3.11.2008
Spillingarbælið Ísland
Ég hef aldrei skilið af hverju Ísland mælist svo óspillt hjá Transparency International sem mælir spillingu í stjórnsýslu 180 þjóða heims. Við vorum í 7. sæti síðast yfir MINNSTA spillingu, þar áður í 6. sæti og höfðum þá reyndar hrapað úr því fyrsta. Ég skrifaði um spillingu t.d. hér, hér, hér og hér. Reyndar um lögbrot ráðamanna líka.
Af nógu er að taka þegar spilling er annars vegar í stjórnsýslunni og víðar á Íslandi. Í dag gekk tölvupóstur ljósum logum milli manna og bloggsíður voru undirlagðar af efninu. Staðfest var í kvöldfréttum Ríkisútvarps og beggja sjónvarpsstöðvanna að efni tölvupóstsins ætti við rök að styðjast: Kaupþing hafði afskrifað skuldir valinna starfsmanna, væntanlega skuldir sem þeir höfðu komið sér upp vegna kaupa á hlutabréfum í bankanum. Þetta gerðist rétt fyrir hrun bankanna. Upphæðin er sögð vera um 50 milljarðar, peningar sem við hin þurfum að borga því verðmæti bankans lækkaði auðvitað sem þessu nam. Spilling? Ekki spurning. Lögbrot? Örugglega.
Þúsundir Íslendinga eru með útistandandi lán í bönkunum, fjöldi fólks átti hlutabréf í þeim og hafði jafnvel veðsett eignir til að kaupa þau. Þetta fólk fær væntanlega ekki að afskrifa skuldirnar þótt eignin sé töpuð. Ég er með húsnæðislánið mitt í Kaupþingi og það hefur hækkað um nokkrar milljónir á skömmum tíma þótt það sé í íslenskum krónum en ekki erlendri mynd. Það er um það bil að verða mér ofviða. Ætli ég geti fengið það afskrifað hjá bankanum?
Rannsókn er hafin á starfsemi gömlu bankanna þriggja. Það á að vinna skýrslu um þessa banka og kanna hvort ástæða sé til lögreglurannsóknar á starfsemi þeirra síðustu mánuðina fyrir hrunið. Eins og sést á dæminu hér að ofan er svo sannarlega ástæða til þess. Til starfans valdi Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, Valtý Sigurðsson, ríkissaksóknara og Boga Nilsson, fyrrverandi ríkissaksóknara. Svo "óheppilega" vill hinsvegar til að sonur Valtýs er m.a. forstjóri Exista, aðaleiganda gamla Kaupþings og sonur Boga m.a. forstöðumaður Stoða, stærsta hluthafa gamla Glitnis. Eru þeir Valtýr og Bogi vanhæfir til starfans? Að sjálfsögðu! En þeim finnst það ekki. Spilling? Pottþétt.
Maður gerir vel við vini sína, eða hvað? Hvað er rúm milljón á mánuði á kostnað Reykvíkinga? Það er að minnsta kosti svolítið minna en andvirði 500 milljónanna af peningum Reykvíkinga sem OR samdi um að borga Sveitarfélaginu Ölfusi gegn greiðvikni í skipulags- og byggingamálum vegna virkjana. Spilling? Það er nokkuð ljóst.
Augu heimsins hvíla á okkur. Erlendir fjölmiðlar fylgjast grannt með hvað hér er að gerast og hvernig tekið er á því. Aðgerðarleysi stjórnvalda hefur vakið furðu og þá einkum að enginn hafi verið látinn sæta ábyrgð, ekki einu sinni aðalbankastjóri Seðlabankans sem hæðst er að fyrir vanhæfni um víða veröld. Maðurinn sem gaspraði um Rússalánið og lýsti því yfir að ekkert yrði borgað af erlendum skuldum bankanna. Nú eiga tveir ríkissaksóknarar að rannsaka m.a. syni sína. Hvar í veröldinni myndi þetta vera liðið?
Nafna mín Júlíusdóttir sagði: VÖNDUM OKKUR. Ég tek undir með henni og hvet fólk eindregið til að kíkja á þessa bloggfærslu hjá Bylgju, sem ég sá vísað í hjá Kristjönu, bloggvinkonu. Þvílík sjálfsblekking í gangi þarna! Eða trúðu þeir þessu kannski?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (45)
2.11.2008
Silfur dagsins
Þá er það Silfur dagsins. Gunnar Smári var kaldhæðinn að venju og sumu sem hann sagði var ég sammála, öðru ekki. Ég var aftur á móti ofboðslega hrifin af málflutningi Sigrúnar Elsu og Sveins Valfells. Þegar Sveinn sagði, eins og allir hagfræðingar og sérfræðingar í efnahagsmálum undanfarið, að virkjanir og stóriðja væri alls ekki það sem ætti að fara í nú um stundir sló mitt náttúrhjarta hraðar og Sveinn hitti mig þar í hjartastað - fyrir nú utan allt hitt sem hann sagði. Ég var ekki síður hrifin þegar í ljós kom að Sigrún Elsa átti stóran þátt í að forða orkuauðlindunum okkar frá útrásarbarónunum. Setti hana umsvifalaust á stall.
Næstur var Stefán Ólafsson sem fjallaði um "Finnsku leiðina". Mér finnst, og hefur alltaf fundist, Stefán magnaður. Hann er eldklár, hefur hjartað á réttum stað og þekkingu til að færa rök fyrir hverju einasta orði sem hann lætur út úr sér. Sáuð þið línuritið um skuldir þjóðarbúsins? Ótrúlegt. Egill birti það á blogginu sínu hér. Hlustum á Stefán - alltaf.
Hér brengla ég röðinni og tek Steingrím J. næst. Hann sagði margt sem mér líkaði vel. Kom mér á óvart. Til dæmis þetta: "Okkur er að bera af leið. Við erum að missa þessa hluti út í vitleysu. Það er verið að Ameríkanisera íslenskt samfélag á tvöföldum hraða. Við erum að hverfa frá þeim gildum sem best hafa gefist okkur, sem eru norrænt, samábyrgt velferðarsamfélag." Þetta er alveg hárrétt hjá Steingrími og það fyrsta sem mér dettur í hug er einkavæðing heilbrigðiskerfisins. Svo tek ég að sjálfsögðu undir lokaorðin hans - nema hvað!
Svo eru það hagfræðingarnir tveir, Gylfi Zoega og Jón Daníelsson. Ég legg til að fólk hlusti mjög vandlega á þá. Stoppi, spóli til baka, hlusti aftur og melti það sem þeir eru að segja. Egill minnist á grein sem þeir skrifuðu og var birt í Morgunblaðinu 27. október sl. Ég set hana inn hér fyrir neðan og kannski væri best að lesa hana fyrst og hlusta svo á þá félaga. Ég spurði Jón í dag hvort hann væri fáanlegur til að flytja heim og verða seðlabankastjóri og hann sagði ekki já - en hann sagði heldur ekki nei. Hann sagði aftur á móti ýmislegt annað.
Bloggar | Breytt 3.11.2008 kl. 10:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (48)
2.11.2008
Mótmæli og niðurstaða skoðanakönnunar
Laugardagsmótmælin verða æ fjölmennari, hvað sem talningu lögreglunnar líður, og búast má við að eftir því sem afleiðingar efnahagskreppunnar skella með meiri þunga á fólki fjölgi enn í hópi mótmælenda. Þau fara vonandi bráðum að endurspegla niðurstöður skoðanakönnunarinnar hér að neðan. Baldur McQueen sagði m.a. í athugasemd við síðustu færslu að hver einasta mannvera sem lét sjá sig þarna væri tífalt meira virði fyrir framtíð Íslands en þeir sem heima sátu. Þetta held ég að sé alveg rétt hjá Baldri.
Þeir sem mæta eru þeir, sem eru tilbúnir til að leggja eitthvað á sig til að sjá breytingar. Tilbúnir til að láta hæðast að sér fyrir að mæta, láta kalla sig ónefnum eins og tíðkast hefur að gera á Íslandi af hinum betur megandi - valdaklíkunni sem hugnast ekki að láta hrófla við auði sínum, valdi og yfirstéttarvelmegun. Tilbúnir til að leggja eitthvað af mörkum til samfélagsins. Þeir sem mæta eru þeir, sem gera sér grein fyrir því að alvarlegt mein hefur um árabil, jafnvel áratugaskeið, étið stjórnkerfið innan frá og feysknir innviðir þess eru nú búnir að koma þjóðinni á vonarvöl. Þeir sem mæta á laugardagsfundina er það fólk sem hefur fengið nóg af fáræði, spillingu og skoðanakúgun. Þeir sem mæta eru þeir Íslendingar, sem eru búnir að fá yfir sig nóg af stjórnvöldum og spilltu stjórnkerfi sem svífst einskis, gefur þeim fingurinn og hunsar vilja þeirra ítrekað og blygðunarlaust. Réttlætiskennd þeirra er misboðið. Þeir sem mæta á mótmælafundina ástunda gagnrýna hugsun, vilja ekki láta kúga sig lengur og þeir eru tífalt meira virði fyrir framtíð Íslands en þeir sem heima sitja.
Í Mogganum í dag eru birt úrslit skoðanakönnunar sem Capacent Gallup gerði fyrir blaðið dagana 27. - 29. október. 1.200 manns á aldrinum 18-75 ára voru í úrtakinu, handahófsvaldir úr viðhorfshópi Capacent Gallup og var endanlegt úrtak 1.117 manns. Svarhlutfall var 58,7% eða 656 manns. Hér eru niðurstöðurnar, sumar úrklippurnar þarf að smella á til að fá læsilega stærð:
Spurning: Hvað af eftirtöldu lýsir best líðan þinni eftir að efnahagskreppan skall á?
Spurning: Hvað af eftirtöldum fullyrðingum á best við um atvinnuhorfur þínar á næstunni?
Spurning: Ert þú hlynnt(ur) eða andvíg(ur) því að taka evru upp sem gjaldmiðil á Íslandi í stað íslensku krónunnar?
Spurning: Vilt þú að næstu alþingiskosningar fari fram samkvæmt áætlun árið 2011 eða vilt þú að boðað verði til kosninga fyrir þann tíma?
Spurning: Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa? - En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu? - Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?
Hér má sjá aldursskiptinguna.
Hvert fer fylgi flokkanna frá síðustu kosningum?
Hér er samanburður á síðustu kosningum, Þjóðarpúlsi Gallup sem nær yfir allan október og þessari könnun Morgunblaðsins sem, eins og áður segir, fór fram dagana 27. - 29. október.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (36)
1.11.2008
Fjölmenn mótmæli
Enn taldi lögreglan vitlaust og enn höfðu fjölmiðlar það eftir. Í þessari frétt á mbl.is gerði viðkomandi blaðamaður sig að fífli. Fréttin er sett á vefinn kl. 14.28, en þá var gangan sem fór niður Laugaveginn ekki komin á Austurvöll. Þeir fyrstu voru að ganga inn á Austurvöll um kl. 14.35. Þar biðu heilmargir eftir göngunni og hóparnir sameinuðust. Engu að síður segir í fréttinni að mótmælendur séu "líklega í kringum eitt þúsund" og að fundurinn á Austurvelli standi yfir. Klukkan 14.28 var ennþá rúmur klukkutími þar til Sturla tók til máls þótt blaðamaður segi hann vera byrjaðan.
Svona sögðu sjónvarpsstöðvarnar tvær frá göngunni og fundinum. Þetta var önnur frétt hjá Stöð 2 og fyrsta frétt hjá RÚV.
Hér eru nokkrar myndir teknar af Berglindi Steinsdóttur og Jóhanni Þresti Pálmasyni. Á þeim sést mjög greinilega að þarna er miklu fleira fólk en fjölmiðlar nefndu og höfðu eftir lögreglunni - enn og aftur. Ég kalla eftir sjálfstæðu mati fjölmiðlamanna á fjölda. Þeir kunna örugglega betur að telja en lögreglan.
![]() |
Samfylking með langmest fylgi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (30)
1.11.2008
Viðtal við Hannes Smárason
Þetta viðtal var í Markaðnum á Stöð 2 í morgun.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
1.11.2008
Höfum við eitthvað lært?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
1.11.2008
Mætum á útifundinn á Austurvelli í dag
Fyrir hálfum mánuði skrifaði ég þetta: "Svo horfum við á fréttir í sjónvarpinu og göpum yfir myndum sem sýna fjöldamótmæli í útlöndum þar sem þau þykja sjálfsögð. Myndum sem sýna tugþúsundir borgara þramma um götur og torg með spjöld hrópandi skoðanir sínar og vilja til að beita yfirvöld lýðræðislegum þrýstingi. Við erum ýmist full aðdáunar eða fyrirlitningar en rumskum og rísum upp við dogg þegar í ljós kemur að mótmælin í útlöndum báru árangur. Spyrjum: Af hverju gerum við aldrei neitt svona? Já, af hverju? Af hverju eru Íslendingar svona frábitnir mótmælum en fagna samt þegar einhver gerir eitthvað eins og flutningabílstjórar fyrr á árinu? Ísland á að heita frjálst þjóðfélag þar sem við megum segja skoðun okkar og mótmæla ef á okkur er brotið - en við gerum það ekki. Við kunnum ekki að meta frelsið til að mótmæla en vorkennum þeim þjóðum sem hafa það ekki."
Í dag las ég þessa frétt á Eyjunni. Þetta fólk kann ekki að skammast sín. Á meðan þúsundir eru að missa vinnuna fær forsætisráðherrafrúin, sem áreiðanlega lepur ekki dauðann úr skel og var auk þess formaður nefndar um byggingu "hátæknisjúkrahúss" síðast þegar ég vissi, þessa fínu og virðulegu stöðu. Hvaða laun ætli hún fái fyrir djobbið? Buðust engir betri eða er bara verið að hampa sér og sínum? Þetta er ósvífni. Taktleysi af verstu sort og blaut tuska framan í blæðandi þjóð. En þeim er sama, þau þurfa hvort sem er ekki að axla neina ábyrgð á gjörðum sínum og þessir þjónar þjóðarinnar eru ósnertanlegir og ráða því sjálfir hvort þeir verða reknir eður ei.
Fyrir hálfum mánuði skrifaði ég líka: "Á morgun, laugardag klukkan 15, er boðað til mótmæla á Austurvelli. Fólk er hvatt til að vera þátttakendur, ekki þolendur. Þetta eru ekki flokkspólitísk mótmæli, ekki skotgrafahernaður, ekki kommúnistar, múgur, skríll eða hyski heldur ofurvenjulegt fólk, almenningur á Íslandi að láta skoðun sína í ljós með því að mæta. Að krefjast þess að gert verði hreint í skúmaskotum rotinna innviða stjórnsýslunnar. Að krefjast þess að hagur þjóðarinnar verði tekinn fram yfir flokkshagsmuni og hagsmuni örfárra, útvalinna einstaklinga sem hafa plantað sér í dúnmjúk, vellaunuð hásæti og neita að standa upp. Að krefjast réttlætis í stað ranglætis."
Og í kvöld sá ég þetta á RÚV og Mbl.
Hvernig í ósköpunum er hægt að ætlast til þess að við trúum og treystum fólki sem hagar sér eins og það þurfi aldrei að standa þjóðinni skil á gjörðum sínum, segir ýmist ósatt eða ekki neitt og talar í kross eins og lesa má hér á Eyjunni? Lesið þennan stórfína pistil Marinós G. Njálssonar þar sem hann segir betra lýðræði í Austur-Evrópu en á Íslandi. Sláandi lestur.
Fyrir hálfum mánuði mættu um 2.000 manns til að mótmæla á Austurvelli og svipaður fjöldi á tvo fundi fyrir viku. Þetta er fáheyrð mæting á mótmæli á Íslandi. En lögreglan kann ekki að telja og sá bara 500 og fjölmiðlar höfðu það eftir þrátt fyrir fjölda mynda og myndbanda sem sýndu annað. Í dag, laugardag, verður aftur útifundur á Austurvelli klukkan 15. Á undan fundinum, kl. 14, stendur hópur fólks fyrir mótmælagöngu frá Hlemmi sem endar á fundinum á Austurvelli. Ræðumenn á fundinum verða Pétur Tyrfingsson og Lárus Páll Birgisson. Ávörp flytja Óskar Ástþórsson, Díana Ósk og Ragnhildur G. Guðmundsdóttir.
Ég hvet fólk til að mæta annað hvort í gönguna eða á fundinn - eða bæði í gönguna og á fundinn. Ekki láta andúð ykkar á einhverjum einstaklingum sem hafa haft sig í frammi hindra ykkur í að tjá skoðun ykkar með því að mæta. Það er allt of mikið í húfi til þess. Hörður Torfason, sem stendur fyrir fundinum, er friðarins maður og hvetur til samstöðu. Aldrei er hægt að gera öllum til hæfis eða hindra að einhverjir séu með athafnir sem fólki mislíkar. En það er auðvelt að leiða slíkt hjá sér og sýna samstöðu með því að mæta.
Hér er myndband sem Hjálmtýr V. Heiðdal, kvikmyndagerðarmaður, setti saman eftir mótmælin fyrir hálfum mánuði.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 02:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
31.10.2008
Ljós í myrkrinu
Þegar ég renndi yfir Moggann í gær sá ég ljós í myrkrinu - og það var góð tilfinning.
Þessi óskapnaður, nýjar höfuðstöðvar Glitnis, mun að líkindum ekki rísa á Kirkjusandi.
Og þessir hroðalegu kassar, nýr Landsbanki, munu ekki rísa í gamla miðbænum í Reykjavík.
Góð ábending frá Emil í athugasemd - glerhöllin World Trade Center milli Hafnarstrætis og tónlistarhúss
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (25)
30.10.2008
Hvað þarf til að ofbjóða þjóðinni?
Mig langar að biðja þá sem líta hingað inn að lesa textann hér fyrir neðan, horfa síðan á bæði myndböndin frá upphafi til enda og spyrja sig svo: Er þetta það sem ég vil? Er þetta það stjórnarfar sem þjóðinni er fyrir bestu? Vil ég að hagsmunir stjórnmálaflokka, fámennrar klíku og nokkurra einstaklinga séu alltaf látnir ganga fyrir mínum hagsmunum og mikils meirihluta þjóðarinnar?
Víðsjá heitir frábær útvarpsþáttur á Rás 1 sem er á dagskrá kl. 17 alla virka daga. Þar eru oft beittustu pistlar sem ég heyri þessa dagana. Beittari og kjarnyrtari en nokkuð annað efni í útvarpi mér vitanlega. Ég ætla að vitna í hluta úr pistli sem fluttur var í Víðsjá 23. október sl.:
"En mikið djöfull sem þetta er farið að fara illa í mann, ágætu hlustendur. Myndirnar af sumarhúsunum, vínkjallararnir, snekkjurnar, þyrlurnar... þrjúhundruð milljónir fyrir það eitt að fara á fætur. Eitt er víst. Allir eru búnir að fá nóg af upplýsingum um laun íslensku bankastjóranna, hinar siðlausu upphæðir sem ná upp í rjáfur og ríflega það - og menn þáðu vegna þess að þeir báru ábyrgð. Nú hefur komið upp úr dúrnum að þeir báru aldrei ábyrgð á öðru en rassgatinu á sjálfum sér. En við... við getum ekkert sagt við þessa menn. Þetta voru frjálsir menn á frjálsum markaði.
Annað gegnir um stjórnmálamennina. Við kusum þá, við hleyptum þeim til valda... En við stjórnmálamennina - við hljótum að geta sagt eitthvað við þá. Við ættum að minnsta kosti að geta hvatt til þess að stjórnmálaflokkar sem nú eru með öllu gjaldþrota og draghaltir, að þeir séu nú studdir út af sviðinu. Sannarlega án blóðsúthellinga en samt nokkuð rösklega.
Það snjóar og Ísland er ömurlegt klíkusamfélag. Ég held að Jón Baldvin Hannibalsson hafi talað um það í sjónvarpinu sl. sunnudag. Ísland er Rótarýklúbbur frá helvíti. Gamlir menntskælingar halda hér hópinn betur en mörgæsir. Árás á eina þeirra jafngildir árás á þær allar. Klíkukarlarnir hittast í rúmgóðum einbýlishúsum á kvöldin og grípa í spil. Þeir kunna yfirlitin frá bönkunum utanbókar. Þeir fara fram nafni skynsemi, þeir trúa á heilann, þeir eiga Ísland og hús á nokkrum hæðum...
Þeir töldu okkur trú um að rétt væri að virkja, rétt væri að selja bankana, þeir allra hörðustu vildu selja Ríkisútvarpið. Í seinni tíð hafa þeir lesið söguna um Bjart í Sumarhúsum en lítið af henni lært. "Hvað er heimur? Þetta er heimurinn. Heimurinn, hann er hér. Sumarhús, jörðin mín, það er heimurinn. Og þó þú ætlir þér að gleypa sólina í einhverri augabragðsvitfirringu, af því þú sérð bláa peninga frá Amríku sem auðvitað eru falsaðir eins og allir miklir peningar sem berast upp í hendur einstaklingnum án hans atgerða, þá skaltu sanna það fyrr eða síðar að Sumarhús, það er heimurinn og þá veit ég að þú hugsar til minna orða."
Nú eru gæsirnar bara óvart búnar að setja okkur á hausinn. En bara óbeint því það voru ekki beinlínis þær sem settu okkur á hausinn heldur grínistarnir. Og nú er hlegið að Íslendingum út um allan heim. Það er búið að gefa út yfirlýsingu á alþjóðavettvangi að gæsirnar séu hálfgerð flón sem skilja ekki nútíma hagkerfi. Við hefðum allt eins getað látið hunda stjórna landinu, geitur eða seli. En hvað gera Íslendingar? Já, hvað ætlið þið að gera, Íslendingar? Ætlið þið að bíða og sjá? Athuga hvort innistæðan tekur ekki við sér? Athuga hvort ekki leynist enn örlítið líf í sjóði númer 9? Athuga hvort þetta hafi ekki allt verið örugglega bara nettur gustur að utan - jafnvel bara pínulítið hressandi gustur.
Andri Snær Magnason, rithöfundur, skrifaði fræga bók með undirtitlinum "Sjálfshjálparbók handa hræddri þjóð". Andri hitti naglann á höfuðið og hann er einn af þeim sem á lof skilið fyrir sitt tal á undanförnum árum. Íslendingar eru logandi hræddir. En við hvað eru þeir hræddir? Jú, þeir eru hræddir við mörgæsir. Þeir óttast ekkert meira en þennan kjólfataklædda og sjóðmilda söfnuð sem stendur svo vel saman og af sér alla hríðarbylji. Þeir eru hræddir við mörgæsir.
Ísland er Rótarýklúbbur dauðans og honum er stjórnað af mörgæsum sem halda hópinn og létu sig dreyma um þægilega setustofu með leðursófasetti, koníaksglögg í glasi, málverk af Þingvöllum og stutt í næsta spilastokk og hesthús þar sem hægt er að moka skít. En hvað fengu þær? Þær fengu katastrófu. Þessar gæsir mega alveg halda áfram að standa saman mín vegna ef þær bara standa ekki í stafni á sama tíma..."
Svo mælti Eiríkur Guðmundsson í Víðsjá í einum af sínum kjarnyrtu og beinskeyttu pistlum.
Hvað þarf til að ofbjóða þjóðinni? Hversu langt geta stjórnvöld gengið í hroka sínum og yfirlæti án þess að eitthvað bresti einhvers staðar? "Það er ekki þar með sagt að þetta sé vilji þjóðarinnar," sagði Geir eftir að 90% hennar hafði hafnað Seðlabankastjóra. Hvað er það ANNAÐ en vilji þjóðarinnar? Geir sagði líka: "Mér finnst óviðeigandi að persónugera þann vanda sem við er að fást í þeim einstaklingum sem sitja í stjórn Seðlabankans." Það má ekki kenna neinum um. Það má ekki benda á augljós mistök manna, endalaust klúður og fullkomlega óhæfa stjórnendur - hvað þá að krefjast þess að þeir taki pokann sinn og aðrir hæfari taki við. Hvað má gera? Bíða og sjá til eins og Eiríkur nefnir í pistlinum sínum? Þegja og lúta höfði í þýlyndu þakklæti eins og ég sagði í einhverjum pistli? Hvers konar framkoma er þetta eiginlega hjá þessum klíkubræðrum sem telja sig eiga Ísland með manni og mús og geta ráðskast með okkur að vild? Og þeim finnst það auk þess alveg sjálfsagt!
Ef þið hafið ekki horft á myndbandið í færslunni hér á undan skuluð þið gera það núna - áður en lengra er haldið. En horfið svo á þessi tvö hér fyrir neðan, frá upphafi til enda, og spyrjið ykkur hvort þetta sé það stjórnarfar sem þið viljið og tengið við lýðræði. Lesið svo pistlana hans Péturs Tyrfingssonar. Alla bara, það er öruggast.
Úr fréttum Stöðvar 2 - 29. október 2008
Úr Silfri Egils 9. mars 2008 og Tíufréttum RÚV 10. september 2008
Bloggar | Breytt 31.10.2008 kl. 00:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (53)
29.10.2008
Holdgervingar hrokans
Það er búið að segja svo margt og skrifa enn meira. Ég held að þetta myndband þarfnist ekki frekari skýringa en fólk er auðvitað velkomið að segja skoðun sína í athugasemdum.
Viðbót: Ég fékk ábendingu í tölvupósti frá bloggvinkonu í morgun um þessa tilvitnun í Hannes Hólmstein, stjórnarmann í Seðlabankanum, í Fréttablaðinu í dag. Hér kemur hroki og yfirlæti frjálshyggjupostulans vel í ljós.
Svo ætla ég að bæta þessu myndbandi hér inn. Viðtalið við Geir mun hafa verið í mars á þessu ári.
Athugasemd sem skrifuð var við myndbandið á YouTube vakti athygli mína. Hún hljóðar svona og þarfnast varla þýðingar:
The Icelandic Prime Minister and his ministers of incomptence have bankrupted Iceland and lost hundreds of thousunds of ordinary citizens in the UK, Holland and Belgium their savings.
Why is he still running around as a Prime Minister of Iceland? There must be something wrong with the people of Iceland.
Must be some sort of Mugabe effect that keeps him and his idotic Government in power.
Leigh Hartley
Bloggar | Breytt 5.11.2008 kl. 23:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (56)
28.10.2008
Einar Már leggur sitt af mörkum
Einar Már Guðmundsson, rithöfundur, hefur heldur betur látið frá sér heyra um ástandið í þjóðfélaginu, aðdraganda þess og afleiðingar, og er beinskeyttur með afbrigðum. Hér er grein eftir hann frá 16. október og viðtal við hann í Silfri Egils 19. október. Einar Már flutti ræðu á mótmælafundinum á Austurvelli sl. laugardag kl. 15 og hann var einn ræðumanna á borgarafundinum í Iðnó í gærkvöldi. Svo birtist mögnuð grein eftir hann í Morgunblaðinu í dag. Ég lýsi eftir fleiri kraftmiklum málsvörum almennings af kalíberi Einars Más.
Einar Már á borgarafundinum í Iðnó 27. október 2008 - Mbl Sjónvarp
Frá borgarafundinum - hádegisfréttir Stöðvar 2
Pétur Blöndal er ekki í góðu sambandi við þjóðina ef hann heldur að við teljum nóg að aðeins EINN maður segi af sér!
Grein Einars Más í Morgunblaðinu 28. október 2008
(smellið þar til hún stækkar í læsilega stærð)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
28.10.2008
Dótið frá Bjögga frænda
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
27.10.2008
Björgólfur Thor í Kompási
Hvernig í ósköpunum á maður að skilja þetta? Þarna segir Björgólfur að hægt hefði verið að losna við Icesave-ábyrgðirnar upp á - hvað var það aftur mikið, 450 milljónir punda? - með því að reiða fram 200 milljónir punda í tryggingu! Það er búið að nefna svo margar upphæðir, ýmist í pundum eða krónum, að erfitt er að henda reiður á þeim. Þessi mál verða æ flóknari eftir því sem fleiri tjá sig um þau og ekki nokkur leið að vita hver segir satt og hver ekki. Það verður æ brýnna að fá utanaðkomandi, hlutlausa rannsóknaraðila til að fara ofan í saumana á öllum hliðum þessa skelfilega klúðurs - því þetta lítur út fyrir að vera klúður frá upphafi til enda.
Kompás 27. október 2008 - Björgólfur Thor Björgólfsson
Kastljós 27. október 2008 - Björn Bjarnason og Guðni Ágústsson
Kastljós 27. október 2008 - Upphaf borgarafundar í Iðnó
Þetta sagði Sigurjón fyrrverandi Landsbankastjóri í kvöldfréttum RÚV
Athugasemd Seðlabanka Íslands í dag
Athugasemd vegna ummæla Björgólfs Thors Björgólfssonar
um beiðni Landsbanka Íslands um fyrirgreiðslu Seðlabanka Íslands
Í bréfi til bankastjórnar Seðlabanka Íslands mánudaginn 6. október sl. kynnti bankastjórn Landsbanka Íslands að bankinn þyrfti fyrirgreiðslu að fjárhæð 200 milljónir punda frá Seðlabanka Íslands vegna útstreymis sem orðið hefði í útibúi þeirra í Bretlandi auk 53 milljóna punda láns vegna dótturfélags Landsbankans í Lundúnum. Verulegt útstreymi var úr útibúinu helgina á undan. Í samtölum við forsvarsmenn bankans kom fram að jafnvel þótt umbeðin fjárhæð fengist væri alls ekki víst að hún dygði og líklegt að fjárþörfin gæti á örskömmum tíma hækkað verulega, jafnvel margfaldast. Tilefni beiðninnar í bréfi Landsbankans 6. október var útstreymið af innlánsreikningum. Ekki var minnst á flýtiafgreiðslu breska fjármálaeftirlitsins.
Af framangreindum ástæðum er augljóst að sú fullyrðing Björgólfs Thors Björgólfssonar að 200 milljóna punda fyrirgreiðsla Seðlabanka Íslands hefði leyst allan vanda Landsbanka Íslands á þessum tíma stenst ekki. Eins er frásögn hans af rás atburða röng.
Á þessum dögum virtist enn líklegt að Seðlabankinn yrði að fylgja eftir ákvörðun ríkisstjórnar Íslands um hlutafjárframlag í Glitni að fjárhæð 600 milljónir evra. Einnig hafði verið ákveðið að höfðu samráði við forsætisráðherra að lána Kaupþingi 500 milljónir evra til nokkurra daga í þeim tilgangi að aðstoða þann banka við að mæta kröfum breska fjármálaeftirlitsins og annarra þarlendra stjórnvalda vegna stöðu dótturfyrirtækis þess banka í Lundúnum.
Líkleg framlög Seðlabankans vegna ákvörðunar ríkisstjórnarinnar um Glitni og fyrirgreiðsla við Kaupþing höfðu þá þegar sett miklar byrðar á gjaldeyrisvarasjóð þjóðarinnar og varasamt var að ganga lengra í þeim efnum.
Yfirlýsing Björgólfs Thors eftir athugasemd Seðlabankans
Seðlabanki Íslands sendi síðdegis í dag frá sér athugsemdir vegna ummæla minna í sjónvarpsþætti sem birt voru í gær. Þar segir að í bréfi frá mánudegi 6. október sl. og í samtölum við forsvarsmenn Landsbankans hafi ekki verið minnst á flýtimeðferð breska fjármálaeftirlitsins, FSA. Þetta er ekki rétt. Bankastjórum Seðlabankans var kunnugt um boð breska fjármálaeftirlitsins um flýtimeðferð og geta fleiri staðfest það. Þá var einnig þeim ráðherrum í ríkisstjórn Íslands sem helst hafa unnið að úrlausn vanda íslensku fjármálafyrirtækjanna kunnugt um boð breska eftirlitsins. Allar líkur voru á því að útstreymi fjármuna úr útibúi Landsbankans í London hefði minnkað stórlega við tilkynningu í Englandi um flýtimeðferð FSA og því mun minni líkur á að fjárþörf Landsbankans margfaldaðist eins og Seðlabankinn lætur í veðri vaka í svari sínu.
Þá segir Seðlabanki Íslands að frásögn mín af rás atburða sé röng. Sú fullyrðing er án nokkurs rökstuðnings. Slíkur málflutningur dæmir sig sjálfur.
Einnig kemur á óvart að Seðlabanki Íslands beri fyrir sig búið hafi verið að ákveða í samráði við forsætisráðherra að lána Kaupþingi 500 milljónir evra þegar Landsbankinn fékk synjun Seðlabankans eftir hádegi mánudaginn 6. október. Tilkynning um lán til Kaupþings kom ekki fyrr en síðar þennan dag. Þá kemur einnig á óvart að Seðlabanki hafi um hádegi þennan mánudag reiknað með að ríkið legði 600 milljónir evra í hlutafé í Glitni þegar fáeinum klukkustundum síðar var kynnt á Alþingi frumvarp um neyðarlög sem boðaði þjóðnýtingu bankanna.
Mikilvægasta verkefni íslenska fjármálalífsins um þessar mundir er að efla traust á fjármálastofnunum. Þar ríður mest á að Seðlabanki Íslands fari fyrir öðrum. Svo er ekki þegar hann gerir ekki með neinum hætti viðunandi grein fyrir ákvörðunum sínum heldur svarar með hálfkveðnum vísum og aðdróttunum.
Að ofansögðu má sjá að ég stend við orð mín í sjónvarpsþættinum Kompás.
Björgólfur Thor Björgólfsson
----------------------------------------------------
Eftir þetta áhorf og lestur legg ég til að fólk lesi pistil Péturs Tyrfingssonar - Hringavitleysa
Bloggar | Breytt 28.10.2008 kl. 01:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (23)
Ég efast ekkert um að fjölmargir kannist við lýsinguna í fyrirsögninni, kinki kolli og samsinni því að svona sé stjórnarfarið einmitt hér á landi - og hafi verið mjög lengi. Ekki satt? Einn flokkur hefur ráðið flestu sem hægt er að ráða, fámenn klíka innan hans stjórnar og þar af deilir og drottnar einn maður úr hásæti sínu. Fáræði, valdkúgun og fámenn klíka með tögl og hagldir.
En þessi orð eru tekin úr fyrirsögn greinar í Morgunblaðinu í dag sem fjallar um stjórnarfar í landi sem við, fólkið í "lýðræðisríkinu" Íslandi höfum gagnrýnt mikið og lengi, nefnilega Rússlandi. Þetta er einstaklega kaldhæðnislegt. Smellið til að stækka í læsilega stærð.
Mikið hefur verið rætt og ritað um viðtal Morgunblaðsins við einn af eigendum sínum, Björgólf eldri, sem birtist í gær og var skrifað af einum alharðasta stuðningsmanni áðurnefndar valdaklíku. Blaðið hefur verið gagnrýnt harðlega og því miður heyrist mér að allir blaðamenn hafi verið settir undir sama hatt sem mér finnst ósanngjarnt gagnvart þeim mörgu, ágætu blaðamönnum sem á Morgunblaðinu starfa. Einkum hefur ritstjórinn verið skammaður fyrir að birta viðtalið.
En hver sem skrifaði leiðara dagsins í Mogganum er ekki sammála eigandanum eins og sjá má hér:
Þessi tilvitnun leiðarans í viðtalið fannst mér sérlega skondin:
Ef ég hefði nú tekið húsnæðislán í Landsbankanum sé ég mig alveg í anda setjast niður með þjónustufulltrúanum mínum og rekja úr honum garnirnar um það hvaðan peningarnir sem bankinn ætlaði að lána mér kæmu og hvort það væri ekki rétt að lækka lánið eða hafa það með hærri vöxtum - eða eitthvað - af því gengið væri svo vitlaust skráð. Þegar þjónustufulltrúinn segir mér, ef hann veit það þá, að peningarnir komi frá breskum almenningi sem í góðri trú lagði allt sparifé sitt inn í útibú Landsbankans í Bretlandi, Icesave (sem ég vissi reyndar ekki að væri til fyrr en fyrir 3 vikum) í trausti þess að fá góða vexti þá ofbýður mér - hvað mér á að ofbjóða nákvæmlega veit ég ekki. Kannski að ég sé að fá lánaða peninga hjá breskum almenningi sem fær hærri vexti en ég þarf að borga af láninu? En ég geng auðvitað út, hætti við að kaupa íbúðina eða fer í næsta banka til að athuga hvort kaupin gerist eitthvað öðruvísi á þeirri eyri. Þetta finnst mér mjög sennileg atburðarás. Gerðum við þetta ekki öll þegar við fengum húsnæðislánin okkar?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
26.10.2008
Litið um öxl á spádóma, orð og efndir
Hvað gerðist og hvenær? Vorum við vöruð við eða ekki? Hvað sögðu ráðherrar, þingmenn, bankastjórar og aðrir sem þóttust hafa vit á málunum? En erlendir fjölmiðlar? Munum við það? Ég fór í lagerinn og klippti saman umfjöllun í sjónvarpsfréttum um efnahagsmál fyrstu þrjá mánuði þessa árs. Samantektin einskorðast við það sem ég átti til og þar sem gefið var hressilega í efnahagsumfjöllun í mars, auk þess sem ég átti fleiri fréttatíma úr þeim mánuði, varð ég að klippa mánuðinn í tvennt. Ég einskorða mig við kvöldfréttatíma sjónvarpsstöðvanna og eins og sjá má átti ég fleiri á lager frá Stöð 2 en RÚV þótt það breytist síðar. Það er svo stutt síðan þetta var - en samt svo óralangt. Og þetta er MJÖG fróðleg upprifjun. Það er með ólíkindum að rifja upp hvað sumir höfðu ofboðslega rangt fyrir sér og aðrir ótrúlega rétt fyrir sér.
Það er ekki víst að ég taki fleiri mánuði, þetta er gríðarleg vinna og tímafrek og því miður hef ég ekki þann tíma sem til þarf, enda eykst umfjöllun um efnahagsmál og fréttatímum á lager fjölgar eftir því sem líður á árið.
Ég læt svo fylgja nokkur aukamyndbönd með syrpu Stöðvar 2 um hvort komin væri kreppa, styttri syrpu um skattamál sem og viðtöl við Árna Mathiesen, Björgvin G. Sigurðsson og Eddu Rós Karlsdóttur, en vísað er í viðtölin í fréttatímunum. Góða skemmtun!
Fréttir af efnahagsmálum í janúar 2008
Fréttir af efnahagsmálum í febrúar 2008
Fréttir af efnahagsmálum í mars 2008 - fyrri hluti
Fréttir af efnahagsmálum í mars 2008 - seinni hluti
Umfjöllun Stöðvar 2 um kreppu eða ekki kreppu 5. til 9. mars 2008
Umfjöllun Stöðvar 2 um skattamál 12., 13. og 16. mars 2008
Hádegisviðtal Stöðvar 2 við Árna Mathiesen 29. febrúar 2008
Hádegisviðtal Stöðvar 2 við Björgvin G. Sigurðsson 18. mars 2008
Ísland í dag 18. mars 2008 - Árni Mathiesen
Ísland í dag 18. mars 2008 - Edda Rós Karlsdóttir
Bloggar | Breytt 12.4.2010 kl. 23:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
25.10.2008
Fréttaannáll 2007
Ég er í endurliti þessa stundina og rakst á Fréttaannál Stöðvar 2 fyrir árið 2007 á myndbandalagernum mínum. Ég reyndi að klippa hann til þannig að aðeins íslenska efnið yrði eftir en það sleit í sundur samfelluna í þættinum svo ég set hann allan hér inn. Það kemur mér alltaf jafnmikið á óvart hvað maður er fljótur að gleyma og hvað tímaskynið er undarlegt.
Takið sérstaklega eftir að auðmaðurinn á einkaþyrlunni sem sést í annálnum er sá sem ég nefndi hér og hafði þetta eftir: "Efnahagsumhverfið er þannig að maður er á mörkum þess að geta lifað lífinu..." Fólk gerir mismiklar kröfur, það er ljóst.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
24.10.2008
Árni Darling og Björgvin G.
Enn og aftur stöndum við frammi fyrir spurningunni: Hver segir satt og hver lýgur? Það var fróðlegt að heyra þetta margumrædda ráðherraspjall. Darling áhyggjufullur og ekki gat ég heyrt að svör Árna róuðu hann. Nú þyrfti einhver blaðamaður að rekja garnirnar úr Björgvin og annar (breskur?) úr Darling og bera síðan saman frásagnir af fundinum í september sem Darling vísar í. Hvað sagði Björgvin? Hverju lofaði hann og hverju lofaði hann ekki? Eða lofaði hann kannski engu?
Hér er umfjöllun Kastljóss um símtal Árna og Darling. Textann má líka lesa á Eyjunni.
Fjallað var um málið í tíufréttum RÚV í kvöld.
En mér fannst ekki síður áhugavert viðtalið við Jón Daníelsson sem kom á eftir. Hann pakkar áliti sínu ekki inn í bómull, hvað svo sem fólki finnst um skoðanir hans.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (25)
23.10.2008
Peningar um peninga frá peningum til hvers?
Ég birti þennan bloggpistil fyrir tæpu ári. Endurbirti hann að gefnu tilefni í júlí með örlítilli viðbót. Mér sýnist að pistillinn eigi betur við nú en nokkru sinni og hann hefur verið mér hugleikinn undanfarnar vikur. Allt er þegar þrennt er - þetta er útgáfan frá í júlí. Við þá birtingu fékk ég athugasemd sem ég svaraði með þessum pistli.
_________________________________________
Þetta var yfirskrift pistils sem ég skrifaði 5. desember sl. og fjallaði m.a. um hina yfirgengilegu peningadýrkun í samfélaginu. Hún kemur fram alls staðar - það er varla til neinn þáttur í umhverfinu sem ekki er smitaður af peningadýrkun sem ég vil frekar kalla græðgisvæðingu.
Í framhaldi af myndbandinu í síðasta pistli varð mér hugsað til þess sem ég skrifaði fyrir tæpum 8 mánuðum - fyrir gengisfall, hrun á verð- og hlutabréfamarkaði, svokallaðan samdrátt og krepputal - en eftir a.m.k. eitt stjörnuhrap. Ég ákvað að endurbirta pistilinn og um leið vara við hugtakinu "fjárfestir" og tengdum orðum - hvort sem sá er innlendur eða erlendur. Fjárfestum fylgir alltaf krafan um hámarkshagnað af viðkomandi fjárfestingu og þar eru hagsmunir almennings aldrei hafðir í huga. Svokölluð samkeppni verður fyrr en varir að fákeppni, verð hækkar og þjónusta versnar. Slíkt virðist vera eðli einkavæðingar þrátt fyrir fögur fyrirheit einkavæðingarsinna um annað.
Í þessu sambandi bendi ég á athugasemdir nr. 1 og 11 við síðasta pistil eftir þá Sævar og Bjarna. Ef þetta er satt sem þeir segja voru óprúttnir menn ansi nálægt því að selja og einkavæða orkuauðlindir okkar. Hrollvekjandi tilhugsun. Verum á verði, vörumst spillta stjórnmálamenn og gráðuga, samviskulausa eiginhagsmunaseggi. Eins og Ásgeir segir í athugasemd nr. 8 við áðurnefndan pistil er það OKKAR að breyta ástandinu með aðhaldi, þrýstingi og atkvæðum okkar.
_________________________________________________
Peningar um peninga frá peningum til hvers?
Ég hef lengi furðað mig á fréttamati fjölmiðla hvað varðar peninga og auðmenn. Allt annað í lífinu virðist vera hjóm eitt hjá því hver græðir hve mikið og á hverju, hver hlutabréfavísitalan er eða hvað þær nú heita þessar úrvalsauravísitölur, hvað hefur hækkað og hvað lækkað hverju sinni.
Sérstök innslög eða fréttatímaaukar eru um "markaðinn" eins og t.d. hjá Stöð 2 í kringum hádegið - kl. 12:15 í dag var Markaðurinn hádegi og kl. 12:31 var Hádegisviðtal markaðarins. Síðan var Markaðurinn kl. 18:20.
Bankar og aðrar fjármálastofnanir eru með fréttir oft á dag um hvernig peningamarkaðurinn er að gera sig þá stundina og fréttir af hve margar milljónir, milljónatugir eða milljarðar gengu kaupum og sölum þann daginn tröllríða öllum fréttatímum á öllum fjölmiðlum. Það þótti auk þess tilefni í sérstaka frétt þegar viðskiptaþátturinn Í lok dagsféll niður kl. 16:20 þann 3. des. sl. eins og sjá má hér.
Í gærkvöldi var fyrsta frétt í sjónvarpsfréttum Ríkissjónvarpsins mannaskipti auðmanna hjá FL Group. Það var þriðja frétt í kvöldfréttum Stöðvar 2 og fyrsta frétt í sexfréttum Ríkisútvarpsins.
Menn hverfa frá störfum með tugmilljóna starfslokasamninga, sagt er frá þeim nýjasta hér. Þó var maðurinn sagður með 4 milljónir á mánuði á meðan hann gegndi starfinu og hefði líkast til getað lagt aura til hliðar fyrir mögru árin eins og við hin þurfum að gera.
Á sama tíma les maður þetta... og þetta... og þetta... svo dæmi séu nefnd. Þessar sögur nísta í gegn um merg, bein og hjarta og maður spyr sig hvað þarf til að snerta við réttlætiskennd almennings og fjölmiðlafólks. Af hverju er svona mikið fjallað um auðmennina í fjölmiðlum en svona lítið um fátæktina... um þá sem minna mega sín og þjóðfélagið kemur illa fram við?
Ísland best í heimi... hvað?
Ég hef verið að reyna, ásamt mörgum öðrum, að benda á þá firring u sem á sér stað í virkjanafíkn og stóriðjuæði vissra aðila í þjóðfélaginu og afleiðingar þeirrar skammsýni. Afleiðingarnar snerta hvert einasta mannsbarn á Íslandi í formi loftmengunar, lyktmengunar, eyðileggingar á þeirri dásamlegu náttúru sem við höfum öll hlotið í arf frá forfeðrum okkar og -mæðrum ásamt þenslu, verðbólgu, hækkandi vöxtum, innflutningi tugþúsunda erlendra verkamanna og almennt versnandi lífskjörum. Fáir hlusta og fjölmiðlar sofa á verðinum. Enginn fjölmiðill virðist tilbúinn til að kryfja málið og fjalla um það á vitrænan hátt og í heildstæðu samhengi. Fréttablaðið hefur gert heiðarlegar tilraunir, en þær nægja ekki til að gera svo gríðarlega alvarlegu og yfirgripsmiklu máli nauðsynleg og verðskulduð skil.
Ég minni á að fyrir síðustu alþingiskosningar var eftir því tekið að upp spruttu umhverfisverndarsinnar í öllum flokkum sem mærðu náttúruvernd og lofuðu öllu fögru. Nauðsynlegt er að breyta lögum, að minnsta kosti tvennum, en hver er að sinna því? Enginn á þingi eftir því sem ég best veit.
Árið 2004 kom út merkileg ljóðabók eftir Sigfús Bjartmarsson sem hann kallaði Andræði. Bókin er leikur með orð og Sigfús leikur af mikilli snilld. Bókin skiptist í 11 kafla og hver kafli hefur inngangsljóð. Ég ætla að leyfa mér að birta hér tvö ljóð ásamt inngangsljóðum hvors kafla. Það var erfitt að velja því ljóðin eru hvert öðru betra og beinskeyttara.
5
Svo mælti
maður við annan mann
sem hjá hlutafjármarkaðarins hástökksmethafa
í flokki hörmangarafélaga vann:
Sá skal mæra samkeppnina
sem hana kaupir upp.
Og ljóðið sjálft er svona og ég tileinka það Hannesi Smárasyni og öðrum tugmilljóna-auðmönnum:
Vit er
veraldar
gengi.
Og
gott
er hátt
gengi en
hættar þó
en lágu við
að lækka
lengi.
Jú
vit er
vandmeðfarið
og valt.
Kúlið
getur óðara
orðið svo
kalt.
9
Svo mælti
maður við annan mann
sem hjá innsta aðstoðarkoppi æðstaráðsritara
landseigendaflokksins vann:
Fjórðungi bregður til flokks
en frekar bregður hinum
til hagsmuna
hans.
Ljóðið hljóðar svo - ég tileinka það Alþingi og ríkisstjórn, sem með réttu ættu að fara með stjórnartaumana - og sem lofa öllu fögru fyrir kosningar:
Í upphafi
skal efndirnar
skoða.
Jú
fagurt
galar formaður
sem fögnuðinn vill
fólki sínu
boða.
Og
ljúft er
að leggja svo
með lygasögnum
slag eftir
slag.
Jú
sjaldan
lifir kosningaloforð
kjördag.
Og
marga
mun sverja
eiðana sá
sem alla
svíkja
má.
Jú
enginn
tryggir atkvæðin
eftir á.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
22.10.2008
Geir H. Haarde - drottningarviðtöl ársins
Hann var í Kastljósinu áðan. Ég varð fyrir vonbrigðum með hann og svörin - ef svör skal kalla. Ákveðnastur var hann þegar hann svaraði Sigmari því, að hann ætlaði EKKI að víkja stjórn Seðlabankans frá. Hann er greinilega ekki ennþá farinn að hlusta á erlenda og innlenda sérfræðinga - og fólkið í landinu. Honum hafa heldur ekki borist til eyrna öll ummælin í erlendum blöðum og hjá ýmsum alþjóðastofnunum þar sem þeir Davíð hafa gert sig og þjóðina að athlægi og rúið trausti. Það traust verður ekki endurheimt fyrr en fagfólk tekur við Seðlabankanum. Og hann vék sér undan því að viðurkenna nokkur mistök, líkt og bankastjórarnir undan ábyrgð eins og kom fram í fréttum RÚV í gærkvöldi (sjá myndbandasafn undir "nýjustu myndböndin" vinstra megin á síðunni).
Um daginn fór ég í gegnum gagnasafnið og klippti út þau drottningarviðtöl ársins við Geir sem ég fann og átti á lager. Ef einhver man eftir fleirum má gjarnan benda mér á þau. Athygli vekur hvað sum eru nálægt hvert öðru í tíma. Margir muna að Geir var hvumpinn við fjölmiðlafólk lengi vel. Ég fjallaði um það hér, hér, hér og síðan um sinnaskiptin hér.
Það er fróðlegt að fara í gegnum þetta og hér koma viðtölin í tímaröð:
Silfur Egils 17. febrúar 2008
Mannamál 24. febrúar 2008
Ísland í dag 3. júlí 2008
Silfur Egils 14. september 2008
Mannamál 28. september 2008
Kastljós 29. september 2008
Kastljós 22. október 2008
Bloggar | Breytt 23.10.2008 kl. 01:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
22.10.2008
Lifnaðarhættir landans
Ætli það sé ekki rétt að halda þessu til haga eins og þessu hér.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)