau megi koma inn. Hvort það séu nokkur lög í landinu sem hindri þau í að gera það sem þau ætla sér. Nei, þau vaða inn á skítugum skónum, segja okkur skulda þeim stórfé (þau eru hirðirinn) og nú sé komið að skuldadögum. Auðlindirnar eða lífið. Engin orkulög sem barin eru í gegn um örþingið á Íslandi fá nokkru um það breytt.
Enda lútum við nú þegar svo lágt að biðja erlenda álversauðhringa um álit á breytingum á íslensku stjórnarskránni. Hvort við megum náðarsamlegast hnika til ákvæðum um eignarhald á auðlindunum þannig að við eigum þær sjálf - eða hlut í þeim. Aumt.
Ég trúi miklu frekar þeim Hudson og Perkins en Össuri Skarphéðinssyni í þessum málum. Þeir eru fagmenn og reynsluboltar. Össur er doktor í kynlífi fiska. Síðast þegar erlendir sérfræðingar reyndu að vara okkur við var ekki hlustað og viðvaranir þeirra skotnar í kaf af íslenskum ráðamönnum. Við megum ekki gera sömu mistökin aftur. Hlustum á þá og tökum mark á þeim.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (35)
6.4.2009
Ærandi þögn
Ég réðst glaðbeitt á prentmiðlana í morgun og bjóst við safaríkri umfjöllun í Fréttablaðinu eða Mogganum um Michael Hudson og John Perkins. Ekki átti ég von á löngum viðtölum, þau þarfnast meiri tíma og úrvinnslu. En í ljósi þess hvað mennirnir sögðu í Silfrinu í gær bjóst ég við einhverjum viðbrögðum. Að ráðamenn þjóðarinnar væru spurðir út í fullyrðingar þeirra - eitthvað. Af nógu var að taka. Ég sá enga umfjöllun á vefmiðlunum eftir þáttinn í gær, nema RÚV. Svo sá ég að Rakel og Birgitta höfðu skannað vefmiðlana eins og þær segja frá á bloggum sínum.
En ég varð fyrir miklum vonbrigðum með Fréttablaðið og Moggann (DV kemur ekki út á mánudögum).
Þar með var sú umfjöllun upptalin. Þunnur þrettándinn þar. Hvort það eiga eftir að koma viðtöl við Hudson og Perkins í þessum blöðum veit ég ekki, en ég ætla rétt að vona það. Orð þeirra í Silfrinu voru gríðarlega alvarleg og framtíðarsýnin skelfileg ef rétt reynist.
Ég hef tekið eftir því, að það er allt annar hópur fólks sem les blöðin annars vegar og netmiðla og blogg hins vegar. Það sem birtist í prentmiðlum nær ekki til nethópsins og öfugt. Svo er upp og ofan hver horfir á fréttir og fréttatengda þætti - og Silfrið. Sigurveig Eysteinsdóttir skrifaði athugasemd við síðustu færslu mína sem hljóðaði efnislega svona: Áhugaleysi fólks er mikið. Það kom t.d. kona til mín í heimsókn í kvöld. Hún vissi ekki hvað ég var að tala um þegar ég nefndi efnahagsástandið, Davíð og Landsfundinn. Vissi ekki hvað G20 var og svona mætti lengi telja. Þessi manneskja er ekki vitlaus, gáfuð ef eitthvað er. Hún horfir bara ekki á fréttir eða fréttatengda þætti. Það sem skelfir mig mest er að svo fer þetta fólk í kjörklefann eftir nokkra daga og kýs af gömlum vana.
Eins skelfilega og þetta hljómar á það á við stóran hóp Íslendinga. Allt of margir fylgjast ekki með einu eða neinu, hvernig svo sem það er hægt, og hafa ekki hugmynd um hvað er að gerast í þjóðfélaginu. Hvað sem við hin reynum að upplýsa, benda á og ræða hlutina er stór (?) hluti þjóðarinnar steinsofandi og flýtur þannig að feigðarósi. Við verðum að taka höndum saman og reyna að ná til þessa fólks. Gera því grein fyrir hverjir eru að gera hvað og hvaða flokkar vilja selja okkur í hendur erlendum auðhringum og fjárglæframönnum. Þetta er grafalvarlegt mál og ef við ekki bregðumst við strax getur það orðið um seinan.
Að lokum - mest lesna efnið á DV rétt fyrir hádegi í dag:
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (23)
5.4.2009
Sjokkerandi Silfur
Ætli stór hluti áhorfenda Silfursins þurfi ekki áfallahjálp núna. Það kæmi mér ekki á óvart. Reyndar kom fátt fram sem ekki hefur verið sagt áður af ýmsum Íslendingum, bæði á netinu og annars staðar. Ég nefni t.d. Jón Steinar á blogginu sínu og fleiri og fleiri. Og hægt hefur verið að horfa á myndir eins og Zeitgeist og ýmis myndbrot á YouTube um alls konar svona mál víða um heim.
En að fá þessa menn í sjónvarpssal hjá RÚV - í Reykjavík - að tala beint við okkur Íslendinga um okkar eigin mál og framtíð okkar er einhvern veginn beinskeyttara, persónulegra og áhrifaríkara. Finnst mér. Ég er eiginlega í hálfgerðu sjokki og á eftir að melta þetta allt saman miklu betur. Þetta er ekki áróður, heldur blákaldur veruleiki. Látið engan reyna að telja ykkur trú um neitt annað.
Hugurinn er á fleygiferð, orð og gerðir stjórnmálamanna skoðast í nýju ljósi og verður að meta á nýjan hátt ef marka má það sem Michael Hudson og John Perkins sögðu. Tökum samning Össurar Skarphéðinssonar við Century Aluminium um álverið í Helguvík sem dæmi. Er Össur að selja okkur í hendur erlendra auðhringa - eða réttara sagt að gera vonda stöðu enn verri? Ég var sannfærð um það fyrir og er enn sannfærðari nú. Verður litið á slíka samninga sem landráð héðan í frá? Ég ætla rétt að vona það. Skoðið minnihlutaálit Iðnaðarnefndar þingsins frá í gær.
Ég er líka enn meira hugsi en venjulega yfir stefnu og stjórnsýslu Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Þessir flokkar vilja einkavæða, selja grunnstoðir þjóðfélagsins, virkja og reisa álver um allt land. Miðað við það sem kom fram í Silfrinu eru þeir ólígarkaflokkar og þingmaður staðfesti meint eignarhald auðlinda sjávar í frægri ræðu á landsfundi um síðustu helgi. Auðlindum sjávar var stolið frá þjóðinni fyrir mörgum árum. Nú höfum við möguleika á að eignast hana aftur og eigum hiklaust að gera það. Nýta hana í þágu okkar allra, ekki bara fárra auðmanna.
Samfylkingin setti upp grímu Fagra Íslands fyrir kosningarnar 2007 en kastaði henni fljótt og vill virkja og fórna auðlindum okkar fyrir gróða erlendra auðmanna. Þó veit ég að í þeim flokki eru einlægir náttúruverndarsinnar og skynsemisraddir eins og Mörður, Dofri, Þórunn og nú Ómar Ragnarsson. Orkuauðlindir okkar eru ómetanlegur fjársjóður sem við eigum að nýta í þágu lands og þjóðar, ekki erlendra auðhringa.
Það eru að koma kosningar. Lokaorð Johns Perkins voru þau að þegar upp er staðið erum það við sjálf sem ráðum hvað verður um okkur, almenningur í landinu, kjósendur. Við fáum það sem við kjósum yfir okkur - og engum ætti lengur að dyljast fyrir hvað íslenskir stjórnmálaflokkar standa í raun. Við vitum það að fenginni afar dýrkeyptri reynslu.
Michael Hudson - með íslenskum texta
John Perkins - með íslenskum texta
Draumalandið - kynningarmyndband
Vettvangur dagsins 1 - Agnes Braga og Kristinn Hrafnsson
Vettvangur dagsins 2 - Jón Helgi Egilsson og Ketill orkubolti Sigurjónsson
Viðbót: Michael Hudson og John Perkins í kvöldfréttum RÚV 5.4.09
Stjórnmál og samfélag | Breytt 6.4.2009 kl. 13:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (72)
Ég veit ekki hverjir aðrir verða í Silfrinu á morgun, en ég hlakka til að heyra i þessum tveimur.
Rætt er við Perkins í mynd Andra Snæs og Þorfinns Guðnasonar, Draumalandinu, sem frumsýnd verður á þriðjudaginn. Hann tekur einnig þátt í málþingi í Háskóla Íslands á mánudag, sjá hér.
Michael Hudson - sjá einnig þessa grein
3.4.2009
Leikhús fáránleikans
2.4.2009
Hvað er í gangi?
Getur einhver útskýrt fyrir mér hvað þetta á að þýða? Hvers vegna FME reynir að hindra upplýsingagjöf til almennings. Þetta eru upplýsingar um hvernig farið var með peningana OKKAR - hvernig VIÐ vorum svikin og blekkt. Loksins þegar Fjármálaeftirlitið gerir eitthvað þá ræðst það á fjölmiðlamenn sem upplýsa það, sem eftirlitið átti að vera búið að taka á fyrir löngu! Er FME með þessu að þrýsta á stjórnvöld að afnema bankaleynd eða er pólitík á bak við þetta í þeim tilgangi að vernda einhverja? Skilur þetta einhver? Ég geri það ekki. Það er eitthvað öfugsnúið við þetta.
Morgunblaðið í dag - Sjá grein Agnesar hér og hér og Þorbjörns hér
Eyjan í dag - Sjá blogg Egils Helgasonar
Fréttir Stöðvar 2 í kvöld
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (23)
2.4.2009
"Stjórnmálin líða fyrir valdhroka"
Fjölmiðlarnir skipta gríðarlega miklu máli. "Einn djúpstæðasti vandi íslensks lýðræðissamfélags eru fjölmiðlarnir," sagði Vilhjálmur Árnason, heimspekingur og prófessor við Háskóla Íslands. Þetta eru stór orð, en Vilhjálmur skýrir þau og rökstyður prýðilega í viðtali sem Bergljót Baldursdóttir tók við hann og sýnt er á kosningavef RÚV sem vert er að vekja athygli á. Þar kennir nú þegar ýmissa grasa sem fólk ætti að kynna sér og fylgjast svo með.
Bergljót spyr líka í upphafi hvort ekki þurfi eitthvað mikið meira en kosningar til að breytingar eigi sér stað á Íslandi. Góð spurning - og mitt svar er tvímælalaust jú. Það þarf hugarfarsbyltingu, siðferðisbyltingu, miklar atferlisbreytingar hjá almenningi, þingmönnum, í stjórnsýslunni... ja, bara um allt þjóðfélagið. Það þarf líka miklu meiri samlíðun með náunganum, tillitssemi og viðurkenningu á því, að við búum hér öll saman og rassinn á manni sjálfum er enginn gullrass sem sjálfsagt er að hlaða undir á kostnað annarra. Við myndum samfélag sem þarf nú að endurskoða gildismat sitt frá grunni. Og við þurfum margfalt meira aðhald - ekki síst af hendi fjölmiðla.
Í fyrsta bloggi sínu á kosningavefnum segir Óðinn Jónsson, fréttastjóri RÚV, að fréttamenn séu hliðverðir lýðræðisins, hversu flókið, þvælið, tafsamt og þreytandi sem það geti verið. Vonandi bera þeir allir gæfu til að standa sig í þessu Lykla-Péturshlutverki, á hvaða miðli sem þeir starfa. Við hin, sem á þá horfum og hlustum, gerum miklar kröfur til þeirra og reynum að vera sanngjörn. En mig grunar að viðhorf fólks almennt sé margfalt gagnrýnna nú en nokkru sinni áður. Það er gott.
Ég mæli eindregið með þessu viðtali Bergljótar við Vilhjálm Árnason.
Vilhjálmur var líka í Silfrinu 9. nóvember sl.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
31.3.2009
Ólíkt hafast þeir að
Eignarhald fjölmiðla hefur verið mikið rætt og áhrif þess eignarhalds á umfjöllunarefni í miðlunum. Eins og ástandið er í þjóðfélaginu þurfum við bráðnauðsynlega á góðum, heiðarlegum fjölmiðlum að halda sem fjalla á gagnrýninn hátt um það sem aflaga hefur farið, fletta ofan af misgjörðum, svikum, falsi og öllu því sem átti þátt í efnahagshruninu. Mogginn hefur staðið sig ótrúlega vel, sem og ýmsir netmiðlar eins og Smugan og Eyjan. Fréttablaðið/Vísir.is á líka góða spretti og DV hefur verið að gera marga mjög góða hluti. RÚV er svo alveg sérkapítuli og stendur sig einna best í ljósvakafréttamiðluninni með fjölbreytta þætti í útvarpi og sjónvarpi. En ég hef þó á tilfinningunni að sameining fréttastofa útvarps og sjónvarps eigi eftir að slípast betur. Og þótt vefur RÚV hafi lagast mjög vantar mikið upp á að hann sé eins og ég vil hafa hann a.m.k.
Við eigum ógrynni af frábærum blaða- og fréttamönnum sem nú gætu notið sín sem aldrei fyrr ef þeim væru skapaða aðstæður til að vinna og rannsaka mál ofan í kjölinn. Fjöldi reyndra og góðra blaða- og fréttamanna hefur fengið reisupassann á meðan haldið er í ung, óreynd, ótalandi og óskrifandi ungmenni sem varla geta flutt fréttir af öðru en hneykslismálum um Britney Spears, kynsjúkdóm kærasta Parísar Hilton eða afturenda Kirstie Alley. Þetta er nokkuð sem ég skil ekki. Má ég heldur biðja um alvörufréttamenn sem flytja alvörufréttir.
Við höfum tvær sjónvarpsstöðvar, hvora með sinni fréttastofunni og um hálftíma löngum fréttatengdum þætti á eftir fréttum. Sú var tíðin að maður varð var við samkeppni milli Kastljóss og Íslands í dag og jafnvel milli fréttastofanna en sú samkeppni virðist vera - ef ekki dauð þá í dauðateygjunum. Heyrst hefur jafnvel að til standi að leggja fréttastofu Stöðvar 2 niður. Hvort það er af sparnaðarástæðum eða vegna þess að einhverjir stjórarnir haldi að "fólk hafi ekki áhuga" á slíkum óþarfa sem fréttum veit ég ekki.
Ótalin er litla sjónvarpsfréttastofan hjá Mogganum - Mbl-Sjónvarp - þar sem Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, Magnús Bergmann og fleiri vinna vinnuna sína og það frábærlega vel. Ef fréttastofa Stöðvar 2 leggur upp laupana, sem vonandi verður aldrei, mætti stórefla Mbl-Sjónvarp í staðinn.
En tökum dæmi frá í kvöld með innskotum úr Fréttablaðinu og Mogganum. Hvað var efst á baugi og hvernig eru málin meðhöndluð? Höfum í huga að fjölmiðlar eru mjög skoðanamyndandi og margir fá alla sína heimsmynd úr þeim.
Fréttir RÚV
Fréttablaðið
Kastljós - Ríkisskattstjóri um skattaskjól, lagaumhverfi o.fl. Viðtal við Aðalstein Hákonarson hjá RSK frá í desember er hér og desember-Tíundin hér.
Mbl-Sjónvarp - Steingrímur J. um Samson
Rúsínan í pylsuendanum er Ísland í dag. Á meðan aðrir fjölmiðlar eru með vitræna umræðu og upplýsingar sem skipta máli var Ísland í dag með... Já, notalega Nærmynd af Björgólfi Thor, þeim hinum sama og fjallað er með einum eða öðrum hætti um í hinum fjölmiðlunum - en á gjörólíkum nótum. Áður hafa verið sýndar notalegar Nærmyndir af Róberti Wessman og Ólafi Ólafssyni. Er það þetta sem fólk vill sjá, auðjöfrana sem komu okkur á hausinn gljáfægða, pússaða og mærða af vinum og vandamönnum? Eða er það út af þessu sem enginn horfir á Ísland í dag lengur og þátturinn fær ekkert áhorf? Maður spyr sig...
Stjórnmál og samfélag | Breytt 1.4.2009 kl. 01:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
29.3.2009
Silfur dagsins
Það var engin þreyta í Silfrinu í dag. Og ekki verður næsta Silfur síðra ef marka má gestina sem Egill nefndi í lok þáttar. Það verða John Perkins, sá sem skrifaði bókina Confessions of an economic hitman og bandaríkski hagfræðingurinn Michael Hudson. En hér er Silfur dagsins.
Vettvangur dagsins 1 - Dögg Páls, Svanborg Sigmars, Gunnar Smári og Bjarni Harðar
Vettvangur dagsins 2 - Haraldur L. (umrædd grein hér), Andri Geir og Gunnar Axel
Bandaríski lögmaðurinn Tom Spahn
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)