Færsluflokkur: Viðskipti og fjármál
16.8.2009
Ótrúlegur andskoti
Eitt af því sem talið er hafa valdið efnahagshruninu er andvaraleysi almennings á Íslandi. Almenningi til varnar skal rifjað upp að hann var blekktur og dreginn á asnaeyrunum. Aðallega af banka- og stjórnmálamönnum sem og eftirlitsaðilum sem fólk treysti til að vinna vinnuna sína.
En fjölmiðlar spiluðu þar stórt hlutverk. Ég minni á viðtölin við Aidan White, framkvæmdastjóra alþjóðasamtaka blaðamanna, um þátt fjölmiðla í aðdraganda efnahagshrunsins sem sjá má neðst í þessum pistli. Þar segir White m.a.: "Ein aðallexían sem á að koma út úr öllu þessu hræðilega ferli er sú, að fjölmiðlar eiga að tala máli þjóðfélagsins í heild. Þeir eiga að gegna þjóðfélagslegu hlutverki, vernda hagsmuni fólksins."
Því fylgir ábyrgð að reka fjölmiðil - ýmiss konar þjóðfélagsleg ábyrgð. Líka hjá þeim einkareknu. Í vetur hefur mikið verið kallað eftir fleiri fréttaskýringaþáttum í fjölmiðlum. Öflugri rannsóknarblaða- og -fréttamennsku. Fjárskorti er venjulega kennt um vöntun á slíku. Mér var því mjög brugðið þegar ég sá þessa frétt á DV.is í dag.
Ég þekkti ekki þættina sem þarna er vísað í - Wipeout. Leitaði á YouTube og fann t.d. þetta sýnishorn.
Er þetta álit 365 miðla á andlegu atgervi íslensku þjóðarinnar? Hafa þeir rétt fyrir sér? Vill fólk frekar svona sjónvarpsefni en t.d. efni á borð við Kompás eða Ísland í dag eins og sá þáttur var? Um áramótin var Ísland í dag lagt niður sem fréttaskýringaþáttur og léttmetið hefur ráðið þar ríkjum síðan með örfáum undantekningum. Kompási var hent út í janúar. 365 ver gríðarlegum fjárhæðum í enska boltann og annað íþróttaefni. Og samkvæmt frétt DV á nú að senda 120 manna hóp til Suður-Ameríku til að taka upp fíflalæti.
Þetta finnst mér undarlegur skilningur á þjóðfélagslegu hlutverki og ábyrgð fjölmiðla - og furðuleg meðferð á fjármunum.
16.8.2009
Gróðafíknin og hið helga fé
Við þekkjum öll þá réttlætingu að ofurlaunin hafi tíðkast vegna þess að ofurlaunaþegarnir báru svo gríðarlega mikla ábyrgð. Jájá. Við vitum að þetta er kjaftæði. Engir ofurlaunaþegar hafa axlað neina ábyrgð - ennþá. Réttlætið felst meðal annars í að þeir verði látnir axla ábyrgð og það frekar fyrr en síðar.
Lesendur síðunnar vita að ég grúska gjarnan og finn stundum ýmislegt forvitnilegt - að mínu mati. Í þetta sinn fann ég alveg óvart tvær greinar í sama Mogga - frá 11. janúar 2004. Fyrri greinin heitir Um gróðafíkn og er skrifuð af Guðmundi Helga Þórðarsyni, fyrrverandi heilsugæslulækni. Um hann veit ég ekkert. Í greininni fjallar hann um gróðafíkn og veruleikafirringu ofurlaunamannanna sem missa allt jarðsamband í ásókn sinni eftir meiri peningum. Ég tek ofan minn ímyndaða hatt fyrir Guðmundi Helga fyrir greinina. Smellið þar til læsileg stærð fæst.
Seinni greinin er eftir fjárhirðinn Pétur Blöndal og heitir Hið helga fé sparisjóðanna. Mér skilst á mér fróðari mönnum að Pétur hafi leikið stórt hlutverk í þeirri þróun sem leiddi að lokum til falls Byrs, SPRON og fleiri sparisjóða. Greinin gæti verið innlegg í þá umræðu. Ég tek ekki ofan fyrir Pétri Blöndal fyrir greinina þótt ég játi að stöku sinnum finnist mér Pétur tala skynsamlega. En ekki mjög oft. Smellið þar til læsileg stærð fæst.
15.8.2009
Einar Már og ástandið
Eins og allir vita sem fylgst hafa með atburðum síðasta ár hefur Einar Már Guðmundsson verið einn af aðalleikendum andófsins gegn gróðapungum, spillingu og því ástandi sem skapast hefur á Íslandi. Einar Már skrifaði meðal annars greinaflokk í Morgunblaðið í vetur og gaf síðan út bók byggða á greinunum - Hvítu bókina.
Ég er að lesa þessa bók eins og ég nefndi um daginn. Er langt komin með hana. Þetta er fjórða bókin sem ég les um Hrunið mikla. Hinar voru hver annarri fróðlegri og sú Hvíta gefur þeim ekkert eftir. Engu að síður er hún gjörólík þeim og vekur allt annars konar tilfinningar. Enda er Einar Már skáld og rithöfundur, mikill andans maður og hugsjóna, og bókin ber þess merki svo ekki verður um villst. Í fyrsta Morgunvaktarpistlinum minntist ég á hinar þrjár bækurnar og sagði þær skyldulesningu. Hvíta bókin gæti vel orðið mesta skyldulesningin af þeim öllum og ég hvet alla til að lesa hana. Líka þá sem hafa fengið upp í kok af hrunumræðunni. Hún er nefnilega góð fyrir sálina, þrátt fyrir allt. Á meðan við höfum svona þenkjandi áhrifamenn í samfélaginu - þá er von.
Einar Már flutti ræðu á útifundinum á Austurvelli á fimmtudaginn sem InDefence-hópurinn boðaði til að andæfa Icesave-samningnum. Umgjörð þess fundar var gjörólík öllum öðrum sem ég hef mætt á undanfarna 10 mánuði. Ríkmannlegt svið, sérlega vandað hljóðkerfi, skemmtiatriði og um margt annar mannskapur en áður. Þeirra á meðal ýmsir sem sjálfir bera mikla ábyrgð á efnahagshruninu með aðgerðum sínum og/eða aðgerðaleysi. Skoðið myndir Helga J. Haukssonar af fundargestum. Ég hef spurt sjálfa mig hvernig þessum mönnum leið undir þrumuræðu Einars Más - sem hann gaf mér leyfi til að birta. Og bestu þakkir til Helga fyrir að heimila birtingu á myndunum sínum. Hengi að auki neðst í færsluna Spegilsviðtal við Einar Má frá 13. ágúst.
Ræða Einars Más Guðmundssonar á Austurvelli 13. ágúst 2009
Sjálfgerðir fjötrar eru traustastir fjötra. Þannig orti Sigfús Daðason; og sú er staðan nú. Það var tekið veð í þjóðskránni án þess að þjóðin væri spurð og nú eigum við að viðurkenna veðið og játa á okkur glæpinn. Við erum að játa á okkur glæp sem við höfum ekki framið. Leyfið mér að vitna í Evu Joly: "Ísland þar sem eru einungis 320 þúsund íbúar sér nú fram á að þurfa að axla margra milljarða evra skuldabyrgði sem langstærstur hluti þjóðarinnar ber nákvæmlega enga ábyrgð á og ræður alls ekki við að greiða." Já, það er verið að hneppa okkur í ánauð. Icesave samningurinn er fyrsta stigið, skilyrði Alþjóðagjaldeyrissjóðsins er næsta stig og þannig koll af kolli, þar til einhverntíma í framtíðinni, þá fáum við afsökunarbeiðni á þeim mistökum sem verið er að gera núna ... en þá verður það of seint ... Þeir segja að við verðum Kúba norðursins ef við samþykkjum þetta ekki. En ættum við þá ekki að bæta því við: Við verðum Haítí norðursins ef við samþykkjum þetta. Þar var gengið að öllum kröfum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og nú ríkir þar hungursneyð. Á sunnudaginn var páfi að biðja fyrir Argentínumönnum vegna nákvæmlega sömu mála. Prógram Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hefur gert hálfa argentínsku þjóðina að fátæklingum. Þess vegna erum við komin hingað og þessu mótmælum við. Öll. Við eigum að játa á okkur glæp sem við höfum ekki framið. Við eigum að axla byrgðar hins alþjóðlega fjármálakerfis og verða Breiðavíkurdrengir þess. Í rauninni er þessi vandi ekki vandi þjóðarinnar heldur eigenda þessa einkavædda banka sem rakaði til sín fé í gegnum ICESAVE reikningana á sínum tíma. Okkar vandi er sá að stjórnvöld þessa lands og stjórnmálamenn vilja taka þennan vanda af eigendum bankans og færa hann yfir á okkur og ekki síst afkomendur okkar. Þetta getum við ekki samþykkt. Þessu mótmælum við öll.
Við ykkur í þinghúsinu segi ég: Hættið að bulla. Hættið að tala um vinaþjóðir, innistæðutryggingar, alþjóðasamfélag. Alþjóðasamfélagið er samfélag hinna ríku þjóða, innistæðutrygging þýðir þjóðnýting á tapi og vinaþjóðir er fróm ósk og gildir ekki yfirvöld og auðmagn. Svíar eru ekki óvinir okkar en sænska fjármálakerfið fjármagnaði bankakerfi Eystrasaltsríkjanna þegar þau voru markaðsvædd og rænd. Sænskt fjármálalíf horfir því á svipað hrun þessara banka og skilur því málflutning Gordons Brown jafn vel og hann sjálfur, nei ruglið þessu ekki við vináttu, en Gordon Brown er einn helsti hugmyndafræðingur fjármálakerfisins í City og reglur þess eða réttara sagt regluleysi varð leiðarljós hins íslenska fjármálakerfis. Í þessu samhengi skipta öll ykkar lögfræðiálit engu máli né heldur hvað mennirnir í samninganefndunum heita. Það ríkir fjármálastríð í heiminum þar sem úrsérgengið kerfi reynir að ræsa vélarnar og á því verkstæði moka stjórnvöld okkar kolum einsog óð væru. Einn vitrasti hagfræðingur heims segir: "Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn er nokkurs konar handrukkari alþjóðlegra lánardrottna og innheimtir tekjur ... fyrir þá. Það ótrúlega er að þjóðir um allan heim eru að glata efnahagslegu og peningalegu sjálfstæði sínu án mótspyrnu." Er það ekki nákvæmlega þetta sem við erum að gera með samþykkt ICESAVE-samningsins: Við erum að láta hneppa okkur í skuldafangelsi án minnstu mótspyrnu. Það er verið að gera okkur ábyrg fyrir fullkomlega ábyrgðarlausu fjármálakerfi, en áður var okkur sagt hið gagnstæða. Eigendur bankanna báru svo mikla ábyrgð. Þess vegna þurftu þeir himinhá laun og kaupauka. Sem sé; gróðinn skal einkavæddur en tapið þjóðnýtt. Ef við samþykkjum þetta er hægt að láta okkur samþykkja hvað sem er. Jafnvel í undirheimunum þætti þetta ókurteisi.
Það breytir í raun engu hvort ICESAVE - samningurinn er vondur eða góður. Hann er í eðli sínu rangur. Ríkisstjórnin verður að sýna okkur hverjar þessar eignir eru. Þetta erum við búin að segja lengi en nú kemur bandarískur bankasérfræðingur og segir nákvæmlega það sama. Bandaríski sérfræðingurinn veit einsog við að þegar lið kaupir knattspyrnumann vita forráðamenn þess hvernig hann er á sig kominn. Þeir undirrita ekki bara kaupsamning og síðan birtist feitasti maður í heimi og getur hvorki hlaupið né sparkað. Jafn misvísandi eru fregnirnar um eignir Landsbankans. Annars hefðu Bretar bara tekið þær en þeir vilja ekki taka þær. Þeir vilja taka okkur. Það eru svo góð veð í okkur. Þetta er bara hreint og klárt kennitöluflakk. Eigendur og stjórnendur Landsbankans eru með fullt af fyrirtækjum í rekstri og alls konar gjörninga í gangi. Þeir hafa valdið svo miklu tjóni með þessu fyrirtæki sínu að það á að ganga á önnur fyrirtæki þeirra og eigur. Það hefur enginn rétt á að setja þjóð á hausinn með þessum hætti. Og þjóð sem lætur setja sig á hausinn með þessum hætti, hver verða eftirmæli hennar? Peningarnir af ICESAVE reikningunum runnu til útrásarvíkinganna og fyrirtækja þeirra. Baugsfyrirtækin skulda hundruð milljarða. Eignir eru færðar yfir á önnur fyrirtæki en skuldir skildar eftir. Og aldrei skortir þá lögfræðiátlitin. Eigum við að láta þá komast upp með þetta? Eða eigum við að kenna þeim að reikna og setja jafnaðarmerkið á réttan stað? Bara arðgreiðslurnar úr loftbólufyrirtækjunum sem nú hvíla á ríkinu voru jafn háar og ICESAVE skuldbindingar ríkissjóðs og sömuleiðis ágóði íslenskra auðmanna af skortstöðutökum gegn íslensku krónunni. Ríkisstjórnin stendur sig illa í að kynna málstað okkar, enda er hún með allt kerfi gömlu stjórnarinnar í vinnu. Og hvar er forsetinn með öll sín sambönd? Eða þekkir hann bara auðjöfra og fjárglæframenn?
Við hljótum að spyrja: Þegar upp er staðið, hvað er það sem skilað hefur þjóðfélagi okkar árangri? Það er ekki hin sjálfumglaða fáviska sem aðeins hefur tekið út úr þjóðfélaginu en ekki skilað neinu til þess. Það er barátta alþýðunnar, sem skilað hefur okkur árangri. Það var baráttan á síðustu öld sem skilaði okkur öflugu velferðarkerfi, skólakerfi, heilbrigðiskerfi, símalínum, sundlaugum, lífeyrissjóðum og þannig mætti lengi telja. Hið svokallaða góðæri fólst í því að afrakstur stéttabaráttunnar, sameign fólksins var einkavædd og gerð að söluvöru. Það sem áður var sameign fólksins, fiskurinn, síminn og bankarnir, svo dæmi séu tekin, var færð til einkaaðila á silfurfati og henni sólundað. Góðærið fólst í því að svokallað dautt fjármagn", það er að segja þessi sameign fólksins, var sett af stað. Umferð þessa fjármagns skapaði veltu í samfélaginu, góðæri, en nú er þeirri umferð lokið. Það má eiginlega segja að það hafi orðið umferðarslys. Fjármagni fólksins hefur verið eytt i einskisnýtt drasl, glerhallir og partí og fátt er eftir til að selja. Þótt stór hluti góðærisins væri hagbóla, byggð á draumórum, þá má ekki gleyma því að undirstaða þess voru raunverulegar eignir fólksins: Fiskurinn, lífeyrissjóðirnir og ríkisfyrirtækin. Lífeyrissjóðir hafa verið mergsognir með aðstoð gjörspilltra stjórna og einkavæðing bankanna gerði auðmönnum kleift að skuldsetja fyrirtæki og félög og greiða sjálfum sér arð án þess að nokkur verðamætasköpun ætti sér stað. Sameign fólksins, hinu dauða fjármagni", var sóað. Það er okkar hlutverk að endurheimta það. Við þurfum að byggja upp nýtt hagkerfi þar sem þjóðin á auðlindirnar og það sem henni ber samkvæmt stjórnarskrá: nýtingarrétt á náttúruauðlindum og aflaheimildum í sjó. Við þurfum að brjótast gegn bölvun spillingar og því segi ég:
Þú sem býrð með eyju í hjartanu
og víðáttur geimsins
stétt undir iljunum:
Réttu mér norðurljósin!
Ég ætla að dansa við unglinginn
sem heldur á stjörnunum.
Við roðflettum myrkrið
og afhausum eymdina.
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 23:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
13.8.2009
Forsætisráðherra í Financial Times
Undir kvöld birtist grein eftir Jóhönnu Sigurðardóttur í netútgáfu Financial Times. Ég stelst til að birta hana hér í von um að þeir hjá FT sýni því skilning.
12.8.2009
Hver stjórnar Íslandi?
Stundum verð ég svo reið að ég tek meðvitaða ákvörðun um að halda mér saman þar til mér rennur reiðin. En nú tókst það ekki. Ég hef nokkrum sinnum nefnt embættismannakerfið og stjórnsýsluna, síðast hér. Kallaði kerfið fimmta valdið í þessum pistli og held að það sé réttnefni. Sagt er að það sé handónýtt apparat, gjörspillt og þar ríki klíkuskapur og eiginhagsmunagæsla. Sem ég sit hér og horfi og hlusta á Kastljósið fæ ég hroll og mér verður æ ljósara að þau eru mörg, ríkin í ríkinu. Þau eru líka æði skuggaleg og hafa á sér sterkan blæ leyniklúbba þar sem klíkubræður hygla sér og sínum. Og ég spyr: Hver stjórnar Íslandi? Margir fullyrða að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn stjórni hér öllu. En ég fæ ekki betur séð en að skilanefndir bankanna, sem sýsla með aleigu og fjöregg þjóðarinnar, séu forhertasta valdið og fari sínu fram hvað sem hver segir. Ætlar enginn að taka í taumana? Hefur enginn kjark til að fylgja eftir loforðum um opna stjórnsýslu, gagnsæi og heiðarleika?
Frétt á Eyjunni 12. ágúst 2009 - tilvísun í Vísi.is
Fyrirspurnin og svar ráðherra á Alþingi í dag
Þessi frétt birtist á Eyjunni í gær
Gunnar Andersen, forstjóri FME kom í Kastljósviðtal í gærkvöldi og var ekki sammála okkur hinum um, að skilanefndirnar væru að lítilsvirða ákvarðanir FME. Gunnar virtist ekkert hafa við vinnubrögð skilanefndanna að athuga. Ég næ því ekki. Það er ekki traustvekjandi að þeir sem hafa með uppgjör bankanna að gera séu tengdir og skyldir bæði inn í gömlu bankanna og fyrirtæki útrásardólga.
Gunnar Andersen, forstjóri FME, í Kastljósi 11. ágúst 2009
Rætt var við Pál Eyjólfsson, stærðfræðing og fyrrverandi starfsmann Landsbankans í Lúxemborg í Íslandi í dag 14. júlí. Páll var myrkur í máli og sagði m.a.: "Mér finnst eins og þeir hafi ákveðið að setja þetta í þrot og reyna að hirða eins mikinn pening úr þessu og þeir gátu með að skrifa tíma og taka ráðgjafaþóknanir." Þetta skyldi þó aldrei eiga við skilanefndir bankanna á Íslandi líka? Nóg hafa þær kostað þjóðina og þóknanir nefndarmanna ekkert slor. Feitur biti handa vinum, vandamönnum, klíkubræðrum og hvað... flokkssystkinum? Hvaða stjórnmálaflokkum tengist þetta fólk. Þetta angar allt af sukki og spillingu sem við vonuðum að heyrði fortíðinni til en virðist ekki hafa farið langt.
Ísland í dag 14. júlí 2009 - Páll Eyjólfsson
Í Kastljósi í kvöld tók Helgi Seljan saman fróðlegar upplýsingar um skilanefndir bankanna og fólkið í þeim - fyrri störf, tengsl og sitthvað í þeim dúr. Þetta er hrollvekjandi. Bendi einnig á skrif Ólafs Arnarsonar á Pressunni, hann hefur fjallað talsvert um skilanefndirnar.
Kastljós 12. ágúst 2009 - Úttekt á skilanefndum
Þessu ótengt - og þó ekki. Ég ætla ekki að segja neinum hvað fór í gegnum huga minn þegar ég sá þessa frétt á Stöð 2 í kvöld.
11.8.2009
Blekkingavefur - viðvaranir hunsaðar
Það er fróðlegt að grúska og rifja upp hvað sagt var fyrir hrun. Hvernig fólk upplifði það sem var að gerast og hver sagði hvað. Við megum ekki gleyma þessu. Hér eru þrú dæmi. Hvers vegna í ósköpunum var öllum viðvörunum vísað á bug, ekkert gert og almenningi talin trú um að allt væri í lagi? Yfirvöld vissu vel í hvað stefndi og höfðu haft nægan tíma til að bregðast við. Þess í stað var gefið í, ferðast um heiminn og logið til um bankana og efnahaginn á Íslandi. Ef marka má það sem Ásgeir Jónsson, forstöðumaður greiningardeildar Kaupþings, segir í nýútkominni bók sinni voru íslensku bankarnir dauðadæmdir í árslok 2007. Skömmu eftir útsendingu efsta viðtalsins var Icesave í Hollandi opnað.
Botninum náð - Stöð 2, RÚV og Geir Haarde í Kastljósi 1. apríl 2008
Jón Steinsson, hagfræðingur, í Kastljósi 18. ágúst 2008
Björn Ingi Hrafnsson og Vilhjálmur Bjarnason í Kastljósi 15. september 2008
Ég minni líka á fróðlega, samanklippta umfjöllun um efnahagsmál frá janúar til mars 2008 sem ég birti hér. Þar kemur aldeilis ýmislegt fram sem er áhugavert, ekki síst í ljósi þess sem Ásgeir Jónsson fullyrðir nú í bók sinni og vísað er í hér að ofan.
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 22:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
10.8.2009
Lýst eftir réttlætiskennd þjóðar
Eins og þeir vita sem hingað koma reglulega flyt ég pistla á Morgunvakt Rásar 2 á föstudögum. Síðasta föstudag var 6. pistlinum útvarpað og mig hryllir við hve tíminn er fljótur að líða. Það er svo stutt síðan sá fyrsti var tekinn upp. Og ég er ekki fyrr búin með einn en komið er að þeim næsta.
Þegar ég settist niður við að semja þennan pistil sem hér birtist var ég ekki búin að ákveða um hvað hann ætti að fjalla og byrjaði án þess að vita hvernig framhaldið yrði. Þetta er skrýtið ferli en þó orðið kunnuglegt eftir alla bloggpistlana. Oftast er bara óljós hugmynd í kollinum þegar byrjað er - þ.e. um textann sjálfan. Svo kemur kannski í ljós að pistillinn hefur verið að gerjast í undirmeðvitundinni og sprettur fram þegar ég byrja að skrifa.
En hér er pistill síðasta föstudags og hljóðskrá fylgir neðst að venju. Mér fannst frábært að lagið sem ég bað um hafi verið spilað á eftir pistlinum. Það passaði nefnilega eins og flís við rass... hlustið.
Ágætu hlustendur...
Vitið þið það... ég hef ekki tölu á því hve oft það hefur komið fyrir mig í vetur að hugsa - eða segja beinlínis upphátt þegar nýjar fréttir berast: "Nei! Ég get ekki meira!" Mig grunar ég sé ekki ein um þetta. Eftir því sem stungið er á fleiri graftarkýlum spillingar, óráðsíu, lögbrota, siðleysis og glæpa því erfiðara er að burðast með þetta allt á bakinu og horfa til framtíðar.
Danski hagfræðingurinn Carsten Valgreen sagði meðal annars þetta í blaðagrein í janúar: "Ísland er lítið, einsleitt samfélag þar sem innibyrðis tengsl eru mikil. Þetta er bæði mikill styrkleiki og veikleiki. Þetta er rót kreppunnar. Slík samfélagsgerð virkar næstum eins og fjölskylda eða eitt fyrirtæki. Útilokun tiltekinna vandamála og ákvörðun um að þagga þau niður þróast mjög auðveldlega, og af því leiðir að erfitt er að grípa inn í þegar þau hafa hreiðrað um sig."
Þetta er alveg hárrétt hjá Carsten. Þessi nánu tengsl í íslensku samfélagi þar sem ættingjum, vinum, klíku- og flokksbræðrum og -systrum er hyglað án tillits til hæfni eða getu hafa reynst þjóðinni skelfilega afdrifarík. Sagt er að embættismannakerfið, sjálf stjórnsýslan sem á að halda þjóðfélaginu gangandi, sé handónýtt apparat þar sem skipta þurfi ansi mörgum út til að kerfið virki almennilega. Gömlu stjórnarflokkarnir tveir höfðu áratugum saman komið sínu fólki fyrir í kerfinu og nú, þegar ný stjórn með aðrar hugmyndir er við völd, eru útsendarar fyrri stjórna í fínni aðstöðu til þess beinlínis að vinna gegn þeirri nýju á ýmsan hátt. Væri ekki viturlegt að fara ofan í saumana á þessu kerfi og breyta því?
Umburðarlyndi og langlundargeð þjóðarinnar gagnvart spillingu, dómgreindarleysi og jafnvel lögbrotum fólks sem á að heita í vinnu hjá almenningi hefur líka verið með ólíkindum en virðist vera að þverra - góðu heilli. Rifjum upp nokkur atriði sem hefðu umsvifalaust valdið afsögnum eða vanhæfi í siðmenntum löndum:
- Fjármálaráðherra átti hlutabréf í banka, fékk greiddan arð í ágúst 2008 en neitaði að gefa upp fjárhæðir. Hann hafði lengi vitað um afleita stöðu bankanna en sat áfram í stóli ráðherra.
- Þingmaður var í sjóðstjórn gjaldþrota banka, þáði stórfé fyrir auk þingfararkaups og ríkið dældi fé inn í sjóðinn eftir hrun. Maðurinn var aftur kjörinn á þing.
- Þingmaður stal úr ríkiskassanum og sat í fangelsi. Flokksbræður veittu honum uppreist æru og hann flaug aftur inn á þing.
- Ríkissaksóknari er nátengdur forstjóra eins stærsta eiganda stærsta bankans sem er til rannsóknar. Vanhæfið blasir við en embættismaðurinn harðneitar að segja af sér.
- Fjármálaeftirlitið vísar manni úr skilanefnd banka vegna mögulegra hagsmunaárekstra, en skilanefndin ræður hann þá umsvifalaust sem framkvæmdastjóra hins gjaldþrota banka.
- Nokkrir banka- og auðmenn rændu íslensku þjóðina, lifa áhyggjulausir í vellystingum hérlendis og erlendis, en ekki hefur verið hróflað við þeim eða eigum þeirra tæpu ári eftir ránið. Þó vita allir hverjir þeir eru og hvar þá er að finna.
Þetta eru aðeins örfá dæmi af fjölmörgum um siðspillingu í íslenskum stjórnmálum og embættismannakerfi. Þjóðin hefur liðið þetta alla tíð, en nú vottar loksins fyrir vísi að vakningu og þar leika fjölmiðlar stórt hlutverk. Það var yndislegt að verða vitni að viðbrögðum fjölmiðla og almennings við lögbanni Kaupþings á RÚV um síðustu helgi. Þar lögðust allir á eitt við að gera lögbannið að engu - og það tókst.
Ég lýsi eftir viðlíka samstöðu í fleiri réttlætismálum.
Ég fékk eftirfarandi tölvupóst upp úr hádegi á föstudag:
Sæl Lára,
Góður þótti mér pistillinn þinn á rás 2 í morgun en leitt þótti mér að heyra að þú færir með rangfærslur um Illuga Gunnarsson. Þar furðaðirðu þig á því að hann hefði ekki sagt af sér vegna þess að ríkissjóður hafi greitt inn í sjóð 9. Þetta er auðvitað kolrangt.
Ég skora á þig að leiðrétta þennan hvimleiða misskilning.
Illugi gerir raunar mjög vel grein fyrir nákvæmlega þessu á vefsíðu sinni:
5. Voru peningar greiddir úr ríkissjóði inn í sjóð 9?
Engir peningar fóru úr ríkissjóði í sjóð 9. Þessi misskilningur er tilkominn vegna þess að þegar fyrirtækið Stoðir fór í greiðslustöðvun þurfti að loka sjóði 9 tímabundið. Eins og áður sagði var það gert til að tryggja að allir sjóðsfélagar sætu við sama borð. Þann 30. september ákvað svo stjórn Glitnis (sem var þá enn banki í eigu einkaaðila) að kaupa skuldabréf Stoða af sjóði 9 með afföllum. Til kaupanna notaði Glitnir sína eigin fjármuni og engir peningar fóru úr ríkissjóði.
Sagan um 11 milljarðana frá ríkissjóði hefur verið nokkuð þrálát í umræðunni, þrátt fyrir að hið rétt hafi komið fram fyrir löngu síðan. Þeir sem vilja fullvissa sig um hið sanna geta lesið fjáraukalög á vefsíðu Alþingis. Samkvæmt 40. grein stjórnarskrárinnar er bannað að greiða nokkurt gjald úr ríkissjóði án þess að heimild sé fyrir því í fjárlögum. Fjáraukalögum fyrir árið 2008 voru samþykkt í desember og þar kemur skýrt fram að engin greiðsla fór til sjóðs 9. Margt má segja um ríkissjóð og útgjöld hans en eitt er þó víst að 11 milljarðar eru ekki teknir úr ríkissjóði án þess að það komi fram í bókhaldi hans.
Fjáraukalög má finna hér á vef Alþingis www.althingi.is
http://www.althingi.is/altext/136/s/pdf/0482.pdf
Þessu er hér með komið til skila EN... Í fyrsta lagi furðaði ég mig ekki á því að hann hefði ekki sagt af sér, það var ekki venjan þá en verður vonandi framvegis - heldur furðaði ég mig á því að hann hafi boðið sig fram aftur með þennan bagga á bakinu sem aldrei upplýstist nægilega vel.
Í öðru lagi furða ég mig á því að ekki hafi verið farið ofan í saumana á málefnum einstakra frambjóðenda FYRIR kosningar. Það hefur reyndar ekki verið gert ennþá - og ég bíð óþreyjufull eftir að það verði gert. Ekki veitir af að hreinsa andrúmsloftið.
Í þriðja lagi furða ég mig á því að ég hef hvergi séð tekinn af allan vafa um málið og mér nægir alls ekki þetta hefðbundna... "að viðkomandi vísi ávirðingum á bug..." og síðan ekki söguna meir. Ég þarf miklu ákveðnari, augljósari og betri sannanir til að trúa. Og fjáraukalög Alþingis eru engin sönnun fyrir einu eða neinu í mínum huga. Slík er tortryggnin orðin og lái mér hver sem vill.
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 10:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
9.8.2009
Fé án hirðis fann Finn og Framsókn
Ég verð að játa að ég átta mig ekki á þessari svikamyllu. Þarna virðist græðgin hafa tekið völd og skúrkar leikið lausum hala með annarra manna fjármuni í höndunum. Um er að ræða Eignarhaldsfélag Samvinnutrygginga og Gift. Fleiri félög blandast eflaust inn í málið en samkvæmt fréttum teygja allir angar málsins sig inn í Framsóknarflokkinn. Lítum á málið.
Fyrir tveimur árum, í júní 2007, átti félagið samkvæmt fréttum 30 milljarða króna. Nú er það sagt skulda 45 milljarða. Þetta er viðsnúningur upp á 75 milljarða. Eignarhald ES virðist hafa verið nokkuð óljóst, en þó talið að tryggingartakar hafi átt félagið og til stóð að greiða út eignarhlut þeirra, en það var aldrei gert. Þess í stað virðist hópur sjálftökufólks hafa notað féð í fjárhættuspil. Fé annarra. Fé án hirðis.
14. júní 2007 spurði Sigurður G. Guðjónsson um eignarhaldið í Morgunblaðinu
Stöð 2 fjallaði um þetta undarlega mál í fréttum 14.,15. og 16. júní 2007
Eflaust hefur fleira verið grafið upp, en lítum næst á Kastljós 2. desember 2008
Því næst skulum við skoða fréttir RÚV í gærkvöldi, 8. ágúst 2009
Svona lítur Gift út í hinni frægu stórlánabók Kaupþings
Og hér eru tvær tengslamyndir af síðunni Litla Ísland (smellið til að stækka)
Hvernig hægt er að gera hlutina svona flókna er ofar mínum skilningi, en eflaust er það af ásettu ráði gert til að fela slóðir. Heilmargt er hægt að lesa um málið á netinu ef maður gúglar svolítið. Svo margt að það er erfitt og tímafrekt að ná áttum. En þetta er eitt þeirra mála sem rannsóknaraðilar mega alls ekki gleyma. Og enn spyr ég: Hvar eru þessir peningar? Hér er úttekt Morgunblaðsins á Giftar-málinu frá 28. nóvember 2008 og ítarlegur pistill Gunnars Axels í kjölfarið.
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 11:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (27)
8.8.2009
Hin fallna þjóð og afsal auðlinda
Efnahagshruni og -ástandinu á Íslandi hefur margoft verið líkt við Argentínu og atburðina þar fyrir ekki svo ýkja löngu. Og réttilega. Hvort unnt verður að líkja framhaldinu við Argentínu verður tíminn að leiða í ljós. En gjörðir iðnaðarráðherra í gær benda til að svo verði. Stóriðja, útsala á raforku, framsal náttúruauðlinda til erlendra álrisa sem greiða litla sem enga skatta og skila sáralitlum arði til þjóðarinnar, ótrúlegt vanmat á arðsemi óspilltrar náttúru sem þó er aðalaðdráttarafl erlendra ferðamanna og vafasamt eignarhald þeirra fyrirtækja sem nú virðast ætla að leggja undir sig nýtingu auðlindanna. Erum við ekki búin að fá nóg af misheppnaðri einkavæðingu? Í umræðu um ímynd Íslands í Kastljósi í gærkvöldi sagði Jón Ásbergsson, forstjóri útflutningsráðs, þetta um viðamikla könnun á ímynd Íslands í þremur löndum fyrr á árinu.
Hvenær ætla Samtök atvinnulífsins og græðgisvæðingarelítan að átta sig á verðmæti íslenskrar náttúru? Og stjórnmálamenn í öllum flokkum!
Fyrir næstum nákvæmlega ári síðan skrifaði ég í pistli um náttúruna og rányrkjuna: "...Katrín (Júlíusdóttir) kom út eins og argasti stóriðju- og virkjanasinni. Kannski er hún það..." Þarna var ég að vísa í þessa umræðu í Kastljósi. Katrín var þá formaður iðnaðarnefndar - nú er hún iðnaðarráðherra. Unnendur náttúru Íslands, innlendir sem erlendir, geta ekki vænst neinnar miskunnar úr þeim herbúðum, að því er virðist. Hér skal náttúrunni fórnað, virkjað og álver reist, hvort sem það er þjóðhagslega hagkvæmt eða ekki. Auðlindirnar skulu einkavæddar og ofnýttar, hvað sem hver segir.
Í byrjun október, þegar hrunið var að skella á okkur, skrifaði ég pistil um Argentínu og vísaði í Spegilsviðtal við Hólmfríði Garðarsdóttur, lektor, sem er kunnug á þeim slóðum (viðtalið er viðfest neðst í þessum pistli). Í helgarblaði DV er athyglisverð úttekt á uppgangi og hruni Argentínu - og hlutverki Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í því ferli öllu. Hér er útdráttur:
Fyrir nokkru birti ég heimildamynd um efnahagshrun Argentínu. Ferlið er skelfilegt og landið hefur ekki ennþá bitið úr nálinni með ástandið. Ég legg til að fólk gefi sér góðan tíma til að horfa, velta fyrir sér ástæðum hrunsins, viðbrögðum, afleiðingum og úrlausnum. Getum við lært eitthvað af þessu?
Efnahagshrun Argentínu - 1:3
Efnahagshrun Argentínu 2:3
Efnahagshrun Argentínu 3:3
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 10:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Þetta er titill á pistli þar sem sem Egill Helga birtir bréf frá ónefndum manni. Ég tek ekki undir allt sem í honum stendur, en fannst hann þess virði að fá leyfi til birtingar hér líka. Einkum vegna Nóna Sæs, litla drengsins sem örkumlaðist í bílslysi þar sem litla systir hans lést. Lagatæknilegt réttlæti íslenskra dómstóla hefur dæmt Nóna Sæ til ævilangrar fátæktar á meðan bankaræningjar Íslands baða sig í illa fengnu fé og þurfa ekki að hafa fjárhagsáhyggjur á meðan þeir tóra. Banamaður systur Nóna Sæs og sá sem örkumlaði hann slapp með ótrúlega vægan dóm miðað við alvarleika brota hans. Löglegt? Eflaust. Óréttlátt og siðlaust? Hvort það er!
Saga Nóna Sæs - Kastljós 19. febrúar 2009
"Annars vegar var að kennslan í Lagadeild HÍ var fyrir neðan allar hellur. Þar voru nokkrir æviráðnir gjörsamlega óhæfir prófessorar sem ýmist kunnu ekkert í lögfræði eða höfðu tileinkað sér það sem ég kýs að kalla tæknilögfræði. Hún gengur út á það að lögfræði hafi ekkert með réttlæti eða sanngirni að gera, heldir sé eingöngu að skilgreina lagatexta tæknilega og þá helst reyna að finna einhverja formgalla á máli. Það eru einmitt fylgismenn þessarar lagatækni sem hefur snjóað inní Hæstarétt undir dómsmálaráðherraforystu Sjálfstæðisflokksins. Fyrir vikið er oft nánast útilokað að fá barnaníðinga dæmda og endalaust verið að vísa málum frá eða senda þau aftur í héraðsdóm. Og þess vegna slapp t.d. Jón Ásgeir að mestu í Baugsmálinu.
Fyrir íslenskum dómstólum skiptir réttlæti engu máli. Lögfræðin á Íslandi hefur umhverfst í einhverja undarlega lagatækni, sem oft virðist á skjön við réttlætistilfinningu þjóðarinnar. Þessu þarf að breyta. Það þarf að endurmanna lagadeildir Háskólanna sem eru fullar af lagatæknifræðingum og lærisveinum þeirra. Því miður eru engar horfur á að slíkar breytingar verði í bráð.
Hins vegar eru Alþingismenn eins og fífl gagnvart dómsvaldinu. Setja því afskaplega undarlegar leikreglur. Sá fáránleiki birtist m.a. í því að lögin (og dómaframkvæmd) eru þannig úr garði gerð að menn sem ganga í skrokk á öðrum með misþyrmingum, fá álíka eða jafnvel miklu vægari dóm heldur en menn sem flytja til landsins fíkniefni. Vissulega eru afleiðingar fíkniefna oft andstyggilegar en lógíkin þarna er vandséð. Sennilega væri miklu nær að þyngja dóma í líkamsárármálum o.þ.h., en lögleiða væg fíkniefni; þar með myndi eftirspurn eftir sterkari efnum hrynja og ríkisvaldið hefði góða yfirsýn yfir fíkniefnasöluna rétt eins og áfengissölu. Þess í stað er búið að koma hér á kerfi þar sem fíkniefnasmyglarar fá álíka dóma - eða jafnvel þyngri dóma - heldur en þeir sem nauðga ungum stúlkum eða drengjum og eyðileggja sálarlíf manneskju til allrar framtíðar.
Svo er líka alveg makalaust hvaða fyrirkomulag hefur myndast hér þegar líkamstjón eða miski er metin til fjár. Í huga íslenskra dómara og íslenskra alþingismanna, sem hafa það hlutverk að setja landinu lög og stjórnarskrá, virðist sem mannslífið sé afskaplega lítils virði. Ég bara nenni ekki að fara að ræða þau málefni; þá fer ég að öskra af reiði. Verð þó að nefna hvernig Alþingi, fyrir þrábeiðni tryggingafélaganna, ákvað að dæma öll íslensk börn sem lenda í örkumlum til ævilangrar fátæktar. Þessu voru reyndar gerð athyglisverð skil í Kastljósinu síðasta vetur, þar sem rætt var við föður drengs, sem var farþegi í bíl sem brjálæðingur ók á með þeim afleiðingum að drengurinn lamaðist og systir hans lést. Svo sitja þessi aumingjar niðri á þingi, bora í nefið og samþykkja lög sem draga stórkostlega úr þeim bótum sem barnið ella fengi og viðmiðunin er að barnið hefði hvort sem er alltaf bara orðið láglaunaplebbi og eigi alls ekki neitt annað skilið en að veslast upp lamað í fátækt.
Þetta er svo ömurlegt að það nær ekki nokkurri átt. En vart nokkur starfandi lögmaður virðist hafa sérstakan áhuga á að þessu verði breytt, né alþingismenn. Þetta, eins og svo margt annað, sýnir hversu íslenska þjóðin er dofin og sljó og hversu alþingismenn Íslendinga eru upp til hópa skyni skroppnir bjánar. Enda situr Árni Johnsen á þingi og fólkið kýs hann. Segir kannski allt sem segja þarf?
Íslenskar lagavenjur eins og þær hafa myndast og þróast fyrir tilverknað lagatæknifræðinga og óhæfra alþingismanna eru svo sannarlega eitthvert sorglegasta fyrirbæri sem hér hefur orðið."
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 14:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)