18.9.2009
Andstaðan og sinnuleysið
Það tilkynnist hér með að þetta er ekki "eiginlegt blogg" og ég ekki bloggari - samkvæmt ummælum merkra álitsgjafa. Ég datt inn á umræðu um bloggara hjá Jens Guð áðan og las þar skemmtilegar upplýsingar um sjálfa mig og bloggið mitt. Þar segir t.d. bloggarinn Matthías Ásgeirsson í athugasemd nr. 113: "Ég get tekið undir með þér að Lára Hanna er ágætur bloggari, ef bloggara má kalla. Hún er náttúrulega fyrst og fremst í því að afrita efni annarra. Ég myndi eiginlega frekar kalla hana (ágætis)vefbókasafn." Og íhaldsmaðurinn Emil Örn Kristjánsson tekur undir í athugasemd nr. 115 og segir: "Ég get svo tekið undir með Matthíasi að 'blogg' Láru Hönnu er ekki eiginlegt 'blogg'. Það er frekar, eins og hann segir, nk. vefbókasafn... þar sem allar bækurnar eru reyndar mjög á einn veg."
Þessi ummæli skutu mér skelk í bringu og fengu mig til að líta um öxl yfir farinn veg. Samkvæmt teljaranum í stjórnborðinu hef ég birt 647 færslur á tæpum tveimur árum. Ekki nenni ég nú að telja orðin sem skipta líklega hundruðum þúsunda. Engum sem þekkir skrif mín dylst að ég skrifa oftast langa pistla með miklu ítarefni. En nú er ég farin að efast... Hver skrifaði þetta allt saman fyrst það er ekki ég? Hver afritaði allan þennan texta og hvar? Er ég kannski sjálf afrit? Hvaða hugleiðingum og skoðunum hef ég verið að lýsa - ef ekki mínum eigin? Ég hef satt að segja svolitlar áhyggjur af þessu því varla fara örvitar og íhaldsmenn með fleipur, eða hvað?
En nú vita alltént lesendur þessarar síðu að þetta er ekki "eiginlegt blogg" - hvað svosem það er. Hér birtist bara "afrit af efni annarra" - ekki mín eigin orð, hugleiðingar eða skoðanir. Mér er hulin ráðgáta hvaðan allt það sem ég hef skrifað undanfarin tæp tvö ár er komið. Spurning um að kalla til miðil...
Ég hef ekki orku í að bæta við öllu sem ég þurfti að sleppa í pistlinum á Morgunvaktinni í morgun vegna tímatakmarkana. Sumt hef ég sagt áður, annað ekki. En nú er bara spurning hver samdi þetta og flutti og hvaðan þetta er allt saman afritað. Veit það einhver? Matthías kannski... eða Emil Örn...?
Ágætu hlustendur...
Ég veit ekki lengur mitt rjúkandi ráð. Hvernig er hægt að vekja mína ástkæru þjóð af Þyrnirósarsvefninum? Hvernig er hægt að beina athygli fólks að því, hvernig verið er að fara með landið okkar, auðlindirnar og okkur sjálf - fólkið sem byggir þetta harðbýla en yndislega land? Er fólki virkilega sama? Ég vil ekki trúa því.
Hve margir horfðu á myndina í sjónvarpinu í fyrrakvöld - Afsökunarbeiðni efnahagsböðuls? En hve margir horfðu á myndina Einkavæðing og afleiðingar hennar sem sýnd var á RÚV í lok maí? Innihald þessara mynda passar bara vel við það sem er að gerast á Íslandi.
Ég fæ orðið klígju þegar alls konar spekingar nefna sem lausn á vanda þjóðarinnar: "... að við eigum svo miklar auðlindir". Við þurfum bara að nýta þær og þá er allur okkar vandi leystur. Auðlindum sjávar sé svo vel stjórnað og orkuauðlindirnar endurnýjanlegar og tandurhreinar. Þetta er blekking og þeir sem vita betur hafa ítrekað reynt að koma því á framfæri.
Fiskurinn í sjónum er bókfærð eign kvótakónga og veðsettur upp í rjáfur í erlendum bönkum af því strákana langaði svo að leika sér og kaupa einkaþotur, þyrlur og annan lúxus. Afganginn geyma þeir á leynireikningum í útlöndum og við borgum skuldirnar þeirra. Þó að ákvæði sé í lögum eða stjórnarskrá um að þjóðin eigi auðlindir sjávar er nákvæmlega ekkert að marka það. Nú eru þær í eigu erlendra banka eða erlendra kröfuhafa bankanna. Merkilegt að strákarnir skuli samt fá að halda kvótanum.
Orkuauðlindirnar - sem eru hvorki endurnýjanlegar né tandurhreinar eins og reynt er að telja þjóðinni og útlendingum trú um - er verið að einkavæða og selja frá þjóðinni fyrir slikk. Engu að síður er vitað að verðmæti þeirra getur ekki annað en aukist næstu ár og áratugi. Arðurinn af þeim fer úr landi og almenningur ber æ þyngri byrðar fyrir vikið. Hér á líka við að eignarhald þjóðarinnar á pappírunum er einskis virði ef nýtingarréttur og yfirráð eru í höndum einkaaðila.
John Perkins, fyrrverandi efnahagsböðull og aðalpersóna myndarinnar í fyrrakvöld, varaði okkur við. Hann sagði að þetta snerist allt um auðlindir. Hann sagði líka þetta: "Andstaðan verður að koma frá fólkinu. Við getum ekki búist við að leiðtogarnir búi yfir kjarki eða getu til að koma á breytingum nema við, fólkið, krefjumst þess. Hér á Íslandi verðið þið Íslendingar að krefjast þess að þið eigið auðlindirnar. Þetta er landið ykkar. Þið búið í því. Forfeður ykkar hafa verið hér í mörg hundruð ár og hugsað um það. Þið megið ekki selja auðlindirnar til annarra og láta arðræna ykkur svona. En það verður að koma frá ykkur." Sagði John Perkins.
Á þriðjudaginn fór fram auðlindasala í Ráðhúsi Reykjavíkur í boði Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks. Það var rækilega auglýst í fjölmiðlum og á Netinu. Þegar mest var voru á annað hundrað manns að mótmæla auðlindasölunni. Hvenær gerir fólk sér grein fyrir því, að verið er að selja Ísland, éta okkur með húð og hári - beint fyrir framan nefið á okkur?
Sinnuleysi Íslendinga er skelfilegt.
Hljóðskráin er hér fyrir neðan. Ég verð að leiðrétta Láru og Frey - þau kynna mig alltaf sem bloggara.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (49)
17.9.2009
Hver seldi Ísland?
Hvað þarf til að vekja íslenskan almenning til vitundar um að verið er að selja okkur í ánauð? Þetta er engin dramatísering - bara svellkaldur veruleiki, því miður. Í síðasta pistli benti ég á mynd sem sýnd var á RÚV í gærkvöldi - Afsökunarbeiðni efnahagsböðuls. Ég viðurkenni fúslega að tárin trilluðu niður kinnarnar þegar ég horfði á myndina og nokkuð lengi á eftir. Einmitt það sem þar var lýst er að gerast hér. Nákvæmlega þetta. Ég verð með ónotatilfinninguna enn um sinn. Og maður spurði sig: Hve mikið fékk Óskar borgað? Var Hönnu Birnu hótað? Hvað með síðustu ríkisstjórn? Valgerði, Halldór, Davíð og þau öll? Getur verið að eilífar frestanir AGS núna stafi af því að Jóhanna og Steingrímur neiti að spila með? Hvað veit maður? Enginn segir okkur neitt. Hver seldi Ísland?
Afsökunarbeiðni efnahagsböðuls
Fyrri hluti
Seinni hluti
Hér eru nokkrar athugasemdir við síðustu færslu þar sem ég vakti athygli á sýningu myndarinnar:
Það var fróðleg fréttin sem birtist í hádegisfréttum RUV. Þar var haft eftir Tómasi Má Sigurðssyni, forstjóra Alcoa, að þeir þyrftu tryggingu fyrir því að fá orku fyrir 350.000 tonna álver.
Þetta þýðir óútfylltan tékka til Alcoa, um aðgang að orkuauðlindum sem ná frá Þeistareykjum og til Herðubreiðar og Skjálfandafljóts.
Má finna samsvörun í tali forstjórans og því sem kemur fram í myndinni?
____________________
Stórkapítallinn í BNA hefur áorkað meira til sósíalismans en kenningar Marxista og annara sósíalista samanlagt. Misskipting auðs er að sjálfssögðu helsta vandamál heimsins í dag og undanhald millistéttarinnar endar með einhverskonar uppgjöri þjóðfélagshópa í öllum samfélögum.
Menn eins og John Perkins lýsa þessu mjög vel og þarf fólk að hlusta á hann með opnum huga.
Saga t.d. Suður Ameríku er að öllu leyti sorgleg þar sem hún tengist imperíalisma BNA svo náið. Því hvers vegna ættu innfæddir íbúar þessara svæða að njóta góðs af auðlindum landsins?
Þetta er í raun sáraeinfalt en vandamálið er að maður þarf að hugsa um þetta eins og maður sé staddur í James Bond mynd. Maður á oft einfaldlega erfitt með að trúa að 'siðmenntaðir' íbúar, 'siðmenntaðra' landa hegði sér á þennan hátt.
____________________
Fyrsti hluti láns AGS til okkar fór á reikning í banka í New York og það stemmir við það sem Perkins segir í Játningunum.
Öll efnahagsaðstoð við Austur Tímor fór inn á banka í USA og bókstaflega ekkert skilaði sér þangað. Það stemmir við það sem Perkins segir.
Uppbyggingin í Indónesíu eftir flóðbylgjuna byggðist á aðstoð" sem fólst í því að Bandarísk fyrirtæki fengu pening til að byggja hótel og koma upp túristagildrum þar sem þorp innfæddra stóðu. Það stemmir við Perkins.
____________________
Það er vonandi að ráðamenn og almenningur fari að tengja varðandi bolabrögð AGS hér og svo þessa útsölu auðlindanna, sem dulin er með því að við eigum auðlindirnar, en njótum einskis af þeim. Með hjáleiðum, klókindum og skúffufyrirtækjum er farið á snið við lög og reglur á meðan menn í öllum flokkum draga lappirnar í lagasetningum og stjórnarskrárbreytingum til að tryggja okkur yfirráðin.
Menn mega líka spyrja sig hvort það veki ekki spurningar að yfirmaður AGS (governor) á Bretlandi, var á tímum hryðjuverkalaganna og er enn enginn annar en Alistair Darling, fjármálaráðherra Breta. Hringir það virkilega engum bjöllum? Hringir það engum bjöllum að AGS skuli ekki svo mikið sem hafa okkur á dagskrá fyrr en við höfum gengið frá ICESAVE? Þeir sem gáfu það opinberlega út að þeir væru aðeins ráðgefandi og að málið væri "none of their business". Nú merja þeir líftóruna úr okkur með að teygja gjaldeyrishöftin á langinn um leið og þeir halda aftur af neyðarláni sínu.
Og af hverju samanstendur þetta neyðarlán? Í nóvember í fyrra lofaði frú Kristin Halvorssen um 100 milljarða láni til okkar, frá Norðmönnum, sem þing þeirra samþykki. AGS stígur inn í ferlið og stöðvar það. Norðmenn samþykkja að breyta láninu þannig að það verði hluti af lánapakka AGS. Þeir lánuðu svo AGS 600 milljarða, svo þeir gætu lánað okkur. Sama gerðist með Rússalánið. AGS, stöðvaði bæði þessi lán, svo þeir sætu einir að kverkatakinu. Það sem hefur gerst í Suður-Ameríku og víðar í þróunarlöndum er að gerast hér, en þeir hafa bara tekið upp betur duldar og sívílíseraðri aðferðir til að ná sama marki.
Menn skulu ekki gleyma að AGS er að 51% í eigu USA, eða réttara sagt Federal reserve/Wall Street, sem er ekki meira federal en federal express, heldur hreint og klárt tæki auðhringa til að komast yfir auðlindir (resources).
Þótt vilji þjóða sé fyrir hendi að hjálpa okkur í þessari kreppu, þá er það AGS, sem kemur í veg fyrir það með klókindum, eða jafnvel hótunum. Allt skal fara í gegnum þá. They call the shots here.
Það sem Ísland á að gera, ef svo ólíklega vill til að Bretar og Hollendingar fallist ekki á fyrirvara okkar, er að vísa málinu fyrir dómstóla og í beinu framhaldi af því að henda AGS út og taka slaginn sjálf. Það er raunar nóg fyrir fólk að lesa um sjóðinn á wikipedia (sértaklega seinni hlutann) til að sjá hvað þessi glæpahringur stendur fyrir.
Verið á útkikki eftir böðlum og sjakölum. Ekki vera of viss um að þeir séu endilega útlendingar.
Fólk skyldi svo hafa í huga þegar minnst er á hina hugumprúðu útlendinga, sem eru að koma hingað til að "aðstoða við uppbyggingu orkufreks iðnaðar" að það er aðeins annað orð yfir arðrán. Það skal enginn halda að það séu þeir, sem virki og búi í haginn fyrir þetta. Það erum við. Enn höfum við ekkert annað upp úr álvæðingunni haft en botnlausar skuldir og gjaldþrota Landsvirkjun og það er algerlega ljóst að við getum reiknað það í öldum, hvenær það yrði að veruleika. Þótt hvert einasta andskotans kílówatt yrði virkjað fyrir þessar samsteypur, og álver byggð til að fullnýta það, þá myndi það skapa störf fyrir 2% þjóðarinnar.
Það er verið að éta ykkur með húð og hári og máltíðin hefur verið talsvert lengi í ofninum.
Bloggar | Breytt 21.9.2009 kl. 00:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (68)
16.9.2009
Afsökunarbeiðni efnahagsböðuls
Ég vek athygli á mynd sem sýnd verður strax á eftir Tíufréttum á RÚV í kvöld - Apology of an Economic Hit Man eða Afsökunarbeiðni efnahagsböðuls upp á ylhýra. Þarna er um að ræða kunningja okkar Íslendinga, John Perkins, sem var í viðtali í Silfrinu í byrjun apríl og kom einnig fram í Draumalandi Andra Snæs Magnasonar með afar eftirminnilegum hætti. Sumum finnst Perkins trúverðugur - öðrum ekki.
Það verður athyglisvert að sjá myndina við getum rifjað upp sitthvað sem John Perkins hefur sagt undanfarið - byrjum á Silfrinu.
Silfur Egils 5. apríl 2009
Ísland í dag 7. apríl 2009
Draumalandið - kynningarmyndband
Fyrirlestur Johns Perkins í Háskóla Íslands 6. apríl 2009
Fyrri hluti
Seinni hluti
John Perkins - How to destabilize countries legally
John Perkins er sannfærður um að Ísland hafi orðið fyrir árás efnahagsböðla. Það er Michael Hudson, hagfræðingur, líka. Bendi í því sambandi á tvær greinar eftir Hudson sem birtust í Fréttablaðinu í byrjun apríl: Alheimsstríð lánadrottna og Stríðið gegn Íslandi. Hefur eitthvað komið í ljós sem bendir til að við ættum EKKI að trúa þessum mönnum?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
15.9.2009
Súrrealískur og sögulegur fundur
Fundurinn í Ráðhúsinu í dag var súrrealískur. Fjölmenni var á pöllunum og fólk lét í sér heyra svo um munaði. Einar Mar Þórðarson, stjórnmálafræðingur, kallaði slíkt óhefðbundna stjórnmálaþátttöku eða borgarlega óhlýðni. Ég þurfti að fara til læknis svo ég varð ekki vitni að kosningunni og mótmælunum þeim tengdum. En átti í staðinn skemmtilegar samræður við lækninn.
Sá góði maður sagði að í dag hafi sú örlitla von um að eftir væru skynsamir, heiðarlegir stjórnmálamenn (í Sjálfstæðis- og Framsóknarflokki) sem hægt væri að treysta, endanlega dáið. Hann sagðist alltaf hafa kosið Sjálfstæðisflokkinn þótt stundum hafi hann þurft að halda fyrir nefið og loka augunum á meðan hann exaði við Déið. En hann hefur heitið sjálfum sér að kjósa þá aldrei, aldrei framar. Ef ég þekki hann rétt stendur hann við það. Framferði sjálfstæðismanna í borgarstjórn í dag gerði útslagið.
Ég tók upp hljóðútsendingu fundarins. Upptakan rúllaði í tölvunni á meðan ég var í burtu. Svo klippti ég brot úr fréttatímum sjónvarpsstöðvanna og Mbl.is við kaflann með kosningunni og mótmælunum. Hljóð og mynd passa semsagt ekki saman nema að mjög litlu leyti. Skaut líka inn nokkrum myndum sem ég tók á fundinum. Hljóðskrá með allri umræðunni um OR-Magma málið er viðfest neðst í færslunni ef fólk vill hlusta á öll ósköpin.
Þessi borgarstjórnarfundur er sögulegur og verður svo sannarlega rifjaður upp frá ýmsum hliðum fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor, það efast ég ekki um eitt augnablik. Nú eru kjósendur í þeirri aðstöðu að geta rifjað allt upp, engu verður gleymt.
Óskar Bergsson er framsóknarmaður eins og þeir gerast einna sannastir. Nú fagnar hann niðurstöðu dagsins með félögum sínum sem munu græða á gjörningnum á einn eða annan hátt. Skömmu eftir að hann hóf mál sitt á fundinum stóð fullorðinn maður meðal áheyrenda upp og gekk fram. Konan hans hvíslaði að mér: "Maðurinn minn getur ekki hlustað á Óskar Bergsson. Hann fullyrðir að Óskar hafi aldrei á ævinni sagt satt orð." Ég vissi nákvæmlega hvað bóndi hennar var að tala um. Óskar Bergsson og Þorleifur Gunnlaugsson voru í Kastljósi. Þar kom fram að Óskari finnst bara í góðu lagi að dularfullt skúffufyrirtæki, sem stofnað er til að komast í kringum íslensk lög, eignist nýtingarrétt á orkuauðlindum okkar. Siðferðið í góðu lagi á þeim bænum. Munið þið eftir þessu, til dæmis?
Kastljós 15. september 2009
Bloggar | Breytt 16.9.2009 kl. 00:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
14.9.2009
Innihaldið í sænsku skúffunni
Á morgun mun borgarstjórn Reykjavíkur ætla að taka endanlega ákvörðun um hvort skúffufyrirtækinu Magma Energy Sweden verður seldur hlutur Orkuveitu Reykjavíkur í HS Orku. Samkeppnisyfirvöld, með Pál Gunnar Pálsson Péturssonar framsóknarforkólfs frá Höllustöðum í forystu, höfðu úrskurðað að OR mætti ekki eiga nema 3% í HS Orku. Samkeppnisyfirvöld eru því að þvinga fram sölu á hlutnum - og mér er spurn: Eru líka framsóknarmenn á bak við kaupin? Ég hef áður lýst þeirri skoðun minni að siðlausir auðjöfrar séu á bak við einkavæðingu auðlindanna - samanber REI-málið - og ekkert hefur komið fram sem hefur haggað þeirri skoðun minni. Þeir eru innihaldið í skúffunni í Svíþjóð.
Nú er deilt um hvort salan til Magma Sweden sé lögleg, því ekki megi selja aðilum utan EES virkjunarrétt vatnsfalla og jarðhita. Þó sagði sérfræðingur í HR í RÚV-fréttum í kvöld að aðferð Magma í Kanada til að komast yfir auðlindir Íslendinga sé ekki ólögleg, þ.e. heimilisfesti skiptir máli, en ekki ríkisfang eigandans. Samkvæmt því geta hverjir sem er stofnað skúffufyrirtæki hvar sem er í EES eða ESB löndum og keypt sig inn í hvað sem er hér á landi, eða hvað? Engin starfsemi þarf að vera í skúffunni. Einmitt þannig fóru útrásardólgarnir að og gera væntanlega enn. Þeir notuðu skúffufyrirtæki grimmt til að ræna okkur.
Þetta minnti mig á Spegilsviðtal frá 30. apríl 2008 við Rafael Baron, rússneskan ráðgjafa í olíumálum, sem aðstoðaði íslensku olíufurstana sem vildu reisa olíuhreinsistöð á Vestfjörðum - og vilja kannski enn. Viðtalið er viðfest neðst í færslunni, en í því segir Baron m.a. að Rússarnir hafi stofnað skúffufyrirtæki á Írlandi með sáralítið hlutafé til að fara í kringum lög og reglur á Íslandi. Hann reyndi ekkert að leyna því. Hlustið bara á viðtalið.
Í tilfelli Magma er augljóst að um skúffufyrirtæki er að ræða, stofnað til að komast í kringum íslensk lög. Gott ef gerendur hafa ekki viðurkennt það og þeir neituðu að veita veð í móðurfyrirtækinu í Kanada. Þá er stóra spurningin hvort stjórnvöld ætli að láta það óátalið án þess einu sinni að reyna að hindra það. Ætla stjórnvöld að láta hinn nauma meirihluta Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks komast upp með að selja stóran hluta í arðbæru orkufyrirtæki til skúrka sem ætla að græða á okkur - eða stöðva siðleysið hið snarasta. Þau geta það nefnilega.
Í 12. grein laga um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri nr. 34/1991 stendur m.a. þetta: "Nú telur viðskiptaráðherra að tiltekin erlend fjárfesting ógni öryggi landsins eða gangi gegn allsherjarreglu, almannaöryggi eða almannaheilbrigði eða ef upp koma alvarlegir efnahagslegir, þjóðfélagslegir eða umhverfislegir erfiðleikar í sérstökum atvinnugreinum eða á sérstökum svæðum, sem líklegt er að verði viðvarandi, og getur hann þá stöðvar slíka fjárfestingu, enda kunngjöri hann ákvörðun sína innan átta vikna frá því að honum berst tilkynning um hlutaðeigandi fjárfestingu, sbr. 7. gr." Gylfi Magnússon getur semsagt stöðvað söluna samkvæmt þessu.
Vilmundur heitinn Gylfason er gjarnan sagður síðasti hugsjónamaðurinn á þingi. Hann mun fyrstur hafa talað um að eitthvað væri löglegt en siðlaust, en hann barðist fyrir bættu siðferði á þingi og í stjórnsýslunni. Vilmundur lést fyrir rúmum 26 árum og siðferðið hefur bara versnað ef eitthvað er. Það er sorgleg staðreynd. Eftir efnahagshrunið hrópaði almenningur hátt á betra siðferði - og gerir enn. Er ekki tími til kominn að hætta að einblína á lagatæknileg atriði og huga að siðferðinu? Ef eitthvað er fullkomlega siðlaust þá er það sala OR á hlutnum í HS Orku til skúffufyrirtækis sem stofnað er til að klekkja á íslenskum lögum og það fyrir opnum tjöldum. Miklar sögur ganga um hverjir eru ofan í skúffunni og opinberlega hafa tveir menn verið nefndir, annar úr Framsóknarflokknum og hinn fyrrverandi bankamaður. Báðir auðguðust gríðarlega á að féfletta þjóðina.
En skoðum fréttirnar frá í kvöld.
Og svo er ekki úr vegi að hlusta á myndbrotið sem Egill Helga sýndi í Silfrinu á sunnudaginn - hlustið á hvað Joseph Stiglitz segir um auðlindirnar og takið vel eftir viðbrögðunum. Það er augljóst að meirihluti þjóðarinnar vill að auðlindirnar - og nýtingarrétturinn - sé á hendi hins opinbera, ekki einkaaðila og ALLS EKKI þeirra sem féflettu þjóð sína og komu landinu á vonarvöl. Minnumst þess hvernig þeir ætluðu að spila í REI-málinu og af hverju þeir höfðu augastað á orkufyrirtækjunum. Til að græða. Sá gróði á að renna til þjóðarinnar, ekki örfárra auðmanna.
Borgarstjórn tekur málið fyrir á morgun, þriðjudag, og hefst fundurinn klukkan 14. Ég minni á orð Johns Perkins um að andstaðan við afsal á auðlindunum verði að koma frá fólkinu. Þetta er landið okkar, við búum í því. Forfeður okkar hafa verið hér í mörg hundruð ár og hugsað um það. Við megum ekki selja auðlindirnar til annarra og láta arðræna okkur svona. En andstaðan verður að koma frá okkur, fólkinu í landinu. Mætum öll á pallana í ráðhúsinu á morgun, stöndum úti, berjum á potta og pönnur eða gerum hvaðeina til að lýsa andstöðu okkar við auðlindasöluna. Sameinuð sigrum við!
Að lokum langar mig að sýna ykkur nokkrar myndir sem ég klippti og skeytti saman af netinu um Magma Energy Sweden AB. Hér er deginum ljósara að engin starfsemi er í þessu fyrirtæki þótt útrásardólgar og spilltir stjórnmálamenn leynist í skúffum þess. Þarna sést m.a. að "fyrirtækið" er ekki skráð með neina skattskylda starfsemi og fulltrúar þess eru starfsmenn lögfræðistofu í Gautaborg. Aðalmaðurinn, Lyle Emerson Braaten, er sagður búsettur utan EES, enda einn af starfsmönnum Magma í Kanada eins og sjá má hér. Þetta minnir óhugnanlega á vinnubrögð þeirra manna sem féflettu Ísland.
Bloggar | Breytt 15.9.2009 kl. 01:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
14.9.2009
Megi réttlætið sigra að lokum
Ég er búin að skrifa svo mikið um þöggunina og hræðsluþjóðfélagið að mér fannst varla á það bætandi. Ég bætti nú samt á það í föstudagspistlinum á Morgunvakt Rásar 2 - og viti menn! Daginn eftir var skrúfað fyrir aðgang Jóns Jósefs að Fyrirtækjaskrá Ríkisskattstjóra þegar hann var að uppfæra gagnagrunn sinn. Án viðvörunar eða skýringa. Þó er gagnagrunnurinn í notkun hjá opinberum rannsóknaraðilum og Persónuvernd búin að hafa hálft ár til að skoða málið. Engu að síður herma nýjustu fréttir að lokað hafi verið fyrir aðganginn því skort hafi leyfi frá Persónuvernd. Maður spyr sig því hvort Persónuvernd hafi vald til að bregða fæti fyrir rannsókn á hruninu... eða hvort það sé bara fjölmiðlar og almenningur sem ekkert megi vita. Þetta hlýtur að koma í ljós við rannsókn fjölmiðla á málinu - en ég sakna þess mjög að heyra ekkert um þetta mál hjá Mogga, Stöð 2, Fréttablaðinu og Vísi.is. Mér finnst þetta grafalvarlegt mál sem allir fjölmiðlar ættu að veita mikla athygli.
En hér er pistill föstudagsins. Í tilefni nafnlausu umræðunnar í síðustu viku var pistillinn alveg nafnlaus. Ég þakka hagyrðingnum, Gísla Ásgeirssyni, kærlega fyrir hans innlegg og vonast til að hann botni kvæðabálkinn í ljósi frávísunar Björns betri. Botninum verður þá náð og vitanlega bætt við. Hljóðskrá er hengd við neðst að venju ef fólk vill hlusta líka.
Áður en lengra er haldið skal tekið fram, að þessi pistill er nafnlaus. Þeim, sem telja sig þekkja röddina, skjátlast hrapallega.
Við höfum búið svo lengi í hræðsluþjóðfélagi þöggunar þar sem sannleikurinn hefur aldrei verið vel séður ef hann hróflar á einhvern hátt við ráðandi stéttum þjóðfélagsins, sjálfu valdinu. Lýðræðisleg, opin og gagnrýnin umræða hefur ævinlega verið í skötulíki á Íslandi. Upplýsingum er leynt fyrir fjölmiðlum og almenningi og beinlínis logið til um óþægilegar staðreyndir. Fólk sem býr yfir upplýsingum þorir ekki að greina frá þeim af ótta við hefndaraðgerðir - til dæmis yfirvalda eða vinnuveitenda. Og Alþingi segir upp áskrift að DV ef menn þar á bæ eru ágengir og upplýsandi. Svona andrúmsloft er líka kjörlendi fyrir Gróu kerlinguna á Leiti, sem kvartað er undan nú sem endranær.
Það vakti mikla ólgu í samfélaginu þegar Fjármálaeftirlitið kærði nokkra blaða- og fréttamenn fyrir að birta upplýsingar. Sérstakur saksóknari, sem víða er kallaður hinu notalega gælunafni Óli spes, vildi ekki aðhafast og þá var kært til setts ríkissaksóknara, Björns L. Bergssonar. Þær fréttir bárust í fyrradag að Björn hefði vísað málinu frá. Ég legg til að hann verði kallaður Björn betri. Ekki veit ég til þess að Óli spes og Björn betri krefjist nafnleyndar, þrátt fyrir að neita að draga sannleiksleitandi fjölmiðlafólk fyrir dóm.
Hagyrðingurinn Gísli Ásgeirsson, sem kýs að vera nafnlaus í þessum pistli eins og ég, orti eftirfarandi kvæði í tilefni af forgangsröð Fjármálaeftirlitsins.
Auðmannahjörðin okkar fól
erlendis mesta þýfið
í aflandsbankanna skattaskjól
skreppa þeir fyrir næstu jól.
Þar verður ljúfa lífið.
Rannsóknarnefndir rembast við
að rekja slóðir til baka
en þeir sem ætla að leggja lið
og leka gögnum í sjónvarpið
eru sóttir til saka.
Bíður og vonar barin þjóð
að búinn verði til listinn
yfir menn sem í okkar sjóð
auðinn sóttu af græðgismóð.
En fyrst þarf að kæra Kristin.
Fangelsið eigum fyrir þá
fúl er á Hrauninu vistin
en nú liggur ákæruvaldinu á
Agnesi að dæma og koma frá.
Helst þarf að hengja Kristin.
Ég óska Óla spes, Birni betri, fjölmiðlafólki, lýðræðinu, sannleikanum og íslenskum almenningi til hamingju með frávísanirnar og hvet uppljóstrara til dáða.
Megi réttlætið sigra að lokum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
12.9.2009
Skrúfað fyrir upplýsingar
Ég skrifaði um gagnagrunn Jóns Jósefs Bjarnasonar fyrir nokkrum dögum og birti ótrúlegar myndir sem sýna tengsl nokkura auðjöfra sem hafa kafsiglt efnahagskerfið. DV skrifaði um gagnagrunninn og birti upplýsingar og Kristinn Hrafnsson hjá RÚV gerði frétt um Jón Jósef og upplýsingarnar sem hann hefur safnað og skráð árum saman.
Jón hefur verið að uppfæra grunninn undanfarna daga þar sem hann náði aðeins til 1. ágúst 2007 og ljóst er að margt hefur gerst á þessum tveimur árum sem upp á vantaði. Upplýsingar sem Jón notar eru opinberar, og hann segir að fyrirtækið Creditinfo selji gestum og gangandi víðtækari og persónulegri upplýsingar en gagnagrunnurinn hans geymir. Sjálf þekki ég ekki til upplýsingagjafar Creditinfo, en það gera eflaust aðrir. Persónuvernd hefur haft aðgang að gagnagrunninum í hálft ár og ekki gert neinar athugasemdir við hann.
Nú hefur embætti Ríkisskattstjóra lokað á aðgang Jóns Jósefs að upplýsingum úr fyrirtækjaskrá. Hann segist hafa náð að uppfæra fyrirtækin en í gær, föstudag, var aðgangi hans lokað en þá átti hann eftir að uppfæra upplýsingar um þær persónur sem tengjast þeim. Þetta var gert án þess að láta hann vita þótt hann hafi greitt 180.000 krónur fyrir aðganginn og átti eftir tíma til áramóta. Þar sem hann var í miðri uppfærslu þegar hin óvænta lokun átti sér stað olli þetta talsverðum vandræðum.
Starfsmaður Ríkisskattstjóra sagði Jóni Jósef að yfirmaður þar á bæ hefði gefið þessi fyrirmæli. Ekki er vitað hvar þau eru upprunnin, en einhver vill greinilega ekki að upplýsingar komist inn í gagnagrunninn og beitir valdi til að skrúfa fyrir þær. Þetta getur komið sér afar illa fyrir ýmsa rannsóknaraðila sem nota gagnagrunn Jóns Jósefs, bæði hér heima og erlendis. Svo ekki sé minnst á upplýsingaflæði til almennings sem hafið var með vísan í gagnagrunninn.
Ég reikna fastlega með því að fjölmiðlar taki þetta mál upp á sína arma og grafist fyrir um ástæðu þess að skrúfað var fyrir opinberar upplýsingar sem búið var að greiða fyrir. Þær hafa líka rannsóknargildi og eru stór þáttur í að auka gagnsæi og upplýsingaflæði til almennings. Mig langar að vita hvort þetta sé lögleg aðgerð og nákvæmlega hver fyrirskipaði lokunina.
Fréttir RÚV 12. september 2009
Fréttir RÚV 8. september 2009
DV 8. september 2009 - Smellið þar til læsileg stærð fæst
DV 9. september 2009 - Smellið þar til læsileg stærð fæst
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (32)
11.9.2009
Hrammur græðgi og heimsku
Mikið ofboðslega er ég orðin þreytt á yfirgangi stjórnmála-, stóreignamanna og verktaka í skipulagsmálum í nánasta umhverfi mínu. Árum saman höfum við nágrannar mínir háð baráttu við skipulagsyfirvöld Reykjavíkur til að reyna að verja eignir okkar og umhverfi fyrir eyðileggjandi hrammi græðgi og heimsku. Með misjöfnum árangri. Ég bý alveg við miðborgina og í umhverfi mínu eru ein elstu og jafnframt viðkvæmustu hús borgarinnar, heillegustu götumyndirnar og saga við hvert fótmál. Ég hef megnustu fyrirlitningu á gráðugum, smekklausum frekjuhundum sem beita valdníðslu og fjámagni til að valta yfir samborgara sína, hunsa siðferði og sanngirni og sýna sögunni - grunninum sem við byggjum á - fullkomið skeytingarleysi og vanvirðingu.
Þetta er lýjandi barátta, tímafrek og getur verið mjög kostnaðarsöm. Og það er svo sárt að þurfa að standa í svona málum. Horfa á uppbyggingu forfeðranna og söguna sem þeir skópu með tilvist sinni troðna í svaðið. Það er alltaf verið að minnka hjarta og sál miðborgarinnar. Skemmdarverkin í borginni eru engu minni en þegar verktakar fara með stórvirkar vinnuvélar inn í náttúruperlur og leggja allt í rúst.
Nú á að ráðast á Ingólfstorg og Nasa, sem í mínum huga og jafnaldra minna heita Hallærisplanið og Sigtún. Þeir sem eldri eru kalla þetta eflaust ennþá Steindórsplanið og Sjálfstæðishúsið. Sigtún er undurfallegt hús með mikla sögu, ómetanlegan sal og stórfenglega sál sem geymir mörg leyndarmál mannlegra samskipta og ástarfunda í áranna rás. Staðið hefur til alllengi að breyta þessu svæði og við skulum líta á fréttir af fyrirhuguðum framkvæmdum frá júní og júlí 2008.
Ég tek undir með þeim sem segja að Ingólfstorg sé ljótt eins og það lítur út núna. Það er grátt og kalt og forljót hús gera umhverfið ekki aðlaðandi, s.s. Miðbæjarmarkaðurinn, TM-húsið, Plaza-hótelið og gamla Morgunblaðshúsið. Til hvers að bæta einu slíku við til að gera illt verra? Torginu er hreint ekki alls varnað og hægur vandi að breyta því ef vilji er fyrir hendi. Ef öll steypan væri upprætt, tyrft og bætt við blómum og trjám yrði þetta yndislegur staður í hjarta borgarinnar.
Til stendur að færa hús inn á torgið og byggja 5 hæða hótel (sem gæti vel orðið 6 hæðir eða meira - slíkt er kallað "breytingar á byggingartíma" hjá skipulaginu). Torgið er eign Reykvíkinga, en það á að klípa af þeirri eign til að hygla lóðareigandanum, Pétri Þór Sigurðssyni, eiginmanni Jónínu Bjartmarz fyrrverandi þingmanns og ráðherra Framsóknarflokksins. Pétur Þór á semsagt að fá að byggja stórt og almenningur á að víkja svo hann geti athafnað sig. Svona vinnubrögð geta engan veginn kallast eðlileg, hvað þá sanngjörn. Hér eru nokkrar fréttir frá undanförnum dögum um málið.
Aðalstræti er elsta gata Reykjavíkur og var, eins og nafnið bendir til, aðalgatan í þorpinu forðum. Hún er mjög þröng og öll aðkoma að henni líka. Fyrir ofan og vestan götuna er Grjótaþorpið, elsta byggð borgarinnar, og út frá Aðalstrætinu liggja - eðli málsins samkvæmt - fleiri götur á svipuðum aldri og með mikla sögu. Nú þegar standa tvö, stór hótel við Aðalstræti. Hótelum fylgir mjög mikil umferð bifreiða af öllum stærðum og gerðum - á öllum tíma sólarhrings. Rútur að sækja og skila erlendum ferðamönnum í eða úr flugi og/eða skoðunarferðum, leigubílar og ótölulegur fjöldi bílaleigubíla sem þurfa stæði. Auk þess þurfa hótel alls konar aðföng og þar vinnur fullt af fólki. Að ætla að bæta allri þessari umferð á þetta þrönga, viðkvæma svæði er ekki verjandi. Ef einhver hefur á annað borð hugsað út í slíkt hjá borginni.
Kastljós var með umfjöllun um málið 1. september og talaði m.a. við Júlíus Vífil Ingvarsson, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, sem var fullur hrifningar á fyrirhugðum framkvæmdum. Um Nasa sagði Júlíus m.a. "...að húsið væri ekki hluti af skemmtanalífinu því þarna væru tónleikar." Ansi er ég hrædd um að fáir taki undir með Júlíusi. Horfið og hlustið sjálf.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson kom heim úr námi með flottar hugmyndir og ákveðnar skoðanir á skipulagsmálum, enda skipulagshagfræðingur. Ég sat með stjörnur í augunum og hlustaði á hann. Tók undir hvert orð sem hann sagði. En svo fór hann í pólitík og hefur ekki minnst á skipulagsmál síðan. Rifjum upp frammistöðu Sigmundar Davíðs í skipulagsmálum.
Silfur Egils 13. janúar 2008 - um skipulag
Silfur Egils 27. apríl 2008 - um fasteignaverð og skipulag
Fréttir Stöðvar 2 og Ísland í dag 31. júlí 2008 - um staðsetningu Listaháskóla
Fínar hugmyndir hjá stráknum, vel fram settar og frábærlega rökstuddar. Hann hefði gjarnan mátt halda áfram í skipulagsmálunum, þar var hann eins og fiskur í vatni. Íhugum orð Sigmundar Davíðs með Ingólfstorg og Nasa í huga.
Eins og fram kemur í fréttaklippunum hér að ofan rennur frestur til að skila inn athugasemdum við breytingarnar á skipulaginu og niðurrifi salarins á Nasa út í dag, föstudaginn 11. september. Mig langar að hvetja alla sem vilja ekki að þessi tillaga fari í gegn til að senda inn athugasemd - mótmæla þessari vitleysu. Þetta kemur okkur ÖLLUM við, líka ykkur á landsbyggðinni og Íslendingum erlendis. Um er að ræða torg og sögulegan skemmtistað í hjarta höfuðborgar allra landsmanna - og við eigum landið okkar og höfuðborgina öll saman. Aðgerðarhópurinn Björgum Ingólfstorgi og Nasa er með heimasíðuna bin.is - og þar er hægt að fá allar upplýsingar um málið og senda athugasemd í gegnum síðuna. Kynnið ykkur heimasíðuna og hjálpumst nú að við að afstýra þessu slysi. Ef fólk vill senda athugasemdir sínar sjálft í pósti er netfangið: skipulag@rvk.is.
Torfusamtökin vara við því hættulega fordæmi um ráðstöfun almannaeigna sem gefið er með samþykkt fyrirliggjandi deiliskipulags um uppbyggingu við Ingólfstorg og Vallarstræti. Í slíkri samþykkt felst að réttur eins lóðareiganda eru settur í forgang fram yfir breiða hagsmuni nágranna og almennings á grundvelli löngu úreltra skipulagshugmynda um miðbæ Reykjavíkur. Þó tillagan taki í vissum atriðum mið af sjónarmiðum húsverndar þá er hæð og umfang fyrirhugaðrar nýbyggingar við Vallarstræti á skjön við þá farsælu endurreisn sögulegrar götumyndar Aðalstrætis og Grófar, sem borgaryfirvöld hafa unnið að af miklum metnaði og með glæsilegum árangri á undanförnum árum. Með nýbyggingunni yrðu fest í sessi eldri skipulagsmistök er heimild var veitt fyrir hækkun Aðalstrætis 9, en gluggalaus gafl þess húss varpar mestum skugga á sunnanvert Ingólfstorg og spillir ásýnd þess. Í því máli voru fjárhagslegir hagsmunir eins húseiganda teknir fram yfir tækifæri borgarbúa að eignast sólríkt og fallegt torg í hjarta miðbæjarins.
Nýjar upplýsingar um eðli og umfang minja frá fyrstu árum Íslandsbyggðar á svæðinu við Aðalstræti og Kirkjustræti breyta forsendum um uppbyggingu á þeim lóðum sem deiliskipulagið tekur til. Ljóst er að gera þarf umfangsmiklar rannsóknir á svæðinu áður en framkvæmdir geta hafist. Í þessum fornleifum kann að vera fólgið einstakt tækifæri fyrir Reykjavík sem ekki má gefa sér fyrirfram að moka megi burt. Þær fornleifar geta reynst Reykjavík, sögustaðnum við sund, menningarborginni og ferðamannastaðnum verðmætari en eitt hótel. Þá kann hugmynd um að jarða" hinn sögulega merka og um margt einstæða sal gamla Sjálfstæðishússins að vera í uppnámi, fari svo að merkar minjar finnist á lóð hússins.
Torfusamtökin árétta mikilvægi þess að borgaryfirvöld samþykki endurskoðaða heildarstefnu um húsvernd í elsta hluta Reykjavíkur og geri hana að lögformlegum hluta aðalskipulags borgarinnar. Í því eru fólgnir ríkir almannahagsmunir fyrir alla íbúa borgarinnar um langa framtíð.
Meðan húsverndarstefna Reykjavíkur er ekki hluti af aðalskipulagi borgarinnar mun uppbygging hins sögulega kjarna borgarinnar verða tilviljunarkennd, ómarkviss og borginni dýr. Mörkuð vafasömum þrætumálum eins og því sem hér fer.
Stjórn Torfusamtakanna
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (25)
9.9.2009
Kerfisbundinn blekkingavefur?
DV skúbbar hægri-vinstri þessa dagana og stendur sig með afbrigðum vel. RÚV var líka með frétt um sama mál í gærkvöldi. Um er að ræða gagnagrunninn hans Jóns Jósefs Bjarnasonar sem er vægast sagt magnaður og ætti að vera til á hverju heimili. Svo ekki sé minnst á fjölmiðla, rannsóknaraðila hrunsins og ýmsar opinberar stofnanir.
Ég hef fengið að skoða hann og ætla að sýna hér tvennt sem DV og RÚV fjölluðu um. Enn sem komið er nær gagnagrunnurinn aðeins til 1. ágúst 2007, en verið er að uppfæra hann svo kannski get ég skipt myndunum út á morgun eða hinn og sett inn uppfærðar myndir.
Að þessu sinni er um að ræða tengslanet annars vegar milli Jóns Ásgeirs og Pálma Haraldssonar - hins vegar milli Jóns Ásgeirs og Þorsteins Metúsalems Jónssonar sem kenndur er við Kók. Þetta eru þrír þeirra manna sem hafa leikið sér með efnahag íslensku þjóðarinnar undanfarin ár. Myndirnar af tengslunum eru eins og flókinn köngulóarvefur og svo umfangsmiklar að stóra iðnaðarprentara þyrftir til að prenta þetta út með sæmilega stóru letri. Dagblöðin geta það ekki einu sinni, þau eru ekki nógu stór. Er nokkur furða að erfitt hafi verið - og sé - að ná utan um blekkingavefinn?
Hér er frétt RÚV frá í gærkvöldi (ég finn ekki fréttina í vefútgáfunni). Þar er fjallað um Finn Ingólfsson og síðan tengslanet Jóns Ásgeirs og Þorsteins í Kók. Heilar línur þýða gildandi tengsl (m.v. 1.8.07), brotnar línur fyrri/rofin tengsl (m.v. 1.8.07).
RÚV 8. september 2009
Hér er tengslavefur Jóns Ásgeirs og Þorsteins.
Smellið þar til læsileg stærð fæst.
DV.is 9. september 2009 - meira í blaðinu sjálfu.
Tengslavefur Pálma Haraldssonar og Jóns Ásgeirs.
Smellið þar til læsileg stærð fæst.
Bloggar | Breytt 10.9.2009 kl. 09:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (23)
9.9.2009
Venjulegt fólk rís upp eða fer
Það eru fleiri í miklum vandræðum vegna hrunsins en þeir, sem komnir eru með allt í vanskil. Venjulegt fólk, sem ástundað hefur ráðdeild og reynt að hafa borð fyrir báru í fjármálum sínum, stendur frammi fyrir gerbreyttri stöðu og miklum vanda. Fólk, sem ekki telst í hópi þeirra verst settu, er óttaslegið. Það óttast að ríkisstjórnin muni einungis reyna að koma hinum allra verst stöddu til hjálpar og að engar bjargir standi því til boða ef það t.d. missir vinnuna eftir einhver ár.
Fólk, sem hingað til hefur talið sig eiga nokkrar eignir og verið í þeirri stöðu að ráða vel við sínar skuldbindingar, stendur allt í einu frammi fyrir því að þurfa að neita sér og fjölskyldu sinni um hluti, sem hingað til hafa þótt sjálfsagðir allt til að geta staðið í skilum með lán, sem það tók ekki. Almenningur á Íslandi tók ekki lánin, eins og þau standa í dag, eftir hrun krónunnar og óðaverðbólgu. Það sýður og kraumar undir niðri og stutt er í að upp úr sjóði.
Þórður opinber starfsmaður
Þórður er opinber starfsmaður. Hann starfar við löggæslu. Hann er einn af þeim, sem hefur fram til þessa getað staðið í skilum með sitt. Nú er hins vegar búið að skera niður alla yfirvinnu hjá honum og hann sér fram á að endar nái ekki saman.
Þórður tók lán hjá Íbúðalánasjóði síðla árs 2005. Þá var lánsupphæðin 11 milljónir. Lánið stendur nú í 15 milljónum. Þórður tók ekki erlent lán. Hann tók ósköp venjulegt verðtryggt lán og á fjórum árum hefur óðaverðbólga orðið til þess að verðtryggingin hefur hækkað lánið um 4 milljónir, eða um tæplega 40 prósent. Þórður keypti íbúð sína á 21 milljón og borgaði 10 milljónir út. Eigið fé hans í íbúðinni var þannig rétt tæpur helmingur af verðmæti hennar. Þórður á nokkurra ára gamlan bíl skuldlausan. Hann er búinn að leggja VISA kortinu sínu en horfir samt fram á að lenda í vandræðum. Til að halda öllu í skilum fram til þessa hefur hann þurft að ganga á yfirdráttarheimild sína í bankanum, og nú er yfirdrátturinn kominn í botn. Þórður hafði keypt hlutabréf í einum íslenska bankanum og tapaði þremur milljónum þegar bankarnir hrundu fyrir tæpu ári.
Þórður er einn þeirra, sem með sparsemi og ráðdeild höfðu byggt sér góða fjárhagsstöðu fyrir einu ári. Nú er hann einn þúsunda Íslendinga, sem er eins og sökkvandi skip. Stefnið er farið að síga og þó að allar dælur séu í gangi sekkur skipið dýpra og dýpra. Þeir skipta mörgum þúsundum Íslendingarnir, sem smám saman eru að missa greiðslugetuna og greiðsluviljann. Þetta fólk, eins og Þórður, sér enga glóru í því að berjast við vindmyllur. Þórður, sem er um fertugt, hefur verið á vinnumarkaði í tvo áratugi. Allur hans sparnaður alla starfsævina hefur nú gufað upp. Íbúðin hans hefur hrunið í verði og verðtryggða lánið rokið upp. Þórður veltir því fyrir sér hvort skynsamlegt sé að láta frysta lán sitt hjá ÍLS til að ná yfirdrættinum niður. Hann veltir því fyrir sér hvort einhver tilgangur sé í því að reyna að hegða sér skynsamlega í geggjuðum heimi.
Þórður er lítið hrifinn af stjórnmálamönnum á Íslandi. Allt þar til í fyrrahaust var hann flokksbundinn sjálfstæðismaður. Eins og margir aðrir gafst hann upp á þeim flokki þegar hann horfði upp á fullkomið aðgerða- og ráðaleysi Geirs H. Haarde og ríkisstjórnar hans í kjölfar hrunsins. Hann er lítið hrifinn af núverandi valdhöfum og finnst þeir hafa svikið þjóð sína með aðgerðaleysi, sem í engu er frábrugðið aðgerðaleysi ríkisstjórnar Geirs Haarde.
Þórður er meðlimur í Hagsmunasamtökum heimilanna. Hann er sannfærður um að það styttist í að farið verði í beinar aðgerðir til að mótmæla aðgerðaleysi stjórnvalda og til að vernda hagsmuni þeirra, sem eru að missa allt sitt. Hann hefur frétt af nýjum hópi, sem hefur verið stofnaður. Þessi hópur ku kalla sig Heimavarnarsamtökin og samanstanda af yfir 100 manns, sem eru staðráðnir í að koma í veg fyrir að fólk verði borið út úr íbúðum sínum. Lögreglan á Höfuðborgarsvæðinu kannast reyndar ekki við að þessi hópur sé til. Þórður er kominn í stöðu, sem hann hefði aldrei getað ímyndað sér sjálfan sig í. Hann býst við að taka þátt í mótmælum í vetur og segist ekki ætla að láta arfavitlausa stjórnmálamenn setja sig á hausinn án þess að berjast á móti, eins og hann orðar það.
Sigurbjörn og Ásdís eignalaus svo til á einni nóttu
Sigurbjörn og Ásdís starfa bæði hjá traustum fyrirtækjum í góðum störfum. Þau hafa verið svo heppin að halda óbreyttum launum og starfshlutfalli þrátt fyrir þau áföll, sem dunið hafa á þjóðinni. Þau eru reglufólk og telja sig ekki hafa tekið þátt í einhverju 2007 fjárfestingar- og eyðslufylleríi. Þau eiga fjögur börn, sem öll búa á heimilinu hjá þeim.
Snemma árs 2005 keyptu þau hús, sem kostaði 36 milljónir. Þau hafa varið 4 milljónum í endurbætur á því, í smáum skömmtum eftir því sem efni og aðstæður hafa leyft. Heildarfjárfesting þeirra í húsinu er því um 40 milljónir. Kaupin fjármögnuðu þau með 26 milljón króna láni í erlendri mynt. Fjárfestingaráðgjafinn þeirra í bankanum ráðlagði þeim eindregið að taka lánið í erlendri mynt frekar en að taka verðtryggt íslenskt lán. Eftir kaupin og endurbæturnar áttu þau því 14 milljónir í húsinu, eða 35 prósent. Þegar þau tóku lánið var greiðslubyrðin rétt innan við 100 þúsund krónur á mánuði. Þau voru búin að gera samanburð á gengisláni og verðtryggðu láni og komust að þeirri niðurstöðu að jafnvel þó að hin óhugsandi staða kæmi upp að gengisvísitalan færi í 180, og festist þar, stæði erlenda lánið jafnfætis verðtryggðu lán, sem bæri 5 prósent vexti í 3 prósent verðbólgu, þegar upp væri staðið. Þau höfðu ekki hugmyndaflug til að láta sér koma til hugar að gengisvísitalan kynni að fara í 230-240 og festast þar.
Sigurbjörn og Ásdís höfðu átt tvo gamla bíla, sem voru orðnir nokkuð dýrir í rekstri. Í árslok 2006 ákváðu þau að selja báða bílana og kaupa einn nýjan í staðinn. Þau keyptu góðan bíl, sem kostaði 4,3 milljónir og greiddu 1,3 milljónir út. Afganginn tóku þau að láni til þriggja ára með gengistryggðum bílasamningi. Þarna voru þau með um 30 prósent eiginfjárhlutfall og viðráðanlega greiðslubyrði.
Í dag er staða þeirra hjóna talsvert önnur. Lánið í húsinu stendur í 53 milljónum og hefur því meira en tvöfaldast þrátt fyrir að þau hafi greitt af því í meira en fjögur ár. Bílalánið stendur í 5,2 milljónum og þau skulda því samtals tæplega 60 milljónir. Eignirnar eru nú metnar á 35 milljónir í mesta lagi auk þess, sem illmögulegt er, ef það er þá yfirleitt hægt, að koma þeim í verð. Áður en allt hrundi á Íslandi áttu þau hreina eign upp á 17 milljónir. Í dag er eign þeirra neikvæð upp á næstum því 25 milljónir. Þetta er sveifla upp á meira en 40 milljónir.
Hvað verður um þá sem þurfa hjálp seinna?
Greiðslubyrðin af bílnum og húsinu var samanlagt um 200 þúsund krónur á mánuði. Í dag er greiðslubyrðin komin í 450 þúsund krónur auk þess, sem þau Sigurbjörn og Ásdís þurfa nú að greiða hátekjuskatt, sem nemur samanlagt um 70 þúsund krónum á mánuði. Ráðstöfunartekjur þeirra hafa þannig lækkað um 320 þúsund krónur á mánuði. Ofan á þetta bætist síðan viðbótarkostnaður, sem stafar af verðbólgu. Það er miklu dýrara í dag að kaupa mat og aðrar nauðsynjavörur en fyrir einu ári. Þetta vegur þungt á mannmörgu heimili.
Sigurbjörn og Ásdís ráða enn við greiðslubyrðina með herkjum. Á meðan þau bæði hafa sína vinnu geta þau staðið í skilum með því að neita sér og fjölskyldunni um margt, sem áður þótti sjálfsagt. Það er ekki lengur sjálfsagt að börnin fari í spilatíma eða æfi íþróttir, hvað þá að þau geti æft bæði handbolta og fótbolta. Slíkt er liðin tíð. Þó að fyrirtækin, sem þau starfa hjá, séu traust vita Sigurbjörn og Ásdís vel að skjótt getur skipast veður í lofti. Þau eru óttaslegin. Þau heyra ráðamenn og hagfræðinga tala um alls kyns úrræði fyrir þá, sem verst eru staddir fyrir þá, sem eru ekki eins heppnir og þau, sem enn ráða við stöðuna.
Hvað gerist eftir fimm ár ef ekki verður farið í almennar aðgerðir til að létta byrðum af öllum þeim, sem lent hafa í því að tapa á hruninu? Hvað gerist ef annað þeirra hjóna missir vinnuna eftir nokkur ár og þau hætta að geta staðið í skilum? Verða einhver úrræði í boði á þeim tíma? Verður þá kannski búið að aðstoða þá, sem verst standa núna, og afskrifa skuldir þeirra niður í viðráðanlega stöðu, en hinir sitja eftir og stendur ekki til boða nein aðstoð?
Er kannski betra fyrir Sigurbjörn og Ásdísi að fara í greiðsluverkfall og reyna að knýja fram einhver úrræði sér til hjálpar nú?. Þau hafa heyrt af kunningjum, sem hafa skipt um starf og jafnvel farið á atvinnuleysisbætur til að eiga rétt á greiðsluaðlögun.
Hrokafullir valdhafar ganga erinda útlendinga
Staðreynd málsins er að stjórnvöld sjá ekki skóginn fyrir trjánum. Þau sjá ekki að allt samfélagið er í sárum og jafnvel þeir, sem enn geta staðið í skilum með sitt, eru óttaslegnir og ráðvilltir. Greiðsluviljinn þverr. Fólk er að kafna undir skuldafargi. Á einhverjum tímapunkti spyr fólk sig hvort þessi fátæktargildra sé það samfélag, sem það vill bjóða börnum sínum. Samfélagssáttmálinn er að rofna og mun rofna ef stjórnvöld sjá ekki að sér. Það verður aldrei betra tækifæri til að koma hjólum atvinnulífs í gang og skera heimilin niður úr skuldasnörunni en einmitt núna.
Í tæpt ár hafa íslensk stjórnvöld haft fullt forræði yfir hinum föllnu bönkum. Í tæpt ár hefur ekki verið lyft litla fingri til að framkvæma almennar björgunaraðgerðir fyrir íslenskt hagkerfi. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn bannar almennar afskriftir lána. Það er vegna þess að AGS er ekki að hugsa um hagsmuni Íslands og Íslendinga. AGS hugsar um hagsmuni erlendra kröfuhafa.
Íslenskir stjórnmálamenn eiga hins vegar að hugsa fyrst og síðast um hagsmuni Íslendinga. Það eru ekki hagsmunir Íslendinga að hér sé haldið uppi gjaldeyrishöftum þar til gengið hefur verið frá láni til íslenska ríkisins, sem nota á til að lágmarka tap spekúlanta, sem fjárfestu í vaxtamunarsamningum á Íslandi. Það er einkennileg afstaða ríkisstjórnar Íslands, að útlendir spekúlantar megi helst engu tapa á áhættufjárfestingum sínum á Íslandi, en venjulegir Íslendingar, sem lögðu sparnað sinn í að koma sér þaki yfir höfuðið, mega éta það sem úti frýs. Þetta eru kaldar kveðjur frá fyrstu hreinu vinstri stjórninni, sem setið hefur með meirihlutastuðning á Alþingi. Satt að segja átti maður ekki von á því að þessi vinstri stjórn yrði svo trú stefnu ríkisstjórnar Geirs H. Haarde og raun hefur borið vitni.
Það sýður og kraumar undir yfirborðinu hjá venjulegu íslensku fólki. Fólk, sem hingað til hefur verið seinþreytt til vandræða, er að fá nóg. Jafnvel þeir, sem enn hafa vinnu, horfa fram á vanskil. Það er kaldur, þungur og erfiður vetur framundan hjá íslenskum almenningi. Ekki er víst að það sé mikið framundan hjá ríkisstjórninni, annað en að vera sett af, ef hún daufheyrist áfram við kröfum og neyðarópum venjulegs íslensks fólks, sem hefur orðið fyrir miklum búsifjum af völdum bankahrunsins og aðgerðaleysis stjórnvalda í kjölfar þess.
Ég hvet lesendur, sem luma á dæmum úr lífi fólks eða fyrirtækja, sem eru að verða illa úti í kreppunni vegna aðgerðaleysis stjórnvalda eða slæmrar framkomu fjármálafyrirtækja og opinberra stofnana að hafa samband við mig á netfanginu olafura@pressan.is.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
8.9.2009
Tjáningarfrelsi og nafnleysi
Mikið hefur verið rætt og ritað um kvartanir vissra manna um róg og níð í skjóli nafnleysis. Með betri pistlum um málið má lesa hjá Sigurði Þór. Í gærkvöldi las ég svo stórfínan pistil Agnars Kristjáns Þorsteinssonar, sem varpar ljósi á ýmislegt í þessu sambandi. Hann kemur m.a. inn á hluti sem ég hef mikið velt fyrir mér, skrifað og talað um - hræðsluþjóðfélagið sem hér hefur ríkt svo óralengi og kæft eðlilega, nauðsynlega umræðu. Þar sem fólk er látið gjalda orða sinna og skoðana. Svo langt hefur verið gengið að fólk hættir að þora að tjá sig og segja sannleikann. Agnar leyfði mér að birta pistilinn sinn hér. Yfirskrift pistilsins er Til varnar nafnleysi í samfélagi ógnar.
Ég hef verið aðeins hugsi yfir þessari nafnleysisumræðu því að mörgu leyti hefur hún verið á einn veg: þ.e. þar sem lítill minnihluti nafnleysingja eru sóðar og níðingar, þá skuli ganga í skrokk á þeim öllum. Því hef ég ákveðið að stíga fram og taka aðeins upp hanskann fyrir hinni nafnlausu umræðu á netinu, eitt af því sem er óvinsælt af hálfu þeirra sem vilja stýra öllum umræðum og yfir tjáningarfrelsi drottna.
Þegar ég byrjaði að blogga þá ákvað ég að byrja með dulnefnið AK-72, sem er samsett úr stöfum í nafni mínu og fæðingarári. Tvennt var það sem olli þessari ákvörðun og það var að ég var að færa mig hikandi inn á þennan ritvöll sem bloggið er og svo hinsvegar það sem var aðalástæðan: ég var ekki með skoðanir sem voru vinsælar, þ.e. ég gagnrýndi Sjálfstæðisflokk og Framsókn fyrir það fyrsta og svo hafði ég sterkar skoðanir gagnvart forarpytti íslensku þjóðarinnar: rasismanum, þjóðernishyggjunni og útlendingahatrinu sem einkennir umræðu þegar kemur að þessum minnihlutahópum. Enda fór sem fór, maður lenti í eldheitum umræðum og fékk á sig hatursfullar athugasemdir frá fólki sem skrifaði undir nafni og maður skildi alveg fullkomlega hversvegna nafnleysi getur verið gott i umræðu þar sem maður tekur upp hanskann fyrir minnihlutahóp.
Svo kom þó að ég fór að skrifa undir nafni eftir beiðni frá ritstjóra Mogga-bloggsins en hélt þó þessu heiti á yfirborðinu enda myndaði það smá buffer" að mér fannst. Og það kom líka í ljós að skrifa undir nafni hafði einmitt ákveðin áhrif því þegar leið á umræðu um múslima og fordóma gegn þeim sem ég tók þátt í, þá gerðist nokkuð sem vakti hroll hjá mér og ónot. Einn af verstu öfgamönnunum í þeirri umræðu sem ég tel að gangi ekki heill til skógar, tók sig til og gróf upp hvar ég vann, netfangið þar og byrjaði að senda mér óhugnanlega tölvupósta með hatursáróðri. Ég bað hann um að hætta þessu og sagði honum að ég hefði ekki beðið um að fá svona viðurstyggð senda. Svar hans var að hann teldi sig hafa fullkominn rétt á því, hann væri að fræða mig um hætturnar af múslimum og þverneitaði að taka mig af póstlista sínum heldur hélt áfram að senda póst.
Ógnin af þessu var einnig augljós, ofstækisfullur kynþáttahatari og kristinn öfgamaður taldi sig geta gert hvað sem er og óhugnaðurinn sem fylgdi þessu, lifið með manni í nokkra daga á eftir. Að lokum varð þó niðurstaðan sú hjá mér, að einfaldlega setja klikkhausinn í junk-mail filter", lét vini mína vita af þessu og sagði þeim að ef ég endaði lúbarinn eða með hníf í kviðnum, þá ætti að leita fyrst að grunuðum hjá íslenskum kynþáttahöturum sem fóru mikið um netheima. Ég ætlaði ekki að láta einhverja hálfslefandi, innræktaða amlóða hræða mig né hafa áhrif á mann.
Þó bliknar þessi saga mín miðað við íslenskt samfélag eins og það hefur verið síðustu ár undir stjórn náhirðar og sauðskinsskálka. Það var og er samfélag ógnar og ótta ,samfélag þar sem mönnum er hótað eða refsað fyrir að segja skoðanir sínar, tjá sig eða jafnvel upplýsa um glæpi líkt og litli Landsímamaðurinn gerði. Hann var rekinn fyrir að fara til lögreglunnar og láta vita um glæp uppáhaldsdrengja Bláu handarinnar sem kreistir og kremur alla þá sem henni líkar ekki við, og átti víst erfitt með að fá vinnu eftir á. Orðið um að hann væri uppljóstrari" var víst látið ganga meðal klíkubræðra sem seint fyrirgáfu að andlit frelsis markaðarins" skuli hafa verið gripið með kúkinn í brókunum og milljónir í vasanum. Ef hann hefði aftur á móti farið hefðbundna leið og látið yfirmann vita, þá hefði þetta bara verið kæft niður og hann færður á milli deilda, líkt og einhverjir bankamenn lentu í þegar þeir urðu varir við óeðlilega hluti innan bankakerfisins fyrir hrun.
Það sama hefur gerst fyrir suma þá sem skrifa á netinu undir nafni hafa upplifað, þeim er hótað, þeim er ógnað og sviptir atvinnu fyrir að tjá sig um málefni líðandi stundar, skoðanakúgun er liðin af hálfu þeirra sem völd hafa eða valdinu þjónka. Þetta varð sérstaklega áberandi í vetur þegar fólk sem tók þátt í mótmælum þurfti að þola allskonar svívirðingar, hótanir, ógnanir og jafnvel rúðubrot og ofbeldi, en nei, það var í lagi, þetta voru bara kommúnistadrullusokkar, þetta voru atvinnumótmælendur og þeir voru ekki eins réttháir í augum þeirra sem grenja nú. Þá mátti svívirða, níða, hrækja á, berja á og já, talsmenn frelsisins gengu fram með blóðþorstaglampa, heimtandi harðari aðgerðir gegn því fólki sem dirfðist að standa upp úr sófanum og láta skoðanir sínar í ljós. En var þetta fólk að væla? Nei, það tók mestum skítnum af æðruleysi því það ætlaði ekki að leyfa rökkum níðinga flokkakerfisins að brjóta sig niður og myndaði skel ólíkt þeim stjórnmálamönnum, flokksdindlum, fjölmiðlamönnum og vörgum viðskiptalífsins sem vilja stýra allri umræðu.
En það eru ekki bara þeir sem skrifa og tjá sig á netinu sem lenda í svona, það eru líka þeir sem tjá sig á vinnustöðum þar sem yfirmenn þola ekki rangar" skoðanir líkt og gerðist með einn ættingja minn sem vann hjá einu borgarbatteríinu. Hann lét gamminn geysa í einum kaffitímanum þar sem hann hraunaði aðeins yfir Framsóknarflokkinn, nokkuð sem nýja yfirmanninum með valdastandpínuna líkaði ekki við. Þegar verkstjóra-jæjað kom, þá var ættinginn dreginn inn á skrifstofu og honum tilkynnt það í ógnvekjandi tón að svona ætti hann ekki að tala og það yrði séð til þess að honum yrði sparkað ef hann talaði svona um Framsóknarflokkin aftur. Ættinginn gerði það eina rétta í stöðunni, sagði honum bara að eiga sínar hótanir, gekk út og fékk sér aðra vinnu, nokkuð sem var auðvelt fyrir mann með hans menntun og reynslu.
En í samfélagi ógnar og ótta sem hið Gamla Ísland" var og er, þá er ekki svo hægt um vik á mörgum stöðum að gera hið eina rétta í stöðunni og storka skoðanakúgaranum. Tökum sem dæmi, þá sem búa út á landi og í litlum bæjarfélögum eða þorpum. Þar er nefnilega mun erfiðara að vera með óvinsælar" skoðanir hvort sem það er að leggjast á móti álverum eða vera ekki með sömu skoðun og aðalatvinnurekandinn eða stjórnmála-aflið í þorpinu, það gæti haft alvarlegar afleiðingar í för með sér, ekki bara fyrir hann heldur einnig fjölskylduna. Þar er nefnilega hægt að beita hóprefsingu og ég efast ekki um að þeir sem valdið hafa, þeir sem tala mest um frelsi einstaklingsins og markaðsins" og tjáningarfrelsið má ekki hindra" hafi refsað mönnum fyrir að tjá sig undir nafni enda hafa þeir sem kenndir eru við skrímsladeild og náhirð oftast verstir verið.
Þetta leiðir því að öðru, þetta tal um hræsnina sem felst í því að tala um frelsið" en þola ekki að aðrir hafi aðrar skoðanir. Hræsnin á bæ þeirra sem heimta að skrúfað sé fyrir skoðanir eða hvassa gagnrýni eða heimta að einhver yfirritskoðari taki á mönnum sem skrifa undir nafni, líkt og nýbakaður þingmaður nokkur sem aðhyllist frelsið", telur að eigi að gera við hvassan skrifara sem dirfist að urra í áttina að honum. Hvar er frelsið þá ef þingmaður getur látið þagga niðri í gagnrýnanda sínum?
Slepjan sem liggur svo í orðum margra þeirra sem stíga fram nú sem siðapostular og fulltrúar vandlætingar, er í senn hræsin og velgjuvaldandi. Aðilar sem allir eiga sök á því hruni sem hefur orðið hér, aðilar sem hafa ekkert lært af hruninu og dreymir um hið gamla Ísland" rísi upp á ný sem Fimmta ríkið. Og hverjir eru þeir þegar litið er yfir hringleikahús íslenskrar umræðu?
- Stjórnmálamenn sem væla hvað mest undan að landinn blaðri á netinu og nota yfirskin um netníð og nafnleynd". Sjálfir sjá þeir ekkert að notkun dulnefna ungliða sinna eða hópa sem birtu auglýsingar í þeirra þágu með lítt dulbúnum og jafnvel frekar árásargjörnum áróðri fyrir kosningar og nú í sumar. Nei, þá var það í lagi, því andstæðingurinn er skotmark sem í lagi er að beita nafnlausu níði gegn. Það er nefnilega munur á því að vera nafnlausi Jón eða Háaleitis-Jón þegar kemur að persónulegu skítkasti.
- Viðskiptamennirnir sem settu landið á hausinn grenja nú undan umræðunni, heimta lockdown" á slíkt því það á ekki að líðast að þeir sem borga skaðann eftir þá fái að tala um gjörðir þeirra. Við bætist að viðskiptamenn vilja að sjálfsögðu stjórna algjörlega umræðunni um sitt fyrirtæki eða útrásarvíkinganna sem eiga fyrirtækin en kveinka sér undan neikvæðri umræðu, umræðu sem þeir geta ekki stjórnað og tengist oft á tíðum hvernig þeir haga sér. Nei, hegðun þeirra er alltaf til fyrirmyndar enda eru það bara eðlileg viðskipti að ræna fólk ævisparnaðinum og setja heila þjóð á hausinn.
- Blessaðir fjölmiðlarnir sem þegja margir hverju þunnu hljóði yfir því að FME gangi harkalega fram til að þagga niðri í þeirra stétt fyrir að kjafta frá glæpum eigenda fjölmiðlanna. Nei, þá er betra að vera hlýðinn og þægur hvutti, styggja ekki eigendur og stjórnarmenn sem eiga fjárhagslega hagsmuni undir t.d. brunaútsölu á orkuveitum.
Þó er kannski hræsni fjölmiðlageirans mest pirrandi því þar stíga fram sjálfumglaðir fjölmiðlamenn sem riddarar réttlætisins gagnvart nafnlausum netverjum og setja sig á háan stall en gæta sín ekki að þeir standa á klettabrún tvískinnungsins. Tvískinnungsins sem felst í nafnlausum áróðurs og árásardálka sem kallast Staksteinar eða Fuglahvísl, nafnlausar ritstjórnagreinar og kjallaragreinar Svarthöfða og Velvakanda. Ekki sjá þeir neitt að allskonar slíkum meinfýsnum og jafnvel skítlegum dálkum því eins og fuglar AMX sem hvísla hvað meinfýsilegast, þá horfa þeir bara með augum ránfuglsins illa og hlæja illlýsislega líkt og hýenur viðskiptalífsins sem þeir þjóna.
Nei, það sem fer fyrir brjóstið á þessum þremur vandlætingarhópum er fyrst og fremst að allt sé ekki eins og það á að vera, að umræðan sé stjórnuð að hætti hins gamla Íslands þar sem stjórnmálamenn og fjölmiðlamenn sitja eins og þægir seppar við matardallinn frá húsbændum sínum úr yfirstéttinni, í þeirri von um að fá að pissa á gullskreyttu klósetti húsbóndans einn daginn. Þeirra gremja er fyrst og fremst ein, að almenningur hafi skoðanir, að almenningur sé hættur að skilja að hans hlutverk sem hálfmenni þrælastéttar sé að halda kjafti, borga skuldir yfirstéttarinnar og vera niðurlægð fótþurrka valdsins um ókomna tíð.
Og hvað þá með bloggara marga sem koma fram undir nafni? Margir þeirra öskra og æpa um hryðjuverkamenn, asna, fávita geðveiki, föðurlandsvik og fleira í þeim dúr undir nafni, oft á tíðum með helbláan fálkann sitjandi á öxlinni, sama fálka og hefur rifið landið á hol og kjamsar nú á vænum kjötbita rifnum úr holdi almennings. Margir þeirra eru engu betri en verstu nafnleysingjarnir, flokksdindlar til hægri og vinstri sem jarma möntruna sem kokkuð er upp á flokkskrifstofum, en hneykslast nú á þeim sem skrifa nafnlaust, nafnleysingjum sem skrifa jafnvel mun betra og fágaðra en heimskuleg níðskrif margra nafngreindra fréttabloggara eru. Margir nafnleysingjana skrifa betri orðræðu, skila skýrari hugsunum og fallegra máli en fréttabloggarinn illræmdi, margir þeirra rökræða og það er aðeins háttur þess sem er komin í rökræðulegt gjaldþrot að byrja að tala um að fólk sé ekki marktækt í skrifum ef það sé nafnlaust.
Að lokum að þegar litið er yfir sviðið og nafnleysingjarnir eru skoðaðir í samanburði við þá nafngreindu, þá kemur oft í ljóst að fámennur hópur nafnleysingja er með níðið en þeir sem raunverulega eru verstir eru innantómir fréttabloggarar og heimskuleg skrif nafngreindra kjaftaska sem geysast fram með svívirðingum um allt og alla sem varla er samhengi í. Níðskrifin ógeðfelldu sem gagnrýnd eru nú blikna oft í samanburði við níðskrif hinna nafngreindu og nafnlausu sem þóttu flott og fín af þeim þríhöfða þurs valdsins áður á meðan það beindist gegn mótmælendum síðastliðinn vetur eða öðrum þeim sem "gamla Ísland" taldi óvin sinn.
Þó eru nafnleysingjarnir svínslegu eða orðljótustu nafngreindu netverjarnir ekki mesta hættan við lýðræðislega umræðu eða svartasti bletturinn á henni því þá er alltaf hægt að hundsa. Nei, þeir sem eru svarti bletturinn og ógn við málefnalegar umræður og lýðræðislegar rökræður, eru flokksdindlarnir og leiguþý auðmanna sem geysist um víðan völl í vernd fyrir húsbændur sína með heimtingum um ritskoðun og þöggun á þeim sem ekki hafa réttar" skoðanir.
Þeir eru nefnilega fulltrúar hins gamla, spillta Íslands sem vill ná völdum á ný.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
7.9.2009
Hver er þessi Guðjón?
Hann stóð vaktina fyrir okkur og með okkur í allan fyrravetur. Lék eitt aðalhlutverkið í andófi fjöldans gegn ástandinu, spillingunni, stjórnvöldum og öllu því sem á okkur brann. Við stóluðum á hann - og hann brást okkur aldrei. Hann studdi okkur og gaf okkur von. Var vakandi og sofandi yfir mannréttindum okkar og tjáningarfrelsinu sem hefur blómstrað sem aldrei fyrr eftir hrunið mikla. Hann gerði þetta allt í sjálfboðavinnu. Var launalaus allan tímann. Það veit ég, því ég kynntist honum vel í baráttunni fyrir betra samfélagi. Og þess vegna veit ég að nú þarf hann á okkur að halda. Nú er komið að okkur að styðja hann. Við klikkum ekki á því, er það?
Hörður Torfason, sá mikli baráttumaður og fánaberi mannréttinda, heldur sína 33. hausttónleika í Borgarleikhúsinu annað kvöld, þriðjudagskvöld. Ég hef farið nokkrum sinnum á tónleikana hans og þeir eru alltaf bráðskemmtileg upplifun - sambland af tónlist og leiklist. Frábærlega útfærð tjáning. Stórskemmtilegir textar og grípandi músík.
Ég hef verið að leita að fjölmiðlaumfjöllun um tónleikana, en það eina sem ég fann var viðtal við Hörð á Morgunvaktinni á fimmtudaginn. Þetta hefur komið mér svolítið á óvart, einkum í ljósi þess hve stóru hlutverki hann gegndi í búsáhaldabyltingunni í vetur, aðdraganda hennar og í hve mikilli þakkarskuld þjóðin stendur við Hörð Torfason. Til samanburðar þarf Bubbi bara að prumpa og kvarta um dýrtíð og er þá umsvifalaust í viðtölum í öllum fjölmiðlum. Mér datt í hug hvort þetta væri hluti af þögguninni en trúi því bara ekki upp á fjölmiðlafólkið. Það hlýtur að hafa eitthvert frumkvæði og sjálfstæði. Engu að síður - maður spyr sig...
En hvað sem því líður - sjáumst í Borgarleikhúsinu annað kvöld, þriðjudagskvöld klukkan 20! Miðar fást hér og í Borgarleikhúsinu.
Lag: Hörður Torfason, Ljóð: Þórarinn Eldjárn
Guðjón lifir enn í okkar vonum
enginn getur flúið skugga hans.
Þér er sæmst að halla þér að honum
hann er gróin sál þíns föðurlands.
Þig stoðar lítt með gulli og glysi að skarta
þú ert sjálfur Guðjón innst í hjarta.
Ungan léstu sverta þig og svíkja
þú sást ei þá hve margt er blekking tál.
Á fúnu hripi rak þig milli ríkja
hver rakki fékk að snuðr'í þinni sál.
Drjúptu höfði því að það er meinið
þú ert sjálfur Guðjón innvið beinið.
Þannig varstu hrakinn land úr landi
lítilsigldur fóli, aumur, smár.
En nú er burtu villa þín og vandi
þú viknar hrærður, fellir gleðitár.
Þótt illur sért er síst of seint þig iðri
þú ert sjálfur Guðjón undir niðri.
Brátt mun skína í Guðjón gegnum tárin
gróður lífsins vex úr þeirri mold.
Einhverntíma seinna gróa sárin
er svik við Guðjón brenndu íslenskt hold.
Senn mun koma sá er hlýtur völdin
þú ert sjálfur Guðjón bakvið tjöldin.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 02:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (35)
6.9.2009
Stórhættuleg þöggun
Ég las þetta á Fésinu seint á föstudagskvöldið og fékk hroll. Hin veika von um að réttlætinu verði einhvern tíma fullnægt - þótt ekki sé nema að einhverju leyti - dofnaði til muna. Forgangsröðin og málatilbúnaðurinn í þessu máli er með slíkum ólíkindum. Ég sá áðan að Egill Helgason hafði birt þessa frásögn og ætla að taka mér sama bessaleyfi. "For the record", eins og sagt er. Um er að ræða kærurnar á hendur fjórum fjölmiðlamönnum og Eyjunni - fyrir að segja okkur sannleikann.
Flestir ættu að muna eftir þessum atburði sem fjallað var um í byrjun apríl. Ef ekki skulum við rifja upp nokkur atriði. Hér er grein Agnesar sem kærð var. Hér er pistill Egils sem hann og Eyjan voru kærð fyrir. Takið sérstaklega eftir öllum dagsetningum í ljósi þess sem síðar upplýsist.
Kristinn Hrafnsson var kærður fyrir þessi orð í Kastljósi 27. janúar 2009
Fréttir Stöðvar 2 - 2. apríl 2009
Agnes Bragadóttir og Kristinn Hrafnsson í Silfrinu 5. apríl 2009
Á föstudagskvöldið birti svo Kristinn Hrafnsson þennan pistil á Fésinu:
"Nú hef ég fengið staðfest að fyrsta sakamálið sem kom til lögreglurannsóknar hjá Ólafi Haukssyni, sérstökum saksóknara, var meint brot mitt á lögum um bankaleynd. Einnig hef ég fengið staðfest að sama mál er það fyrsta sem kemur til afgreiðslu hjá Birni L. Bergssyni, settum sérstökum ríkissaksóknara. Ég vona að það gefi ekki tóninn um starf þessara embætta sem stofnuð voru til þess að rannsaka og ákæra í málum sem tengjast bankahruninu. Ekki held ég að þeim hinum ,,sérstöku", Ólafi og Birni, hafi þótt neitt sérstaklega skemmtilegt að byrja hreinsunarstarfið á því að eltast við mig auman.
Til upprifjunar skal þess getið að meint brot fólst í því að upplýsa í viðtali í Kastljósi undir lok janúar um stórfelldar lánveitingar Kaupþings til Róberts Tchenguiz sem var hluthafi og stjórnarmaður í Existu - sem aftur var stærsti einstaki eigandi Kaupþings. Til skemmtunar skal þess getið að Róbert þessi er sonur Íraka sem tók sér nafnið Tchenguiz en það ku vera persneska útgáfan af fornafni Gengis Kan. Upplýsingarnar um Róbert Tchenguiz áttu að birtast í Kompásþætti í lok janúar en ég og félagar mínir vorum reknir og þátturinn sleginn af fjórum dögum fyrir sýningardag.
Í vor nánar tiltekið 2. apríl fæ ég boðsent bréf frá FME þar sem því er lýst yfir að ég hafi brotið bankaleyndarákvæði laga um fjármálafyrirtæki. Ég fékk svigrúm til andmæla og lögmaður minn sendi svarbréf þar sem m.a. var bent á þá augljósu staðreynd að ég ynni ekki fyrir fjármálafyrirtæki. Mér kæmi bankaleynd því ekki við.
Í gær fékk ég svo staðfest að Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari var þá, löngu áður, búinn að afgreiða mitt mál. Hann tilkynnti FME þá ákvörðun sína að aðhafast ekkert frekar í mínu máli með bréfi sem sent var stofnuninni 18. febrúar. Jafnframt benti Ólafur FME á að stofnunin gæti kært þessa ákvörðun hans til ríkissaksóknara innan mánaðar ef hún vildi ekki una henni. FME lét þann frest líða án þess að kæra.
Þrátt fyrir þetta heldur FME áfram að narta í hælana á mér og fjórum öðrum blaðamönnum sem fjallað hafa um upplýsingar úr bankakerfinu. Samkvæmt lögum á FME að ljúka málum annað hvort með stjórnvaldssekt eða með því að vísa alvarlegum brotum til lögreglu. Í mínu tilfelli var FME búin að velja seinni kostinn og lögreglan neitaði að aðhafast í málinu. Ef til vill þótti lögregluvaldinu, Ólafi sérstaka - eins og mér - að brýnni verkefni biðu.
FME vildi ekki gefast upp í þessari baráttu við blaðamennina. Í júní fékk stofnunin Eirík Tómasson, lögmann til þess að semja álitsgerð um það hvað ætti að gera við þessa ,,brotamenn" - blaðamennina fimm. Á grundvelli þessarar álitsgerðar (sem ekki fæst opinberuð) tók FME það til bragðs, í byrjun ágúst, að senda mál okkar til Valtýs Sigurðssonar, ríkissaksóknara.
Valtýr var ekki lengi að henda þessari heitu kartöflu frá sér og skilaði því snemmendis til Björns L. Bergssonar, sérstaks setts ríkissaksóknara. Þetta er sum sé fyrsta úrlausnarmál Björns. Hann hefur annars það hlutverk að ákæra í málum sem eru rannsökuð hjá Ólafi Þór Haukssyni, sérstökum saksóknara.
Hvað á Björn svo að gera við málið mitt? Ólafur Þór, lögregluarmur Björns, ákvað fyrir sex mánuðum að aðhafast ekkert frekar í mínu máli. Fresturinn til að kæra þá ákvörðun rann út fyrir fimm mánuðum. En FME gefst ekki upp.
Maður ætti auðvitað ekki að gera annað en hlægja að þessum skrípaleik. Ég hef ekki í annan tíma séð jafn einbeittan brotavilja hjá stjórnvaldi gagnvart málsmeðferðarreglum og heilbrigðri skynsemi. Það sem vekur reiði hjá mér er að þessi mál eru sett í forgang þegar samfélagið allt er enn lamað eftir verstu hörmungar sem hafa dunið yfir í hagsögu lýðveldisins. Maður hallast að því að þessum mönnum sé ekki viðbjargandi.
Ég hef þurft að eyða tíma í þessa helvítis vitleysu á meðan ég ætti að vera að sinna öðrum og brýnni verkefnum. Hver ætlar að borga mér fyrir þá vinnu? Hver ætlar að axla ábyrgð á þeim lögmannskostnaði sem fylgt hefur þessu stússi? Þess utan: Hver ber ábyrgð á því að þessi skrípaleikur hefur skaðað tiltrú á Fjármálaeftirlitinu og mögulega einnig embættum sérstaks saksóknara og sérstaks ríkissaksóknara?
Ég set þessa nótu hérna inn til að halda þessu til haga en þessi brandari er fyrir löngu hættur að vera fyndinn."
Já, þessi brandari er vissulega löngu hættur að vera fyndinn - sem og aðrir "brandarar" sem lúta að þöggun fjölmiðla. Svo virðist sem margir aðilar sameinist um að kæfa sannleikann í fæðingu, líklega vegna þess hve hroðalega ljótur hann er og hvað hann getur komið mörgum illa. Skemmst er að minnast þegar 365-miðlar ákváðu að krefja stjórnendur fréttastofa og ritstjórna um bætur sem dæmdar eru í málsóknum gegn fjölmiðlunum. Það á að gera boðbera sannleikans ábyrga fyrir brotinu sem þeir segja frá - þannig horfir þetta við mér.
Björgólfsfeðgar, ábyrgðarmenn Icesafe og fleiri hörmunga, voga sér að stefna fyrir fréttir af meintum brotum þeirra gegn íslensku þjóðinni og Wernersbræður, sem rústuðu meðal annars Sjóvá og höguðu sér eins og hér er lýst, dirfast að gera slíkt hið sama. Ef horft er til dóma í t.d. meiðyrðamálum klámkóngsins Geira á Goldfinger sem hefur nú ekki mikinn orðstír að verja, gegn fjölmiðlafólki þar sem honum hafa verið dæmdar ótrúlega háar bætur miðað við t.d. bætur sem fórnarlömbum nauðgana og misþyrminga eru dæmdar - ja... þá er ekki von á góðu frá íslensku dómskerfi. Höfum í huga í því sambandi hvernig skipað hefur verið í dómaraembætti undanfarna áratugi.
Hvernig getum við varið málfrelsið, tjáningarfrelsið - og sannleikann? Hvernig er komið fyrir samfélagi sem hindrar fjölmiðla í að gera skyldu sína: Segja sannleikann? Enn og aftur minni ég á orð Aidans White, framkvæmdastjóra alþjóðasamtaka blaðamanna, um þátt fjölmiðla í aðdraganda efnahagshrunsins, ábyrgð þeirra og hlutverk í uppbyggingunni: "Ein aðallexían sem á að koma út úr öllu þessu hræðilega ferli er sú, að fjölmiðlar eiga að tala máli þjóðfélagsins í heild. Þeir eiga að gegna þjóðfélagslegu hlutverki, vernda hagsmuni fólksins." Hvernig geta þeir það ef þeir eru beittir þöggun eins og lýst er hér að ofan - bæði af stjórnkerfinu og dómstólunum?
Aidan White í Kastljósi 28. maí 2009
Aidan White í fréttum Stöðvar 2 - 28. maí 2009
Bloggar | Breytt 13.9.2009 kl. 01:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (40)
4.9.2009
Að vera eða ekki vera... á Gíslandi
Systursonur minn sendi mér slóð að bréfi sem birtist í Lúgunni á Eyjunni í fyrradag. Bréfritarinn, Brynleifur Siglaugsson, stendur frammi fyrir erfiðri ákvörðun og skrifar þetta einlæga og blátt áfram bréf, sem stærstur hluti þjóðarinnar getur eflaust tekið undir. Sársaukinn nísti og mig verkjaði í hjartað.
Ég hugsaði með mér hvort þingmenn og ráðherrar læsu það og rynni blóðið til skyldunnar. Hvort útrásardólgar, bankastjórnendur, skilanefndarmenn, auðlindasalar, spilltir stjórnmálamenn og aðrir sem bera ábyrgð á örvæntingu þjóðarinnar, læsu það og skömmuðust sín. Ég spurði sjálfa mig hvort íslenska prestastéttin, sem á að heita sálgæslustéttin okkar en hefur þagað þunnu hljóði að mestu eftir hrunið, læsi það. Hvort forseti Íslands, sem hefði átt að stappa stálinu í þjóðina og sameina hana, læsi það.
Ekkert bólar á stuðningi við almenning sem hefur þurft að sæta eignaupptöku, er að kikna nú þegar undan aukinni skuldabyrði, skattahækkunum, almennum kostnaðarhækkunum og blöskrar svívirðilegt óréttlætið. Á meðan eru skuldir auðmanna afskrifaðar, kvótakóngar sleppa undan skuldum, skipta jafnvel bara um kennitölu og halda kvótanum. Við horfum upp á siðspillta braskara selja frá okkur hænuna góðu sem verpir auðlindagulleggjunum. Þetta er veruleiki almennings á Íslandi í dag. Það er verið að gera okkur að öreigum á meðan auðjöfrarnir sleppa, halda öllu sínu og fá restina á brunaútsölu.
Ég ákvað að gera mitt til að láta rödd Brynleifs hljóma, fletti honum upp í skránni og hringdi í hann með kökk í hálsi. Hann veitti mér góðfúslegt leyfi til að gera það sem ég vildi með bréfið. Ég bið alla sem vettlingi geta valdið að dreifa þessu bréfi - helst að tryggja að það komi fyrir sjónir allra Íslendinga. Rödd Brynleifs verður að hljóma hátt, snjallt og víða því hann talar fyrir munn svo ótalmargra Íslendinga með brostnar vonir og blæðandi hjarta. Almennings sem hrópar á réttlæti.
Ég las bréfið hans Brynleifs í pistlinum mínum á Morgunvaktinni í morgun. Hljóðskrá viðfest neðst að venju.
Ágætu hlustendur...
Ég las bréf á netmiðlinum Eyjunni í fyrradag. Eftir lesturinn sat ég sem lömuð og tárin trilluðu niður kinnarnar. Bréfritarinn heitir Brynleifur Siglaugsson og hann gaf mér leyfi til að lesa bréfið fyrir ykkur. Yfirskriftin er:
Að vera eða ekki vera... á Gíslandi
"Í dag tek ég ákvörðun sem ég hef mikið og lengi hugsað um, ætla ég að vera eða ekki vera. Ég asnaðist á sínum tíma til að læra og ná mér í öll réttindi í þeirri atvinnugrein sem ég hafði mest gaman af. Vinnu sem ég naut og skapaði í eitthvað sem ég gæti verið stoltur af á efri árum. Ég hef unnið við þetta fag síðan ég var 16 ára, alls í 23 ár. Aldrei skort verkefni og aldrei verið í þeirri stöðu sem ég er í núna. Ég kann ekki á kerfið og vil ekki læra hvernig ég get haft það "gott" á bótum.
Í dag þarf ég að ákveða hvort ég sé syni mína, sem eru mér kærari en allt annað í lífinu, eingöngu í gegnum tölvuskjá næstu mánuðina og árin. Hvort ég get ekki boðið þeim góða nótt með kossi og fylgst með lífi þeirra og leik nema í gegnum símtöl við þá og móður þeirra. Þeir munu ekki getað leitað til mín með sínar spurningar eða fengið að hitta mig nema á margra vikna fresti. Það á eftir að vera erfitt, bæði fyrir þá og mig. En ef ég vil skapa þeim bjartari framtíð en við sjáum fram á hér, verð ég að fara. Fara burt frá fólkinu, landinu og lífinu sem ég á hér.
Það eru svo sem engin endalok, en það er samt ekki það sem við eigum að þurfa að gera. Að geta ekki séð fram á að hafa vinnu, geta séð fyrir sér og börnunum. Að horfa fram á að lífskjörin fari sífellt niður á við, aukning á drykkju og fíkniefnaneyslu, horfa uppá eldra fólk og öryrkja snupraða með endalausum niðurskurði til þeirra sem byggðu upp þetta land okkar. Menntun skorin niður og heilbrigðiskerfið skemmt og niðurlægt. Það er bara ekki það sem ég hef áhuga á. Ég gæti líka farið út á land og fengið mér vinnu þar í fiski eða öðru, það er ekkert að því, en þá get ég ekki gert það sem mér er mikilvægast - að byggja upp og skapa. Launin myndu örugglega vera þokkaleg með mikilli vinnu, en með sífellt hækkandi sköttum og meiri dýrtíð yrði það ekki það líf sem ég kýs.
Ég hef engan áhuga á, að láta misvitra og misdrukkna menn og konur á þingi taka ákvörðun um framtíð barnanna minna. Ég hef engan áhuga á, að láta þetta sama fólk skerða öll lífskjör í landinu til þess eins að halda áliti erlendra kröfuhafa og stjórnvalda, þar sem peningar eru mælikvarði á allt. Horfa uppá landið selt burt, horfa uppá sömu glæpamennina sitja áfram við kjötkatlana í bönkunum og pota bitlingum til vina og vandamanna. Álit umheimsins á Íslandi er einfalt: Við fórum fram úr okkur, létum gráðuga glæpamenn vaða uppi og skuldsetja skerið svo svakalega að við munum aldrei geta greitt skuldir þeirra - og við eigum ekki einu sinni að reyna það. Allt traust er farið á peningastjórnun hér. Það kemur ekki til baka þó að skrifað sé uppá lán sem við erum ekki og verðum aldrei borgunarmenn fyrir. Frekar á það eftir að halda áfram að versna í hvert sinn sem það verður fréttnæmt að Íslendingar standi ekki við samninginn.
Það hefur löngum verið landlægt hér að fresta skuldunum, lengja í þeim og ýta öllu aftur fyrir. Er ekki komið nóg af því? Ég er viss um að álit umheimsins á okkur myndi stóraukast ef við bara viðurkenndum staðreyndir og horfðum á hlutina eins og þeir eru og viðurkennum vanmátt okkar. Tökum skellinn núna og notum næstu ár í að byggja upp trúverðugleika sem byggir á staðreyndum en ekki enn einni bólunni. Það verður erfitt en við getum þá allavega byrjað með hreint borð en ekki langan ósigrandi hala á eftir okkur.
Hreinsum til í yfirbyggingunni sem er að sliga stjórnkerfið, opnum það og höfum það gagnsætt. Losum okkur við sníkjudýrin sem eru búin að hreiðra um sig í kerfinu. Þetta er lítið land, byggt af mjög duglegu fólki en ekkert fyrirtæki getur gengið með þvílíku magni af smábossum og afætum sem skapa ekkert nema heimatilbúin vandamál. Ég ætla ekki að bjóða mínum börnum uppá að gerast þrælar fyrir erlenda fjármagnseigendur, það er ekki í boði. Og ég veit að það sama á við um mjög marga aðra. Frekar fer ég burt og byggi mína og þeirra framtíð þar sem yfirvöld þekkja sín takmörk, þar sem fólk er metið, ekki eftir greiðslugetu heldur líka sem lifandi verur."
Brynleifur tók ákvörðun - hann er að flytja úr landi.
Ég óska Brynleifi alls hins besta og vona að ástandið batni fljótt svo hann geti komið sem fyrst aftur til strákanna sinna. En ég er ekki mjög vongóð miðað við hvernig verið er að fara með landið okkar.
Sorglegt, en satt - Halldór Baldursson í Mogganum 1. september 2009
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (29)
4.9.2009
Guð blessi Ísland
Fyrsta heimildamyndin um hrunið verður frumsýnd eftir rúman mánuð, 6. október. Nákvæmlega ári eftir að Geir flutti ræðuna frægu í sjónvarpinu. Þær eiga eftir að verða fleiri, heimildamyndirnar, en þessi er eftir Helga Felixson. Ég hlakka mikið til að sjá hana.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
3.9.2009
Söguskoðun uppistandara
Öllu gríni fylgir nokkur alvara er sagt. En ekki fylgir allri alvöru grín, svo mikið er víst. Hér er nýjasti uppistandari Íslendinga í fínu formi með sína einkasöguskoðun.
Söguskoðun uppistandara Íslands
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
2.9.2009
Salvör og spurningin góða
Salvör Kristjana Gissurardóttir heitir kona og er alveg frábær. Býr yfir gnótt heilbrigðrar skynsemi, heiðarleika og gagnrýninnar hugsunar. Stórskemmtilegur bloggari. Í kvöld varpaði Salvör fram góðri spurningu á Fésbókinni sem ég flyt hér með yfir í bloggheima með von um að einhver geti svarað henni. Spurningin hljóðar svona:
"Getur einhver útskýrt fyrir mér hvers vegna það er góður díll fyrir íslensk orkufyrirtæki að selja hluta úr íslenskum orkuauðlindum fyrir dollarakúlulán sem er með lægri vöxtum en undirmálslánin í Bandaríkjunum á sama tíma og gjaldþrota íslenskir bankar hanga á einhverjum fataleppa og prentsjoppum í Bretlandi af því núna sé alls ekki rétti tíminn til að selja, það fáist svo lágt verð fyrir draslið í kreppunni?" Einhver...?
Bloggar | Breytt 3.9.2009 kl. 11:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
2.9.2009
Fáránlegur farsi
Sala Orkuveitu Reykjavíkur á hlut sínum í HS Orku til Magma Energy verður æ farsakenndari eftir því sem fleiri tjá sig um hana og reyna að verja hana. Mér finnst skelfilegt að horfa upp á þennan fáránleika. Það er deginum ljósara að þjóðin vill alls ekki einkavæða orkuframleiðsluna, sem er ein af grunnstoðum þjóðfélagsins. Að minnsta kosti ef marka má hljóðið í þeim sem tjá sig um málið. Þeir eru æfir.
Nú reynir á borgarstjórn Reykjavíkur. Þar ræður Sjálfstæðisflokkurinn ríkjum í hrossakaupasamstarfi við Framsóknarflokkinn. Sá örflokkur var næstum dottinn út úr borgarstjórn í síðustu kosningum en slefaði einum manni inn út á 4.056 atkvæði (af 64.895), eða rétt rúm 6%. Upphaflega var Óskar Bergsson aðeins í 3. sæti listans, en vegna óánægju eins og spillingar annars lenti hann í efsta sætinu og var til í að verða viðhald Sjálfstæðisflokksins - gegn gjaldi, vitaskuld. Meðal gullmolanna í herfangi Framsóknarmanna var að endurheimta Orkuveitu Reykjavíkur sem er, að því er virðist, akfeitur pólitískur bitlingur. Óskar skipaði vin sinn og flokksfélaga, sem var í 14. sæti á lista flokksins í Reykjavík, stjórnarformann OR og sá er nú að ráðskast með verðmætar eigur borgarbúa að eigin vild og flokksins. Við getum rétt ímyndað okkur hvað maður í 14. sæti hjá flokki með 6% atkvæða í kosningum hefur sterkt umboð frá kjósendum. En flokksbræður hans græða á orku og virkjunum - þeir eru margir í þeim bransa - og þá er ekkert spurt hvað sé almenningi fyrir bestu, eða hvað?
Ég sá frétt á Sky sjónvarpsstöðinni í gær þar sem rætt var við skuggaráðherra orkumála í Bretlandi. Hann var ómyrkur í máli og sagði að orkuskortur gæti farið að hrjá Breta innan 8 ára. Verið er að loka kolaorkuverum þar í landi vegna gróðurhúsaáhrifa og deilt er um hvað eigi að koma í staðinn. Ég horfði líka á viðtal á netinu, sem lesandi síðunnar benti mér á, við mann að nafni John Beddington, sem er vísindalegur ráðgjafi stjórnarinnar í Bretlandi og las svo líka viðtal við hann. Framtíðarsýn hans er ófögur og hann tengir saman fólksfjölgun í heiminum, fæðu- og vatnsskort, hnattræna hlýnun og - en ekki hvað - orkuskort.
John Beddington segir að eftirspurn eftir ferskvatni muni aukast um 30% og orku um 50% á næstu 20 árum. Getið þið ímyndað ykkur hvað verðið á eftir að hækka mikið á vatninu okkar og orkunni ef eftirspurnin eykst svona mikið og svona hratt? Svo eru nokkrir stjórnmála- og embættismenn að selja bæði vatnið og orkuna á tombóluverði - og lána meira að segja fyrir því líka! Við verðum að stöðva þetta fólk með öllum ráðum. Hér eru fréttir gærkvöldsins á RÚV. Þarna geislar fólk bókstaflega af útblásnum valdhroka. Þetta fólk hefur ekkert lært.
Eins og áður sagði reiknar John Beddington með því að eftirspurn eftir ferskvatni og orku aukist gríðarlega næstu áratugina. Hér er stuttur viðtalsbútur við hann sem fylgdi með netfréttinni. Hlustið á manninn!
BBC News - 24. ágúst 2009
Það er augljóst að auðlindir Íslendinga eiga eftir að verða verðmætari með hverju árinu sem líður, hvað þá hverjum áratugnum. En óhæfir og gjörspilltir flokksgæðingar enn spilltari stjórnmálaflokka ætla að svipta þjóðina arðinum af þessum auðlindum um ókomna framtíð með fáránlegum samningum við gráðuga menn. Nú þegar er búið að semja við álrisa um orkukaup á útsölu og alls kyns forréttindum. Og hverjir ætli borgi svo brúsann þegar upp er staðið nema almenningur þessa lands. Hvað þarf mikið til að fólki ofbjóði sukkið?
Hér er annað viðtal við John Beddington frá 13. ágúst í þættinum HardTalk á BBC. Sama þætti og Geir var í, munið þið? Þetta viðtal er mun lengra og ítarlega en hitt og hér fer Beddington nánar í svipaða hluti.
HardTalk á BBC - 13. ágúst 2009
Í Kastljósi í gærkvöldi var okkur sýndur farsakenndur fáránleiki málsins þar sem Guðlaugur stjórnarformaður OR og Dagur B. létu ljós sitt skína. Satt að segja var ég nákvæmlega engu nær eftir þennan farsa. Dagur var óundirbúinn og greinilega illa að sér í málinu. Ég hefði miklu heldur viljað sjá þarna Sigrúnu Elsu eða Þorleif, sem bæði sitja í stjórn OR, og hafa meiri þekkingu á þessu máli en Dagur virtist hafa. Og ég get ekki með nokkru móti sætt mig við að Guðlaugur sitji í þessu embætti og fremji slíka gjörninga umboðslaus með öllu.
Kastljós 1. september 2009
Í athugasemd sem Birgir Gíslason gerði við þennan pistil kom m.a. fram: " Miðað við það sem fram hefur komið í fjölmiðlum varðandi efni sölusamnings OR til Magma má draga saman þessa niðurstöðu um áhrif hans á rekstur OR. Það skal tekið fram að ég er ekki endurskoðandi, en það væri fróðlegt að fá álit endurskoðanda með þekkingu á uppgjörsreglum orkufyrirtækja.
Beint sölutap OR af þessum samningi er lauslega áætlað 4,211 milljarðar. Inn í þeirri upphæð er sölutap upp á 743 milljónir vegna kaupa OR og framsals á hlutum Hafnarfjarðarbæjar (95% hlutur þeirra í HS Orku).
Vaxtaberandi skuldir OR bera allt að 9.325% vexti á ári (sjá árshlutauppjör þeirra 30.06.2009). Miðað við þá vaxtabirgði félagsins má áætla að nettó vaxtakostnaður OR á hverju ári vegna láns á 70% kaupverðsins sé 657 milljónir á ári, eða 4,601 milljarður næstu 7 árin. OR er mjög skuldsett félag og þar sem kaupverðið er að meirihluta lánað þá getur OR ekki greitt niður aðrar skuldir sínar á móti, eru í raun að taka lán til að lána Magma,
ergo: Nettó vaxtakostnaður OR næstu 7 árin 4,601 milljarður.
Heildartap OR á sölu hlut sínum í HS Orku er því varlega áætlað 8,813 milljarðar króna eða 54% af heildarverðmæti hlutanna beggja (bókfært verð hlutanna beggja er 16,211 milljarðar en söluverðið er sagt vera 12 milljarðar).
Gengisáhætta OR af 8,4 milljarða (ca. 66.9 milljónir USD) láni til Magma er eftirfarandi: Ef gengi íslensku krónunnar styrkist um 10% gegn US dollar, þá þýðir það tap upp á 840 milljónir. Ef krónan styrkist um 20% er upphæðin 1,680 milljarðar. Það skal tekið fram að mjög miklar líkur eru á því að gengi krónunnar styrkist næstu 7 árin, út á það miðar efnahagsáætlun ríkisins og IMF.
Ég óska eftir því að stjórn OR og/eða fulltrúar eigenda félagsins (borgarfulltrúar) leiðrétti mína útreikninga ef þeir eru rangir, en svona lítur málið út miðað við þær fréttir sem stjórn OR hefur gefið út vegna þessarar sölu.
Ég spyr, ef útreikningar mínir eru réttir, eru hagsmunir eigenda OR borgið með sölu hlutabréfanna til Magma Energy núna, heildartap upp á 8,813 milljarð króna auk hugsanlegs gengistap ef krónan styrkist?
Að lokum vil ég benda á að óbeint eignarhald OR í HS Orku vegna veðs í hlutabréfunum er 22%. Samræmist það kröfu Samkeppnisstofnunar um að OR megi ekki eiga meira en 10% í félaginu? Er samningurinn því ekki brot á úrskurði Samkeppnisstofnunar og þar með ólögmætur? Hvernig hyggst stjórn OR tryggja að veðið rýrni ekki í virði?"
Ef við gefum okkur að Birgir hafi rétt fyrir sér er þetta með ólíkindum. Gengið þarf ekki að styrkjast nema um 10% til að OR tapi 840 milljónum! Talað hefur verið um stöðutöku gegn krónunni. Getur þetta ekki fallið undir það - og verið stöðutaka gegn OR, verðmætasta fyrirtæki Reykvíkinga, um leið?
Fjallað var um samninginn á borgarstjórnarfundi í dag. Baráttukonan Heiða B. Heiðars fór á pallana og sagan sem hún segir á blogginu sínu er mjög athyglisverð. Lýsir algjöru áhugaleysi sumra kjörinna fulltrúa borgarbúa á stórmálum eins og þessu. Heiða gat ekki orða bundist og lagði orð í belg á fundinum. Ég hengi hljóðskrá með athugasemd Heiðu af pöllunum neðst í færsluna. Það verða sveitarstjórnarkosningar næsta vor. Ef þessi samningur verður samþykktur í borgarstjórn verð ég fyrst til að minna á hann þegar kosningabaráttan hefst. Ég læt ekki stela af mér, samborgurum mínum og afkomendum okkar þegjandi og hljóðalaust. Mig grunar að ég verði ekki ein um það.
Viðbót: Þessi pistill Stefáns Snævarr er nauðsynleg og umfram allt holl lesning.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
31.8.2009
Rifjum aðeins upp...
Þóra Arnórsdóttir um Enron : The Smartest Guys in the Room
Silfur Egils 1. mars 2009
Enron : The Smartest Guys in the Room
1. hluti
2. hluti
3. hluti
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
31.8.2009
Landráð af vítaverðu gáleysi?
Í dag rennur út frestur sá er Magma Energy veitti ríkinu til að íhuga sölu á hlut Orkuveitu Reykjavíkur í HS Orku. Mér er fyrirmunað að skilja af hverju nokkrir Reykvíkingar, Hafnfirðingar og Reyknesingar geta ekki sest niður og samið um málið sín á milli í stað þess að ganga að fráleitu kauptilboði Magma. Hafa samráð við Samkeppnisstofnun og leysa málið. Þetta eru jú allt Íslendingar fyrst og fremst og þeim ber skylda til að halda auðlindinni í þjóðareigu. Ég hef skrifað mikið um þetta mál í sumar og síminn hefur ekki stoppað hjá mér og tölvupósti rignt yfir mig. Fólk er að vakna til vitundar um hvað er að gerast þarna - og það eru skelfilegir hlutir.
Skoðanir fólks á málinu má til dæmis sjá í fréttum Eyjunnar sem hefur verið duglegt að fjalla um auðlindasöluna undanfarið. Ég bendi t.d. á þessa frétt, þessa, þessa og þessa. Og ég hvet alla til að lesa athugasemdirnar við allar þessar fréttir. Í þeim kemur ótalmargt fróðlegt fram. Flokksráð VG ályktaði um að HS Orka ætti að vera í samfélagslegri eigu, en Samfylkingin virðist ekkert skipta sér af málinu eða veita ráðherrum sínum nokkurt aðhald. Einstaklingar innan flokksins hafa tjáð sig um það, t.d. Ólína og Dofri. Að öðru leyti virðist Sigrún Elsa, fulltrúi Samfylkingarinnar í stjórn OR, fá lítinn stuðning við sinn málflutning, a.m.k. opinberlega.
Tveir af yngri kynslóð Samfylkingar skrifuðu hvor sína greinina um málið fyrir helgi. Magnús Orri telur að þrátt fyrir samning á ystu nöf ef ekki beinlínis ólöglegan milli Reykjanesbæjar og HS Orku, eigi ríkið ekki að stíga inn í kaup Magma og hindra söluna. Skúli Helgason skrifar bloggpistil í sama dúr og athyglisvert er að lesa athugasemdirnar við hann. Þar endurspeglast skoðun fólks á þessum gjörningi prýðilega. Skúli ber því m.a. við að ríkið eigi ekki þessa 12 milljarða sem um ræðir. Bíðum við... Hér kemur fram að það kosti 13-14 milljarða að ljúka við tónlistarhúsið. En það eru ekki til 12 milljarðar til að halda afnotum af einni gjöfulustu orkuauðlind Íslendinga í meirihlutaeigu almennings. Er ekki eitthvað öfugsnúið við þennan forgang? Má ég þá heldur biðja um að tónlistarhúsinu verði frestað og haldið verði í auðlindir okkar, þótt ekki sé nema vegna komandi kynslóða. Við höfum ekkert leyfi til að einkavæða eða selja þær frá afkomendum okkar. Samfylkingin vill selja.
Svo er mér hugleikin sú spurning hver á Geysir Green Energy, hinn eiganda HS Orku sem mun líklega sameinast Magma ef af kaupunum verður. Hér fór ég yfir eignarhald GGE og fæ ekki betur séð en þetta sé skel utan um gjaldþrota menn og fyrirtæki, væntanlega í umsjá skilanefnda bankanna. Við vitum að margt er undarlegt við skilanefndirnar og þær virðast frekar hafa hagsmuni vina, vandamanna, klíkubræðra og samflokksmanna að leiðarljósi en hagsmuni þjóðarinnar. Hvernig í ósköpunum stendur á því að skilanefndirnar eru ekki búnar að ganga að veðum eigenda Geysis Green Energy og yfirtaka reksturinn? Hvernig í ósköpunum stendur á því að gjaldþrota auðmönnum er leyft að ráðskast með auðlindirnar okkar og selja þær til að redda sjálfum sér fyrir horn og halda í sveitasetrin, snekkjurnar og ljúfa lífið? Getur einhver svarað því? Vill einhver rannsóknaraðili svo gjöra svo vel að fara ofan í saumana á fjármálum vissra stjórnmálamanna, bæjarstjóra, forstjóra og fleira fólks sem að auðlindasölunni standa? Athuga bankareikninga þeirra hérlendis og erlendis, möguleg skúffufyrirtæki í þeirra eigu og fleira í þeim dúr? Takk fyrir.
Forstjóri Magma Energy, Ross Beaty, var í Kastljósviðtali í síðustu viku. Hann skrúfaði frá kanadíska sjarmanum, elskaði land og þjóð og vildi endilega hafa hagsmuni okkar að leiðarljósi þegar hann, og skúffufyrirtækið sem hann notar til að komast bakdyramegin inn, fengi kúlulánið hjá OR til að kaupa HS Orku. Ég var búin að lesa mér svo mikið til um manninn og málefnið að mér varð beinlínis óglatt við að hlusta á hjalið í honum. Og ég hefði viljað fá miklu gagnrýnni spurningar. Ef ég hef einhvern tíma séð úlf í sauðargæru var það þegar ég horfði og hlustaði á þetta viðtal.
Kastljós 26. ágúst 2009
Ég skrifaði Bréf til Beaty og flutti það á Morgunvakt Rásar 2 á föstudaginn. Vonandi hefur einhver þýtt það fyrir hann en ef það hefur farið fram hjá hinum íslensku aðstoðarmönnum hans þá bæti ég úr því hér. Ross Beaty segist nefnilega vilja kaupa auðlindirnar í sátt við íslensku þjóðina. Ekki vera í stríði við neinn. Ef aðstoðarmenn hans eru starfi sínu vaxnir þýða þeir allar athugasemdir við fréttirnar sem ég benti á hér að ofan, sem og annað sem skrifað hefur verið um málið. Hljóðskrá er viðfest neðst að venju.
Ágætu hlustendur...
Ef ykkur er sama ætla ég ekki að tala til ykkar í dag. Ég ætla að ávarpa Ross Beaty, forstjóra Magma Energy, sem vill ólmur krækja í orkuauðlindirnar okkar. Hann var í viðtali í Kastljósinu í fyrrakvöld og ég fékk ofbirtu í augun frá geislabaugnum sem hann hafði fest yfir höfði sér fyrir viðtalið. En hér er bréf til Beaty.
Sæll vertu, Ross,
Þú varst flottur í Kastljósinu, maður. Tungulipur, ísmeygilegur og útsmoginn. Örugglega hafa einhverjir látið glepjast af sjarmerandi yfirborðinu og fagurgalanum. En ekki náðirðu að hrífa mig. Ég sá bara úlf í sauðargæru. Einhver virðist hafa sagt þér frá andstöðunni gegn áætlunum þínum í íslensku samfélagi. Ummæli þín um að þú hafir heillast af Íslandi frá fyrstu sýn voru afar ósannfærandi. Haft er eftir þér í viðtölum erlendis að þú njótir þess að skapa auð fyrir þig og hluthafana þína. Að þú farir fram úr á morgnana til að græða. Vertu bara ærlegur og segðu eins og er: að þú hafir heillast af gróðamöguleikum auðlindanna á Íslandi. Það væri bæði heiðarlegra og sannara.
Yfirlýsingar þínar um jarðhitaorku í ýmsum viðtölum eru alveg ótrúlegar. Sem jarðfræðingur áttu til dæmis að vita, að jarðvarmi er ekki endalaus og eilífur eins og þú segir í einu viðtalinu og nú hef ég eftir þér í lauslegri þýðingu: "...Ég held að jarðvarmi sé eitt besta svarið við orkuskortinum. Hann er hreinasta form orku, ódýrasta, hann er stöðugur og forðinn er ókeypis... Þetta er bara ofboðslega frábær bissness. Jarðvarminn er eilífur og tiltækur víða í heiminum." Ross þó! Maður með jarðfræðimenntun á að vita að endurnýjanleikinn er háður jarðfræðilegri óvissu og endingin fer eftir því hve mikið og hratt auðlindin er nýtt. Og af því þú lifir fyrir að gera sjálfan þig og vini þína ríka, áttu líka að vita að enginn verður ríkur á að nýta orkuna eins og á að gera - skynsamlega.
Einn af okkar fremstu jarðvísindamönnum, Stefán Arnórsson, sagði í útvarpsviðtali fyrir nokkru að tvö sjónarmið væru ríkjandi um nýtingu jarðvarma. Annað er að nýta hann með hámarkságóða í huga yfir ákveðið tímabil og þá er gjarnan miðað við afskriftatíma mannvirkja sem nýta orkuna. Hitt er að nýta hann með sem næst sjálfbærum hætti þótt full sjálfbærni náist aldrei. Það er hins vegar hægt að hafa það að leiðarljósi, að auðlindirnar nýtist sem lengst - ekki aðeins núlifandi kynslóðum heldur komandi kynslóðum einnig. Þegar upp er staðið er það siðferðileg spurning hvort sjónarmiðið er haft að leiðarljósi. Þetta sagði Stefán. Kjarni málsins er siðferði, Ross, og við vitum að græðgina skortir allt siðferði.
Þú ert ekki kominn til Íslands til að vera eins og þú sagðir í Kastljósi. Þú vinnur ekki þannig. Þú ert hingað kominn til að gera viðskiptasamning sem tryggir þér afnot af verðmætri auðlind til 130 ára. Þú ætlar að búa til söluvarning - eftirsóknarvert viðskiptamódel - selja svo hæstbjóðanda og græða feitt. Kannski selurðu Kínverjunum sem keyptu námurnar þínar, hver veit? Mér þætti líka fróðlegt að vita hvort það er tilviljun að þú hefur verið með námur í ýmsum löndum þar sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur verið að væflast.
Nei, ég hreifst ekki af hjali þínu í Kastljósi og bið þig lengst allra orða að hverfa af landi brott tómhentur sem allra fyrst. Hér mun aldrei ríkja friður um auðlindakaup þín. Við Íslendingar höfum fengið meira en nóg af spákaupmönnum og gróðapungum og græðgi þeirra.
Vertu blessaður.
Eru auðlindirnar okkar ekki sexí?
VARÚÐ - Nýtt REI-mál í uppsiglingu
Svikamyllan á Suðurnesjum
Hin fallna þjóð og afsal auðlinda
Fjöregginu fórnað
Auðlindir á tombólu
"Þetta snýst allt um auðlindir"
Salan á auðlindum Íslendinga er hafin
Hafa ráðamenn ekkert lært?
Stórslys í uppsiglingu á Suðurnesjum
Agnar Kristján:
Einka(vina?)væðing HS
Skuggaverk á Suðurnesjum I
Skuggaverk á Suðurnesjum II
Spurningar varðandi tilboð Magma og ársreikning HS
Alda Sigmundsdóttir:
While we're looking the other way...
More on that ludicrous Magma HS Orka deal
Magma Energy and the second coming
Ótal pistlar hjá Hannesi Friðrikssyni
Ég stóðst ekki mátið að hafa orðið landráð í fyrirsögn þessa pistils, þótt það sé mér ekki tamt í munni, vegna þessarar bloggfærslu Egils Helga og athugasemdanna þar. Mér finnst enda kominn tími til að skilgreina þetta orð og hvað það raunverulega merkir.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (24)